Fréttablaðið - 21.09.2004, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 21.09.2004, Blaðsíða 8
8 21. september 2004 ÞRIÐJUDAGUR Einn í gæsluvarðhaldi vegna LSD: Gott að sýran náðist FÍKNIEFNI „Fagnaðarefni að efnið hafi náðst,“ segir Þórarinn Tyrf- ingsson, yfirlæknir á Vogi, um mik- ið magn af LSD sem náðist í síðustu viku en maður um þrítugt hefur vegna þess verið úrskurðaður í þriggja vikna gæsluvarðhald. Þórarinn segir LSD-fundinn ekki valda miklum áhyggjum en hefði gert það ef efnið hefði fund- ist til dæmis í Reykjavík og búið hefði verið að selja mikið af því. LSD komst í tísku á hippatímanum en eftir það dró verulega úr notk- un þess þar til bakslag varð og neysla jókst upp úr 1990 með til- komu dansskemmtistaða. Þórarinn segir verulega hafa dregið úr neyslu efnisins síðustu þrjú til fjögur árin. Helst sé það notað af fólki sem er undir eftirliti, sér- staklega í fangelsum, því efnið finnst ekki í þvagi. Þó verði fólk yfirleitt ekki LSD-neytendur að neinu ráði þar sem efnið hafi ekki sömu ánetjunaráhrif og önnur fíkniefni. Heldur sé LSD notað með annarri fíkniefnaneyslu. Þórarinn segir efnið valda mikl- um breytingum á skynjun og það sé með höppum og glöppum hve lengi ástandið varir. Mörg vandamál geti fylgt neyslunni sem endi jafnvel með innlögn á geðdeild. Skammtur af LSD er á svipuðu verði og e-tafla eða um 2.500 krónur. ■ Tugir fatlaðra barna án vistunar í verkfallinu Um 75 fötluð börn, sem stunda nám í Öskjuhlíðarskóla eru án vistunar í yfirstandandi kennaraverkfalli. Þau fá enga skóladagvist og geta ekki farið í sameiginlega gæslu. Verkfallið veldur miklu róti í lífi barnanna. KENNARAVERKFALL Stærstur hluti fatlaðra nemenda í grunnskólum landsins verður hart úti í yfir- standandi kennaraverkfalli. Um 75 börn í Öskjuhlíðarskóla eru dæmd til að vera heima allan dag- inn, þar sem þau fá ekki skóladag- vist. Allt rask á skipulagi hvers- dagsins kemur ákaflega illa við fötluðu börnin, sem þurfa helst að hafa allt í föstum skorðum. „Dóttir okkar er þroskaheft með einhverfu,“ sagði Sigurður Sigurðsson, faðir lítillar stúlku, einnar þeirra sem lenda illa úti í kennaraverkfallinu. Hún stundar nám í Safamýrarskóla, en þar eru börn sem eiga við hvað mesta fötl- un að stríða. Hún fær þó skóladag- vist eftir hádegi „Líf einhverfu barnanna snýst um að hafa reglu á öllum hlutum,“ sagði faðir hennar. „Rask, eins og svona verkfall hefur í för með sér er það versta sem kemur fyrir þau.“ Einar Hólm skólastjóri Öskju- hlíðarskóla sagði, að skóladagvist á vegum Íþrótta- og tómstunda- ráðs Reykjavíkurborgar væri í boði fyrir alla nemendur í 1. - 4. bekk skólans, sem sótt hefði verið um fyrir. Í þessum bekkjum væru 25 - 26 börn. Sú starfsemi væri óbreytt í kennaraverkfallinu og gætu nemendurnir sótt hana eftir klukkan eitt á daginn. Þá hefði ÍTR nýverið tekið við skóladagvist 5. - 10. bekk. Þar hefði ekki verið ráðið starfsfólk enn sem komið væri. „Nemendur 5. - 10. bekkjar, sem eru um 75 talsins, eru því alfarið án tilboða í þessu verk- falli,“ sagði hann. Gerður Aagot Árnadóttir, for- maður Foreldrafélags Öskjuhlíð- arskóla, gagnrýndi mjög, að aðgerðir af því tagi sem kennarar stæðu nú fyrir bitnuðu alltaf harðast á fötluðum börnum og að- standendum þeirra. „Það er eins og alltaf sé hægt að setja okkur í algerlega vonlausa að- stöðu,“ sagði hún. „Það er hægt að reyna að útvega einhverja pössun hér og þar. En krakkarnir þola þetta ekki. Ef þetta eru mikið fötluð börn, eins og eru í sérskólunum, þá þola þau alls ekki einhvern þvæling. Þetta veldur þeim mikilli vanlíðan. Þau verða erfið og óróleg. Mér finnst þetta ekki vera boðlegt, sem þessum fjölskyldum er boðið upp á.“ jss@frettabladid.is KENNARAVERKFALL Um tíu undan- þágubeiðnir vegna yfirstandandi kennaraverkfalls höfðu borist svokallaðri undanþágunefnd í gær, að sögn Þórörnu Jónasdóttur fulltrúa Félags grunnskólakenn- ara og Skólastjórafélags Íslands í nefndinni. Þórarna sagðist ekki vita með vissu hve margar beiðnir um und- anþágu hefðu borist nefndinnni en þær væru eitthvað um tíu talsins. Ekki hefði borist tilkynning frá Sambandi sveitarfélaga um hver væri þeirra fulltrúi í nefndinni, þannig að beiðnirnar höfðu enn ekki verið teknar til afgreiðslu. „Það hefur verið beðið um und- anþágur, bæði fyrir einstaklinga og svo heilan skóla,“ sagði Þórarna, sem kvaðst ekki vilja gefa upp um hvaða skóla væri að ræða. Hún sagði að í verkfallinu 1995 hefði einn hópur fatlaðra fengið undanþágu, það er ein- hverf skólabörn. Fréttablaðið fékk staðfest hjá Ólafi Guðmundssyni, yfirlækni á Barna- og unglingageðdeildinni á Dalbraut, að hann hefði fyrir helgi sent inn undanþágubeiðni vegna þeirra nemenda sem dvelja á BUGL og fá kennslu frá Brúarskóla. Það mun vera skólinn sem um ræðir. ■ Miðbær Akureyrar: Kynning á Hólum SKIPULAG Niðurstöður íbúaþings Akureyringa um nýjan miðbæ verða kynntar annað kvöld á Hólum, nýju húsi Menntaskól- ans á Akureyri. Upphaflega átti að kynna niðurstöðurnar á Hótel KEA en þar sem þátttakan í þinginu og áhuginn á málinu voru meiri en ráð var fyrir gert var afráðið að flytja kynningar- fundinn á Hóla. Hefst hann klukkan 20. Þúsundir hugmynda, jafnt stórra sem smárra, voru lagðar fram á íbúaþinginu síðasta laugardag. Um sextán hundruð manns sóttu þingið. ■ SVONA ERUM VIÐ NEMENDUR Í HÁSKÓLUM NÁNARI UPPLÝSINGAR OG SKRÁNING Í SÍMA 544 4500 OG Á NTV.IS Hlíðasmára 9 - Kópavogi Sumarliði Ásgeirsson MCP - MCSA & Kerfisfræðingur NTV „Það að vera með viðurkennda þekkingu á því sem ég starfa við skiptir mig og mitt fyrirtæki öllu máli. Þar sem ég bý á Stykkishólmi þá hentaði þessi kennslutími mér einnig frábærlega. „ MCSA námið er spennandi kostur fyrir þá sem vilja starfa sem sérfræðingar við umsjón Microsoft netkerfa. Markmiðið með náminu er að nemendur geti að námi loknu tekið þau fjögur alþjóðlegu próf sem þarf til að öðlast MCSA gráðuna og eru þau öll innifalin í námskeiðsgjaldi. Inntökuskilyrði Þeir sem hyggja á þetta nám þurfa að hafa góða þekkingu og skilning á Windows umhverfinu, þekkja vel innviði PC tölvunnar. Allt kennsluefni er á ensku. Kennt er laugardaga frá 13-17 & sunnudaga 8:30-16 25. sept. til feb. 2005. Frábært nám með vinnu - Kennt er aðra hverja helgi! UNDANÞÁGUBEIÐNIR Beiðnir um undanþágu vegna kennaraverkfallsins eru farnar að streyma inn. Þær eru frá einstaklingum, auk þess sem BUGL hefur lagt inn beiðni fyrir sína skjólstæðinga. Um tíu undanþágubeiðnir komnar vegna kennaraverkfalls: BUGL sækir um undanþágu HEIMA Í VERKFALLI Sigurður Sigurðsson var heima með fjölfatlaðri dóttur sinni, Blómey Bæhrenz, í gær. Hún er í Safamýrarskóla, en þar er engin kennsla vegna verkfalls kennara. Hún fær þó skóla- dagvist eftir hádegi, sem er meira en allflest börnin í Öskjuhlíðarskóla fá. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /P JE TU R Háskólinn á Akureyri 827 Háskólinn í Reykjavík 847 Kennaraháskóli Íslands 927 Landbún.hásk. Hvanneyri 122 Listaháskóli Íslands 350 Háskóli Íslands 8.976 HEIMILD: HAGSTOFA ÍSLANDS LSD Neysla LSD hefur verið í lægð síðustu ár. Þeir sem helst neyta efnisins eru til dæmis fangar sem eru undir eftirliti en efnið finnst ekki í þvagi.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.