Tíminn - 11.02.1973, Blaðsíða 27
Sunnudagur 11. febrúar. 1973
TÍMINN
27
„Þvi miður sonur sæll, þú verður aldrei knatt-
spyrnumaður” — sagði Sir Stanley Matthews við
Ray Kennedy, þegar honum var sparkað frá Port
Vale.
(viö erum beztir), allt kvöldið,
alla nóttina og langt fram á dag
Lokastaðan i deildinni:
Arsenal
Leeds
Tottenham
Wolves
Liverpool
Chelsea
42 29 7 9 71:29 65
42 27 10 5 72:30 64
42 19 14 9 54:33 52
42 22 8 12 64:54 52
42 17 17 8 42:24 51
42 18 15 9 52:42 51
RAY KENNEDY sést hér á myndinni (10), skalla knöttinn i netið hjá Wcst Ham. Bobby Ferguson,
markvörður, og Tommy Taylor eiga ekkert svar við góöum skaliabolta Kennedy.
er eflaust eitt þekktasta og
virkasta knattspyrnufélag i viðri
vcröld. Astæðuna fyrir hinum
miklu vinsæidum félagsins má
rekja til áratugsins 1930-1940 en
þá sigraði Arsenai fimm sinnum
1. deildina og tvisvar sinnum
ensku bikarkeppnina. Alls hefur
liðið orðið Englandsmeistarar
átta sinnurn: 1931, 1933, 1934, 1935,
1938, 1948, 1953 og 1971. Enskur
bikarmeistari hefur liðið orðið
fjórum sinnum: 1930, 1936, 1950 og
1971. Þá hefur liðið einu sinni
orðið Evrópumeistari borgarliða
(Fairs Cup), 1970.
Ileimavöllur Arsenal cr High-
bury i London, er rúmar 63 þús.
manns. Búningur félagsins cr
rauð skyrta með hvitum ermum,
hvitar buxur með rauðum rönd-
um og rauðir og hvitir sokkar. t
slikum búningum hafa lcikmenn
félagsins unnið marga sæta sigra,
viðs vcgar i heiminum. Félagið
hefur ætið haldið merki Lundúna-
borgar á knattspyrnusviðinu hátt
á lofti. Leikmenn liðsins hafa oft
verið kailaðir „barónar” i
London, vegna þess hve hátt kaup
þeir hafa hjá félagi sinu og ekki
sizt vegna aukapeninganna, sem
jafntefli eða sigrar gefa, svo ekki
sé talað um kaup fyrir mörkin.
Eins og áður var sagt, var
Arsenal lið nr. 1 i Englandi á
árunum 1930-1940. Einn merkasti
persónuleiki enskrar knatt-
spyrnu. Herbert Shatman, fram-
kvæmdastjóri féiagsins, átti
mestan þátt í veigengni félagsins
á þessum árum. Arsenal vann á
þessum árum fimm sinnum
meistaratignina og tvisvar sinn-
um bikarinn og var auk þess
tvisvar sinnum i úrsiitum i bikar-
keppninni og einu sinni i öðru sæti
i meistarakeppninni. t>á sigraði
liöið F.A. Charity Shicld Winners,
fimm sinnum á árunum 1930-1940,
árin 1930, 1931, 1933, 1934 og 1938,
einnig lék liðið til úrslita 1935 og
1936. Þá vann liðið sömu keppni
1948 og 1953.
Stóran þátt i styrkleika Arsenal
á þessum árum átti sú nýja leik-
aðferð sem Herbert Shatman inn-
leiddi, en hún var I því fólgin að
bæta einum bakveröi „stopper”
— við. Framverðir Arsenal léku
venjulega heldur aftarlega, en
sendu knöttinn Iangt fram til út-
herjanna, sem voru mjög fljótir
og skotharðir. Með þessu móti gat
vinstri útherjinn Cliff Bastin
skoraö 33 mörk á einu keppnis-
timabili (hann á markamet
Arsenal, en hann skoraði samtals
150 mörk á árunum 1930-1937).
Það segir hvað Arsenal liðið var
frábært, að i landsliði Englands
voru á timabili 7 af leikmönnum
frá Arsenal. Eftir siðari licims-
styrjöldina vann Arsenal
meistaratignina tvisvar 1948 og
1953 og bikarinn einu sinni 1950.
En upp úr 1960 fer liðið aftur að
taka við sér, og 1966 skipar
félagiö Bertie Mee sem fram-
kvæmdastjóra og eftir það fer
féiagið að láta að sér kveða.
Arsenal fer að yngja upp hjá sér,
og fljótlega láta ungu leik-
mennirnir að sér kveða, og hefur
liðiö á að skipa einu efnilcgasta
liði 1. deildar. 1968 leikur Arsenal
til úrslita i deildarbikarnum
(League Cup) gegn Leeds — liðið
tapaði þá úrslitaleiknum 0:1, en
heppnin var ekki með þvi þá. Arið
eftir kemst félagið aftur i úrslit i
deildarbikarnum og mætir þá
Swindon, sem sigraði mjög óvænt
3:1, cftir framlengingu.
En sigurganga félagsins hefst
1970, þegar liðið vann Evrópu-
keppni borgarliða og keppnis-
timabilið 1970-1971 setti Arsenal
sér þaö mark að vinna sigur-
launin i dcildarkeppninni og
bikarkeppninni. Þessu takmarki
náði liðið — liðið tryggði sér
meistaratitilinn i einhverri
hörðustu keppni, sem um getur.
Mcð frábærum lokaspretti saxaði
Arsenal á gott forskot Leeds. En
nú skulum við lita á stöðuna i 1
deiid, eins og hún var áður en
Arsenal tók lokasprettinn:
Leeds
Arsenal
Chelsea
Wolves
Liverpool
Tottenham
uðu og sungu áhangendur
Arsenal, „We are the greatest”
Fögnuður áhangenda Arsenal
var mikill fimm dögum siðar —
þegar Arsenal vann Liverpool 2:1
i úrslitaleik bikarkeppninnar á
Wembley, þá var dansað og
sungið á götum Norður-London
um kvöldið og sungið:
„Good old Arsenal
The Cup will soon be yours
A goal shall be scored
By Charlie George
Come on Frankie
You’re Captain of this side
You must win the Cup
And keep your pride.”
En þessi söngur var sunginn
miög kröftuglega á úrslita-
leiknum, ásamt laginu:
„We hate Nottingham Forest
We hate Liverpool too
We hate West Ham
But Arsenal, we love you”
Það var hinn ungi Charlie
George, (20 ára) sem færði
Arsenal sigurinn, þegar hann
skoraði 2:1 i framlengingu, og
þegar leiknum lauk., urðu fagn-
aðarlæti leikmanna Arsenal
geysileg og sigurvegurunum
fagnað gifurlega að venju og tóku
„The Kop” stuðningsmenn Liver-
pool einnig þátt i þeim fagnaðar-
átum.
í fyrra lék Arsenal einnig til úr-
slita i bikarkeppninni, en þá
tapaði liðið gegn Leeds 0:1, liðinu,
sem Arsenal stal Englandsmeist-
aratitlinum frá árið áður. Nú i
ár hafa leikm. Arsenal möguleika
á að endurtaka árangur sinn 1971,
liðið er eitt af toppliðunum i 1.
deild og er einnig komið i 16 liða
úrslit i bikarkeppninni, þar sem
það mætir 2. deildarliði.
— SOS
Kcppnin milli Arsenal og Leeds
var æsispennandi og þegar sið-
asta umferð i dcildarkeppninni
fór fram og þar með lokaþáttur
einvigisins milli liðanna, átti
Arsenal að lcika gegn Stoke á
heimavelli og Leeds gegn Nott.
Forest, einnig á heimavelli.
Arsenal átti þó einn leik til góöa,
gegn Tottenham tveimur dögum
siðar.
Staðan hjá félögunum var þessi
fyrir siðustu umferðina:
Leeds 41 26 10 5 70:30 62
Arsenal 40 27 7 9 69:29 61
Yfir 55 þúsund áhorfendur
stóðu á öndinni á Highbury, leik-
velli Arsenal i Lundúnum, siðustu
sek. i leiknum við Stoke. Þrátt
fyrir yfirburði Arsenal var
staðan aðeins 1:0 — Bob Wilson,
markvörður, urðu þá á einu
mistök sin i leiknum, missti
knöttinn og hann dansaði um i
markteignum — hjörtu áhang-
enda Arsenal stöðvuðust
nærri þvi á lokasekúndunum —
þrivegis reyndu leikrnenn Stoke
marksskot. Það var bjargað á
marklinu og i þriðju tilraun fór
knötturinn rétt framhjá stöng.
Rétt á eftir var leiknum flautaö af
og leikmenn Arsenal önduðu 1-
éttara og hjartslátturinn minnk-
aði. Meðan á þessari baráttu stóð,
léku leikmenn Leeds sér að Nott.
Forest og unnu 2:0.
Leeds hafði lengst af forustu i
keppninni, en undir lokið sigraði
Arsenal i hverjum leiknum af
öðrum, og leikurinn 3. mai 1971
gegn Tottenham var hámark
þeirrar sigurgöngu. Arsenal
tryggði sér Englandsmeistaratit:
ilinn meö sigri yfir Tottenham i
æsispennandi leik. Þegar aðeins
tvær min. voru til leiksloka, tókst
hinum efnilega knattspyrnu-
manni Ray Kennedy, að skora
sigurmarkið. Ætlaði þá allt um
koll að keyra á White Hart Lane,
heimavelli Tottenham — þegar
dómarinn gaf merki um leikslok,
flykktust áhorfendur i þúsunda
tali út á völlinn til að fagna hinum
nýbökuðu meisturum. Og fögn-
uðurinn var mikill i Highbury-
hverfinu i Lundúnum, þar döns-
„BUT ARSENAL, WE LOVE YOU” — leikmenn Arsenal fagna sigrinum yfir Liverpool á úrslitaleik
bikarkeppninnar 1971. Fyrirliðinn Frank McLintock heldur á bikarnum.