Fréttablaðið - 02.10.2004, Síða 20
20 2. október 2004 LAUGARDAGUR
EKKI MISSA AF…
Djasshátíð í dag. Á Hótel Borg
verður „Jazz Brunch“ – Lög unga
fólksins kl. 12.00 þar sem boðið
verður upp á tónleika í tilefni af
geislaplötu Kristjönu Stefánsdóttur...
Barnadjass Önnu Pálínu. Ráð-
húsinu kl. 17.00...
Stórstjörnunni Van Morrison í
Laugardalshöll kl. 20.00...
Tónleikum
kanadíska saxó-
fónleikarans
Seamus Blake og
B3 tríós á Hótel
Borg kl. 22.00...
Djassklúbbunum á Kaffi Kúltúr,
Café Rosenberg, Hótel Borg og
Póstbarnum, sem opnir eru frá
23.30 til 01.30...
Rakarinn í Síberíu, kvikmynd
rússneska leikstjórans og leik-
arans Nikíta Mikhalkov, verður
sýnd í bíósal MÍR, Vatnsstíg 10
sunnudaginn 3. október. Sýning-
in hefst klukkan 15.00.
Kvikmyndin var gerð árið
1999 en saga hennar gerist fyrir
meira en einni öld síðan, á
stjórnarárum Alexanders III,
Rússakeisara. „Rakarinn í Sí-
beríu“ er gufuknúin sögunarvél
sem draumóra- og ævintýra-
maðurinn McCracken (Richard
Harris) hyggst nota til þess að
tryggja sér umboðslaun hjá
rússneskum stjórnvöldum. Jane
(Julia Ormond) er send til hjálp-
ar McCracken í dulargervi dótt-
ur hans og á að svíkja út fjár-
heimildir hjá embættismönnum.
Á leiðinni til Moskvu hittir hún
hins vegar herskólapiltinn
Andrey Tolstoj (Olég Mens-
hikov) og félaga hans. Kvik-
myndin er með enskum texta.
Aðgangur er ókeypis. ■
Kl. 13.30 til 18.00 sunnudaginn
3. október.
Píanóið í öndvegi á degi hljóðfærisins í
Gerðubergi.
menning@frettabladid.is
Rakarinn í Síberíu
í MÍR-salnum
Píanóið verður í öndvegi
þegar dagur hljóðfærisins
2004 verður haldinn í
Gerðubergi á morgun. Þar
flytja 22 píanóleikarar verk
frá ýmsum tímabilum.
Átján þeirra ætla að flytja
allar 24 prelúdíur Chopins.
„Píanóleikarar eru alltaf svolít-
ið sér á parti,“ segir Nína Margrét
Grímsdóttir, sem sjálf er píanó-
leikari. „Það er ekkert mikið um að
þeir séu tveir saman á tónleikum,
hvað þá fleiri.“
Kannski á stærð hljóðfærisins
sinn þátt í þessari ævarandi ein-
semd píanóleikaranna. Á morgun
verður þó heldur betur gerð brag-
arbót, því hátt á þriðja tug píanó-
leikara ætla að koma saman í
menningarmiðstöðinni Gerðu-
bergi í Breiðholti. Þar verður
haldinn hátíðlegur dagur hljóð-
færisins, sem þetta árið er helg-
aður píanóinu.
Þéttskipuð dagskrá stendur
yfir frá klukkan 13.30 til 18, þar
sem píanóleikararnir koma fram
hver á fætur öðrum, og stundum
tveir saman, til að flytja nokkrar
helstu perlur píanóbókmennt-
anna.
„Þetta er í fyrsta skipti sem
þetta er gert, svo við vitum,“ segir
Nína Margrét, en hún vonar að
þessi samkoma píanóleikaranna
geti orðið upphafið að frekari sam-
skiptum þeirra og samvinnu. „Við
finnum að það er ákveðin þörf fyr-
ir að píanistar hittist oftar á fag-
legum nótum.“
Dagskráin er ætluð allri fjöl-
skyldunni og þar gætir ýmissa
grasa. Flutt verða stutt erindi um
píanótónlist og veitt verða sýnis-
horn úr kennslustundum á ýmsum
stigum píanónáms, auk þess sem
flutt verða einleiksverk frá ýms-
um tímabilum.
Stærsti viðburður dagsins verð-
ur flutningur á öllum 24 prelúdíum
Chopins. Átján píanóleikarar ætla
að skiptast á um að flytja prelúd-
íurnar, sem sjaldan eru fluttar all-
ar saman á einum tónleikum.
„Það verða tveir flyglar á svið-
inu og við sitjum svo í hring og
skiptumst á um að setjast við
píanóstólana. Það gæti komið
þarna skemmtileg breidd í túlkun-
ina, því við fengum ekkert að ráða
því hvaða prelúdíu hver flytur.
Flestir kunna þessar frægustu,
þannig að það voru bara dregin
númer úr poka.“
Píanóleikararnir sem koma
fram í Gerðubergi eru á ýmsum
aldri, allt frá þeim yngstu í faginu
til heiðursmanna á borð við Hall-
dór Haraldsson. ■
Átján píanistar saman í hring
!
Jazz brunch - Lög unga fólksins
Að þessu sinni verður boðið uppá tónleika í tilefni að
geislaplötu Kristjönu Stefánsdóttur söngkonu og Agnars
Más Magnússonar píanista: Lögum unga fólksins, sem tekin var upp
í New York í sumar. Á henni má finna tónsmíðar þeirra svo og
útsetningar á vinsældarpoppi síðustu áratuga. Hótel Borg kl. 12.00
með hlaðborði kr. 2.500
Barnajazz Önnu Pálínu
Anna Pálína Árnadóttir er þekkt fyir frábær barnalög sín
í jazzústetningum. Með henni leika Gunnar Gunnarsson
á píanó, Gunnar Hrafnsson á bassa og Pétur Grétarsson á trommur.
Hún hefur einu sinni áður komið fram á Jazzhátíð Reykjavíkur með
barnajazz sinn og voru undirtektir ungu áheyranda frábærar.
Ráðhúsið kl. 17.00. Aðgangur ókeypis
Van Morrisson
Eina hljómsveitin þar sem enginn Íslendingur leikur með
á Jazzhátíð Reykjavíkur er hljómsveit söngvarans vinsæla
Van Morrissons. Það er líka eina hljómsveitin sem ekki er jazzhljóm-
sveit, en það gerist æ algengara á jazzhátíðum að hljómsveitir á
landamærum jazz, blús og rokks komi þar fram.
Laugardagshöll kl. 20.00. Uppselt
Seamus Blake og B3 tríó
Tríóið skipa Agnar Már Magnússon á hammond-
orgel, Ásgeir Ásgeirsson á gítar og Erik Qvick á
trommur. Að þessu sinni bjóða þeir til sín öðrum
kanadískum jazzleikara, Seamus Blake, saxafón-
einleikara. Stíll hans er mjög persónulegur þar
sem greina má bæði áhrif frá frjálsdjassi og
bíboppi. Það verður mikið ævintýri að heyra hann með hinu jarðbundna
fönkaða hammondtríói B3. Hótel Borg kl. 22.00 kr. 1.800
Jazzklúbbar
Kaffi Kúltur, Café Rosenberg, Hótel Borg og Póstbarinn
Hótel Borg - Grams Tríó, Jóel Pálsson sax, Davíð Þór Jónsson orgel
og Helgi Svavar Helgason trommur. Póstbarinn - Tríó Guðlaugar -
Guðlaug Dröfn Ólafsdóttir, Andrés Þór gítar og Gunnar Hrafnsson
bassa. Cafe Rosenberg - Autoreverse kvartett, Sigurður Rögnvaldsson
gítar, Ívar Guðmundsson trompet, Pétur Sigurðarson bassa og Kristinn
Snær Agnarsson trommur -gestur kvöldsins Steinar Sigurðarson sax
Kaffi Kúltúre - Tríó Óla Jóns tríó, Ólafur á tenór, Jón Páll Bjarnason
gítar og Tómas R. Einarsson bassa. Sami miði gildir á alla klúbba
kvöldsins. kr. 1.000 – kl. 23.30 - 01.30
!
"""#$
% &&' (
% &&)
Vinafélag Sinfóníuhljómsveitar Íslands efnir
til umræðufundar um hlutverk Sinfóníunnar
í samtímanum í Iðnó mánudagskvöldið 4.
október klukkan 20.00
Reynt verður að velta upp ýmsum áhuga-
verðum spurningum: Hvers konar tónlist á
Sinfónían að spila? Hvert á að vera hlutfall
þekktra verka og lítt þekktra? Hvert á að
vera vægi íslenskrar tónlistar? Á hljómsveitin
að laga sig að óskum áheyrenda eða fylgja
sinni eigin menningarpólitík? Hvernig getur
Sinfónían best verið hljómsveit allra lands-
manna? Er henni gert kleift að sinna sínu
lögboðna verkefni?
Frummælendur verða Arnþór Jónsson, Jónas
Sen, Hjálmar H. Ragnarsson og Sigfríður
Björnsdóttir. Halldór Hauksson stjórnar pall-
borðsumræðum með þátttöku frummæl-
enda og Þrastar Ólafssonar, framkvæmda-
stjóra Sinfóníuhljómsveitar Íslands.
Aðgangur er ókeypis.
Sinfónían í samtímanum
SJALDGÆF SJÓN Sjaldan sjást jafn margir píanó-
leikarar saman á einum stað. Á morgun verður
píanóið í öndvegi á degi hljóðfærisins 2004, sem
haldinn verður í Gerðubergi í Breiðholti.
Fyrstu tónleikarnir í tónleikaröð
Tríós Reykjavíkur og Hafnarborg-
ar, menningar- og listastofnunar
Hafnarfjarðar, verða haldnir
sunnudaginn 3. október kl. 20.00.
Fluttur verður píanókvintett Op. 44
eftir Robert Schumann og píanó-
kvintett Op. 34 eftir Johannes
Brahms. Segja má að þessi verk
séu risarnir í þessari hljóðfæra-
samsetningu og afar sjaldgæft að
fá að heyra þau saman á tónleikum.
Tríóið hefur fengið tvo af frem-
stu strengjaleikurum landsins til
liðs við sig, þær Sigrúnu Eðvalds-
dóttur fiðluleikara og Ásdísi Valde-
marsdóttur víóluleikara. Ásdís
kemur sérstaklega til landsins
vegna tónleikanna og er þetta í
fyrsta sinn sem hún kemur fram
með Tríói Reykjavíkur en hún lék
um árabil með hinum þekkta
Chiligrian-kvartett.
Meðlimir Tríós Reykjavíkur
eru þau Peter Maté píanóleikari,
Gunnar Kvaran sellóleikari og
Guðný Guðmundsdóttir, fiðluleik-
ari og konsertmeistari Sinfóníu-
hljómsveitar Íslands, ásamt Sig-
rúnu Eðvaldsdóttur. Það er ekki
oft sem fólki gefst kostur á að
heyra báða konsertmeistarana
leika saman kammertónlist, en 10
ár eru liðin síðan þær Guðný og
Sigrún léku saman á tónleikum í
Hafnarborg síðast.
Þann 14. nóvember verða tón-
leikar undir yfirskriftinni
„klassík við kertaljós“ og eins og
nafnið ber með sér verða flutt
verk frá klassíska tímabilinu,
Mozart, Haydn og fl.
Þann 2. janúar verða hinir
hefðbundnu nýárstónleikar,
nokkru fyrr á ferðinni en áður.
Það eru þau Bergþór Pálsson og
Sigrún Hjálmtýsdóttir sem munu
ylja áheyrendum um hjartarætur
með sínum frábæra söng og túlk-
un. Einnig má búast við óvæntum
uppákomum.
Þann 20. mars verða svo
lokatónleikar þar sem 20. aldar
tónlist og rómantík munu ráða
ríkjum. Gestur tríósins verður
hinn ungi sellóleikari Sigurgeir
Agnarsson.
Sala áskriftarkorta er hafin. ■
Konsertmeistarar leika saman