Fréttablaðið - 01.10.2004, Qupperneq 56
Þessi sveit er frá Belgíu en virð-
ast hafa betra nef fyrir því sem
er spennandi í tónlist en kollegar
þeirra í Bretlandi eða Bandaríkj-
unum. Þeirra hljóðheimur er
eitursvöl blanda af rokki og el-
ektróník. Rifnir gítarar eru þó
smekklega afþakkaðir, og frekar
stuðst við skerandi og áhugaverð
rafhljóð. Ef gíturum bregður
fyrir eru þeir ruddalegir og til-
raunakenndir og minna frekar á
Sonic Youth.
Upptökustjóri á þessari plötu
var Flood, sem er þekktastur
fyrir vinnu sína með U2. Hann
hefur greinilega látið þetta verk-
efni marínerast lengi í grillvökv-
anum, því hér og þar er búið að
skreyta plötuna með hinum
ýmsu hljóðum. Öskrandi kona,
háværir dynkir og segulbands-
tæki að spóla til baka skreyta
lagaenda og byrjanir. Það er í
rauninni aldrei þögn á plötunni,
sem gefur henni skemmtilegan
heildarsvip.
Þetta er án efa með því áhuga-
verðara sem ég hef heyrt á árinu.
Hér hefur verið lagt nokkuð í
lagasmíðar áður en liðsmenn hófu
að búa til hljóðskúlptúra. Mjög
sterk plata sem ég mun örugglega
muna eftir þegar kemur að því að
gera upp árið. Eitt flottasta plötu-
kóver sem ég hef séð lengi.
Birgir Örn Steinarsson
1. október 2004 FÖSTUDAGUR
SOULWAX
ANY MINUTE NOW
Niðurstaða: Bræðradúett frá Belgíu skilar
óvænt af sér einni bestu plötu ársins.
[ TÓNLIST ]
UMFJÖLLUN
Um flessar mundir fjölgar e-korthöfum grí›arlega
enda afslættir og endurgrei›sla sem fylgja
grei›slukortinu sífellt a› aukast.Tilbo›in í október
eru me›al annars:
Far›u inn á ekort.is til a› fá nánari uppl‡singar um tilbo›in.
til e-korthafa
Októbertilbo›
Debenhams
Naglaásetning í Nagla-
stúdíóinu „Professional“.
Gelneglur 4.000 kr.
M/french 4.400 kr.
Útilíf
20% afsláttur af
Meindl gönguskóm.
Snyrtistofan Hrund
15% afsláttur vi› kassa.
Avis
Mána›arleiga á bíl 27.000 kr.
Sjónvarpsmi›stö›in
21” sjónvarp á 17.990 kr.
Kaffi Sólon og
Cafe Victor
20% endurgrei›sla af öllum
vi›skiptum.
Hagkaup
10% af öllum snyrtivörum
ESSO
Stafræn myndavél á 11.900 kr.
2000 kr. afsláttur af 10 tíma korti.
Lindarsól og
Fjar›arsól
Straumlínu-
lagaður hljóð-
skúlptúr
Stundin okkar nýtur alltaf jafn
mikilla vinsælda hjá íslenskum
börnum en hún mun taka lítilshátt-
ar breytingum á næstunni. Halli í
Botnleðju sem hefur skemmt
yngri kynslóðinni í Stundinni
okkar undanfarið mun nú hverfa
af skjánum og í hans stað mætir
Heiða sem þekktust er fyrir hljóm-
sveit sína Unun. Halli hafði
skemmt krökkunum við söng og
hljóðfæraleik og var vanur að
kenna krökkunum á nýtt hljóðfæri
í hverjum þætti ásamt syni sínum
Gabríel. Heiða mun nú taka við af
Halla og eflaust brydda upp á nýj-
ungum í þættinum og kemur í ljós
hvort hún nær jafn góðum undir-
tektum hjá krökkunum og Halli. ■
■ SJÓNVARP
Heiða tekur við af Halla
Kalli Bjarni: Gefur út fyrstu sólóplötu sína
Langar aftur á sjó
Idol-stjarnan Kalli Bjarni gefur
út sína fyrstu breiðskífu í dag.
Platan, sem ber nafnið Kalli
Bjarni, átti upprunalega að
koma út í gær en var frestað
vegna tafa í flutningum. Nýja
platan hans á að fylgja eftir vin-
sældum Kalla Bjarna sem sigr-
aði íslenska Idolið fyrr á þessu
ári og hlaut hann plötusamning
hjá Skífunni að launum. „Platan
er rokk/poppblanda og býr hún
yfir stórum lögum inn á milli,“
segir Kalli Bjarni um nýút-
komna plötu sína .
Platan inniheldur tíu lög og
má þar nefna sumarsmellinn
Gleðitímar, sem sló í gegn á út-
varpsstöðvum landsins í sumar.
Meðal gestasöngvara á plöt-
unni er Páll Rósinkranz, fyrrum
söngvari Jet Black Joe, og syngur
hann með honum dúettinn Eins og
gengur. Meðal lagasmiða eru
Vignir Snær Vigfússon úr Írafári,
Jón Ólafsson og Stefán Hilmars-
son. Idol-dómarinn Þorvaldur
Bjarni sér um upptökustjórn á
plötunni og nær hann því besta úr
Kalla Bjarna á plötunni. Aðstoðar-
menn Kalla Bjarna eru því ekki af
lakara taginu.
Þegar Fréttablaðið náði tali af
Kalla Bjarna sagðist hann hæst-
ánægður með plötunna, en að
hann myndi gjarnan vilja fara í
einn túr á sjó, til að upplifa aftur
kyrrðina sem því fylgir, fylgjast
með fuglalífi og íhuga lífið og til-
veruna. Það er ekki þar með sagt
að hann muni segja skilið við tón-
listarbransann. Hann þurfi að
fylgja nýju plötunni eftir og áætl-
að er að halda útgáfutónleika, en
ekki er búið að negla stað og tíma
og verða þeir því auglýstir síðar.
Það fer vel á því að platan komi
út í dag, því síðar í kvöld verður
fyrsti þáttur annarrar seríu
íslenska Idolsins sýndur á Stöð 2.
HH
KALLI BJARNI Ný plata Kalla Bjarna væntanleg í verslanir í dag.