Fréttablaðið - 01.10.2004, Side 42
Flókin eignatengsl á ný
Þegar stórfelld uppstokkun varð í íslensku viðskipta-
lífí í september í fyrra viðhafði Björgólfur Guðmunds-
son, formaður bankaráðs Landsbankans, þau orð að
markmiðið væri að rjúfa flókin eignatengsl í íslensku
viðskiptalífi þannig að viðskiptasjónarmið réðu för í
rekstri fyrirtækja.
Nú, ári síðar, er hins vegar á ný orðið erfitt fyrir leik-
menn, og raunar fleiri, að átta sig á ýmsu því sem
býr að baki viðskiptum Björgólfsfeðga með stór ís-
lensk fyrirtæki.
Félög tengd Björgólfsfeðgum seldu
til að mynda tveimur einstakling-
um, Orra Vigfússyni og Helga
Magnússyni, stóra hluti í Íslands-
banka eftir að spurningar vöknuðu
um hvort eign Landsbankamanna í
Íslandsbanka væri orðin svo
stór að það kallaði á sér-
staka meðferð hjá Fjár-
málaeftirlitinu.
Aftur í heimahöfn
Kaup Orra og Helga á hlutum Landsbankamanna
komu mönnum spánskt fyrir sjónir og telja flestir að
sú sala hafi fyrst og fremst þjónað þeim tilgangi að
sigla eignarhlut Landsbankamanna í Íslandsbanka í
örugga höfn frá vökulum augum Fjármálaeftirlitsins. Í
viðskiptunum í fyrradag þegar Landsbankamenn
keyptu kjölfestuhlut í Straumi og Straumur í Íslands-
banka, komu gömlu hlutir Landsbankamanna aftur á
hreyfingu.
Þá kom meðal annars í ljós að félag á vegum Björg-
ólfsfeðga og Magnúsar Þorsteinssonar, Topaz equi-
ties, hefði átt kauprétt á hlutum Helga Magnússonar.
Í hálf fimm fréttum KB banka í gær segir að ljóst sé
að ákveðins misræmis hafi gætt í tilkynningum til
Kauphallarinnar varðandi eignarhaldið á þessum hlut.
Greiningardeild KB banka hefur raunar áður velt
vöngum yfir ýmsum trakteringum í kringum eignar-
hlut Landsbankamanna í Íslandsbanka en Fjármála-
eftirlitið hefur enn sem komið er ekki séð ástæðu til
inngripa.
MESTA HÆKKUN
ICEX-15 3.802
KAUPHÖLL ÍSLANDS [ HLUTABRÉF ]
Fjöldi viðskipta: 748
Velta: 33.838 milljónir
+2.53%
MESTA LÆKKUN
MARKAÐSFRÉTTIR...
Íbúðalánasjóður lækkaði í
gær vexti á lánum úr 4,35 pró-
sentum niður í 4,30. Þessir vextir
munu gilda í október.
Gylfi Árnason hefur verið ráð-
inn forstjóri Opinna kerfa Group.
Hann var framkvæmdastjóri Op-
inna kerfa frá 1999 til 2002.
Atvinnulausum fjölgar lítillega í
Bandaríkjunum samkvæmt nýj-
ustu tölum. Mest fjölgar atvinnu-
lausum í ríkjum sem orðið hafa
fyrir barðinu á fellibyljum upp á
síðkastið.
Úrvalsvísitalan fór yfir 3.700 í
fyrsta sinn í fyrradag og í gær yfir
3.800. Þann 26. nóvember 2003
fór hún fyrst yfir 2.000 stig. Hún
fór yfir 3.000 þann 12. júlí í ár og
nálgast nú 4.000 óðfluga.
30 1. október 2004 FÖSTUDAGUR
Burðarás, Landsbanki, Íslands-
banki og Straumur hækkuðu í
verði um tuttugu milljarða króna
í viðskiptum í Kauphöll Íslands í
gær. Þessi félög koma við sögu í
samningum sem gerðir voru í
fyrradag og tryggðu Burðarási,
Landsbankanum og Landsbank-
anum Luxembúrg, stóran hlut í
Straumi og Straumi tæplega
fimmtán prósent hlut í Íslands-
banka.
Aldrei hafa verið meiri við-
skipti í Kauphöll Íslands. Við-
skipti með hlutabréf voru 748
talsins. Umfang viðskipta í
Kauphöllinni nam 37,4 milljörð-
um króna. Gamla metið var sett
19. september í fyrra. Þá námu
viðskiptin um 31 milljarði króna.
Úrvalsvísitalan hefur heldur
aldrei verið hærri en nú. Hún fór
yfir 3.800 stig í fyrsta sinn og
hefur hækkað um 98 prósent frá
því á sama tíma og í fyrra.
Atburðarásin minnir mjög á
það sem átti sér stað fyrir rúmu
ári þegar fjárfestingarfélagið
Straumur, sem nú er orðinn fjár-
festingabanki, var í hringiðu við-
skipta sem meðal annars fluttu
yfirráð yfir Eimskipi í hendur
Björgólfsfeðga. Það var einmitt
þá sem gamla metið í magni við-
skipta í Kauphöll Íslands var
sett.
Sérfræðingar á hlutabréfa-
markaði telja verðhækkun fjár-
málafyrirtækja fela í sér miklar
væntingar um hagræðingu í
rekstri. Þar hefur oftast verið
talað um sameiningu Landsbanka
og Íslandsbanka. Hins vegar
liggur beinast við nú eftir kjöl-
festufjárfestingu Straums í Ís-
landsbanka að þau fyrirtæki
verði sameinuð.
Stórviðskiptin með bréf í
þessum félögum í fyrradag hafa
sett Landsbankamenn í lykil-
stöðu en jafnframt hafa mögu-
leikar Íslandsbanka til að ráða
ferðinni í hugsanlegum samruna
við önnur fyrirtæki minnkað.
Það sem af er ári hafa íslensku
bankarnir hækkað hratt í verði.
Landsbankinn hefur hækkað um
141 prósent og KB banki um 118
prósent. Gengi á bréfum Íslands-
banka hefur hækkað um 86 pró-
sent. Á síðustu tólf mánuðum hef-
ur undirvísitala í Kauphöllinni
sem mælir fjármála- og trygginga-
fyrirtæki hækkað um 131 prósent
síðustu tólf mánuði og hefur meira
en tvöfaldast frá áramótum.
Eftir viðskiptin í gær hafa
Björgólfsfeðgar veruleg áhrif í
fimm af tíu verðmætustu fyrir-
tækjum í Kauphöllinni. Þeir ráða
för í Actavis, Landsbanka og
Burðarási. Burðarás, Landsbank-
inn og Landsbankinn Luxembúrg
ráða svo tæpum fjórðungi í
Straumi og Straumur er kjölfestu-
fjárfestir Íslandsbanka.
thkjart@frettabladid.is
vidskipti@frettabladid.is
Peningaskápurinn…
Actavis 50,50 - ... Bakkavör 27,70
+0,73% ... Burðarás 15,30 2,68% ... Atorka 5,50 +10,00% ... HB Grandi
8,00 - ... Íslandsbanki 11,90 +7,21% ... KB banki 490,00 - .. Landsbank-
inn 14,00 +6,06% ... Marel 55,00 +2,80% ... Medcare 6,50 -2,99% ...
Og fjarskipti 3,62 -2,16% ... Opin kerfi 25,70 -0,39% ... Samherji 13,50
+0,75% ... Straumur 10,00 +11,11% ... Össur 91,50 -1,08%
Straumur 11,11%
Atorka 10,00%
Íslandsbanki 7,21%
Medcare -2,99%
Og fjarskipti -2,16%
SÍF -2,08%
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU:
nánar á visir.is
Aukin áhætta -
meira viðnám
AUKIN HÆTTA Á ÓSTÖÐUGLEIKA Í Seðlabankanum er fylgst grannt með því hvort
fjármálastofnanir séu í stakk búnar til að mæta skuldbindingum sínum.
Seðlabankinn telur að aukin hætta
sé á óstöðugleika í fjármálakerf-
inu. „Hins vegar teljum við að við-
námsþróttur fjármálakerfsins
hafi eflst um leið og verði að telj-
ast töluverður,“ segir Tryggvi
Pálsson, framkvæmdastjóri fjár-
málasviðs Seðlabankans.
Hann segir að aldrei verði hjá
áhættu komist í fjármálakerfinu.
„Okkar verkefni eru að stuðla að
því að kerfið verði sterkara. Þá er
átt við mikilvægustu fjármála-
stofnanir og markaði. Þar teljum
við að staðan hafi styrkst.“
Tryggvi segir þessa þætti
metna eftir kennitölum fjármála-
fyrirtækja sem mæla fjárhags-
legan styrk og svigrúm til að
mæta áföllum.
Seðlabankinn ritaði bönkunum
bréf um síðustu áramót þar sem
lýst var áhyggjun af erlendum
skammtímalánum bankanna. Að
mati Seðlabankans var sú staða
áhyggjuefni, þar sem snöggar
breytingar á erlendum lánamörk-
uðum gætu valdið verulegum
vandræðum í fjármögnun bank-
anna. „Erlendu lánin eru enn
áhyggjuefni en það hefur færst til
betri vegar. Lánin hafa færst frá
því að vera skammtímalán til þess
að vera til lengri tíma. Það styrkir
stöðuna.“
Skuldir heimila og fyrirtækja
eru meðal þess sem Seðlabankinn
skoðar þegar fjármálastöðugleik-
inn er metinn. Ný húsnæðislán
hafa breytt landslagi á lánamark-
aði. Lítil reynsla er komin á áhrif
lánanna á skuldir heimila í land-
inu. Skuldir íslenskra heimila eru
með því hæsta sem þekkist í lönd-
um sem við berum okkur saman
við. Hollensk og dönsk heimili
skulda þó meira en íslensk.
Tryggvi segir að dregið hafi úr
skuldaaukningu heimila frá fyrra
ári. „Þær breytingar sem eru að
verða vegna samkeppni í lang-
tímalánum kunna að verða til þess
að auka skuldir heimilanna þegar
á heildina er litið. Ef þessi nýju
lán verða til þess að fólk breytir
skammtímalánum í langtímalán,
þá mun það leiða til lægri
greiðslubyrði heimilanna.“ Hann
segir að bankinn hafi enn ekki
metið áhrif lánanna á fjármála-
stöðugleikann. „Það liggur ekki
enn fyrir hvernig bankarnir ætla
að fjármagna þessi útlán og á
hvaða kjörum. Á meðan er erfitt
að segja hvaða áhrif þetta hafi á
afkomu hjá bönkum og sparisjóð-
um.“
haflidi@frettabladid.is
Ríflega 30 prósenta aukning
varð á innflutningi á fólksbílum
í janúar til ágúst, sé miðað við
sama tímabil árið 2003. Þetta
kemur fram í nýjum tölum frá
Hagstofu Íslands.
Íslendingar fluttu inn fólks-
bíla fyrir 8,3 milljarða á um-
ræddu tímabili í fyrra, en fluttu
nú inn bíla fyrir 10,86 milljarða.
Er þá átt við bæði minni bíla og
jeppa. Veruleg aukning, eða um
55 prósent, hefur einnig orðið á
innflutningi annarra flutninga-
tækja til einkanota. Andvirði
þess innflutnings var 461 millj-
ón í fyrra en eru 717 milljónir
nú. Aukning á innflutningi flutn-
ingatækja til atvinnurekstrar
hefur einnig vaxið úr 3,7 millj-
örðum í 4,7 milljarða, eða um
ríflega 28 prósent á föstu gengi.
Alls hefur innflutningur á öllum
flutningatækjum, þar með talið
á skipum og flugvélum, aukist
um 35 prósent. Innflutningur á
skipum hefur þó raunar dregist
saman.
Eins og komið hefur fram í
fréttum er vöruskiptahallinn við
útlönd allnokkur um þessar
mundir. Innflutningur alls nam
156,5 milljörðum á umræddu
tímbili, en útflutningur nam alls
129,5 milljörðum. Hlutfallslega
mesta aukningin í innflutningi
einstakra vöruteguna virðist
hafa verið í eldsneyti og smur-
olíu, en innflutningur á því
hefur aukist um 44 prósent mið-
að við fast gengi. Alls námu
kaup á eldsneyti og smurolíu um
14,5 milljörðum króna. ■
Innflutningur á bílum aukist um 30 prósent
BÍLAR Á HAFNARBAKKANUM Íslend-
ingar fluttu inn fólksbíla fyrir 10,8 milljarða
frá janúar til ágúst á þessu ári.
Seðlabankinn fylgist með
því hvort bankar og fjár-
málafyrirtæki séu líkleg til
að standast skuldbindingar
sínar. Um síðustu áramót
voru uppi áhyggjur en að
mati Seðlabankans hafa við-
skiptabankarnir brugðist vel
við athugasemdunum.
Tuttugu milljarða
hækkun á einum degi
SAMSON-HÓPURINN – BJÖRGÓLFSFEÐGAR OG MAGNÚS ÞORSTEINSSON Í kjölfar viðskipta með bréf í Íslandsbanka,
Landsbanka, Burðarás og Straum hefur Samson-hópurinn komist í algjöra lykilstöðu um breytingar á leiksviði íslenskra fjármálafyrirtækja.
Miklar verðhækkanir á bönkum benda til þess að markaðurinn búist við mikilli hagræðingu.
Fyrirtækin sem áttu hlut í
stórviðskiptum á miðviku-
dag hækkuðu samtals um
tuttugu milljarða í Kauphöll
Íslands í gær. Hækkun fjár-
málafyrirtækja er ævintýra-
leg á árinu. Björgólfsfeðgar
eru áhrifamiklir í fimm af
tíu verðmætustu félögum í
Kauphöllinni.
Ná áfanga
í yfirtöku
Íslandsbanki hefur fengið sam-
þykki yfir níutíu prósenta hlut-
hafa í norska bankanum Kreditt-
banken. Þetta þýðir að innlausnar-
skylda hefur myndast og aðrir
hluthafar þurfa að ganga að yfir-
tökutilboði Íslandsbanka.
„Þetta er mikilvægur áfangi og
kaupferlið gengur samkvæmt
áætlun,“ segir Bjarni Ármanns-
son forstjóri Íslandsbanka.
Nú þarf aðeins að bíða niður-
stöðu fjármálayfirvalda áður en
kaupin ganga endanlega í gegn. ■
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T