Fréttablaðið - 02.10.2004, Síða 22

Fréttablaðið - 02.10.2004, Síða 22
Nokkur viðskipti hafa átt sér stað með stofnbréf í Sparisjóði Reykja- víkur og nágrennis á síðustu dög- um. Á fimmtudag byrjaði HF verð- bréf að hafa milligöngu um sölu á stofnbréfum. Eigendum stofnfjár var tilkynnt um þetta bréflega í vikunni og seg- ir Halldór Friðrik Þorsteinsson hjá HF verðbréfum að nokkur viðskipti hafi þegar átt sér stað. Gengið í þeim viðskiptum hefur verið fimm sem er nokkuð lægra en KB banki bauð þegar til stóð að sameina SPRON og KB banka nú í vetur. Viðskipti með stofnfé eru háð samþykki stjórnar SPRON en næsti stjórnarfundur verður í næstu viku. Stjórnin hefur þegar komist að þeirri niðurstöðu að við- skipti með stofnfé á yfirverði séu heimil og í tilkynningu frá stjórn- inni í vikunni segir að hugmyndir um markað með stofnfé hafi þegar verið kynnt Fjármálaeftir- litinu. Að sögn Halldórs Friðriks er markaður með stofnbréfin að skapast og kauptilboð og sölutil- boð að mætast. ■ HÖFUÐSTÖÐVAR SPRON Markaður með stofnbréf í SPRON er kominn af stað og hafa nokkur kaup þegar átt sér stað. Sala hafin á stofnfé Þjóðhagsspá fjármálaráðu- neytisins gerir ráð fyrir miklum hagvexti fram til ársins 2006. Viðskiptahallinn nær einnig áður óþekktum hæðum en að mati fjármála- ráðherra er um „góðkynja“ viðskiptahalla að ræða. At- vinnuleysi mun einnig minnka. Fjármálaráðu- neytið gerir ráð fyrir miklum hagvexti á næstu árum. Gert er ráð fyrir að hagvöxtur í ár verði fimm og hálft prósent en fimm prósent á næsta ári og fjögur og hálft árið 2006. Ráðuneyt ið gaf út nýja þjóð- hagsspá í gær í tengslum við kynningu á fjárlagafrumvarpi næsta árs. Í þjóðhagsspánni segir að hagvísar staðfesti fyrri spár ráðuneytisins um að nýtt hagvaxt- arskeið hafi hafist í fyrra. Þá var hagvöxturinn um fjögur prósent. Vegna stóriðjuframkvæmda er gert ráð fyrir að viðskiptahallinn verði mjög mikill á næstu árum og nái hámarki árið 2006. Þá er gert ráð fyrir að viðskiptahallinn nemi þrettán og hálfu prósenti af landsframleiðslu. Þetta er tölu- vert meiri viðskiptahalli en árið 2000 þegar hann fór sem hæst. Fram kom í máli Geirs H. Haarde fjármálaráðherra á blaðamanna- fundi í gær, að þessi viðskipta- halli væri „góðkynja“ þar sem hann stafaði af fjárfestingu sem síðar muni skila útflutningstekj- um. Um helming fyrirsjáanlegs viðskiptahalla má rekja beint eða óbeint til virkjanaframkvæmda en aukin einkaneysla á einnig sinn þátt í viðskipstahallanum. Þrátt fyrir mikinn halla í við- skiptum gerir fjármálaráðuneytið ekki ráð fyrir að gengi krónunnar veikist mjög á næstu árum. Að sögn Bolla Þórs Bollasonar, skrifstofustjóra efnahagsskrif- stofu fjármálaráðuneytisins, gæti hagvöxtur orðið meiri en spáð er þar sem spár um vöxt einka- neyslu séu hóflegar. „Það er gert ráð fyrir að það muni hægt draga úr vexti einka- neyslu en innkoma bankanna á lánamarkaði gæti viðhaldið þeim vexti áfram og leitt til aukinnar neyslu. Þetta er áhættuatriði. Einkaneyslan gæti vaxið meira og þá yrði hagvöxtur meiri en einnig viðskiptahallinn og það gæti þá haft í för með sér aukna verð- bólgu,“ segir Bolli. Ef einkaneyslan vex áfram hratt hefur það í för með sér að ríkisvaldið þarf að líkindum að draga úr framkvæmdum frekar en nú þegar hefur verið ákveðið. Fjármálaráðherra segir að fram- kvæmdir á næsta og þarnæsta ári verði tveimur milljörðum minni en áætlanir höfðu gert ráð fyrir til þess að draga úr þensluáhrif- um. Atvinnuástand mun einnig batna á næstu árum að mati fjár- málaráðuneytisins. Gert er ráð fyrir að það verði komið niður í 2,25 prósent árið 2006. ■ Nýhagfræðin Hræringar í viðskiptalífinu hafa haldið áfram að hækka verð hlutabréfa. Hrollur fór um marga, sem muna fjörið á markaði í upphafi ársins 2000, þegar bréf Straums, Burðaráss, Íslandsbanka og Lands- bankans hækkuðu um tuttugu milljarða í kjölfar stórviðskipta á miðvikudag. Menn fóru að rifja upp tíma þegar fullyrðingar eins og að það væri meiri áhætta að kaupa ekki hlutabréf í Decode en að kaupa. Margir telja bóluein- kenni á markaði. Sé gleðin að ná há- punkti þessa dagana telja menn að setning þessa tímabils sé fundin. Í greiningu á kaupum Burðaráss á Kald- baki segir í Viðskiptablaðinu: „Að fá 12 milljarða aukningu í eigið fé fyrir 16 milljarða er því mjög góð fjárfesting.“ Skemmtileg ný hagfræði ef maður yrði nú viðskiptasnillingur af því að kaupa hverjar tólf krónur sem eru falar fyrir sextán. Varnarmaður í fjarskiptin Viðar Þorkelsson hefur tekið tímabundið við stari forstjóra Og Vodafone. Viðar er ef til vill ekki enn orðinn mjög þekktur sem viðskiptajöfur en hans frægðarsól skein hátt á níunda áratugnum þegar hann var ein helsta kjölfestan í stórliði Fram. Viðar lék í stöðu vinstri bakvarðar og á að baki 26 lands- leiki í knattspyrnu (og reyndar þrjá í körfu- knattleik líka). Hann var ekki marksækinn leikmaður. Hann skoraði hins vegar eitt mikilvægasta mark í sögu Fram þegar hann tryggði liðinu 3-2 sigur á Val í síðustu um- ferð Íslandsmeistaramótsins árið 1990 og þar með Íslandsmeistaratitilinn. Þá hafði Viðar leikið níutíu deildarleiki í röð án þess að skora. Markið sem tryggði titilinn kom því úr óvæntri átt. Nú á eftir að koma í ljós hvort Viðar reynist sókndjarfari í viðskiptum en fót- boltanum og hvort Viðar hyggist á stórsókn með Og Vodafone eða láti sér nægja að verja stöðuna. MESTA HÆKKUN ICEX-15 3.819 KAUPHÖLL ÍSLANDS [ HLUTABRÉF ] Fjöldi viðskipta: 418 Velta: 1.422 milljónir +0,45% MESTA LÆKKUN MARKAÐSFRÉTTIR... 22 2. október 2004 LAUGARDAGUR Óskar Magnússon er hættur sem forstjóri Og Vodafone í kjölfar þess að nýir kjölfestu- fjárfestar ráða þar för. Baug- ur keypti í gær 10 prósent í félaginu. Óskar Magnússon hefur látið af störfum sem forstjóri Og Voda- fone. Viðar Þorkelsson, fram- kvæmdastjóri fjármála- og rekstr- arsviðs, tekur við starfi Óskars tímabundið en Óskar verður stjórn félagsins áfram til ráðuneytis eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá félaginu. „Á sínum tíma fór ég fyrir hópi hluthafa sem átti um sjötíu prósent af Íslandssíma þegar við sameinuð- umst Halló, keyptum Tal og bjugg- um til Og Vodafone. Þá töldum við sjálfgefið að ég leiddi það fyrir- tæki. Nú hefur skipst um þennan hóp og kjölfestufjárfestarnir eru aðrir. Þá tel ég bara sjálfgefið að þeirra maður taki við þessu og þeirra stefnumót- un fái sinn fram- gang. Þetta er gert í góðu sam- komulagi. Ég óskaði eftir þessu og því var vel tek- ið,“ segir Óskar Magnússon Í gær var einnig tilkynnt um kaup Baugs á um tíu prósenta hlut í félaginu. „Við höfum mikla trú á þessu félagi og það endur- speglast í þessum kaupum,“ segir Skarphéðinn Berg Steinarsson sem er stjórnarformaður Og Vodafone og framkvæmdastjóri hjá Baugi. Norðurljós eiga fyrir um 35 prósent í Og Vodafone. Skarphéðinn Berg segir að þrátt fyrir tengsl fyrirtækjanna, en Baugur á um þrjátíu prósent í Norðurljósum, sé fráleitt að telja að yfirtökuskylda hafi myndast. ■ vidskipti@frettabladid.is Peningaskápurinn… Actavis 51,50 +1,98% ... Bakkavör 27,50 -0,72% ... Burðarás 15,30 - ... Atorka 6,50 +18,18% ... HB Grandi 7,80 -2,50% ... Íslandsbanki 11,90 +0,55% ... KB banki 493,00 +0,61% ... Landsbankinn 13,60 -2,86% ... Marel 55,00 - ... Medcare 6,55 +0,77% ... Og fjarskipti 3,95 +9,12% ... Opin kerfi 25,70 - ... Samherji 13,30 - 1,48% ... Straumur 10,20 +2,00% ... Össur 92,00 +0,55% Líftæknisjóðurinn 20,83% Atorka 18,18% AFL 13,46% Landsbankinn -2,86% HB Grandi -2,50% Flugleiðir -2,22% HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: nánar á visir.is Hlutabréf héldu áfram að hækka í gær. Úrvalsvísitalan endaði í 3.819 stigum. Bréf fjárfestingar- félagsins Atorku hækkuðu um rúm átján prósent. Bréf Atorku hafa hækkað um 275 prósent frá áramótum. Aflaverðmæti nam 5,8 m.kr. í júní samkvæmt tölum frá Hag- stofunni sem birtar voru í morg- un. Aflaverðmætið hefur nánast staðið í stað frá sama mánuði í fyrra. Undirritaður hefur verið samning- ur um kaup Húsasmiðjunnar á rekstri KB Byggingavara í Borgar- nesi. Stefnt er að því að afhend- ing rekstrarins fari fram um miðj- an október. Í kjölfarið mun Húsa- smiðjan breyta verslun KB í Borg- arnesi í Húsasmiðjuverslun. Skipt um stjóra ÓSKAR MAGN- ÚSSON Fyrrum forstjóri Og Voda- fone. GILDUR HAGVÖXTUR NÆSTU ÁR Að mati fjármálaráðuneytisins hófst hagvaxtarskeið í fyrra og verður með þeim öflugustu í sögunni ef spár ná fram að ganga. BOLLI ÞÓR BOLLASON Skrifstofustjóri efnahagsskrifstofu fjármálaráðuneyt- isins. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G VA Mikill hagvöxtur og viðskiptahalli

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.