Fréttablaðið - 01.10.2004, Qupperneq 39
Á árunum 1985 og 1986 náðist víð-
tæk samstaða um það meðal
þeirra stjórnmálaflokka sem þá
störfuðu í borgarstjórn að gera
ákveðnar breytingar á stjórnkerfi
Reykjavíkurborgar. Þá voru með-
al annars íþróttaráð og æskulýðs-
ráð sameinuð í eina fagnefnd,
íþrótta- og tómstundaráð, og
stofnuninni ÍTR komið á laggirn-
ar. Allt síðan þá hefur ráðið og
stofnunin unnið að miklum hags-
munamálum fyrir íþróttahreyf-
inguna í borginni í góðri sátt
meðal borgarfulltrúa og við
íþróttahreyfinguna.
Nú virðast einhverjir snilling-
ar á vegum R-listans vera með þá
flugu í kollinum að sameina
íþrótta- og tómstundamálin menn-
ingarmálunum og búa til einn yfir-
frakka yfir þennan málaflokk.
Þvílíkt rugl. Að málaflokkar eins
og íþrótta- og tómstundamál ann-
ars vegar og menningarmál hins
vegar verðskuldi það ekki í stjórn-
kerfi borgarinnar að hafa eigin
fagnefndir og yfirstjórnir eru sér-
kennilegar kveðjur R-listans til
borgarbúa þegar haft er í huga að
þessi öfl hafa gjarnan rætt um
mikilvægi þessara málaflokka og
nauðsyn þess að þeir starfi sjálf-
stæðir og af festu, hvor á sinu
sviði.
Enda sýndi fyrrverandi borgar-
stjóri R-listans það í verki og með
orðum að hún mat þessa mála-
flokka, verkefni þeirra og með
hvaða hætti menningarmálanefnd
og íþrótta- og tómstundaráð störf-
uðu. Það er kannski þess vegna
sem núverandi sendisveinar R-
listans, undir forystu borgar-
stjóra, telja sérstaka ástæðu til að
breyta þessu nú. Eftir að Ingi-
björg Sólrún fór frá R-listanum
hefur listinn breyst úr Reykjavík-
urlista yfir í einhvern R-ugllista.
Því ekki er þetta fólk lengur að
vinna að hagsmunum borgarbúa,
heldur að eigin hagsmunum.
Og nú telur einn af talsmönnum
R-listans, sá sem ekkert bakland
hefur og engan flokk á bak við sig,
að stjórnkerfi það sem R-listinn
hefur verið að koma upp á síðustu
tíu árum sé orðið svo flókið að það
þurfi fólk með masterspróf í
stjórnsýslufræðum til að skilja
stjórnsýslu Reykjavíkurborgar.
Og þess vegna sé rétt að ráðast nú
í stórfelldar kerfisbreytingar í
borginni.
Þessar fyrirhuguðu breytingar
eru greinilega mjög vanhugsaðar
og illa grundaðar. Fullyrða má að
forystumenn í íþrótta- og æsku-
lýðsmálum og í menningarmálum
í borginni munu algjörlega hafna
þessum óskynsamlegu hugmynd-
um.
R-listinn fremur nú hvert
glappaskotið á fætur öðru og má
þar nefna tillögu um að hafna því
að byggð verði mislæg gatnamót
við Miklubraut-Kringlumýrar-
braut, áframhald á Línu-Net ævin-
týrinu og nú er greinilega ætlun
þessa fólks að fremja eitt glappa-
skotið í viðbót. ■
27FÖSTUDAGUR 1. október 2004
ÓLAFUR RÚNAR JÓNSSON SKRIFAR
UM STJÓRNKERFI REYKJAVÍKUR
Vanhugsaðar breytingar á stjórnkerfi borgarinnarAF NETINU
Fylgir flokkslínunni
Ráðning [hæstaréttar-]dómarans sýnir
okkur svo ekki verður um villst að Geir
Haarde fylgir línunni sem gefin er frá
flokksforystunni í Valhöll, sem hann sjálf-
ur, sem og skipaður dómsmálaráðherra,
Björn Bjarnason, eru hluti af. Dómarinn
nýbakaði hefur enda oftar en ekki verið
fylgismaður ákvarðana meirihluta ríkis-
stjórnarinnar og veitt á tíðum umdeild
lögmannsálit sín á ákvörðunum hennar,
ákvörðunum sem meðal annars hæsti-
réttur hefur úrskurðað gegn. Það má því
halda því fram að með ráðningunni sé
Sjálfstæðiflokkurinn að treysta tök sín
innan hæstaréttar og minnka líkurnar á
óþægilegum úrskurðum sem veikt hafa
stöðu ríkisins í ákveðnum málaflokkum.
Fyrir vikið verða í framtíðinni stórir fyrir-
varar settir við niðurstöðu réttarins í
ákveðnum málefnum, t.d. í málum
tengdum stefnu Sjálfstæðisflokksins.
Haukur Agnarsson á sellan.is
Öruggur um embættið
Og þeir eru öruggir um sig sem ætla sér
á valdapóstana í skjóli ráðherra Sjálf-
stæðisflokksins. Eða hverju svaraði ný-
skipaður dómari við Hæstarétt þegar
hann í júní í sumar var spurður hvort
engin ótti væri í honum að sækja um
dómarastarastarfið. Orðrétt sagði hann:
„Út af því, ég skil ekki hver ætti að geta
haft á móti því að ég yrði dómari ef ég
sækti um. Það dettur mér ekki í hug að
nokkrum...að nokkur telji neitt athuga-
vert við það.“ Þetta var rétt ályktað. Ráð-
herrar Sjálfstæðisflokksins höfðu ekkert
á móti því. Og það er það sem skipti
máli. Ekki umsögn Hæstaréttar.
Jóhanna Sigurðardóttir á althingi.is/jo-
hanna
Flokkspólitískur
Skipun Jóns Steinars Gunnlaugssonar í
Hæstarétt er hreint út sagt með ólíkind-
um. Ég held að þetta sé dropinn sem
fyllir mælirinn. Nú er búið að koma yfir-
lýstum baráttumanni Sjálfstæðisflokks-
ins og Davíðs Oddssonar í Hæstarétt, við
hliðina á frændanum. Þetta er maður
sem er sífellt að taka flokkspólitíska af-
stöðu sem virkur þátttakandi í pólitísku
ati. Þetta er maður sem notar lögfræði
sína óspart til að réttlæta gjörðir sinna
flokksfélaga. Þetta er maður sem treysti
sér ekki til að vera í kjörstjórn vegna hat-
urs síns á Ólafi Ragnari Grímssyni. Þetta
er maður sem hefur lýst efasemdum yfir
félagslegum mannréttindum og talið að
sönnunarbyrði í kynferðisafbrotum þurfi
að herða.
Ágúst Ólafur Ágústsson á agust.is
Auglýst eftir lögmannsreynslu
Væri ekki skynsamlegra, heiðarlegra og
einfaldara að tilkynna fyrir fram hvaða
eiginleika væntanlegir umsækjendur [um
dómaraembætti við Hæstarétt] þurfa að
hafa? Hefðu hugsanlega ekki aðrir sótt
um stöðu hæstaréttardómara hefði það
verið vitað frá upphafi að sérstaklega væri
óskað eftir lögmönnum með víðtæka
reynslu af lögmannsstörfum? Væri slíkt
fyrirkomulag ekki opnara og lýðræðis-
legra. Kæmi slík vinnuregla ekki í veg fyr-
ir grunsemdir um spillingu og geðþótta-
ákvarðanir? Spyr sá sem ekki veit.
Sigurður Hólm Gunnarsson á skodun.is
SIGRÚN JÓNSDÓTTIR
Föðurnafn misritaðist
Föðurnafn Sigrúnar Jónsdóttur,
formanns Félags framsóknar-
manna í Reykjavík suður, misrit-
aðist í Fréttablaðinu í gær. Var hún
sögð Magnúsdóttir í forsíðufrétt.
Beðist er velvirðingar á því.
■ LEIÐRÉTTING