Fréttablaðið - 21.09.2004, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 21.09.2004, Blaðsíða 30
22 21. september 2004 ÞRIÐJUDAGUR Við höfum áhyggjur af … … hinum íslensku lýsendum enska boltans en álagið virðist hafa bugað þá þar sem allir leikir helgarinnar voru með enskum þulum. Það er vonandi að þreytan sé að fara úr mönnum svo við fáum að heyra íslenskar lýsingar en þreyta hlýtur að hafa verið eina ástæða þess að eingöngu voru notaðir enskir þulir um helgina því Skjárinn lofaði tveim íslenskum lýsingum á viku. „Það var yndisleg tilfinning að vera á Akureyrarvelli í dag og sjá leikinn ásamt 548 FH-ingum og 4 KA-mönnum.“ Ingvar Viktorsson, formaður FH og fyrrverandi bæjarstjóri í Hafnarfirði, þegar komið var með Íslandsbikarinn í Kaplakrika.sport@frettabladid.is HVAÐ? HVENÆR? HVAR? 18 19 20 21 22 23 24 Þriðjudagur SEPTEMBER FÓTBOLTI Stórleikur umferðarinnar í enska boltanum fór fram í gærkvöld er Man. Utd. tók á móti erkifjendunum frá Liverpool á Old Trafford. Mikil eftirvænting var fyrir leikinn enda var Rio Ferdinand að leika sinn fyrsta leik í átta mánuði fyrir United en hann var dæmdur í keppnisbann fyrir að mæta ekki í lyfjapróf. Rio stóð sig vel og kláraði leikinn þótt hann hefði þurft að fá sér örlítið orkustykki 15 mínútum fyrir leikslok þar sem hann var orðinn frekar þreyttur. Leikmenn Liverpool lágu mjög aftarlega í fyrri hálfleik, leyfðu United að sækja og sóttu síðan hratt á heimamenn. Það skilaði ekki tilætluðum árangri því United réð gangi leiksins algjörlega í fyrri hálfleik og það var fyllilega sann- gjarnt þegar Mikael Silvestre tók forystuna fyrir heimamenn á 20. mínútu. Þá gaf ungstirnið Ronaldo glæsilega sendingu í teiginn. Silv- estre kom askvaðandi á fjærstöng, algjörlega ódekkaður, og stangaði boltann auðveldlega í netið. Þannig stóðu leikar í hálfleik en United-menn voru klaufar að bæta ekki við enda fengu þeir nokkur ákjósanleg tækifæri til þess að bæta við forystuna. Það var allt annað að sjá til strákanna úr Bítlaborginni í síðari hálfleik en þeir færðu sig framar á völlinn og uppskáru jöfnunarmark á 54. mínútu er Írinn stóri, John O´Shea, varð fyrir því óláni að senda boltann í eigið mark. Heimamenn frá Manchester létu þetta mark ekki slá sig út af laginu heldir slógu í klárinn og hófu að sækja að nýju. Það bar ríkulegan ávöxt á 65. mínútu þegar Silvestre skoraði sitt annað mark í leiknum. Að þessu sinni með föstum skalla eftir hornspyrnu. Tvö fáséð mörk komin hjá Silvestre sem hafði aðeins skorað tvö deildarmörk fyrir leikinn. Lokamínútur leiksins voru mjög harðar og var með ólíkindum að enginn leikmaður skyldi fjúka af velli. Liverpool-menn reyndu hvað þeir gátu að jafna leikinn en höfðu ekki erindi sem erfiði. United því komið á beinu brautina með Rio innanborðs og líklegt til þess að klífa töfluna. henry@frettabladid.is Góð endurkoma Rios Rio Ferdinand spilaði sinn fyrsta leik fyrir Man. Utd. í átta mánuði í gær. Það hafði góð áhrif á United enda lögðu þeir Liverpool 2–1.■ ■ LEIKIR  19.15 Stjarnan og FH mætast í Kaplakrika í 1. deild kvenna í handbolta.  19.15 ÍBV og Fram mætast í Vestmannaeyjum í 1. deild kvenna í handbolta.  19.15 Víkingur og Haukar eigast við í Víkinni í 1. deild kvenna í handknattleik.  20.00 Ármann/Þróttur og ÍR etja kappi í Laugardalshöll í Reykja- víkurmótinu í körfuknattleik.  20.00 Valur og KR eigast við í Vals- heimilinu í Reykjavíkurmótinu í körfuknattleik. ■ ■ SJÓNVARP  18.05 UEFA Champions League á Sýn. Fréttir af liðum í Meistaradeild Evrópu.  18.35 Yeovil Town og Bolton Wanderes á Sýn. Beint frá 2. umferð deildarbikarkeppninnar.  20:30 Mótorsport 2004 á Sýn.  21.00 Landsbankadeildin á Sýn. Farið yfir síðustu sex umferðirnar í Landsbankadeildinni.  22.00 Olíssport á Sýn. Endurtek- inn þáttur um helstu viðburði heima og erlendis.  23.15 Trans World Sport á Sýn. Íþróttir um allan heim.  0.00 Ólympíumót fatlaðra á RÚV.          ! "# $%   &  ! '()*                                                        !   "                      #              $             %   &    '     (   )  %   )    &  (  *+   ,   (    +  &   (    ) -  !   *     (    (   +  !            #    ( "     *       %   %  %       . !  %  )   /- %  012 +      "  3 4 5 )  * +   /637  #0 /6374 880  '    %  012      +     (  9     %  012   *,    ) &  :06 )  -     ( )         (    7 "  +   (  +         )  0   (   %          +    "    ; ,. 0       )  ) %   $     0"    " *   "    + *    %   *   *           %<=%< 012  >     ?1@5222   >     1151@A %<=%< 0B2  >     CBD2222   >     BC@D@A %<=%< 0D2  >     1?C2222   >     E12CBA                        ÚR ÍÞRÓTTAHEIMINUM Heimsmeistarinn ístangarstökki, hin rússneska Yelena Isin- bayeva, og hlauparinn Kenesisa Bekele frá Eþíópíu voru valin frjálsíþróttafólk ársins eftir lokamót Alþjóðafrjálsíþróttasam- bandsins sem fram fór í Mónakó á sunnudaginn. Isinbayeva vann ólymp- íutitil í Aþenu og setti þar að auki átta heimsmet. Bekele gekk einnig vel á ólympíuleikunum og setti innanhúss- met í 5000 metra hlaupi. Spánverjinn Santíago Perez sigraði15. hluta hjólreiðakeppninnar um Spán, Vuelta a Espana, en sú keppni er sú þekktasta í Evrópu að Tour de France slepptri. Perez hefur þannig unnið tvo hluta af fimmtán en efstur í stigakeppninni er Roberto Heras. Sá hefur unnið keppnina tvisvar og er búist við að hann sigri nú líka. Heimsmeistarinn írallakstri, Norð- maðurinn Petter Sol- berg, sigraði með naumindum um helgina en keppt var í Wales. Komst hann fram úr Frakkanum Sebastian Loeb á lokasprettinum eftir að Loeb hafði haft forystu frá byrjun á föstudaginn var. Enn er því von til að halda titlinum en Loeb hefur talsvert forskot þegar fjórar keppnir eru eftir. Kínverjar hafa eytt sem nemur tæp-um 24 milljörðum króna til að fá að halda Formúlu 1 keppni í landinu og verður þeim að ósk sinni um næstu helgi þegar fyrsta slíka keppnin fer fram í Peking. Féð hefur að mestu farið í að byggja þá fullkomnustu kappakstursbraut sem ekið er á í For- múlunni. MÆTTUR AFTUR Rio Ferdinand var mættur í vörn United á ný í gær. Endurkoma hans hafði greinilega góð áhrif á liðið.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.