Fréttablaðið - 01.10.2004, Blaðsíða 8
8 1. október 2004 FÖSTUDAGUR
Rauði krossinn gengur til góðs:
Ætla í hvert einasta hús
SÖFNUN „Við erum komin með 700
sjálfboðaliða á skrá en þurfum
2.500 til að ná settu marki. Við
ætlum í hvert einasta hús,“ segir
Þórir Guðmundsson, upplýsinga-
fulltrúi Rauða krossins á Íslandi,
en á morgun stendur Rauði kross-
inn fyrir átakinu „Göngum til
góðs“ þar sem sjálfboðaliðar
ganga í hús og safna fjármunum
fyrir stríðshrjáð börn.
Að sögn Þóris hefur alls konar
fólk skráð sig sem sjálfboðaliða.
„Oft eru þetta fjölskyldur sem
ganga saman og það myndast
skemmtileg stemning þegar for-
eldrar taka börn sín með. Við
kynnum þetta sem hressandi úti-
göngu,“ segir Þórir. Rauði kross-
inn hefur tvisvar áður gengið til
góðs með þessum hætti, árin 2000
og 2004. „Reynslan er sú að fólk
tekur mjög vel á móti sjálfboðalið-
unum,“ segir Þórir. Hann segir að
skipulagning verkefnisins sé mjög
umfangsmikil og tugir starfs-
manna og sjálfboðaliða komi að
því á vegum 51 deildar Rauða
krossins um land allt. Alls eru á
landinu um 80 söfnunarstöðvar
sem gengið verður frá, þ.á m. í
öllum hverfum borgarinnar.
Þeir sem áhuga hafa á að ganga
til góðs með Rauða krossinum
á morgun til að safna fé handa
stríðshrjáðum börnum geta
skráð sig í síma 570 4000 eða á
redcross.is. ■
Ætla að staðfesta
Kyoto-bókunina
Rússar hafa tekið ákvörðun um að samþykkja Kyoto-bókunina. Með
því verður raunhæft að sáttmálinn taki gildi en hingað til hefur and-
staða Bandaríkjanna og Kína auk efasemda Rússa komið í veg fyrir það.
MOSKVA, AP Rússar hafa ákveðið að
staðfesta Kyoto-bókunina um að
draga úr útblæstri gróðurhúsaloft-
tegunda. Þar með aukast líkurnar á
því að bókunin frá 1997 taki gildi en
til þess þurfa minnst 55 ríki sem
bera ábyrgð á a.m.k. 55 prósentum
af útblæstri gróðurhúsalofttegunda
að staðfesta bókunina.
Ríkin sem staðfesta bókunina
skuldbinda sig til þess að útblástur
gróðurhúsalofttegunda verði ekki
meiri árið 2012 en hann var árið
1990. Með því á að sporna gegn
hlýnun jarðar.
Lengi hefur legið ljóst fyrir að
Kyoto-bókunin tekur ekki gildi án
staðfestingar Rússa. Ástæðan er sú
að bæði bandarísk og kínversk
stjórnvöld þvertaka fyrir að
staðfesta hana. Þess vegna hefur
Evrópusambandið þrýst mjög á
Rússa að staðfesta bókunina.
Pútín hét því í maí að flýta fyrir
því að Rússar staðfestu Kyoto-
bókunina. Það gerði hann gegn því
að fá stuðning Evrópusambandsins
við inngöngu Rússlands í Alþjóða-
viðskiptastofnunina.
Skilja mátti á rússneskum ráða-
mönnum í gær að þeir væru ekki
alls kostar sáttir við að staðfesta
bókunina. „Þetta er ákvörðun sem
var tekin vegna þrýstings og við
erum ekki sáttir við að taka,“ sagði
Andrei Illarionov, efnahagsráðgjafi
Vladimírs Pútín Rússlandsforseta,
sem hefur verið framarlega í hópi
rússneskra andstæðinga Kyoto-
bókunarinnar.
Útblástur gróðurhúsaloftteg-
unda frá Rússlandi er nú þriðj-
ungi minni en hann var árið 1990.
Ástæðan er að hluta til sú að
mengandi stóriðja sovéttímans
hefur vikið fyrir umhverfisvænni
tæknibúnaði og að hluta vegna
þess að mörg iðnfyrirtæki hafa
hætt starfsemi. Nú er hins vegar
útlit fyrir að útblásturinn aukist
samfara uppsveiflu í rússnesku
efnahagslífi. Því eru margir rúss-
neskir ráðamenn andvígir því að
bókunin verði staðfest þar sem
þeir telja að hana draga úr mögu-
leikum Rússa á að byggja upp
efnahag sinn. ■
SVONA ERUM VIÐ
VERÐMÆTI ÚTFLUTNINGS Í
ÁGÚST 2004
Sjávarafurðir 9.033 millj. kr.
Landbúnaðarvörur 233
Iðnaðarvörur 5.254
Aðrar vörur 195
Heimild: Hagstofan
BRETLAND, AP Fulltrúar á flokks-
þingi Verkamannaflokksins í
Brighton samþykktu ályktun þar
sem stuðningi er lýst við að breskt
herlið verði áfram í Írak með
stuðningi Sameinuðu þjóðanna og
samþykki íraskra stjórnvalda.
Mikill meirihluti þingfulltrúa
samþykkti tillöguna með lófa-
klappi.
Fyrr um daginn felldu þingfull-
trúar ályktun grasrótarinnar um
að stjórnin ætti að dagsetja brott-
hvarf breska hersins frá Írak og
að það brotthvarf ætti að eiga sér
stað fljótlega. 85 prósent þingfull-
trúa greiddu atkvæði gegn álykt-
uninni sem hefði verið vandræða-
leg fyrir Tony Blair, leiðtoga
flokksins, en ekki bindandi. ■
Á RÚSSNESKRI BENSÍNSTÖÐ
Markmið Kyoto-sáttmálans er að draga úr útblæstri gróðurhúsalofttegunda. Þau ríki sem
ekki standa við skuldbindingar sínar kunna að verða neydd til að minnka iðnframleiðslu.
M
YN
D
/A
P
FORYSTUMENN
Forsætisráðherrann og utan-
ríkisráðherrann urðu að verja
stefnu sína í Íraksmálum.
Tony Blair:
Slapp með skrekkinn
ÆTLA AÐ GANGA TIL GÓÐS
Starfsmenn fjölda fyrirtækja ætla að taka þátt í söfnun Rauða krossins Göngum til góðs á
laugardag auk íþróttafélaga, saumaklúbba og margra annarra hópa. Á þriðja tug starfs-
manna Radisson SAS hótelsins ætla að ganga í Vesturbænum, álíka margir starfsmenn
ISS ganga í Fossvogi, starfsmenn fyrirtækisins Margt smátt ganga í Grafarholti, starfsmenn
Íslandsbanka ganga í Foldahverfinu í Grafarvogi, Landsvirkjunarmenn ganga í Álftamýrinni
og starfsmenn Símans taka Árbæinn.
LESTIR Í ÁREKSTRI 35 slösuðust
þegar hollensk farþegalest lenti í
árekstri við belgíska flutningalest í
Hollandi, rétt hjá landamærunum
að Belgíu. Nokkrir urðu fyrir höf-
uðmeiðslum og beinbrotum.
ÓTTUÐUST DAUÐANN „Við óttuð-
umst það frá fyrsta degi að verða
myrtar,“ sagði Simona Torretta,
önnur ítölsku gíslanna í Írak sem
var sleppt á dögunum. Hún sagði
að þrátt fyrir góða meðferð í
þriggja vikna gíslingu þeirra hafi
þær alltaf óttast að illa kynni að
fara, þó vissu þær að þær yrðu
ekki myrtar strax.
FJÁRMAGN FRÁ SÁDI-ARABÍU Rabei
Osman Ahmed, Egyptinn svokallaði
sem talinn er hafa skipulagt
hryðjuverkaárásirnar í Madríd síð-
asta vor, naut fjárstuðnings sádi-
arabísks klerks á árunum 2001 til
2003. Ekki liggur þó fyrir hvort
klerkurinn hafi fjármagnað árás-
irnar beint eða aðeins staðið
straum af kostnaði við uppihald
Egyptans sem ku reyndar ekki
vera Egypti.
■ EVRÓPA