Fréttablaðið - 16.10.2004, Síða 62
■ VEISTU SVARIÐ?
Svör við spurningum á bls. 6
1
3
2
Kristján Gunnarsson.
John Kerry.
Vegna ruddaskapar og grófs
leiks.
50 16. október 2004 LAUGARDAGUR
Sævar Már Sveinsson hefur unn-
ið vínþjónakeppnir síðustu þrjú
ár á Íslandi og tók þátt í heims-
meistarakeppni vínþjóna sem fór
fram í Grikklandi nú á dögunum.
Keppnin var haldin í tvennu lagi,
skrifleg og verkleg, fyrr hlutinn á
eynni Santorini og sá seinni í
Aþenu.
„Ég veit ekkert í hvaða sæti ég
lenti því það er einungis búið að
kynna fyrstu fjögur. En þetta var
rosalega skemmtilegt og krefj-
andi og hvetur mig mjög mikið til
að halda áfram í þessum bransa
og reyna að gera betur,“ segir
Sævar.
Hann hefur verið í vínþjóna-
bransanum síðan 1996 þegar hann
hóf námið, sem tekur þrjú ár.
Sævar segir hæfni þjóna vera sí-
fellt vaxandi og margir sérhæfi
sig í þessu fagi. „Það er mjög
mikilvægt að æfa sig mikið til að
ná hæfni, ekki bara í sambandi
við vín heldur snýst starfið líka
um þekkingu á kaffi, vindlum,
mat og hvaða vín fer best með
hvaða mat. Í rauninni snýst þetta
um allt sem kúnninn gæti viljað
fá að vita. Það er líka mjög í tísku
núna í þessu fagi bæði að þekkja
vínið og vera fróður um sögu
þess,“ segir Sævar. Heimsmeist-
arakeppnin er haldin þriðja hvert
ár og fer því næst fram árið 2007.
Til þess að öðlast þátttökurétt
í keppninni verður vínþjónn að
vinna keppnina í sínu heimalandi.
Einnig keppa Norðurlöndin sín á
milli á hverju ári. Fyrir þá sem
hafa áhuga á að læra til vínþjóns
er nauðsynlegt að læra á veit-
ingastað sem er með meistara og
tekur það nám þrjú ár. Inni í því
námi er kennt að fara með vín og
alhliða kennsla um sögu þess og
meðferð. „Ég veit ekki hvort ég
fer í næstu heimsmeistarakeppni
en annars verður það bara ein-
hver annar hæfur úr Vínþjóna-
samtökum Íslands,“ segir Sævar
Már Sveinsson vínþjónn.
hilda@frettabladid.is
Spurningaleikurinn Orð skulu
standa, í umsjón Karls Th. Birg-
issonar, heldur göngu sinni
áfram á Rás 1 í dag og hefst
hann klukkan 16.10, strax á eftir
fréttum og veðri. Þátturinn naut
talsverðrar hylli síðastliðinn
vetur.
Í þættinum spyr umsjónar-
maður þátttakendur meðal ann-
ars um orð, orðanotkun, ljóð,
dægurlagatexta, skáldsögur og
hvaðeina sem tengist íslenskri
tungu og notkun hennar. Óhætt
er að fullyrða að mörg orðin
virka mjög framandi þó ramm-
íslensk séu. Þjálfaðir spilararar
Fimbulfambs eiga þó kannski
meiri möguleika en aðrir á að
kannast við þessi orð, þó ekki
séu þau notuð í daglegu tali nú-
tíma Íslendinga.
Tveir keppendur eru í hvoru
liði en liðsstjórar eru þau Hlín
Agnarsdóttir leikstjóri og Davíð
Þór Jónsson. Í þættinum í dag
verður Valgerður Stefánsdóttir,
forstöðumaður Samskiptamið-
stöðvar heyrnarlausra, í liði
Hlínar en í liði Davíðs verður
Katrín Jakobsdóttir íslensku-
fræðingur. Þátturinn er frum-
fluttur á laugardögum og endur-
fluttur á miðvikudögum.
Sú nýbreytni er tekin upp í
vetur að varpa fram fyrriparti
sem þátttakendur eiga að svara í
lok þáttar. Hlustendum gefst
einnig kostur á að senda inn sinn
eigin seinnipart með því að
senda tölvupóst á netfangið
ord@ruv.is. ■
KARL TH. BIRGISSON Umsjónarmaður
útvarpsþáttarins Orð skulu standa á Rás 1.
SÆVAR MÁR SVEINSSON Barþjónn Íslands tók þátt í heimsmeistarakeppninni sem fram fór í Grikklandi.
VÍNÞJÓNAR: SÝNDU DÓMURUM LISTIR SÍNAR OG ÞEKKINGU Í GRIKKLANDI NÚ Á DÖGUNUM.
Heimsmeistarakeppni vínþjóna
1
5 6
87
9
12
15
10
13
16 17
11
14
18
2 3 4
...fær hljómsveitin Hjálmar fyrir
að spila gott íslenskt reggí.
HRÓSIÐ
Hefur þú
fengið þér
sextíu
sjö í dag&
Mosfellsbær
Lárétt: 1 stórt hús, 5 þrá, 6 dýramál, 7
plötutegund, 8 veitingastaður, 9 íþrótt, 10
tveir eins, 12 fæði, 13 spil, 15 verkfæri,
16 spyrja, 18 nudd.
Lóðrétt: 1 hæðirnar, 2 trjátegund, 3 í öf-
ugri röð, 4 hræðileg, 6 sjóða hægt, 8
slöngutegund, 11 fljót, 14 elska, 17 fé-
lagssamtök.
Lausn.
Lárétt: 1höll,5ósk,6me,7lp,8bar, 9
golf, 10rr, 12ali,13nía,15al,16inna,
18nagg.
Lóðrétt: 1hólarnir, 2ösp,3lk,4herfileg,
6malla,8boa,11rín,14ann,17aa.
Orð skulu áfram standa
Edda
Björgvinsdóttir:
Sko .. það er best að
læðast um húsið til
að vekja hann ekki.
Gefa honum svo B-
vítamín með lamba-
steikinni og einn ís-
kaldan bjór! Maður
finnur hreinlega ekki
fyrir ónotunum!!
Björk Jakobsdóttir:
Að skála í einum tvö-
földum alkaseltser og
skella sér á
skíði....eða ef börnin
eru í næturpössun þá að eiga langan
tilfinningaríkan morgun undir sæng.
Kela, lesa öll dagblöð sem koma inn
um lúguna. Brjálast saman yfir stjórn-
málaástandinu og enda svo fyrir fram-
an kassann í tilfinningalegu uppnámi
ásamt Silfri Egils og co.
Guðrún
Ásmundsdóttir:
Sé það sósan, bæta
svolitlu maisena-
mjöli út í hana og
hræra vel. Sé það
e i g i n m a ð u r i n n ,
sparka honum fram
úr rúminu og öskra
á hann: Hvar varstu í gærkvöldi? Sért
það þú sjálf, skaltu fara um höfuð þitt
mjúkum höndum og reyna að setja
fókusinn á göngutúr niður í fjöru hvort
sem þú kemst þangað eða ekki.
Unnur Ösp
Stefánsdóttir:
Hringja í vinkonurn-
ar og rifja upp
kvöldið í flisskasti.
Sleppa því að líta í
spegilinn. Sund,
gufa, sveittur borg-
ari og ískalt appel-
sín með lakkrísröri.
Sverja þess dýran
eið að bragða aldrei aftur áfengi og
ganga í klaustur!
Guðlaug Elísabet
Ólafsdóttir:
Í þeim tilfellum
þegar snúningur
jarðar verður
óbærilega hraður
er ekkert annað að
gera en leggjast
flatur á magann og
grípa dauðahaldi í
eitthvað það sem
forðar manni frá því að svífa út í al-
gleymið.
| 5STELPUR SPURÐAR |
Þjóðráð við þynnku?
» BETRI SJÓNVARPSDAGSKRÁ Á MIÐVIKUDÖGUM
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
AL
LI