Fréttablaðið - 21.09.2004, Side 24
SVIPMYND
21. september 2004 ÞRIÐJUDAGUR8
? VISSIR ÞÚ …
Þitt verð
199kr?
SMS leikur
Sendu SMS
skeytið BTL STAR
á númerið 1900
og þú gætir unnið.
Kemur í
verslanir
Í DAG
13. hver vinnur
Í VINNING ER:
StarWars pakkinn
DVD myndir
Tölvuleikir
Ofl.
Vinningar verða afhendir hjá
BT Smáralind. Kópavogi.
Með því að taka þátt ertu kominn í
SMS klúbb BT. SMS kostar 199 kr.skipti á DVD
Vinsælasti þríleikur sögunnar
ásamt Bónusdisk með yfir
4 klst af frábæru aukaefni
Í fyrsta
Í hverju felst starfið?
Veita ráðgjöf varðandi tryggingar og sparnað.
Hvenær vaknarðu á morgnana?
Klukkan átta, ég er ekki svo tímabundin.
Hversu lengi vinnurðu?
Mjög misjafnt. Stundum fram á kvöld. Svo ferðast ég líka um landið
og þá er ég að vinna frá morgni til kvölds og geri í raun ekkert meira
en að vinna, en stundum tek ég mér góð frí. Vinnutíminn er í raun
mjög sveigjanlegur þar sem ég ræð mér mikið sjálf.
Hvað er skemmtilegast við starfið?
Kynnast nýju fólki. Vinnan snýst um fólk og ég hitti nýtt og nýtt fólk
um allt land.
En erfiðast?
Ég er alltaf í vinunni þó ég sé heima hjá mér. Það er mikið álag og
mikil ábyrgð hvílir á manni, það má ekkert klikka. Árangur starfsins er
undir mér kominn enda ber ég ein ábyrgð á mínum tekjum.
Hvað gerirðu eftir vinnu?
Sæki barnið mitt og á stund með fjölskyldunni. Eyði mestum mínum
tíma í að slaka á heima með fjölskyldunni. Heimilið er minn mið-
punktur og mér finnst gaman að fá fólk i kaffi.
Hvað gerirðu um kvöldið?
Finnst voðalega gott að slaka á fyrir framan sjónvarpið, kíkja í bók eða
fara á kaffihús.
Emilía Rigensborg kynnist mörgu nýju fólki í gegnum
starfið.
HVUNNDAGURINN
Vinnan snýst um fólk
Emilía Rigensborg er sölufulltrúi hjá Allianz og sinnir ráðgjöf fyrir einstaklinga varðandi tryggingar og sparnað.
HÚSAVÍK: KAUPSTAÐUR VIÐ AUSTAN-
VERÐAN SKJÁLFANDAFLÓA OG
STENDUR INNARLEGA Á TJÖRNESI.
FYRSTI ÍBÚI: Garðar Svavarsson hinn
sænski er þar hafði vetursetu eftir að
hafa siglt kringum landið.
NAFNIÐ: Dregið af húsunum hans
Garðars og er eitt af fyrstu örnefnum
landsins.
FJALLIÐ: Húsavíkurfjall er austan víkur-
innar 417 m, þar uppi er hringsjá.
FORSPRAKKAR: Vísir að fyrsta skíða-
skóla landsins var settur upp á Húsa-
vík 1780.
FRÆGUR BLAÐAMAÐUR: Jóhannes
Sigurjónsson er mikill skrifari og gaf út
Víkurblaðið - blað alls mannkyns -um
margra ára skeið. Nú ritstýrir hann
Skarpi.
GOTT AÐ VITA: Pöbbinn á staðnum
heitir Gamli-Baukur.
… að metið í kjúklingaflugi á kjúkling-
ur sem flaug í 13 sekúndur?
… að Tennessee-ríki í Bandaríkjunum
hét Franklin-ríki þangað til árið 1796?
… að kakkalakki getur lifað höfuðlaus
í nokkra vikur, þar til hann drepst úr
hungri?
… að venjulega manneskju dreymir
að minnsta kosti 1.460 drauma á ári?
… að Thomas Edison, sem fann upp
ljósaperuna, þjáðist af myrkfælni?
… að jörðin vegur
6,588,000,000,000,000,000,000,000
tonn?
… að uglur eru einu fuglarnir sem sjá
bláan lit?
… að q er eini bókstafurinn í stafróf-
inu sem kemur ekki fyrir í nafni nokk-
urs af ríkjum Bandaríkjanna?
… að leðurblökur beygja alltaf til
hægri þegar þær fljúga inn í hella?
… að meðalmanneskjan hlær 13
sinnum á dag?
… að ef þú þefar af grænum eplum
og banönum hjálpar það til við að
léttast?
…að Mick Jagger söng bakraddir í lagi
Carly Simon, You¥re so vain?
…að tveir af þremur fullorðnum ein-
staklingum í Bandaríkjunum nota gler-
augu einhvern tímann á lífsleiðinni?
…að augu mannsins eru um fimm
prósent af höfði hans?