Fréttablaðið - 21.09.2004, Blaðsíða 12
12 21. september 2004 ÞRIÐJUDAGUR
AÐALRITARI Á ÚLFALDA
Koichiro Matsura, aðalritari Menningar-
málastofnunar Sameinuðu þjóðanna
(UNESCO), fór í stuttan útreiðatúr á
úlfalda á hátíðinni Tan Tan í Marokkó um
helgina. Fjöldi hirðingja frá Marokkó, Malí
og Máritaníu sækir hátíðina.
Tryggvasafn í Neskaupstað:
Yfir tvöhundruð verk í eigu safnsins
LISTIR Skrifað hefur verið undir
samninga vegna stofnunar
sjálfseignarstofnunar um lista-
safn Tryggva Ólafssonar í Nes-
kaupstað. Athöfnin fór fram í
húsnæði safnsins að Egilsbraut
2 á Norðfirði að viðstöddu
nokkru fjölmenni á sunnudag.
Tryggvi Ólafsson, sem er
fæddur og uppalinn í Neskaup-
stað mætti á staðinn í tilefni
tímamótanna. Með honum var
Helgi Guðmundsson rithöfund-
ur sem nýverið lauk við að skri-
fa minningar listamannsins.
Bókin ber heitið „Hvað er á bak
við fjöllin?“ en hana gefur
Tryggvasafn út um jólin í sam-
vinnu við Mál og Menningu.
Magni Kristjánsson, bæjar-
fulltrúi Fjarðabyggðar, er aðal-
hvatamaður að Tryggvasafni.
Magni og kona hans, Sigríður
Sjöfn Guðbjartsdóttir, gáfu
safninu allar myndirnar sem
þau áttu eftir Tryggva og sagði
Magni í ávarpi sínu að ákvörð-
unin hefði verið tekin af þeim
hjónum svo aðrir mættu njóta
verkanna. Samtals gáfu Tryggvi
og Magni safninu 192 verk,
Fjarðabyggð gaf 9 verk og nokk-
ur önnur verk hafa komið frá
öðrum. Að auki hefur Tryggvi
gefið 170 litógrafíur til að selja
til ágóða fyrir safnið. Stofnaðil-
ar eru, auk þeirra Magna og
Tryggva, Fjarðabyggð og Sam-
vinnufélag útgerðarmanna í
Neskaupstað. ■
Enn tækifæri að tækla
verðbólgudrauginn
Hagfræðingur Alþýðusambandsins segir að þótt hann hafi áhyggjur af
aukinni verðbólgu séu forsendur kjarasamninga ekki brostnar. Nauð-
synlegt að ríkið leggi fram trúverðuga langtímaáætlun í ríkisfjármálum.
VERÐBÓLGA Nauðsynlegt er að hið
opinbera draga saman seglin til að
valda ekki aukinni þenslu í þjóðfé-
laginu að sögn Ólafs Darra Andra-
sonar, hagfræðings Alþýðusam-
bands Íslands.
Í Fréttablaðinu á laugardaginn
lýstu bæði Sigurður Bessason,
formaður Eflingar - stéttarfélags,
og Halldór Björnsson, formaður
Starfsgreinasambands Íslands,
yfir áhyggjum af því að verðbólga
væri yfir verðbólgumarkmiðum
Seðlabankans. Höfðu þeir áhyggj-
ur af því að sú þróun héldi áfram
og að þar með myndu forsendur
kjarasamninga bresta.
„Þótt ég hafi áhyggjur af
ástandinu þá eru forsendur kjara-
samninga ekki brostnar,“ segir
Ólafur Darri. „Það eru enn tæki-
færi til að koma í veg fyrir það.
Við leggjum áherslu á að notuð
verði þau hagstjórnartæki sem til
eru til að koma í veg fyrir að for-
sendurnar bresti. Það kom okkur
ekki á óvart að Seðlabankinn skyl-
di hækka vexti á föstudaginn. Við
tökum líka undir með Seðlabank-
anum um að ríkisvaldið verði að
sýna verulegt aðhald og koma
með trúverðuga langtímaáætlun í
ríkisfjármálum. Ef skattar verða
lækkaðir eins og búið er að boða
þá verður að lækka ríkisútgjöld
enn frekar.“
Eftir undirritun kjarasamning-
anna síðasta vetur, sem voru til
fjögurra ára, var skipuð sérstök
nefnd sem í sitja fulltrúar verka-
lýðsforystunnar og Samtaka at-
vinnulífsins. Nefndin hefur það
hlutverk að fara yfir forsendur
kjarasamninga. Ólafur Darri, sem
situr í nefndinni, segir að næsta
haust muni nefndin hittast og fara
yfir málin. Aðspurður hvort útlit
sé fyrir að það geti gerst fyrr seg-
ist hann ekki eiga von á því. Hann
segir að ef komist verði að þeirri
niðurstöðu næsta haust að for-
sendur séu brostnar geti einstök
félög sagt upp kjarasamningum,
ef það gerist verði þeir lausir um
áramótin 2006.
Í desember árið 2001 gerðu
Alþýðusambandið, Samtök at-
vinnulífsins og ríkið samkomulag
um aðgerðir til stemma stigu við
verðbólgu. Þá var dregið svokall-
að rautt strik sem verðbólgan átti
að vera undir. Ólafur Darri segir
að staðan sé svolítið önnur núna.
„Við erum að horfa fram á að
hlutirnir geti farið úr böndunum
en í desember 2001 voru þeir
farnir úr böndunum,“ segir
Ólafur Darri. „Það sem við erum
að gera núna er að koma með
varnaðarorð til þess að koma í veg
fyrir að slíkt gerist aftur.“
trausti@frettabladid
– hefur þú séð DV í dag?
Orkunámskeið
sögð sundra
fjölskyldum
Gitte skipuleggur
fjárplógsstarfsemi
af verstu gerð
» BETRI SJÓNVARPSDAGSKRÁ
ÓLAFUR DARRI
Hagfræðingur ASÍ hefur áhyggjur af
ástandinu.
LÖGREGLUMÁL Ekið var á sölunest-
ið Staldrið við Stekkjabakka í
neðra Breiðholti um kvöldmat-
arleytið á sunnudag.
Ökumaður missti stjórn á
bílnum þegar hann steig á bens-
íngjöfina í stað bremsunnar.
Skemmdir voru ekki miklar á
húsnæðinu. Þær fást bættar
samkvæmt eiganda Staldursins.
Lögreglan í Reykjavík var köll-
uð til og tók skýrslu af atburðin-
um. Óhapp, segir lögreglan.
Ökumaður kenndi einskis meins
en bíllinn skemmdist lítillega. ■
STOPPAÐ Á STALDRINU
Ökumaður missti stjórn á bíl og ók á falsk-
an vegg við sölunestið Staldrið í neðra
Breiðholti.
Óhapp ökumanns:
Ekið á Staldrið
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
UNDIRRITUN SAMNINGA SÍÐASTA VETUR
Ásmundur Stefánsson ríkissáttasemjari og Halldór Björnsson, formaður Starfsgreinasam-
bandsins, voru ánægðir að lokinni undirritun kjarasamninga fyrir páskahátíðina.
Eiturlyfjahringur:
Höfuðpaur
handtekinn
TÉKKLAND, AP Tékkneska lögreglan
hefur handtekið einn af höfuðpaur-
um eiturlyfjahrings sem talið er að
hafi smyglað hundruð þúsunda
e-taflna til Bandaríkjanna.
Bandarísk yfirvöld óskuðu eftir
því að maðurinn, sem er þrítugur
Ísraeli, yrði framseldur til Banda-
ríkjanna. Auk hans hafa lögreglu-
yfirvöld víðsvegar um Evrópu
handtekið níu manns sem tengjast
eiturlyfjahringnum. E-töflunum var
smyglað frá Evrópu til Los Angeles,
en alls hafa um 130 þúsund e-töflur
verið gerðar upptækar. ■
VIÐ UNDIRRITUN Á SUNNUDAG
Við undirritun um stofnun sjálfseignarfélagsins f.v. Smári Geirsson, Magni Kristjánsson,
Tryggvi Ólafsson og Kristinn V. Jóhannsson.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/E
LM
A
G
U
Ð
M
U
N
D
SD
Ó
TT
IR