Fréttablaðið


Fréttablaðið - 01.10.2004, Qupperneq 15

Fréttablaðið - 01.10.2004, Qupperneq 15
FÖSTUDAGUR 1. október 2004 Fylltu þennan mi›a út og komdu með hann í happ- drættisbásinn á Ostadögum – flú gætir unnið flugfer› fyrir tvo me› Iceland Express til Kaupmannahafnar e›a London. Haft verður samband við vinningshafann. Happdrættismi›i Já takk, ég vil fá sendar uppl‡singar frá Osta- og smjörsölunni um eftir- farandi atri›i á tölvupóstfang mitt: Uppskrift mána›arins Tilbo› og n‡jungar Námskei› á vegum Osta- og smjörsölunnar Uppákomur og s‡ningar Fullt nafn: Heimilisfang: Tölvupóstfang: Póstnúmer: Sveitarfélag: Sími: Vetrargarðinum í Smáralind 2. og 3. október 20 0 4 Dagskrá 2. október - Beinvernd b‡›ur beinfléttnimælingar frá kl. 12–14 og 15–17. - Vínfljónasamtök Íslands veita rá›gjöf frá kl. 14–16. - Landsli› matrei›slumeistara stillir upp keppnisbor›i me› köldum réttum fyrir Ólympíuleikana. - Klúbbur matrei›slumeistara s‡nir listir sínar og veitir rá›gjöf. 3. október - Beinvernd b‡›ur beinfléttnimælingar frá kl. 14–17. - Vínfljónasamtök Íslands veita rá›gjöf frá kl. 14–16. - Íslandsmeistararnir í Fitness, Kristján og Aðalheiður, reyna við Íslandsmet í upphífingum, armbeygjum og dýfum kl. 15. - Félag matrei›slumanna s‡nir listir sínar og veitir rá›gjöf. S‡ningin er opin: 2. október kl. 11–18 og 3. október kl. 13–18 Vi› bjó›um flér a› koma á Ostadaga 2004 Kynntu flér íslenska ostaframlei›slu og n‡justu ostadómana. Smakka›u á íslenskum ostum og sjá›u hva›a spennandi ostan‡jungar vi› bjó›um upp á! H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA DANMÖRK, AP „Ég ætla til Tsjetsjeníu til að berjast fyrir múslima. Múslimar eru ofsóttir í Tsjetsjeníu og Rússarnir fremja hryðjuverk gegn þeim,“ sagði Slimane Hadj Abderrahmane í viðtali við dönsku útvarpsstöðina DR-1. Nokkrir mánuðir eru liðnir síðan honum var sleppt úr haldi á Guantanamo þar sem Bandaríkja- menn héldu honum. Þá hét hann því að heyja ekki vopnaða baráttu. Nú segir hann að Bandaríkjamenn geti skeint sér á skjalinu sem hann undirritaði þess efnis. Abderrahmane er sonur danskrar konu og alsírsks karl- manns. Hann var handtekinn í Afganistan snemma árs 2002 þar sem hann sagðist vera í þjálfun fyrir baráttuna í Tsjetsjeníu. ■ Danskur múslimi: Ætlar til Tsjetsjeníu ABDERRAHMANE Þarf leyfi dönsku lögreglunnar til að yfir- gefa Danmörku. þeir tefla hagsmunum sínum í tví- sýnu ef þeir setja fram sjónarmið í umdeildum málum sem eru á annan veg en þann sem forystan hefur gefið upp. Þetta er stóra vandamálið í flokknum,“ segir Kristinn. „Það vantar skoðanaskipti innan flokksins og að mönnum finnist þeir frjálsir að því að segja sína skoðun í einstökum málum. Ég hef samanburðinn úr öðrum stjórnmálaflokki, þar sem menn voru mjög frjálsir af því að segja sína skoðun í öllum málum og gerðu það alveg tæpitungulaust og var ekkert refsað fyrir það,“ segir hann. Segist vera í réttum flokki Kristinn segist aðspurður hafa fengið mikinn stuðning, bæði af höfuðborgarsvæðinu og lands- byggðinni, í kjölfar ákvörðunar þingflokksins að hann tæki ekki þátt í nefndarstarfi á þessu þingi. „Ég held að mönnum ofbjóði þetta. Í fyrsta lagi þarf að vera til- efni. Þetta hefur á engann hátt verið útskýrt og því vantar grund- völlinn fyrir ákvörðuninni. Í öðru lagi, ef það er tilefni, væri eðli- legra að bregðast við því eins og gert er í eðlilegum, mannlegum samskiptum. Aðgerðin á að vera í einhverju samhengi við tilefnið,“ segir Kristinn. „Í þessu máli er tilefnið sagt trúnaðarbrestur, en aðgerðin felur í sér að ég sit áfram inni á trúnaðarfundum. Það er ekki fundið að störfum mínum í þing- nefndum en ég er tekinn út úr nefndunum, störfum sem ég hef gegnt með sóma. Það er eiginlega ekki heil brú í þessu,“ segir hann. Þeir framsóknarmenn sem ekki eru sáttir við framgöngu Kristins hafa jafnvel ýjað að því að hann sé einfaldlega ekki í rétt- um flokki. Spurður hvort hann eigi fulla samleið með Framsókn- arflokknum segir Kristinn svo vera. „Í málum eins og fjölmiðlamál- inu, Íraksmálinu, atvinnuleysis- bótamálinu og varðandi fyrirhug- aða sölu Símans, er yfirgnæf- 7andi meirihluti stuðningsmanna flokksins á móti þeim ákvörðun- um sem flokkurinn hefur tekið en sammála þeim sjónarmiðum sem ég hef í málinu. Þess vegna segi ég, að ég á alveg samleið með þessu fólki. Spurningin er hins vegar þessi: Þarf ekki forystan að skoða sinn hug og velta því fyrir sér hvort að ákvarðanirnar sem hún er að taka þurfi ekki endur- skoðunar við? Hvort menn eigi ekki að hlusta meira á viðhorfin innan flokksins og frá stuðnings- mönnum en gert hefur verið?“ spyr hann. Þingmenn eingöngu bundn- ir eigin sannfæringu „Eiðurinn sem þingmenn vinna við stjórnarskrána segir að þeir séu eingöngu bundnir við eigin sann- færingu. Þingmaðurinn sjálfur ræður hvernig hann kemst að nið- urstöðu, það er ekki hægt að binda hann með fyrirmælum frá öðrum. Þannig getur stjórnmálaflokkur ekki sett í sín lög að þingmenn skuli hlýða ákvörðun miðstjórnar, þingflokks eða formanns. Það er óheimilt samkvæmt stjórnarskrá,“ segir Kristinn. „Hins vegar eru þingmenn hluti af flokki. Almenna reglan er að þeir undirgangast þær sam- þykktir sem ákveðnar eru á þeirra vettvangi. Það er ekkert at- hugavert við það en þeir eiga alltaf möguleika á, út frá þessu ákvæði í stjórnarskránni, að neita að hlýða fyrirmælum þegar þau ganga lengra en þeir telja eðli- legt,“ segir hann. Kristinn segir að sem liðs- maður í stjórnmálaflokki hafi hann gengist undir samþykktir sem hann er algjörlega ósammála. „Ég hef meira að segja talað fyrir þeim og stutt þær á grundvelli þess að þetta var niðurstaða minna flokksmanna. Niðurstaða sem var fengin með aðferðum sem ég samþykkti. Þó að hún hafi ekki verið eins og ég vildi, þá uni ég því,“ segir hann. Dæmi um þau mál eru veiðigjald í sjávarútvegi, ákvörðunin um að leggja niður Þjóðhagsstofnun og fyrirhuguð sala Símans. Félagslegu áherslurnar hafa deyfst um of Spurður um samstarfið við Sjálf- stæðisflokkinn segir Kristinn að Framsóknarflokkurinn sé félags- hyggjuflokkur. „Það kemur fram í ályktunum og stefnuskrá flokks- ins. Í því felst að Framsóknar- flokkurinn fylgir hugsjónum jafn- aðarstefnu og samvinnu. Því mega menn ekki gleyma. Eftir níu ára samstarf við Sjálfstæðis- flokkinn eru þessar félagslegu áherslur farnar að deyfast um of,“ segir Kristinn. Spurður hvort framsókn hafi smitast um of af stefnu Sjálfstæð- isflokksins segir hann að æ fleiri stuðningsmenn flokksins segist eiga erfitt með að sjá muninn á Framsóknarflokknum og Sjálf- stæðisflokknum. „Það er mikið áhyggjuefni. Við erum félags- hyggjuflokkur, við erum öðruvísi flokkur, og við eigum að sýna það. Út af fyrir sig hefur formaður flokksins tækifæri til þess núna sem forsætisráðherra að beita sér til þess að sýna þessar áherslur flokksins. Það held ég að hann ætti að gera,“ segir Kristinn. ■ - Fjölmiðlamálið „Yfirgnæfandi meirihluti stuðnings- manna flokksins var á móti málinu frá upphafi og alltaf á móti, í gegn um öll tilbrigði málsins.“ - Íraksmálið „Jafnvel enn meiri andstaða við ákvörð- unina sem formaður flokksins tók. Hluti af vandanum þar var að ákvörðunin var ekki tekin á neinn hátt innan flokksins, hvorki þingflokksins eða stofnana flokksins að öðru leyti.“ - Fyrirhuguð skerðing á atvinnu- leysisbótum í tengslum við fjár- lagafrumvarpið. „Ákvörðun ríkisstjórnarinnar var kynnt, að til stæði að fella burt fyrstu þrjá daga í atvinnuleysi. Þetta var veruleg skerðing á atvinnuleysisbótum. Gríðarleg and- staða var við þetta í flokknum. Við feng- um heimsóknir, símtöl og skeyti frá flokksmönnum og á endanum gáfust ráðherrar upp á því að halda þessu til streitu. Flokksmennirnir börðu þetta mál niður alveg eins og þeir börðu niður fjölmiðlafrumvarpið.“ MÁL SEM KRISTINN REIS UPP GEGN:
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.