Fréttablaðið - 01.10.2004, Side 29

Fréttablaðið - 01.10.2004, Side 29
Ostur með gati Á Ostadögum í Smáralindinni um helgina verður fólki boðið að smakka á 90 tegundum af osti. Þar á meðal verða nokkrar nýjungar eins og nýr hvítmygluostur, bragðbættir mysuostar og smyrjanlegur gráðaostur. Ólympíu- borð kokkalandsliðsins verður til sýnis auk þess sem boðið verður upp á vín- ráðgjöf á vegum Vínþjónasamtökum Íslands. Þetta verður veisla fyrir bragð- laukana og ættu allir sælkerar að finna eitthvað við sitt hæfi. Ostakaka með hindberjum er meðal þeirra nýj- unga sem kynntar verða á Ostadögum. Hrókur- inn er hvítmygluostur með gati, nýr ostur hjá Osta- og smjörsölunni. 3FÖSTUDAGUR 1. október 2004 Til hnífs og skeiðar GUÐRÚN JÓHANNSDÓTTIR ELDAR HÆGT Hvað er ánægjulegra á vindasömum frídegi að hausti til en að taka sér góðan tíma við að nostra við matseldina og fylla húsið daglangt af dýrðlegum matarilmi. Þessi réttur er hátíðarútgáfa af klassískum breskum hversdagsrétti (Shepherd´s pie). Hversdagsútgáfu má gera með því að sleppa víninu og bæta við kjúklingasoði í staðinn. Byrjið á því að brúna lambahakkið á pönnu og hella fitunni af. Saltið og piprið og setjið til hliðar. Bræðið smjör á pönnu og steikið lauk, hvítlauk, grænmeti og kryddjurtir, í nokkrar mínútur. Bætið þá hakkinu út í og steikið áfram. Tómat- krafti, lárviðarlaufi og Worcestershire- sósunni er þá blandað út í og hrært vel. Hellið víninu því næst út í smátt og smátt og látið sjóða burt. Hrærið vel í á meðan. Þá er hveitinu hrært vel út í og því næst kjúklingasoð- inu. Rétturinn er látinn malla við lágan hita í um eina klukkustund. Hrærið í öðru hvoru. Ef rétturinn virðist þykkna um of, bætið þá ör- litlu vatni út í. Kartöflurnar eru soðnar og stappaðar með smjörinu og mjólkinni. Eggjarauðum hrært út í stöppuna og hún söltuð og pipruð eftir smekk. Að síðustu er hakkblandan sett í ofnfast fat og kartöflu- stöppunni smurt ofan á. Rifnum osti stráð yfir allt og rétturinn bak- aður í ofni þar til osturinn er gullinnbrúnn og girnilegur. Berið fram með góðu brauði og salati. ■ 700 g lambahakk smjör 3 laukar (saxaðir smátt) 2 hvítlauksgeirar (kramdir með hnífs- blaði og saxaðir smátt) 3 gulrætur (skornar smátt) 4 stilkar sellerí (skornir smátt) 1 lárviðarlauf 1 tsk. timían 1 tsk. rósmarín 1 msk. tómatkraftur 2 tsk. Worcestershire-sósa 1 fl. rauðvín (ath. þetta er hátíðarútgáfa!) 2 msk. hveiti 200 ml kjúklingasoð (úr teningi er í lagi) kartöflustappa 1 kg kartöflur (skornar í fjóra bita) 2 eggjarauður 100 g smjör 120 ml mjólk 100 g rifinn ostur Verð áður 6.190.- Tilboðsverð nú 4.990.- T I L B O Ð California Connoisseur vínþrúgur Áman - víngerðarverslunin þín Afgreiðslutími: Bæjarlind 6: virka daga 11-18 Skeifunni 11: virka daga 10-18, laugardaga 10-15 Fer í alþjóðlega samlokukeppni: Sigurvegari frá Hótel Borg Svokölluð Delifrance- samlokukeppni var haldin á Hótel Nordica sunnudaginn 26. sept- ember síðastliðinn. Alls tóku sjö kepp- endur þátt en hlut- skarpastur varð Krist- inn Guðmundsson, mat- reiðslumaður á Hótel Borg og landsliðsmaður. Kristinn verður þar af leiðandi full- trúi Íslands í fimmtu alþjóðlegau Delifrance-samloku- keppninni sem haldin verður í Lyon í Frakk- landi þann 25. og 26. janúar á næsta ári. Í öðru sæti var Brynjar Eymundsson, matreiðslumeistari á veitingastaðnum Heitt & kalt, en í þriðja sæti var Jakob Már Harð- arson, matreiðslumaður á Kringlu- kránni. ■ Hlutverk dómnefndar var ekki auðvelt. Gosblöndurnar WKD Blue og WKD Ice nutu mikilla vinsælda hér á landi en hafa ekki fengist um skeið í Vínbúðum. Nýr umboðsaðili hefur nú tekið við þeim og eru þær því fáanlegar á ný í Vínbúðum og það á lækk- uðu verði. Frá og með deginum í dag lækkar verðið á hverri flösku úr 319 kr. í 269 kr. WKD Ice var fyrsti Ice- drykkurinn sem kom á markað hérlendis og skapaði sér strax ákveðna sérstöðu. Erlendis er WKD Blue mjög vin- sæll og er t.a.m. einn alvinsælasti drykkurinn í Bretlandi. Verð í Vínbúðum 269 kr. WKD Blue og Ice: Gosblöndur lækka í verði Nýtt í Vínbúðum Vinsælasta rósavín á Íslandi áratugum saman er kali- forníska vínið Carlo Rossi. Það kemur frá Livingston-vín- gerðarhúsinu og var hér á árum áður þekkt undir nafn- inu Chablis Blush. Frakkar voru ekki sáttir við notkunina á Chablis-nafninu, þar sem það vísar í ákveðið hérað í Frakklandi og vandræðalegt þótti að vinsælasta rósavín heims bæri það nafn, sérstaklega þar sem það er amer- ískt! Nú um mánaðamótin lækkar verð á þessu vin- sæla rósavíni og er það eflaust fagnaðarefni fyrir fjöl- marga aðdáendur þess hérlendis. 1,5 l kúturinn kunn- uglegi með handfanginu lækkar úr 1.350 kr. í 1.290 og 0,75 l flaskan lækkar úr 770 kr. í 740 kr. Carlo Rossi Rosé er ákaflega gott eitt og sér, sérstak- lega vel kælt, og hentar vel með asískum mat. Verð í Vínbúðum 1,5 l á 1.290 kr. og 0,75 l á 740 kr. Carlo Rossi Rosé: Vinsælt rósavín lækkar í verði Vín vikunnar

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.