Fréttablaðið - 23.10.2004, Blaðsíða 15
LAUGARDAGUR 23. október 2004
Ilúks pylsur á Lækjartorgi
Skúli Einarsson var 53 ár á sjó.
Kom í land fyrir tæpum áratug og
hefur unnið síðustu ár á sameigin-
legri skrifstofu Matsveinafélags
Íslands og Sjómannafélags
Reykjavíkur. Þar sinnir hann
ýmsum störfum í náinni sam-
vinnu við þá Jónas Garðarsson og
Birgi Hólm Björgvinsson hjá Sjó-
mannafélaginu. „Það er mikið fjör
hérna hjá okkur og við skiptumst
á skoðunum um margvísleg mál.“
Af gamansemi kallar Skúli þá
félagana hina heilögu þrenningu.
„Ég var nú ekki alltaf á sjónum
heldur kom stundum í land og
vann aðeins á hótelum. Ég var á
KEA, Laugarvatni og Þrestinum í
Hafnarfirði. Svo átti ég pulsuvagn
á Lækjartorgi um skeið, ansi
hreint góðan. Ég kallaði hann
Ilúks sem er Skúli aftur á bak,
nafnið gerði stormandi lukku.“
Hann segir reksturinn hafa geng-
ið ágætlega, pulsurnar hafi selst
vel, ekki síst á 17. júní. „Svo dróst
þetta saman þegar fólk fór í út-
hverfin.“ Samkeppnin var hörð,
þrír vagnar voru á torginu þegar
mest var en Skúli kvartaði ekki.
Og hann stóð oft vaktina sjálfur
og gætti þess að allt gengi vel
fyrir sig. „Stúlkunum sem unnu
hjá mér fannst ég standa of mikið
yfir þeim og kvörtuðu meira að
segja við konuna mína. En maður
verður að veita fólki aðhald. Þetta
er þannig bisness.“
Veiðum hval og seljum inn
Skúli var á tíu hvalvertíðum og
langar út aftur. „Minn æðsti
draumur er að fara einn túr á
hvalbáti áður en yfir lýkur hjá
mér,“ segir hann og vill helst
byrja að skjóta eins og skot. „Það
var reyndar tóm vitleysa að hætta
hvalveiðunum á sínum tíma. Ég
skil það bara ekki.“
Skúli blæs á sjónarmið þeirra
sem segja ferðaþjónustuna
hrynja verði hvalveiðar hafnar á
ný. „Það var alltaf fjölmennt við
Hvalstöðina og stundum var ekki
hægt að skera hvalinn fyrir rútum
og fólki sem var að forvitnast um
þetta, sjá hvernig þetta var gert.
Þarna átti bara að setja upp bekki
og veitingasölu og selja svo að-
gang. Það væri alltaf fullt þarna.
Fólki þykir gaman að sjá þegar
verið er að verka hvalinn.“
Skúli gefur kost á sér í em-
bætti formanns Matsveinafélags
Íslands. Ekki hefur borist mót-
framboð og ólíklegt að það gerist.
Það má því telja líklegt að hann
hreppi hnossið. „Ég ætla að láta
ferska vinda leika um félagið og
vil efla það. Ég vil fá fleiri félags-
menn, menn sem vinna þessi störf
en búa úti á landi eiga að vera í fé-
laginu. Að því mun ég vinna.“
Kjarasamningar hafa verið lausir
frá áramótum og er unnið að gerð
nýrra en gengur hægt.
Mun meiri hraði er á Skúla sem
byrjar daginn á að fara í laugarn-
ar og hellir sér svo upp á góðan
kaffisopa þegar á skrifstofuna er
komið. Að afloknum fjörlegum
samræðum hinnar heilögu þrenn-
ingar um landsins gagn og nauð-
synjar tekur við daglegt amstur.
„Svo fer ég heim og elda og hugsa.
Ég hugsa um framtíðina og það er
engan bilbug á mér að finna,“
segir Skúli Einarsson matsveinn.
bjorn@frettabladid.is
Ný kirkja Íslensku Kristskirkj-
unnar verður helguð við athöfn
klukkan tvö á morgun. Húsið er að
Fossaleyni 14 í Grafarvogi en
söfnuðurinn festi sér það fyrir
tæpu ári. Þá var það skemma en
nú kirkja. Húsasmiðjan og Egils-
höll standa meðal annars við
götuna.
Íslenska Kristskirkjan var
stofnuð fyrir sjö árum og er lúth-
erskur fríkirkjusöfnuður. Safnað-
arpresturinn, Friðrik Schram,
segir söfnuðinn í litlu frábrugðinn
þjóðkirkjunni nema hvað frjáls-
ræðið sé meira. „Kennilega skilur
okkur ekkert frá þjóðkirkjunni en
við erum ekki bundin ýmsum
helgisiðum hennar sem gera hana
svolítið hægfara.“ Sem dæmi
nefnir Friðrik að lítið sé um hinn
hefðbundna gamla sálmasöng,
frekar sé notast við nútímalega
tónlist í helgihaldinu. Þá predikar
presturinn öllu jafna í jakkafötum
og skrýðist ekki nema við sérstök
hátíðleg tækifæri.
Á þriðja hundrað manns eru í
Íslensku Kristskirkjunni og rúm-
ast söfnuðurinn vel í nýju kirkj-
unni. Fjölgi í framtíðinni verður
byggt við. Friðrik er afar sæll
með nýju húsakynnin og ekki síð-
ur þann fjölda bílastæða sem fylg-
ir. Erfitt var að fá stæði á gamla
staðnum á Bíldshöfðanum þar
sem bílasölurnar í nágrenninu
breiddu heldur freklega úr sér.
- bþs
Íslenska Kristskirkjan í nýtt kirkjuhús:
Næg bílastæði
FRIÐRIK SCHRAM SAFNAÐARPRESTUR
„Kennilega skilur okkur ekkert frá þjóð-
kirkjunni.“
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/P
JE
TU
R
14-15 (24klst) 22.10.2004 19:21 Page 3