Fréttablaðið - 21.09.2004, Blaðsíða 18
Hvaða verðmiða myndir þú setja á
heilsu þína? Flestum þykir þessi
spurning örugglega svívirðileg.
Hvernig er hægt að setja verðmiða
á heilsuna? Hvernig er hægt að
verðleggja líkamshluta, þrek, þol,
úthald, styrk og fleiri líkamlega eig-
inleika? Ég er sammála. Það er ekki
hægt að verðleggja heilsu. Hins
vegar verður að segjast eins og er
að ansi margir eru búnir að setja
verðmiða á sína heilsu. Þeir sem
skipta út heilsu sinni fyrir peninga
með vinnu eru sífellt yfirkeyrðir
vegna þess að þeir taka að sér of
mörg verkefni og „hafa ekki tíma“
til að hreyfa sig eða sinna heilsunni.
Þeir eru á sinn hátt búnir að verð-
leggja heilsu sína. Kaldhæðnin felst
í því að þegar auðnum hefur verið
safnað og heilsunni fer að hraka er
engu til sparað þegar reynt er að
öðlast heilsuna á ný. Peningar verða
oft hjákátlegir í samanburði við
heilsubrestinn. Heilsan er mesti
veraldlegi auðurinn. Án hennar get-
um við ekkert gert. Hvað hefur þú
varið miklum tíma í að efla heilsuna
í dag og verja þann ómetanlega auð
sem í henni felst?
Eins og vitur maður sagði eitt
sinn: Sá sem hefur ekki tíma fyrir
heilsuna í dag hefur ekki heilsu fyr-
ir tímann á morgun. Ekki selja
heilsuna fyrir launatékka einu sinni
í mánuði.
Flottar íþróttagræjur Ekki byrja á því að kaupa þér rándýran
íþróttafatnað og skó áður en þú hefur líkamsræktina. Notaðu
frekar það sem þú átt þar til þú ert kominn vel á skrið og útlit
fyrir að þú haldist í ræktinni. Farðu þá og verðlaunaðu þig með
flottustu íþróttagræjunum.
Húðmeðferð
Hjá Kínastofunni á Stórhöfða 17 er
boðið upp á „Green Peel“-meðferð
sem felst í að laga húðlýti eins og slit
og ör. „Þá hefur meðferðin líka áhrif
á öldrun og hrukkur,“ segir Hafrún
María Zsoldos. „Við notum í þessari
meðferð sérstakar jurtavörur en á
fyrsta degi fer fram meðferð á stof-
unni. Þá tekur fólk með sér sérstakar
vörur heim sem það notar á húðina í
fjóra daga. Á fimmta degi kemur svo
fólk í lokameðferðina.“
María segir meðferðina hreinsa upp
og laga húð hvar sem er á líkaman-
um. Þetta er aðferð sem hefur gefið
mikinn og góðan árangur,“ segir
Hafrún.
[ „GREEN PEEL“ ]
Líkami og sál
GUÐJÓN BERGMANN, JÓGAKENNARI
OG RITHÖFUNDUR, SKRIFAR UM
ANDLEGA OG LÍKAMLEGA HEILSU.
Hvers virði er heilsan?
gbergmann@gbergmann.is.
Sjúkranuddstofan Moonstartherapy
Sími/Fax:
588-1404
Síðumúli 15,
108 Reykjavík
Afmæli
Á miðvikudaginn 22. sept. eigum við 3ja ára afmæli.
Ég býð alla velkomna og þakka viðskiptavinum mínum.
Frí meðferð fyrir alla sem eiga afmæli þennan dag.
TILBOÐ:
30% afsláttur á öllum meðferðum sem mæta með þessa
auglýsingu á afmælisdaginn og panta tíma.
AFMÆLI • AFMÆLI • AFMÆLI • AFMÆLI • AFMÆLI • AFMÆLI • AFMÆLI • AFMÆLI
A
FM
Æ
LI
•
A
FM
Æ
LI
•
A
FM
Æ
LI
•
A
FM
Æ
LI
•
A
FM
Æ
LI
•
A
FM
Æ
LI
A
FM
Æ
LI • A
FM
Æ
LI • A
FM
Æ
LI • A
FM
Æ
LI • A
FM
Æ
LI • A
FM
Æ
LI AFMÆLI • AFMÆLI • AFMÆLI • AFMÆLI • AFMÆLI • AFMÆLI • AFMÆLI • AFMÆLI✂
✂
YGGDRASILL, KÁRASTÍG 1, 101 RVK., S: 5624082
- þar sem þú getur treyst á gæðin -
Lífrænt ræktaðar vörur
Umbo›s- og sölua›ili
sími: 551 9239
Vali› fæ›ubótarefni ársins 2002 í Finnlandi
Minnistöflur
Er maginn vandamál?
Stress, þreyta og sérstakur
matur getur sett magann úr
jafnvaægi.
Óþægindi lýsa sér oft sem
nábítur, brjóstsviði,
vindgangur, harðlífi og
niðurgangur.
Þetta þykir öllum afar
óþægilegt og líður þá illa í
öllum líkamanum.
Silicol fæst í apótekum
Hreyfigreining:
Árangur æfinganna
kemur fljótlega í ljós
„Fólk þarf ekkert að vera sjúkt til
að koma til okkar þótt við bjóðum
upp á sjúkraþjálfun. Stöðin er fyr-
ir fólk sem vill byggja sig upp,
hvort sem það er með stoðkerfis-
vandamál eða ekki,“ segir Emilía
Borgþórsdóttir, sjúkraþjálfari hjá
heilsuræktarstöðinni Hreyfi-
greiningu við Höfðabakka í
Reykjavík. Allir þjálfararnir þar
eru háskólamenntaðir, flestir eru
sjúkraþjálfarar og nokkrir
íþróttakennarar og þeir sjá um að
fólk geri æfingarnar rétt, þannig
að þær komi að sem bestum not-
um fyrir hvern og einn. En er
þetta þá ekki rándýr stöð?
„Við erum ódýrari en sumir en
jafndýrir og aðrir,“ svarar Emilía.
„Í kortinu sem keypt er inn í stöð-
ina er einn frír tími hjá einkaþjálf-
ara sem mælir fólk og setur mark-
mið og áætlun. Leggur upp æf-
ingaprógramm og kennir á salinn.
Auðvitað læra menn ekki allt í ein-
um tíma og því erum við alltaf með
fólk í salnum sem fylgist vel með
og einnig bjóðum við uppá einka-
þjálfara ef áhugi er fyrir.“
Liðfimi, golffimi og kraftfimi
eru greinar sem boðið er upp á hjá
Hreyfigreiningu. Emilía er beðin
um að gera frekari grein fyrir
þeim. „Liðfimi er leikfimi sem
gerð er með rólegri tónlist. Hún
er í ætt við jóga en byggð á æfing-
um úr grunni okkar sjúkraþjálfar-
anna. Þar leggjum við kapp á að
styrkja djúpa kerfið. Yfirleitt er
mest kapp lagt á að þjálfa ytri
vöðvana, enda skipta þeir máli
upp á útlitið en djúpa kerfið skipt-
ir ekki minna máli, til dæmis til að
halda sér beinum í baki. Við höf-
um hannað þetta fyrir „hómó
kyrrsetikus“. Í golffimi er fólk að
vinna með þá vöðva sem skipta
miklu máli fyrir golfara og einnig
er farið aðeins í þolið. Síðan er
það kraftfimin sem eykur sam-
hæfingu, jafnvægi og góða hreyfi-
stjórn. Ég fékk algert sjokk þegar
ég byrjaði að kenna þá grein því
almennt var fólk með svo lélegt
jafnvægi. En árangur æfinganna
kemur fljótt í ljós.“
gun@frettabladid.is
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
Emilía segir eintóma sjúkraþjálfara og íþróttakennara sjá um þjálfunina í stöðinni.