Fréttablaðið - 21.09.2004, Síða 40
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 550 5010 - fax 550 2727, auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R
80%veðsetningarhlutfallFrjáls íbúðalán, 4,2% verðtryggðir vextir
Engin skilyrði um hvar þú ert með þín bankaviðskipti
Ráðgjafar okkar veita allar nánari upplýsingar. Þú getur litið inn í Ármúla 13a, hringt í síma 540 5000 eða sent tölvupóst á frjalsi@frjalsi.is
H
i
m
i
n
n
o
g
h
a
f
www.frjalsi. is
SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 550 5000
Af gabbi og
góðverkum
Kvótakóngur situr í hásæti og veifar veldissprota. Árangur af
óbilandi eljusemi meðlima frama-
bandalagsins hefur loks skilað sér.
Auðlindir hafsins eru til allrar ham-
ingju ekki lengur í eigu almennings.
Samvinnuhugsjónin er eins og óupplýst
mannshvarf – vandræðalegt feimnis-
mál fortíðar. Verið er að malbika há-
lendið, slétta úr ólögulegum fjöllum
og hanna stöðuvötn í annars mis-
heppnuðu sköpunarverki almættisins.
Framtíðin er í starfsmiðlun fyrir er-
lenda verkamenn sem neyðin rekur til
að vinna við gamla, íslenska stóriðju-
drauma. Þar er nú góðverk sem seint
verður nóg þakkað. Mikill er áhugi
Austfirðinga á störfum í áliðnaði því
heilir tveir sækja um á áliðnaðarbraut
verkmenntaskólans þar eystra.
Staðfestan
Vér, vopnlausir lopahausar, erum full-
gildir aðilar að hernaðarárásum úti í
heimi. Yfirmaður sameinaðra þjóða
ibbar gogg og gerir lítið úr landvinn-
ingum okkar í Austurlöndum nær. Við
sem ígrunduðum innrás okkar í Írak
og komumst að skynsamlegri niður-
stöðu eftir mikið og lýðræðislegt sam-
ráð við fjölmarga. Gíslatökur eru dag-
legt brauð og borgarastyrjöld jafnvel
yfirvofandi. Litla Danmörk er komin
ofarlega á lista hryðjuverkahópa
sökum staðfestunnar.
Mistök
Okkar menn voru gabbaðir – segjast
hafa fengið rangar upplýsingar.
Skyldu þeir, í ljósi nýrra upplýsinga,
ætla að afturkalla stuðninginn og stað-
festuna? Skyldi standa til að afturkalla
aðild okkar að árásum og pyntingum?
Að sjá að sér, viðurkenna mistök og
endurskoða hug sinn er stórmannlegt.
Það ber vott um skynsemi og þroska.
Litlir karlar drepa hinsvegar málum á
dreif og stinga haus í sand.
Götur mældar
Fjörutíu og fimm þúsund krakka-
ormar mæla götur í stað þess að sitja
á skólabekk og drekka í sig fróðleik
lærimeistaranna. Heilsuskólar og
leikjanámskeið banka og tryggingar-
félaga hefjast fyrir tilviljun. Svo má
skrá krílin á leirkeranámskeið í átta
tíma á dag. Út úr því gæti komið tólf
manna matarstell áður en verkfalli
lýkur. Er vit að þið farið í sveitina?
Hvað ef samið verður við kennara í
dag og verkfalli aflýst? spyr móðir
áhyggjufull og fylgist með tveimur
stelpuskjóðum sem pakka ofan í tösk-
ur. Segðu þá bara kennurunum að við
höfum ákveðið að fara sjálfar í verk-
fall og skella okkur í réttir, er svarið.
BAKÞANKAR
KRISTÍNAR HELGU
GUNNARSDÓTTUR