Fréttablaðið - 02.10.2004, Side 10
10 2. október 2004 LAUGARDAGUR
VERÐMÆTASTI DEMANTURINN
Japönsk stúlka heldur á verðmætasta
demanti í heimi. Demanturinn er 100
karöt og af svokölluðum D-lit. Hann er
talinn gallalaus og kostar tæplega tvo
milljarða króna.
Stærsta barnaklámsmál Ástralíu:
Kennari myndaði ber skólabörn
ÁSTRALÍA, AP Kennari sem ákærður
er fyrir að hafa komið myndavél
fyrir bak við spegil á búnings-
herbergi í skóla í Sydney var
leiddur fyrir rétt í gær í stærsta
barnaklámsmáli sem komið hefur
upp í Ástralíu. Kennarinn, sem er
33 ára gamall, dreifði myndum af
berum skólabörnum á netinu.
Barnaklámsmálið teygir anga
sína um alla Ástralíu og er liður í
alþjóðlegu átaki gegn barnaklámi.
Um 200 manns hafa þegar verið
ákærðir fyrir þúsundir brota og
búist er við því að enn fleiri verði
handteknir á næstu dögum og
vikum. Lögreglurannsókn vegna
málsins hófst á síðasta ári á
grundvelli upplýsinga frá banda-
rískum löggæsluyfirvöldum.
Ástralska lögreglan hefur þegar
lagt hald á meira en tvær millj-
ónir barnaklámsmynda.
John Howard, forsætisráð-
herra Ástralíu, segir að yfirvöld
muni gera allt sem í þeirra valdi
standi til að berjast gegn bar-
naklámi. Útilokaði hann ekki að
sett yrðu ný lög til að auðvelda
baráttuna en fór ekki nánar út í
það hvernig þau ættu að vera. ■
Kerry var betri en
Bush hafði betur
John Kerry þótti standa sig betur en George W. Bush í fyrstu kappræðum forsetaefnanna.
Samkvæmt fyrstu skoðanakönnunum dugar það honum þó ekki til að saxa á forskot forsetans.
Stríðið í Írak og baráttan gegn hryðjuverkum voru í brennidepli.
BANDARÍKIN Viðbrögð almennings
við fyrstu kappræðum forsetaefn-
anna ættu að gefa John Kerry von-
arneista eftir erfitt gengi í kosn-
ingabaráttunni undanfarið. Hann
þykir almennt hafa staðið sig bet-
ur en George W. Bush og bætti
ímynd sína. Frammistaða hans
virðist þó ekki endilega skila sér í
auknu fylgi, í það minnsta fyrst
um sinn.
Bush og Kerry tókust á um ut-
anríkis- og öryggismál í fyrstu
kappræðum sínum af þremur fyrir
komandi forsetakosningar. Kerry
sótti að Bush og gagnrýndi hann
fyrir að hafa ráðist inn í Írak án
þess að fullreyna aðra möguleika
áður og að hafa ekki áætlun um
hvernig vinna ætti friðinn. Að auki
gagnrýndi hann forsetann fyrir að
hafa grafið undan baráttunni gegn
hryðjuverkum með innrásinni í
Írak.
Bush varði ákvörðun sína um
innrás og sagðist gera það sem
þyrfti til að tryggja öryggi Banda-
ríkjanna. Þá endurtók hann ýmis
fyrri ummæli Kerrys sem forset-
inn sagði sýna að Kerry skipti um
skoðun í Íraksmálum til að auka
fylgi sitt heima við, enda hefði
Kerry hvort tveggja greitt at-
kvæði með og á móti fjárveiting-
um til innrásarinnar.
Eitt voru frambjóðendurnir
sammála um. Helsta ógnin sem
steðjar að Bandaríkjunum á næsta
kjörtímabili er útbreiðsla gjöreyð-
ingarvopna. Bush benti á að hann
hefði gripið til aðgerða í Írak, þrýst
á Írana og Norður-Kóreustjórn að
láta af áætlunum um framleiðslu
gjöreyðingarvopna og að Líbía
hefði hætt tilraunum við að koma
sér upp gjöreyðingarvopnum
þegar stjórnvöld hefðu séð hvað
þau ættu á hættu. Kerry sagði ekki
nóg gert til að tryggja kjarnorku-
birgðir sem Sovétríkin komu sér
upp og sagði rangt af forsetanum
að neita tvíhliða viðræðum við
Norður-Kóreu til að binda enda á
kjarnorkudeiluna á Kóreuskaga.
Niðurstöður skoðanakannana
sem birtust í gær voru samhljóða
að því leyti að þeir sem töldu
Kerry hafa staðið sig betur en
Bush voru mun fleiri en þeir sem
töldu Bush hafa staðið sig betur. Þá
sagðist um helmingur aðspurðra í
könnunum CBS og Gallup hafa
meira álit á Kerry eftir kappræð-
urnar en fyrir þær.
Stóra spurningin er hins vegar
hvort kappræðurnar verði til þess
að breyta afstöðu fólks til þess
hvorn frambjóðandann það kýs.
Fyrstu vísbendingar gefa til kynna
að svo verði ekki. Samkvæmt
könnun sem var gerð fyrir CBS
sjónvarpsstöðina, þar sem einung-
is óákveðnir kjósendur voru
spurðir, bættu Kerry og Bush
báðir kjörþokka sinn álíka mikið.
Gallup könnunin mældi ekki breyt-
ingar á því hvorn fólk ætlaði að
kjósa og kappræðurnar breyttu
því sem næst engu um val almenn-
ings samkvæmt könnun fyrir ABC
sjónvarpsstöðina.
brynjolfur@frettabladid.is
Kenía:
Sungu sig
úr fangelsi
KENYA, AP Tíu afbrotamenn sem
voru í fangelsi í Kenía notuðu
óvenjulega aðferð til að strjúka
úr fangelsinu.
Fangarnir sungu ættjarðar-
lög af mikilli innlifun í nokkra
klukkutíma á meðan þeir notuðu
járnsög til að saga í sundur
rimla á fangelsinu Machakos í
Kenía. Með því yfirgnæfðu þeir
hávaðann sem skapaðist þegar
söginni var beitt á rimlana.
Fangaverðirnir sáu ekkert at-
hugavert við söng fanganna og
uppgötvaðist það ekki fyrr en
við nafnakall að þeir hefðu
strokið. ■
BÖRNIN FÁ UNDIRBÚNINGSTÍMA
Samræmd próf verða ekki fyrr en minnst
hálfum mánuði eftir að kennsla hefst.
Menntamálaráðuneytið:
Frestar próf-
um í skólum
VERKFALL Samræmdum prófum í 4.
og 7. bekk í íslensku og stærðfræði
hefur verið frestað vegna verkfalls
grunnskólakennara. Prófin áttu að
fara fram dagana 14. og 15. október.
Menntamálaráðuneytið sendir
grunnskólum bréf með nýjum dag-
setningum eftir að kennsla hefst að
nýju. „Ráðuneytið telur rétt að
skólum gefist ráðrúm til að koma
skólastarfi aftur í eðlilegt horf að
loknu verkfalli og munu sam-
ræmdu prófin því ekki verða haldin
fyrr en a.m.k. tvær kennsluvikur
eru liðnar frá lokum verkfalls,“
segir í tilkynningu frá menntamála-
ráðuneytinu. ■
KLÁM Á NETINU
Ástralska lögreglan hefur þegar lagt hald á
meira en tvær milljónir barnaklámmynda.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/H
AR
I
Innbrot í Reykjavík:
Farið í skóla
og íbúð
LÖGREGLA Tilkynnt var um tvö inn-
brot í Reykjavík fyrri partinn í
gær. Í fyrrinótt var brotist inn í
Breiðholtsskóla með því að
spenna upp glugga og þaðan stolið
tölvu. Þá var brotist inn í íbúðar-
hús í Austurborginni skömmu
fyrir klukkan tíu. Þjófarnir lögðu
á flótta þegar þeir urðu íbúa varir.
Sá gerði lögreglunni í Reykjavík
viðvart. Þjófarnir höfðu á brott
með sér hljómflutningstæki og
fleira. ■
TÓKUST Á Í KAPPRÆÐUM
Kerry þótti koma betur út þegar hann og Bush leiddu saman hesta sína í fyrsta sinn.
Gallup hefur kannað hvor frambjóðandinn hefur staðið sig best í fyrstu kappræðum
frambjóðenda í síðustu fimm kosningum. Sá sem stóð sig betur hefur aðeins einu
sinni orðið forseti.
M
YN
D
A
P
VITLAUST STRÍÐ?
„Forsetinn sagði nokkuð sem ljóstraði
upp um sannleikann og er mjög mikil-
vægt í þessari umræðu. Í svari sínu við
spurningunni um Írak og að senda her-
inn til Íraks sagði hann: „Óvinurinn réðst
á okkur.“ Saddam Hussein réðst ekki á
okkur. Osama bin Laden réðst á okkur.
al-Kaída réðst á okkur.“
John Kerry
„Í fyrsta lagi: Auðvitað veit ég að Osama
bin Laden réðst á okkur. Ég veit það. Í
öðru lagi: Að halda að nýjar samþykktir
(Sameinuðu þjóðanna) hefðu orðið til
að Saddam Hussein afvopnaðist er fá-
ránlegt að mínu mati. Þetta sýnir fram á
mikilvægan skoðanamun.“
George W. Bush
STRÍÐIÐ GEGN HRYÐJUVERKUM
„11. september breytti því hvaða augum
Bandaríkin líta umheiminn. Frá þeim
degi hefur þjóð okkar beitt fjölþættri að-
ferð til að gera land okkar öruggara. Við
sækjum að al-Kaída hvar sem al-Kaída
reynir að fela sig. 75 prósent þekktra al-
Kaída leiðtoga hefur verið komið í hend-
ur réttvísinnar. Hinir vita að við erum á
eftir þeim. Við höfum fylgt þeirri stefnu
að sá sem hlífir hryðjuverkamönnum er
jafn sekur og hryðjuverkamennirnir.“
George W. Bush
„Ég trúi á það að vera sterkur, útsjónar-
samur og ákveðinn. Ég mun elta uppi og
drepa hryðjuverkamenn, hvar sem þá er
að finna. En við þurfum líka að vera
skynsöm. Skynsemi þýðir að við beinum
athygli okkar ekki frá hinu raunverulega
stríði gegn hryðjuverkum í Afganistan
gegn Osama bin Laden og beinum henni
að Írak.“
John F. Kerry
ANDSTÆÐINGURINN
„Þessi forseti hefur, því miður, gert sig
sekan um rosalegan dómgreindarskort.
Og dómgreind er það sem við sækjumst
eftir í forseta Bandaríkjanna.“
John F. Kerry
„Ég fæ ekki skilið hvernig hægt er að
leiða landið til sigurs í Írak ef þú segir að
það sé vitlaust stríð, á vitlausum tíma á
vitlausum stað.“
George W. Bush
Með eigin orðum