Tíminn - 11.02.1973, Blaðsíða 29

Tíminn - 11.02.1973, Blaðsíða 29
Sunnudagur 11. febrúar. 1973 TÍMINN 29 samþ. aðalfundar, og eru þvi deild i deildinni samkvæmt mis- skilningi veiðimálastjórnar. 1 samþykktum, sem þröngvað hef- ur verið upp á okkur bæði um Fiskiræktarfélag 1963 og veiði- félag 30. april ’72 hefur verið tekið fram, að veiði og framkvæmda- mál Langár og Urriðaár væru al- veg aðskilin. Einar Jóhannesson Jarðlangsstöðum. Hér með fylgja afrit af áður- nefndum bréfum veiðimála- nefndar til landbúnaðarráðu- neytisins um málefni Langár: 16. nóvember 1972 Landbúnaðarráðuneytið, Reykjavik. 1 bréfi Jóhannesar Guðmunds- sonar, formanns Veiðifélags Langár og Urriðaár, dags. 6. júni s.l. er óskað staðfestingar á sam- þykkt félagsins, sem gengiö var frá á stofnfundi þess 30. april 1972. Veiðimálanefnd og veiðimála- stjóri vilja með tilvisun til 52. greinar laga nr. 76/1970 um lax- og silungsveiði mæla með stað- festingu á meðfylgjandi sam- þykkt Veiöifélags Langár og Urriðaár, sem fékk rétta meðferð að dómi undirritaðra á stofnfundi félagsins i Borgarnesi 30. april 1972. Véfengt hefur verið að nefnd samþykkt sé lögmæt vegna ófull- nægjandi boðunar fundarins, sbr. bréf Einars Jóhannessonar, bónda Jarðlangsstöðum, dags. 26. ágústs.L, sbr. bréf hins háa ráðu- neytis, dags. 9. október s.l. í bréfi formanns Veiðifélags Langár og Urriðaár, dags. 6. júni s.l. er tekiö sérstaklega fram, að láðst hafi aö auglýsa fundinn i útvarpi eins og ætlast sé til. Hinsvegar hafi allir hlutaðeigendur mætt á fundinum, enda hafi þeir allir fengið skrif- lega boðun fundarins i hendur. Að öðru leyti skal visað til bréfs undirritaðra til hins háa ráðu- neytis, varðandi félagsmál við fyrrnefnt vatnasvæði, dags. i dag. Viröingarfyllst Veiðimálanefnd, Þór Guðjónsson, veiðimálastjóri. Arni Jónasson, formaður.” ,,16. nóvember 1972. Landbúnaðarráðuneytið, Reykjavik. 1 bréfi hins háa ráðuneytis, dags. 9. október 1972 er óskað at- hugunar á erindi Einars Jó- hannessonar, bónda Jarðlangs- stööum, með bréfi dags. 26. ágúst s.l. þar sem hann véfengir lög- mæti stofnunar veiðifélags um Langá og Urriðaá, sem felst i samþykkt þess, sem gengið var frá á stofnfundi félagsins 30. april 1972. Ennfremur fylgdi bréf sama aðila, dags. 15. september ásamt fylgiskjali, er voru undirskriftir veiðieigenda við Langá, sem fólu i sér ósk um heimild þeim til handa að stofna veiðifélag, er tæki til Langár án Urriðaár. Veiðimálanefnd og veiðimála- stjóri fjölluðu um ofangreint er- indi á fundi sinum 3. þ.m. og gerðu samþykkt i málinu, þar sem mælt er með staðfestingu á samþykkt Veiðifélags Langár og Urriðaár, sem gengið var frá á stofnfundi félagsins, sem haldinn var i Borgarnesi 30. aprfl 1972. Eins og hinu háa ráðuneyti er kunnugt um, hefur fiskræktar- félag starfað við vatnasvæði Langár og Urriðaár um 12 ára skeið. Með endurskoðun á lax- veiðilöggjöfinni 1970 féllu ákvæði um fiskræktarfélög niður, en ný ákvæði komu inn, að mönnum sé skylt að gera með sér félagsskap um skipulag veiði i hverju fiski- hverfi, svo fljótt, sem kostur væri. Með bréfi veiðimálastjóra, dags. 15. marz 1971, er hér fylgir ljósrit af, var Fiskræktarfélagi Langár og Urriðaár gerð grein fyrir breyttum viðhorfum og for- ráðamenn félagsins hvattir til þess að stofna veiðifélag um vatnasvæðið. Málefni þetta var áréttað með bréfi veiðimála- stjóra, dags. 7. april 1971 til Fisk- ræktarfélagsins, en þar var rætt Við Langavatn. nánar um félagssvæði fyrir- hugaös Veiðifélags Langár og Urriðaár. Mál þessi voru i deiglu hjá for- ráðamönnum fiskræktarfélagsins og i höndum sérstakrar nefndar. Veiðimálastjóri fékk að fylgjast með undirbúningi mála og kom á framfæri athugasemdum og til- lögum um framkvæmdir, svo sem ljósrit af meðfylgjandi bréfum til formanns Fiskræktarfélagsins, dags. 17. sept. og Hafsteins Sigurðssonar, hrlm., nefndar- manns i laganefnd, dags. 8. september 1971, sýna ljóslega. Sömuleiðis bréf til Hafsteins Sigurðssonar, hrlm. dags 29. október 1971. Af fyrrnefndum gögnum er ljóst, að forráðamenn við Langá og Urriðaá vissu að sækja þyrfti um leyfi til stofnunar veiðifélags, að eitt félag yrði að vera um alit vatnasvæðið frá ósi i sjó og svo langt upp, sem fiskur gengi i Urriðaá annarsvegar og Langá hinsvegar. Heimilt væri að taka alla Langaá ásamt Langárvatni, enda þótt ekki væri fiskgengt, ef ætlunin væri að gera fiskgengt um alla Langá. Til viðbótar og nánari skýring- ar skal þess getið, að ósasvæði Langár er liklega rúmlega 6 km að lengd frá ármótum hennar og Urriðaár. Fer þvi laxa- og göngu- silungsstofn beggja ánna um þetta svæði og þvi um sama fiski- hverfi að ræða. Af þessu leiðir að þær jarðir, sem land eiga að ósa- svæðinu eiga hlutdeilcf i fiskstofn- um beggja fyrrnefndra áa. Verð- ur þvi ekki séð, hvernig hægt er að komast hjá þvi að hafa fyrr- nefnt svæði i einu félagi, nema brjóta ákvæði 1. liðar a. 45. grein- ar laga nr. 76/1970 um lax- og silungsveiði, sbr. ákvæði 3. liðar sömu greinar um að félag nái svo langtupp með vatninu, sem veiði er stunduð. Þegar gögn varðandi stofnun Veiðifélags Langár, sem gerst hafði 31. október 1971, bárust undirrituðum, var af augljósum ástæðum og fyrr hefur verið vikið að, vakin athygli forráðamanns veiðieigenda á ólögmæti þessarar aðgerða. Þetta var gert með bréfi til Jóhannesar Guðmundssonar, bónda, Anabrekku, dags. 30. desember 1971, sem hér fylgir ljósrit af. Samtimis var gefið út leyfi til stofnunar veiðifélags um framangreint svæði, þ.e. Langá og Urriðaá, en efri mörk félags- .svæðis við Langá voru i samræmi við óskir veiðieigenda, sbr. fund- inn 31. október 1971. Jafnframt var eigendum við Urriðaá, sem óskaö höfðu eftir leyfi til stofnun- ar veiðifélags um Urriðaá gert grein fyrir viöhorfum undirrit- aðra með bréfi, dags. 30. desember 1971, sem hér fylgir ljósrit af. 1 fyrrnefndu bréfi Einar Jó- hannessonar, dags. 26. ágúst s.l. er þess getið að stofnfundur Veiöifélags Langár og Urriðaár hafi veriöólöglega boðaður. Þetta mun rétt vera hjá bréfritara, en hinsvegar liggur ljóst fyrir að all- ir hlutaöeigendur voru mættir á stofnfundinn og verður þvi að telja að fundurinn hafi verið hæf- ur til þess að taka lögmætar ákvarðanir. Vegna ummæla bréfritara um að í drögum að samþykkt hafi ekki verið taldar upp allar jarðir á félagssvæðinu, skal þess getið að i samþykkt veiðifélagsins, sem gengið var frá á fundinum eru all- ar jarðir, sem aðild eiga að nefndu svæði. Eru þá taldir með tveir hreppar, sem lönd eiga að efri hluta svæðisins, þ.e . Álfta- neshreppurog Borgarhreppur, en oddvitar þeirra mættu á stofn- fundinum, svo sem venja er undir þessum kringumstæðum. Þá vekur bréfritari athygli á þvi, að eigendur Langár hafi áður óskað eftir að stofna veiðifélag um Langá án Urriðaár og Langa- vatns. Skal visað til þess, sem áð- ur segir almennt um veiðimál við Langá og Urriðaá hér að framan. Hið sama gildir um svar við 5. lið i bréfi Einars Jóhannessonar að öðru leyti en það i þessum lið, sem snýst um málefni Gufuár, er fellur i Hvitá i Borgarfirði. Um- mæli bréfritara i þvi efni byggj- ast á ókunnugleika og misskiln- ingi. 1 undirbúningi hefur verið að breyta Fiskræktarfélagi Hvitár, er tekið hefur til Hvitár og allra þveráa hennar, i Veiðifélag. Er vist að það veiðifélag mun starfa i deildum og yrði Gufuá ein deildin i sliku heildarfélagi. Að framansögðu ætti að vera óþarfi að taka fram, að Veiði- málanefnd og veiðimálastjóri sjá enga ástæðu til að fallist sé á ósk bréfritara um að samþykkt margnefnds veiðifélags frá 30. april s.l. verði ógild gerð, eins og bréfritari vill, og leyfð verði stofnun veiöifélags um Langá án Urriöaár og Langavatns. Skal þvi lagt til að framan- greindum málatilbúnaði Einars Jóhannessonar, Jarölangsstöðum verði hafnað með öllu og beiðni hans og annara veiðieigenda við Langá, dags. i Borgarnesi 10. september 1972 verði synjað. Að öðru leyti skal visaö til bréfs undirritaðra, dags. i dag, varð- andi meðmæli með að samþykkt fyrrnefnds veiðifélags hljóti stað- festingu. Fylgiskjölin endursendast hér með. Virðingarfyllst, Veiðimálanefnd, Þór Guðjónsson, veiðimálastjóri. Árni Jónasson, formaður.” FISCHER SKIÐI Fyrsta sending seldist upp - Vorum að taka upp nýja sendingu Gönguskíði og allur annar skíðaútbúnaður LANDSINS MESTA ÚRVAL Póstsendum um land allt SPORT&4L cHEEMMTORGi

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.