Tíminn - 02.09.1973, Side 31
_rrpi ? t«»>* rb " u j>'* ”■
Sunnudagur 2. september 1973
3r
'f '
Sjatalof i hópi bandarjskra geimvisindamanna
Mikið starf biður geimfaranna.
Verið er að vinna að þjálfunarað-
ferðum, ákveða hvaða vandamál
þátttakendur i tilrauninni verða
að kynna sér. Fyrst og fremst er
um það að ræða að ná tökum á
flókinni tækni nútima geimfars.
Geimfarar munu hlýða á fyrir-
lestra, gangast undir þjálfun,
læra mál hvers annars, kynnast.
— í fyrra stóðu sovézkar sjálf-
virkar stöðvar sig með ágætum,
en ekki var lagt i mennaðar geim-
ferðir. Stundum er sagt, að
ástæðan sé það hörmulega slys,
að áhöfn Sojús-11 fórst. Er það
rétt?
— Nei. Svo er mál með vexti að
geimferðir eru enn mjög dýrar.
Þvi er það út i hött að „fljúga til
að fljúga”. Hver ný geimferð
verður að sinna nýjum verkefn-
um, skila nýjum árangri.
Þegar fyrsta mannaða geim-
stöðin, Saljút fór á loft, hófst
hinn merkasti áfangi i þróun
geimrannsókna. Ahöfn hennar,
Dobrovolski, Volkof og Patsaéf,
unnu griðarmikið starf. Þeir
prófuðu ekki aðeins öll tæki og
kerfi stöðvarinnar, allt það nýtt
sem læknar lögðu til i sambandi
við endurkomu manna til jarð-
neskra aðstæðna — þeir gerðu
auk þess margar visindalegar
rannsóknir.
Enn eru sérfræðingar að fara
yfir niðurstöður þriggja vikna
starfs þeirra. En til að setja á loft
nýja geimrannsóknarstöð þarf að
leggja fyrir áhöfn hennar þaul-
hugsuð verkefni, byggja með rök-
réttum hætti á þeim möguleikum
sem fyrsta stöðin gaf. Allt hefur
sinn tima.
Hið sorglega slys, að einangrun
geimskipsins Sojús rofnáði á nið-
urleið og vinir okkar fórust, hefur
ekki fengið menn til að efast um
sjálfa gerð skipsins — en á þvi
hefur verið gerð itarleg prófun.
— Að lokum þetta: Geimfari er
eins konar persónugervingur alls
þess starfs, allra þeirra hug-
mynda, sem rutt hafa brautina út
i geiminn. Hvaö finnst yður um
þetta, og hvernig „þolið” þér vin-
sældirnar?
— Þér komið að mjög flóknu
máli. Hlutlægt séð er þetta svona,
en ég held að það megi ekki gera
eins konar „absolút” úr lifandi
manni. Maöurinn er manneskja
með öllum hennar kostum og
göllum.Sigrar geimvisinda eru að
visu ágæt sambræðsla starfs
hundruða hæfileikamanna,
margra greina visinda og tækni,
en geimfarinn er aðeins einn af
þátttakendum i þessu mikla
starfi. Þvi er alrangt að minu viti
að gera eins konar helgigrip úr
geimfaranum. Það truflar okkur i
lifi og starfi, truflar okkur i að
vera við sjálfir. Allt er þetta
ranghverfan á hlutunum, hin svo
kallaða „byrði frægðarinnar”.
Sem betur fer mun geimförum
fjölga og bráðum verður þetta
starfsgrein meðai annarra eins
og t.d. starf flugmanns eða til-
raunaflugmanns.
;t með
AKRANESl
REYKJAVil
msm.
Lavella á í slandi
rv .
Wí;
m
JaxahJ
VEStMANNAEV
■
i • : - !
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
Á kortinu að ofan sjást eftirfarandi merki yfir fjölda
húsa á stað, klædd með LAVELLA.
I 1-5 hús
V 5-10 ”
X 10 eða fleiri.
LAVELLA plastutanhússklæðning hefur rutt sér braut.
Fyrir nýbyggingar og til endurbyggingar á gömlum húsum.
Kynnist kostum LAVELLA (ræðið við þá sem reynsluna hafa.)
Allar frekari upplýsingar hjá LAVELLA umboðinu á ísiandi.
andri hf.
UMBOÐS & HEILDVERZLUN
Borgartún 29, Pósthólf 1128
Símar: 23955, 26950, Rvlk