Fréttablaðið - 28.08.2004, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Veffang: visir.is – Sími: 550 5000
LAUGARDAGUR
RAGGI BJARNA Á JÓMFRÚNNI
Kvartett Ragnars Bjarnasonar spilar á veit-
ingastaðnum Jómfrúnni við Lækjargötu í
dag klukkan 16.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
VINDA- OG VÆTUSAMT SYÐRA Í
DAG en eitthvað hægari norðanlands og
yfirleitt þurrt fram eftir degi. Gengur í
norðaustanátt með kvöldinu. Sjá síðu 6
28. ágúst 2004 – 233. tölublað – 4. árgangur
KREFST AÐGANGS
AÐ GÖGNUM
Helga Jónsdóttir borgar-
ritari krefst aðgangs að
öllum gögnum félags-
málaráðherra vegna
skipunar í stöðu ráðu-
neytisstjóra. Hún fer
einnig fram á rökstuðn-
ing fyrir valinu. Undrun og hneykslun með-
al framsóknarmanna. Sjá síðu 2
SLÆM KENNSLA Helmingur nemenda
viðskipta- og hagfræðideildar Háskólans er
óánægður með upplýsingatæknikennslu
framhaldsskólakerfisins. Kröfur um sam-
ræmda upplýsingakennslu voru ræddar á
málþingi í gær. Sjá síðu 6
HELMINGSAUKNING MILLI ÁRA
Búist er við 45 prósenta heildaraukningu í
fiskeldi milli ára. Búist er við meira en
helmingsaukningu í laxeldi frá því í fyrra.
Enn eru miklar væntingar til þorskeldis,
sem þó er enn á þróunarstigi. Sjá síðu 10
SÝKNAÐUR Þjóðverji var sýknaður af
manndrápi af gáleysi þegar hann ók ölvaður
og velti bíl á Krýsuvíkurvegi í lok júlí síðast-
liðnum. Vinnufélagi mannsins lést af áverk-
um sem hann hlaut í slysinu. Sjá síðu 12
Kvikmyndir 46
Tónlist 44
Leikhús 44
Myndlist 44
Íþróttir 36
Sjónvarp 48
Laddi:
● mætti og gerði skrýtin óhljóð
Leikur í nýja Bjarkar
myndbandinu
SÍÐA 42
▲
● bílar
Ekki bara
hestöfl
Birgir Bragason:
▲
Í MIÐJU BLAÐSINS
Danskir prestar:
Hjónavígslur
í ráðhús
ATVINNUMÁL Helmingur danskra
presta vill fá hjónavígslur úr
kirkjunum samkvæmt nýrri
könnun og hefur danski biskupinn
lýst yfir mikilli hryggð vegna
þess.
Telja prestarnir að vígslur
hvers konar eigi betur heima í
ráðhúsum en í heilögum kirkjum
þrátt fyrir að hjónavígslur dragi
mun fleiri í kirkju en guðsþjón-
ustur. Voru yfir tvö þúsund prest-
ar spurðir og reyndust 53 prósent
þessarar skoðunar.
Danski biskupinn Jan Lind-
hardt er ósammála meirihlutan-
um og kallar niðurstöðuna
heimskulega. ■
Almannatenglar sérhæfa
sig í að grípa inn í atburða-
rásina í viðskipta- og
stjórnmálalífinu.
Áróðursmeistararnir:
HÚSNÆÐISMÁL Hallur Magnússon
hjá Íbúðalánasjóði telur hæpið
að bankarnir geti staðið undir
því að bjóða 4,4 prósenta vexti
nema þeir geri lægri ávöxtunar-
kröfu en eðlilegt sé. Hann hefur
einkum efasemdir um getu
Sparisjóðs Reykjavíkur og ná-
grennis til að bjóða upp á lán á
þessum kjörum.
„Vonandi hafa þeir bolmagn til
þess. Ef raunvaxtastig lækkar ekki
er ljóst að til lengri tíma gefa þessi
útlán þeim ekki ásættanlega ávöxt-
un sem eigendur bankanna gera til
sinnar fjárfestingar,“ segir Hallur.
Hann telur að bankarnir dragi
þá ályktun að vaxtastig lækki á
næstunni og því geti vaxtastigið
skilað bönkunum ásættanlegum
ábata. Lækki vaxtastigið hins veg-
ar ekki telur Hallur að bankarnir
séu í raun að borga með nýju lán-
unum.
Hvort bankarnir séu komnir í
beina samkeppni við Íbúðalána-
sjóð segir Hallur að gert hafi ver-
ið ráð fyrir því þegar kerfisbreyt-
ingar voru ákveðnar. „Við gerðum
ráð fyrir svona ástandi. Reyndar
ekki svona fljótt eða svona lágt.
Við töldum ekki að menn hefðu
bolmagn til að fara í 4,4 prósent
enda hafa þeir það ekki til lengri
tíma litið,“ segir Hallur.
Hann nefnir sérstaklega í
þessu samhengi Sparisjóð Reykja-
víkur og nágrennis, sem hefur
boðið 4,4 prósenta vexti.
„Hvernig á Sparisjóðurinn að
geta boðið 4,4 prósenta vexti ef
langtímavextir lækka ekki á
næstu örfáu mánuðum. Þeir geta
ekkert fjármagnað þetta,“ segir
Hallur.
Guðmundur Hauksson, spari-
sjóðsstjóri hjá Sparisjóði Reykja-
víkur og nágrennis, er undrandi á
ummælum Halls. „Ég veit ekki
hvað honum gengur til með slík-
um ummælum. Við teljum okkur
ráða fullkomlega vel við þetta. Við
skulum bara horfa til þess að
sparisjóðirnir hafa veitt húsnæð-
islán á Íslandi í áratugi og það
hafa ýmsar aðstæður verið á
markaði,“ segir hann.
Hann segir að sparisjóðirnir
hafi alltaf fundið farveg í þeirri
þróun og að það sé ekkert sem
bendi til þess að þeir geti ekki
tekið þátt í því sem sé að gerast
núna.
thkjart@frettabladid.is
Hefur efasemdir um
bolmagn bankanna
Hallur Magnússon hjá Íbúðalánasjóði efast um getu bankanna til að bjóða 4,4 prósenta vexti.
Nefnir sérstaklega Sparisjóð Reykjavíkur og nágrennis. Sparisjóðsstjóri undrast ummælin.
SÍÐUR 24 & 25
▲
Julia Stiles útilokar ekki að
formæður sínar hafi hitt
Leif heppna.
Hollywood-stjarnan á Íslandi:
SÍÐA 28
▲
Íslensk framleiðsla
skipar mikilvægan
sess í þjóðlífinu og
mun í vaxandi mæli
standa undir velferð
þjóðarinnar.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N
K
AR
LS
SO
N
JAFNRÉTTISMÁL „Tveir af níu hæsta-
réttardómurum á Íslandi eru konur,
tvær konur eru dómstjórar í átta
héraðsdómum landsins og af 38 hér-
aðsdómurum eru aðeins tíu konur.
Fáar konur stunda lögmennsku en
einungis 14% lögmanna á Íslandi
eru konur,“ sagði Cherie Blair, einn
þekktasti lögmaður Breta og eigin-
kona Tony Blair forsætisráðherra, á
málþingi um konur, völd og lögin
sem Háskóli Íslands stóð fyrir í
gær.
„Tölfræðin batnar ekki þegar
ráðuneytin eru skoðuð. Í stjórnun-
arstöðum í ráðuneytunum eru 60
karlmenn og 15 konur,“ sagði hún.
Helstu ástæðuna fyrir þessu mis-
rétti segir hún vera þá að konur
beri enn meginábyrgð á heimili og
börnum.
„Eitt helsta samfélagsmál 21.
aldarinnar verður að reyna að koma
á jafnvægi milli vinnu og einkalífs.
Það varðar ekki aðeins konur heldur
einnig karlmenn,“ sagði hún.
Sjá síðu 8
Tölfræðin sýnir fram á verulegt kynjamisrétti:
Bakslag orðið í jafnréttismálum
CHERIE BLAIR
Cherie Blair segir að þótt íslensk lög geri ráð fyrir jafnrétti kynjanna megi hin raunverulega staða vera betri.