Fréttablaðið - 21.09.2004, Síða 29
AFMÆLI
Klara Vémundsdóttir,
Kleppsvegi 62, er 95
ára. Eiginmaður hennar
var Ársæll Kjartansson,
bílstjóri og síðar hús-
vörður hjá Nýja Bíó og
hjá Útvarpinu við Skúla-
götu, en hann lést 1991.
Í tilefni af afmælinu tekur Klara á móti
vinum og vandamönnum í veislusalnum
á annarri hæð, Kleppsvegi 62 í dag
klukkan 17-21. Gengið inn baka til að
sunnanverðu.
Helga Kress prófessor er 65 ára.
Hafdís Karlsdóttir, for-
seti Landssambands
soroptimista, er 50 ára.
Af því tilefni munu hún
og eiginmaður hennar,
Jóhann Árnason fram-
kvæmdastjóri, taka á
móti gestum í Rafveitu-
húsinu, Elliðaárdal, á milli klukkan 18 -
20 í dag. Gjafir eru afþakkaðar, en fyrir
þá sem vilja leggja góðu málefni í þágu
friðar lið verður baukur á staðnum.
Leður 1.999.- Leður 1.999.- Leður 1.999.- Leður 1.999.- Leður 2.999.-
Leður 2.999.- Leður 1.999.- Leður 999.- Leður 1.999.- Leður 1.999.-
Leður 1.499.- Leður 1.499.- Leður 1.499.- Leður 1.499.- Leður 999.-
Leður 999.- Efni 999.- Efni 999.-
Efni 999.-
Leður 1.999.- Leður 1.499.-
Leður 1.499.- Leður 1.499.- Leður 1.499.- Leður 1.499.-
Leður 1.499.- Leður 1.499.- Leður 999.- Leður 999.- Leður 999.-
RISA ÚTSALA
Póstsendum um allt land gegn
kortagreiðslu.
Pöntunarsími 699 2011.
SKÓMARKAÐURINN
FÁLKAHÚSINU SUÐURLANDSBRAUT 8, RVK.
OPNUNARTÍMI: MÁNUD. -LAUGARD. 11:00 – 18:00
JARÐARFARIR
13.30 Jóhannes Ingibjörn Ólafsson, fyrrv.
forstjóri Dósagerðarinnar, verður
jarðsunginn frá Neskirkju.
13.30 Guðbjörn Sigfús Kristleifsson, Asp-
arfelli 4, verður jarðsunginn frá
Fella- og Hólakirkju.
13.30 Gestur Guðmundur Þorkelsson,
Suðurgötu 72, Hafnarfirði, verður
jarðsunginn frá Fossvogskirkju.
14.00 Bjarki Hafþór Vilhjálmsson, Íshús-
stíg 5, Keflavík, verður jarðsung-
inn frá Keflavíkurkirkju.
15.00 Knútur Hákonarson, Hraunbæ
170, verður jarðsunginn frá Foss-
vogskirkju.
15.00 Ágústa Guðrún Halldórsdóttir, Há-
túni 4, verður jarðsungin frá Frí-
kirkjunni.
BLAÐBERI VIKUNNAR
GUÐRÚN ÁSA
Ingvar Viktorsson, formaður FH
og fyrrverandi bæjarstjóri í
Hafnarfirði, fagnaði Íslands-
meistaratitli þeirra FH-inga
ákaflega á sunnudaginn og
gleðin var ekki enn runnin af
honum í gær. „Þetta er nokkuð
sem við erum búnir að bíða eftir
í mörg, mörg ár og það er ekki
hægt að segja neitt annað en
loksins, loksins, loksins. Það eru
40 ár síðan FH lék fyrst undir
eigin nafni á Íslandsmótinu og 30
ár síðan liðið fór fyrst upp í efstu
deild þannig að þetta hefur verið
löng bið.“
Ingvar er almennt talinn FH-
ingur númer eitt og hann efast
ekki um að strákarnir hans séu
vel að titlinum komnir. „Þetta er
stórkostlegt en strákarnir áttu
þetta virkilega skilið enda voru
þeir að spila besta fótboltann af
öllum liðunum í sumar. Svo er
þetta auðvitað rós í hnappagat
Hafnarfjarðar en bæjaryfirvöld
hafa staðið feykivel að íþrótta-
málum og menn eru að uppskera
eins og til var sáð en Hafnfirðing-
ar eru á toppnum í öllum íþrótta-
greinum sem þeir taka þátt í.“
Ingvar segir að það megi
heldur ekki gleyma þætti stuðn-
ingsmanna FH sem fylgt hafa
liðinu í sumar. „Halli og Heiðar í
Botnleðju og Viðar Steingríms-
son hafa lyft þessu á æðra plan
ásamt Þóri, heitnum, Jónssyni,“
segir Ingvar en stjórn FH fór
ásamt leikmönnum liðsins í gær
þar sem hver og einn lagði eina
rós á leiði Þóris sem lést fyrr á
árinu.
Ingvar segist ekki hafa verið
rólegur á vellinum þó titillinn
hafi nánast verið gulltryggður.
„Ég er þekktur fyrir það að geta
ekki verið á vellinum og er því
yfirleitt spurður að því eftir leiki
hversu langir þeir hafi verið þar
sem ég hef þá oft keyrt í gegnum
þrjú sveitarfélög á meðan. En ég
var allan tímann á vellinum á
sunnudaginn, gegndrepa í rign-
ingunni,“ segir Ingvar sem segir
það ekki rétt að hann hafi ein-
hverju sinni fengið hjartaslag á
vellinum. „Það er ekki rétt en ég
æsi mig oft þannig að mig snar-
svimar.“ ■
Hvað heitir blaðberinn?
Guðrún Ása.
Hvað ertu búin að bera
lengi út?
Ég er búin að bera út í tæpt ár.
Hvað ertu með í vasanum?
GSM-síma.
Hvað finnst þér skemmti-
legast að gera?
Spila handbolta og hanga með
vinum mínum.
Hvert er þitt mottó?
Að lifa lífinu.
GUÐRÚN ÁSA Er blaðberi vikunnar hjá
Fréttablaðinu. Hún er búin að bera út í
tæpt ár.
Loksins, loksins, loksins
INGVAR VIKTORSSON Fagnaði Íslandsmeistratitli FH ákaft á sunnudaginn. Hann segir
40 ára bið á enda en hann var sjálfur inn á þegar FH spilaði fyrst undir eigin nafni fyrir
fjórum áratugum.
M
YN
D
P
ED
O
M
YN
D
IR
.IS