Tíminn - 02.09.1973, Page 27
Sunnudagur 2; september 1973
TÍMINN
27v
Leið allra
ungra Vest-
urbæinga
liggur nær
undantekn-
ingarlaust
á KR-völlinn
og þeirri
regiu fygldi
Halldór
Leikir KR og Vestmannaeyja hafa oft verift skemmtilegir. A þessari mynd sést Halldór stöftva sókn Kyjamanna.
þaö er gott dæmi um þaö, hve hjá-
trúarfullir knattspyrnumenn geta
veriö, aö sumariö, sem KR varö
fslandsmeistari hjá Guðbirni,
fann Halldór krónupening á götu.
Einhverra hluta vegna trúði hann
þvi, aö þessi króna væri happa-
peningur. Hann hafði það þvi
fyrir sið aö leika engan leik, nema
hafa krónuna góöu i annarri
hendinni. Tapaöi KR engum leik
á meðan. En i vináttuleik á fsa-
firði, aö vantaöi krónuna góðu, og
þá var ekki.sökum að spyrja —
KR vann ekki.
Pheiffer góður þjálfari
Arið 1967 lék Halldór sinn fyrsta
meistaraflokksleik. Það gekk
bærilega hjá KR. þvi leikurinn
vannst 5:1. Engu að siður var
Halldór settur út úr liöinu, en
þegar KR tapaði fyrir Val, næst
þegar liðin mættust, fékk hann
sæti i liöinu aftur.
Þetta ár varð KR bikar-
meistari, en það var orðin hefö,
að KR hlyti þann titil, og næsta ár
á eftir, varö féiagið Islands-
meistari undir stjórn Austurrikis-
mannsins Pheiffers. Telur
Halldór, að Pheiffer sé bezti
þjálfari, sem hann hefur æft hjá,
að öðrum þjálfurum ólöstuðum.
Þetta sama ár tók KR þátt i
Evrópubikarkeppni bikarhafa og
dróst á móti grisku bikarmeist-
urunum. Olympiuakaos. Báðir
leikirnir voru leiknir ytra og i
öörum þeirra varð Halldór að
gjalda þess, hve opinskár hann
getur verið i leikjum. Grikkirnir
höfðu skorað mark með þeim
hætti, að griskur leikmaður
hindraði Guðmund Pétursson,
markvörð KR , meðan annar
skaut aö marki. Dómarinn virtist
ekki sjá þetta, og Halldór hrópaði
aö honum, og benti i átt að
markinu. Skipti þá engum togum,
aö griskur leikmaður kom aftan
að honum og greip hann kverka-
taki, og sá Halldór þaö siðast, að
tvær krumlur læstust um háls
hans. Það næsta, sem hann mundi
eftir sér, var það, að félagar hans
úr KR stumruöu yfir honum.
Dómarinn lét sem ekkert væri,
Markið dæmt löglegt, og fólsku-
leg árás Grikkjans látin óátalin.
Sjö landsleikir
Halldór hefur sjö landsleiki að
baki, auk unglingalandsleikja, en
hann var sumarið 1965 valinn i
fyrsta unglingalandsliðið, sem
þátt tók i Norðurlandamóti. Hann
var einnig valinn i unglingalands-
lið árið eftir, 1966, en þá gerði
liðið jafntefli við Svia, 0:0, i eftir-
minnilegum leik, sem háður var i
Horten i Noregi.
Halldór Björnsson var fastur
maður i landsliðshópnum, sem
Hafsteinn Guðmundsson valdi,
þar til hann fluttist til Húsavikur
til að taka að sér þjálfun, auk
þess, sem hann gerðist leikmaður
með þeim norðanmönnum.
Tilbreyting að leika i 3.
deild
Arið 1971 bauðst Halldóri
þjálfarastaða á Húsavik hjá
tþróttafélaginu Völsungi, sem þá
lék i 3. deild, en auk þess að þjálfa
liðiö var ráð fyrir þvi gert, aö
hann léki með liðinu.
Það er skemmst frá þvi aö
segja, aö Halldóri gekk vel á
Húsavik. Liöið náði góðum
árangri og sigraöi i 3. deildar
keppninni, og tapaði ekki leik á
þessu keppnistimabili, nema
gegn 1. deiidar liði Vals i
Bikarkeppninni.Halldóri þótti góð
tilbreyting aö leika i 3. deildinni.
T.d. hefur hann aldrei skorað eins
mörg mörk á einu keppnistima-
bili og þá, þvi hann skoraði sam-
tals 16 mörk.
Telur hálfatvinnu-
mennsku æskilega
Þegar Halldór sneri aftur til
Reykjavikur eftir ánægjulega
dvöl á Húsavik, kom hann ekki að
eins sterku KR-liði og áður.
Miklar breytingar höfðu átt sér
stað. Eldri leikmennirnir flestir
hættir, og Vesturbæjarliðið, sem
svo lengi hafði verið á toppnum i
islenzkri knattspyrnu, var komið
i öldudal. Skýring Halldðrs á
þessum umskiptum er sú, að
framtiðarmenn KR, sem tóku við
af Felixbræðrunum og þeim
árgangi, menn eins og Þórður
Jónsson, Arsæll Kjartansson og
fleiri, hættu allt of fljótt. Og ungu
piltarnir, sem tóku við af þeim,
urðu fullfljótt að axla byrðina
sem er samfara þvi að leika i 1.
deild og halda merki KR þar á
lofti.
Halldór er þeirrar skoðunar, að
það valdi islenzkri knattspyrnu
óbætanlegu tjóni, aö menn á bezta
aldri sjá sig tilneydda aö hætta
knattspyrnuiðkunum, jafnvel þótt
þá langi mikið til að halda áfram.
Þvi veldur stofnun heimilis,
atvinna og fleira. Segist Halddór
vera sannfærður um, að ef hér
væri tekin upp svokölluð hálfat-
vinnumennska, sem tiðkast sums
staöar erlendis, væri islenzk
knattspyrna miklu betri en hún er
i dag.
Þótt stundum sé erfitt aö sam-
ræma skyldur gagnvart fjöl-
skyldu, atvinnufyrirtæki og
knattspyrnufélagi, ætlar Halldór
að halda áfram i knattspyrnunni
um sinn. Hann er kvæntur
Guðrúnu Ruth Viöars og búa þau
hjón ásamt tveimur börnum
sinum aö Bogahlið 15.
Þess má að lokum geta, að
Halldór hefur einnig náð góðum
árangri ihandknattleikog var um
árabil fastur leikmaður meö
meistaraflokksliöi KR.
-alf.
C'r landsleiknum gegn Bermudamönnum. Haildór I baráttu um knöttinn
gegn þeldökkum leikmanni.
kynntir
llalldór telur Pheiffer vera bezta þjálfara, sem hann hefur æft hjá. Hér
heldur Pheiffer á tslandsbikarnum eftir sigur KR i mótinu 1968.