Fréttablaðið - 02.10.2004, Síða 62
50 2. október 2004 LAUGARDAGUR
Í kvöld munu fimm hiphop hljóm-
sveitir koma fram í Leikhúskjall-
aranum. Þetta eru Ant Lew: Max-
imum, Twisted Minds, Forgotten
Lores, Kritikal Mazz og Angel
Childs. „Þetta eru fyrstu tónleik-
arnir sem við höldum en alls ekki
þeir síðustu, eftir þessa tónleika
fer allt í gang,“ segir Erling Egils-
son eða Angel Childs eins og hann
kýs að kalla sig. „Þetta verða
rosalegir tónleikar því við verð-
um allir uppi á sviði í einu mest-
allan tímann. Einnig munu The
Lobster Kid og Charley D vera
með skemmtiatriði á milli atriða
og þeir eru þekktir fyrir að halda
uppi trylltri stemningu.“
Hljómsveitirnar mynda saman
nýtt krú og kalla sig Smoketown
Rockers. Undir því nafni eru
einnig tvær nýjar útgáfur sem
munu gefa út íslenska hiphop-tón-
list. Hljómsveitirnar Ant Lew:
Maximum, Angel Childs, Kritikal
Mazz og Kalli mynda saman út-
gáfuna New Plague og gefa út
fyrstu plötuna í miðjum nóvem-
ber. Þetta verður platan Thunder-
ing með Ant Lew: Maximum.
Margir ljá hljómsveitinni lið á
plötunni og sá frægasti mun vera
íslandsvinurinn Sage Francis
sjálfur.
„Slagorð okkar í New Plague
er „spread the virus“ og gefur það
til kynna hversu miklu við ætlum
að dreifa af ferskri tónlist, ekki
bara hérlendis heldur ætlum við
einnig að sækja á erlendan mark-
að,“ segir Erling. Hin útgáfan heit-
ir Low Average og hana mynda
Forgotten Lores og Twisted
Minds. Strákarnir í Forgotten Lor-
es eru að margra mati ein besta
hiphop hljómsveit sem semja aðal-
lega á íslensku og því spurning
hversu heitir þeir eru fyrir
erlendum markaði. Þó yrði það að
sjálfsögðu ansi skemmtilegt ef
íslenskt rapp næði vinsældum í
Bandaríkjum Norður-Ameríku.
Húsið opnar kl. hálfellefu og
munu tónleikarnir byrja um hálf-
tólf og standa langt fram á nótt.
Aðgöngueyrir er 500 kr. eða 1000
kr. og þá fylgir með geisladiskur,
sérútbúinn fyrir tónleikana.
Strákarnir í Smoketown Rockers
segjast, auk þess að leggja sitt að
mörkum í að hefja íslenska
hiphop menningu upp á hærra
plan, einnig ætla að grúska eitt-
hvað í myndlist, graffi og graf-
ískri hönnun. Síðast en ekki síst
munu nokkrar hljómsveitanna
spila á komandi Airwaves-hátíð í
október.
hilda@frettabladid.is
Árleg hausthátíð verður haldin á
Keflavíkurflugvelli í dag milli
ellefu að morgni til fjögur síð-
degis, þar sem varnarliðsmenn
bjóða Íslendingum að kynnast
íbúum á Keflavíkurflugvelli,
skoða þotur, þyrlur og annan
búnað varnarliðsins. Hátíðin er
að venju með karnival-sniði og
fer fram í stóra flugskýlinu næst
vatnstanki vallarins.
„Þessi hátíð hefur verið í að
minnsta kosti tuttugu ár,“ segir
Friðþór Eydal. „Yfirleitt kemur
hingað margt fólk, fyrst og
fremst gestir af Suðurnesjum, en
einnig frá höfuðborgarsvæðinu.
Þetta er haldið vor og haust til að
lífga upp á tilveruna hérna.
Svona hátíð gefur félagasamtök-
um hérna líka tækifæri til að
sýna hvað þau eru að gera og
gefur þeim tækifæri til fjáröfl-
unar. Samtök Filippseyinga í
Bandaríkjaher hafa til dæmis
verið með frægar matarveislur.“
Í boði verður fjölbreytt
skemmtun fyrir alla fjölskylduna,
tónlist, þrautir, leikir, hressing og
sýningar af ýmsu tagi. Umferð er
um Grænáshlið ofan Njarðvíkur
og eru gestir eru vinsamlegast
beðnir að hafa ekki með sér
hunda. ■
GLATT Á HJALLA Margt var um manninn á hausthátíð varnarliðsins fyrir ári síðan.
SMOKETOWN ROCKERS
Hópur sem ætlar að leggja
sitt af mörkum í að hefja
íslenska hiphop-tónlist upp
á hærra plan.
FIMM HIPHOP HLJÓMSVEITIR: TÓNLEIKAR OG NÝTT KRÚ
Trylltir tónleikar í kvöld
1
6 7
98
10
12 13
1514
16
18
17
11
2 3 4 5
Lárétt: 1 átt, 6 karlfugl, 7 leyfist, 8 tveir
eins, 9 hestur, 10 litlaus, 12 eins um t,
14 ábreiða, 15 sérhljóðar, 16 rykkorn, 17
reiðihljóð, 18 guðhrædd.
Lóðrétt: 1 nöldur, 2 garg, 3 sólguð,
4 haldið í herkví, 5 renna, 9 hress,
11 fræull, 13 bíta laust, 14 á flíkum,
17 varðandi.
Lausn.
Lárétt: 1norður, 6ara,7má,8gg,9ess,
10grá, 12ntn,14lak,15ua,16ar,
17urr, 18fróm.
Lóðrétt: 1nagg,2org,3ra,4umsátur,
5rás,9ern,11barr, 13nart, 14laf, 17um.
■ VEISTU SVARIÐ?
Svör við spurningum á bls. 6
1
3
2
Þriðjudagur.
Rússland.
Þorlákur Árnason.
Varnarliðið býður til hausthátíðar
Ég var steindauður á brunaæf-
ingunni á Reykjavíkurflugvelli
síðustu helgi. Ég veit að þetta
kemur mörgum á óvart, sérstak-
lega þeim fjölmörgu sem tóku
þátt í sjálfri æfingunni vegna
þess að þeir urðu aldrei varir við
mig en ég var einn af þeim sem
lentu í þykjustunni í slysinu og
fannst aldrei. Ég þeyttist úr úr
flugvélinni (ég var ákaflega
myndarlegur bissnesmaður um
fertugt með þykkt svart hár og
spékoppa), flaug einhverja fimm
hundruð metra og lenti á milli
tveggja þúfna, rétt við heita-
vatnslækinn í Nauthólsvík.
Þarna lá ég í fimm klukku-
tíma, starði á puntstráin yfir
mér, flugvélar lenda og fara í
loftið, hlustaði á bíla keyra
framhjá og eldra fólk með lík-
amann á heilanum renna sér á
línuskautum eftir göngustígn-
um. Ég bar mig vel og hugsaði
um þá sem ég hafði hjálpað í
flugvélinni áður en hún hrapaði
og gullfallega flugfreyju sem
mér hafði tekist að hugga en ég
samþykkti að taka þátt í æfing-
unni með því skilyrði að ég hefði
í þykjustunni verið hetja.
Ég er ekkert pirraður yfir því
að hafa ekki fundist og verið lát-
inn liggja þarna í fimm klukku-
stundir, ég er eiginlega bara feg-
inn. Það er bara ágætt að vera
látinn horfa á strá úti í móa og
þykjast vera hetja. Ég mæli með
því og mun á komandi vikum aug-
lýsa námskeið þar sem fólki
verður kennt að liggja milli
þúfna. Ég mun skaffa þúfur og
þykjustulíf en fólk er beðið um
að koma með sinn eigin kaffi-
brúsa.
Þeir sem eru hins vegar al-
vöru hetjur í mínum augum eru
foreldar barnanna sem sótt var
um undanþágu fyrir í kennara-
verkfallinu. Ég veit lítið um þetta
kennaraverkfall og launaseðill
Rannveigu Richter er nú ekkert
til að hrópa húrra fyrir (vonandi
nær hún sér í ríkan kall). En það
breytir því ekki að ég tek hatt
minn ofan fyrir þessum hópi for-
eldra, ég tek höfuðið ofan þar
sem ég ligg steindauður milli
þúfna með takmarkað útsýni. ■
Þykjustuþúfur og hetjur
ÞORSTEINN GUÐMUNDSSON BAR SIG VEL ÞRÁTT FYRIR AÐ VERA DAUÐUR
HELGARPISTILLINN
„Ég er ekkert pirraður yfir því að
hafa ekki fundist og verið látinn liggja
þarna í fimm klukkustundir.“
■
Uppselt á
Lisu Ekdalh
Það tók ekki nema korter að selja
miðana á tónleika sænsku gyðj-
unnar Lisu Ekdalh sem fram fara
í Austurbæ þann 10 október næst-
komandi. Miðarnir voru til sölu í
Bókabúð Máls og menningar og á
midi.is. Lisa Ekdalh varð fræg á
einni nóttu í heimalandinu þegar
hún gaf út sína fyrstu plötu 1994
og lagið hennar Vem Vet fór
rakleiðis í fyrsta sæti vinsælda-
listanna. Platan seldist í hálfri
milljón eintaka og færði Lisu
þrenn sænsk tónlistarverðlaun.
Rödd hennar þykir barnaleg en
tónlist hennar bæði djassskotin og
nostalgísk. ■