Fréttablaðið - 21.09.2004, Side 25
Ritstjóri DV tekinn í bælinu
Á undanförnum mánuðum hefur DV
ítrekað farið út af velsæmiskortinu í
umfjöllun um mína persónu og fjöl-
skyldu. Þannig hefur DV margsinnis
flutt hreinar lygasögur, ýkjur og róg-
burð til þjóðarinnar sem „fréttir“.
Mér var algerlega nóg boðið þegar
ljósmyndari DV réðst að mér með til-
efnislausri myndatöku inn um glugga
á einkabifreið minni stutt frá sjúkra-
húsinu Landakoti þar sem ég var að
heimsækja móður mína á líknardeild.
Ég óskaði því eftir lögreglu á stað-
inn og krafðist að myndunum yrði
eytt. Mér til mikillar furðu tilkynnti
lögreglan mér að slíkar myndatökur
væru með öllu heimilar, og skírskot-
aði m.a. til að þar sem ég sé þjóð-
þekkt, eða „opinber“ persóna væri
þetta því bara í fínu lagi. Með þessu
hefur lögreglan gefið „paparazzi-
veiðileyfi“ á einkalíf þeirra einstakl-
inga sem ljósmyndarar óska einhliða
að flokka undir „opinberar persónur“.
Eftir að vera gerður afturreka af
Lögreglustöðinni með kæru á ljós-
myndarann, ákvað ég að láta reyna á
túlkun laganna. Ég mætti því með
mína eigin paparazzi ljósmyndavél
fyrir utan heimili ritstjóra DV og
hóf myndatökur inn um glugga og
hurðarop. Ekki leið á löngu þar til
uppi varð fótur og fit. Ritstjórinn bað
eiginkonunni griða, en þá benti ég
honum á að hann hafi nú lítil grið gef-
ið minni eiginkonu í umfjöllun blaðs-
ins að undanförnu en um hana hefur
blaðið skrifað slúður, lygar og ýkjur.
Margsinnis var hótað að hringja á
lögregluna sem ég bað þau endilega
að gera. Mér skildist í langan tíma að
lögregla væri á leiðinni sem aldrei
kom. Ritstjórinn kom margsinnis út
að lóðarmörkum og lét móðinn mása
og furðaði sig á að ég skyldi hafa tíma
í þetta. Ég sagði honum að ég væri
rétt að byrja, en ég hafði fyrr um dag-
inn pantað körfubíl sem var væntan-
legur til að geta farið með paparazzi
ljósmyndavélina á gluggana á efri
hæðum, m.a. á svefnherbergisglugga
þeirra hjóna, enda var ég að gefa rit-
stjóranum sýnishorn af hans eigin
starfsháttum sem virðast byggjast á
því að ekkert sé heilagt eða friðhelgt.
Eftir nokkurt þóf mátti skilja að
eiginkonan hefði rætt við ritstjórann
og haft þau góðu áhrif á hann að hann
kom í fjórða sinn út að lóðarmörkum,
í þetta sinn til að biðjast afsökunar og
lýsa því yfir að afsökunarbeiðni yrði
birt mér á síðum DV. Við tókumst í
hendur upp á það og ég fór – í bili – og
bíð nú átekta um hvort ég þarf á
körfubílnum að halda á næstunni.
Ég er ósammála þeirri túlkun lög-
reglunnar að tilefnislausar paparazzi-
myndatökur af einkalífi fólks séu
heimilar, enda er nýgenginn dómur
hjá Mannréttindadómstól Evrópu
sem ætti að taka af allan vafa um að
slíkar myndatökur eru óheimilar
hver sem á í hlut. Innanrými einka-
bifreiðar hlýtur að teljast ígildi heim-
ilis-friðhelgi. Einnig hljota þjóð-
þekktar persónur að hafa sama rétt
að lögum sem og aðrir þegnar þjóðfé-
lagsins. Umrædd myndataka af mér
innaní minni einkabifreið var alger-
lega tilefnislaus og átti sér stað þar
sem ég var í einkaerindum sem ekki á
nokkurn hátt tengdust starfi þeirra
samtaka er ég hef um árabil verið
talsmaður fyrir eða nokkrum öðrum
samtökum, opinberu starfi, eða
stjórnmálaframboði.
Til að taka af allan vafa um þetta
er nauðsynlegt að sett verði löggjöf á
Íslandi sem verndar fólk frá slíkum
ágangi óprúttna blaðasnápa. Ritstjórn
DV virðist að mestu byggjast á
óþroskuðum unglingum en bæði ljós-
myndari og blaðamaður sem mest
hafa ónáðað mig og mína fjölskyldu
eru varla meira en 18 ára gamlir
grislingar sem aldrei hafa stigið í
saltan sjó. Á litla Íslandi er auðvelt
aðgengi að þjóðþekktum persónum ef
ekki er til löggjöf sem verndar okkur
frá óvitunum á DV.
Ráðherrar, þingmenn, yfirmenn
lögreglunnar, fréttamenn, stjórnend-
ur og eigendur fjölmiðla eiga það
allir sameiginlegt að geta haft áhrif á
túlkun laganna um friðhelgi einkalífs.
Þeir geta því átt von á mér í körfu-
bílnum með aðdráttarlinsuna hvar og
hvenær sem er á meðan paparazzi-
veiðileyfi lögreglunnar eru í gildi hér
á landi. ■
17ÞRIÐJUDAGUR 21. september 2004
Kennarar eiga að fá góð laun
Hugsanlega er að bera í bakkafullan
lækinn að ætla að fara að tjá sig eitt-
hvað meira um kjör kennara og mögu-
legt kennaraverkfall núna. Líklega
allir búnir að fá upp í kok af því.
Aftan á Fréttablaðinu mánudaginn 13.
september skrifar Hrafn Jökulsson
hins vegar Bakþanka sem eiginlega
verður að gera athugasemdir við. Ég
hef ekki orðið var við að neinn hafi
gert það og því verð ég að gera það
sjálfur.
Í grein Hrafns segir: „Og hver
er þá staða grunnskólakennara?
Hafa kjör þeirra rýrnað? Reyndar
ekki. Kjör kennara hafa batnað á
liðnum árum, sem betur fer.“
Það fer nú allt eftir því hvernig
maður skilgreinir kjör. Vissulega
hefur krónutala grunnlauna hækk-
að samkvæmt launatöflu. Því má
hins vegar ekki gleyma að hér
áður fyrr var borgað aukalega
fyrir ýmislegt sem nú er inni í
grunnlaunum, s.s. stofuumsjón og
heimavinnuyfirferð sem nú er
hluti af grunnlaunum. Þau hafa því
ekki hækkað eins mikið og skyldi
ætla. Það var auðvitað mjög gott
að koma þessu inn í grunnlaunin
því þá hættu launin að lækka um
allt að 50% yfir sumartímann eins
og hafði verið áður.
En kjör felast ekki bara í launum. Í
síðustu kjarasamningum var skóla-
árið lengt án þess að kennsluskyldan
minnkaði. Kennarar kenna því fleiri
kennslustundir en áður og fá styttra
sumarfrí. Til að heildarklukkustunda-
fjöldi mundi ekki aukast var undir-
búningstími hins vegar styttur. Að
sjálfsögðu þurftu kennslustundir eftir
sem áður jafn mikinn undirbúning,
fara þurfti yfir jafn mikla heimavinnu
og útbúa jafn mörg verkefni. Það var
bara borgað minna fyrir þá vinnu. Þar
að auki var mikill fjöldi s.k. annarra
starfa færður inn í grunninn sem áður
hafði verið borgað sérstaklega fyrir (í
formi yfirvinnu yfirleitt) og skil-
greindur tími í þau störf undir verk-
stjórn skólastjóra innan bundins við-
verutíma í skólunum (Flestar aðrar
stéttir hafa lagt áherslu á að semja
um sveigjanlegan vinnutíma). Í stuttu
máli er um að ræða hærra kaup fyrir
mun meiri vinnu. Það hef ég aldrei
heyrt kallað launahækkun. Sú fullyrð-
ing að kjör kennara hafi batnað á liðn-
um árum er því vafasöm.
Önnur fullyrðing sem er vert að at-
huga er þessi: „Krakkarnir okkar eru
aðeins miðlungsnemendur í saman-
burði við börn í öðrum löndum.“
Þetta er að öllum líkindum rétt.
Íslenskir nemendur skoruðu lægra en
önnur Evrópulönd í stærðfræðikönn-
un sem var gerð fyrir fáum árum (þó
innan skekkjumarka frá þeim) en
lægra en flest Asíulönd og hærra en
lönd þriðja heimsins. Í lestrarkönnun
skoruðu íslenskir nemendur hærra en
jafnaldrar erlendis (að meðaltali). En
hér er að sjálfsögðu ráðandi sú hugs-
un að menntun sé hægt að meta í ein-
kunnum. Eini samanburðurinn sem
við höfum sem ekki er bundinn ein-
kunnum og könnunum er frammi-
staða íslenskra nemenda í framhalds-
námi erlendis. Þar hafa íslendingar
staðið sig mjög vel enda styður
íslenska skólakerfið ákaflega vel við
gagnrýna hugsun, sköpunargleði,
ímyndunarafl, persónulegan þroska
og slíkt. Þessi áhersluatriði hafa verið
ríkjandi í skólastarfi hérlendis þrátt
fyrir að erfitt sé að meta þau. (Auðvit-
að kemur á móti að íslendingarnir eru
yfirleitt einu til tveimur árum eldri en
erlendu nemendurnir og þar af leið-
andi líklega árinu þroskaðri). Fullyrð-
ing Hrafns er því mjög takmörkuð þó
rétt sé og líklega betra að orða hana
svona: Krakkarnir okkar standa
námslega jafnfætis nemendum í öðr-
um löndum. Þá er ekki litið til þess að
áherslur hér eru frekar á mannlegu
þættina en bókina.
Þegar grunnskólinn var færður yfir
til sveitarfélaganna vöruðu kennarar
ítrekað við því að þeim fylgdu of litlir
fjármunir frá ríkinu. Sveitarfélögin
skelltu skollaeyrum við þessum að-
vörunum og eru að súpa seyðið af því
núna. Sveitarfélögin eiga því leikinn.
Eftirfarandi staðhæfingar Hrafns
eru hins vegar góðar og gildar. Verk-
föll eru neyðarúrræði og kennarar
eiga að fá góð laun. ■
Í síðustu kjara-
samningum var
skólaárið lengt án þess að
kennsluskyldan minnkaði.
Kennarar kenna því fleiri
kennslustundir en áður og
fá styttra sumarfrí.
DANÍEL FREYR JÓNSSON,
GRUNNSKÓLAKENNARI
UMRÆÐAN
KJARABARÁTTA
KENNARA
,,
Ég er ósammála
þeirri túlkun lögregl-
unnar að tilefnislausar
paparazzi myndatökur af
einkalífi fólks séu heimilar.
ÁSTÞÓR MAGNÚSSON
FYRRV. FORSETAFRAMBJÓÐANDI
UMRÆÐAN
VINNUBRÖGÐ DV
,,