Fréttablaðið - 23.10.2004, Qupperneq 24
Stórhuga flugfélag
Fjárfesting Flugleiða í gær í breska flugfélaginu
Easy Jet kom mörgum á óvart enda var um stóran
bita að ræða. Fjárfestingin nam ríflega sex milljörð-
um króna en verðmæti Easy Jet er nálægt sjötíu.
Það er því hæpið að Flugleiðir hyggist gleypa næst
stærsta lággjaldaflugfélag í heimi. Að minnsta kosti
ekki í bráð.
Fyrirboði nýrra tíma
Það má hins vegar greina að Flugleiðir hyggj-
ast láta meira en áður til sín taka í fjárfesting-
um. Í tilkynningu frá félaginu vegna kaupanna
í gær segir að Flugleiðir séu fjárfestingarfé-
lag sem kaupi meðal ann-
ars í flugrekstri.
Þetta gefur til kynna
að Hannes Smára-
son, stjórnarformað-
ur og helsti eigandi, ætli
ekki að láta Flugleiðum nægja flugrekstur
heldur gæti fyrirtækið orðið umsvifamikið á ýms-
um sviðum fjárfestingar. Sérfræðingar á markaði
eru misbjartsýnir á þessa nýju stefnu enda er ein-
faldara fyrir fjárfesta að átta sig á fyrirtækjum sem
einbeita sér að eigin rekstri heldur en þeim sem
taka upp fjárfestingarbankastarfsemi sem hliðar-
grein.
Vandræði í dýrri prentsmiðju
Morgunblaðið er nú prentað í nýrri og glæsilegri
prentsmiðju fyrirtækisins við Rauðavatn. Kostnað-
ur við prentsmiðjuna er sagður vera vel á þriðja
milljarð króna. Það hefur vakið athygli að nú á
fyrstu vikum eftir að prentsmiðjan fór í notkun
hefur verið töluvert um bilanir og seinkanir á
prentun. Vera má að þetta séu byrjun-
arörðugleikar sem fljótlega ráðist
fram úr en líklegt er að eigend-
ur prentsmiðjunnar hafi búist
við hnökralausri frammi-
stöðu miðað við þá
fjárfestingu sem í var
lagt.
MESTA HÆKKUN
ICEX-15 3820
KAUPHÖLL ÍSLANDS [ HLUTABRÉF ]
Fjöldi viðskipta: 399
Velta: 4.835 milljónir
-0,18%
MESTA LÆKKUN
MARKAÐSFRÉTTIR...
Líftæknisjóðurinn birti níu
mánaða uppgjör í gær. Fyrirtækið
tapaði 16,8 milljónum á fyrstu níu
mánuðum ársins. Í fyrra var tapið
á sama tíma 155 milljónir.
Ingimundur Sigurpálsson,
fyrrum forstjóri Eimskips og bæj-
arstjóri í Garðabæ, hefur verið
ráðinn forstjóri Íslandspósts.
Velta fyrirtækisins í fyrra var um
4,4 milljarðar.
Töluverð lækkun var á hluta-
bréfaverði í Bandaríkjunum í gær.
Skömmu fyrir lokun hafði Dow
Jones lækkað um tæpt prósent
en Nasdaq um tæp tvö prósent.
Olíuverð hækkaði í gær. Tunn-
an fór í 55,4 Bandaríkjadali síð-
degis í gær og hefur verðið aldrei
verið hærra.
24 23. október 2004 LAUGARDAGUR
Flugleiðir keyptu 8,4 pró-
sent í næst stærsta lággjalda-
flugfélagi Evrópu í gær.
Hluturinn kostaði 6,2 millj-
arða króna. Stjórnarformað-
urinn segir þetta hluta af
fjárfestingarstefnu félagsins
og segir að um langtímafjár-
festingu sé að ræða.
Flugleiðir hafa keypt 8,4
prósent í breska lággjaldaflugfé-
laginu EasyJet. Easyjet er næst
stærsta lággjaldaflugfélag Evr-
ópu og var velta þess á síðasta ári
tæplega milljarður punda (126
milljarðar króna) eftir því sem
fram kemur í tilkynningu frá
Flugleiðum.
Breskir fjölmiðlar sögðu frá
því í gær að háværar sögusagnir
væru um að íslenskt flugfélag
hefði verið að safna að sér hlutum
í EasyJet. Talsmenn Avion Group
könnuðust ekki við málið og tals-
menn Iceland Express sögðu
sömuleiðis að ekki væri um þá að
ræða. Skömmu eftir lokun mark-
aðar í gær barst svo tilkynning
frá Flugleiðum um að það hefði
staðið fyrir kaupunum.
Flugleiðir hafa nýverið til-
kynnt um sölu á nýju hlutafé
fyrir allt að tíu milljarða króna.
Þá hefur komið fram í máli for-
svarsmanna fyrirtækisins að þeir
hyggi á útrás. EasyJet er metið á
tæplega sjötíu milljarða króna og
er hlutur Flugleiða því um sex
milljarða virði.
Sögusasgnirnar um áhuga ís-
lensks fjárfestis á EasyJet urðu
til þess að hlutabréfaverð tók
kipp upp á við í gær. Hlutabréf í
félaginu hækkuðu um ríflega
sextán prósent í viðskiptum í gær.
Þrátt fyrir það er verð á hluta-
bréfum félagsins enn nálægt
sögulegu lágmarki eftir að hafa
tekið mikla dýfu í vor.
Í tilkynningunni frá Flugleið-
um segir að kaupin séu liður í
fjárfestingarstefnu félagsins sem
er meðal annars að kaupa í fyrir-
tækjum sem starfa í greinum sem
Flugleiðir hafa sérþekkingu á.
„Við höfum því haft augun opin
fyrir fjárfestingakostum tengd-
um flugrekstri, þar sem við telj-
um okkur hafa mesta þekkingu.
Við teljum að rekstur EasyJet sé
grundvallaður á góðri viðskipta-
hugmynd og eigi sér bjarta
framtíð,“ segir Hannes Smárason
stjórnarformaður. Fram kemur
hjá Flugleiðum að litið sé á kaup-
in sem framtíðarfjárfestingu.
Undanfarið hafa borist já-
kvæðar fréttir frá EasyJet meðal
annars um að farþegarfjöldi hafi
aukist um fjórðung í september
frá því í fyrra.
thkjart@frettabladid.is
vidskipti@frettabladid.is
Peningaskápurinn…
Actavis 51,00 - ... Bakkavör 28,70
+0,88 ... Burðarás 14,40 -0,35% ... Atorka 5,55 +1,83% ... HB Grandi
7,40 - ... Íslandsbanki 11,70 +0,86% ... KB banki 500,00 -0,60% ...
Landsbankinn 14,60 -0,34% ... Marel 51,90 -0,19% ... Medcare 6,05 -
0,82% ... Og fjarskipti 3,80 +1,33% ... Opin kerfi 27,00 +0,75 ... Sam-
herji 13,00 - ... Straumur 9,90 +0,51% ... Össur 95,00 +0,53%
Keyptu í EasyJet
SÍF 13,86%
SH 3,75%
Þormóður Rammi 3,33%
Kaldbakur -1,10%
Jarðboranir -0,92%
Hlutabréfasj. Búnaðarb. -0,87%
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU:
nánar á visir.is
Fyrirtæki hugsa
sér til hreyfings
Ástand að skapast hér á landi
sem rekur iðnfyrirtæki til að
flytja starfsemi sína til út-
landa. Gengi krónunnar og
launaþróun ráða þar mestu.
Það er að skapast mikil hætta á
því að íslensk iðnaðar- og hátækni-
fyrirtæki flytji starfsemi sína til
útlanda. Þetta er mat Vilmundar
Jósefssonar, formanns Samtaka
iðnaðarins.
„Ég er bara að benda á hættuna
því þetta getur haft mjög slæmar
afleiðingar,“ segir Vilmundur.
„Dönsk og bresk hátæknifyrirtæki
flytjast í nokkrum mæli til Indlans
þar sem þau fá vel menntað en
ódýrt starfsfólk. Íslensk fyrirtæki
kunna að fara sömu leið.“ Hann
segir hefðbundin iðnfyrirtæki
þegar hafa ákveðið að færa sig um
set. Þar fer Hampiðjan fremst í
flokki, á milli hundrað og tvö-
hundruð störf tapast hér á landi
með flutningi Hampiðjunnar.
Hann segir slík fyrirtæki sækja
til Eystrasaltsríkjanna og í fram-
tíðinni fari þau eflaust til Úkraínu
og Hvíta-Rússlands þar sem vinnu-
aflið sé ódýrt. „Á undanförnum
átta árum hefur kaupmáttur launa
hér hækkað um þrjátíu prósent en
aðeins um átta prósent á OECD-
svæðinu öllu. Við slíkar aðstæður
er eðlilegt að framleiðsla flytjist
þangað sem laun eru lægri.“
Vilmundur segir hátt gengi
krónunnar frá miðju ári 2002 ein-
nig þyngja róðurinn hjá íslenskum
fyrirtækjum. „Það er hætt við að
hátt gengi krónunar ryðji úr landi
ýmiss konar framleiðslu sem ætti
að þrífast við eðlilegar aðstæður.
Sú framleiðsla kemur ekki til baka
þegar gengi íslensku krónunnar
lækkar á ný að loknu þensluskeiði.
Það er því full ástæða til að hafa
áhyggjur af þessari hættu.“
- ghg
ÞOTUR EASY JET EasyJet er með heimahöfn í Luton nálægt Lundúnum og flýgur til yfir
eitt hundrað áfangastaða í Evrópu.
VILMUNDUR JÓSEFSSON Segir dönsk og ensk fyrirtæki flytja starfsemi sína til Indlands
þar sem starfsfólk sé vel menntað og ódýrt. Íslensk félög kunni að gera slíkt hið sama.
Rekstrarbati hjá Nýherja
Forstjórinn sér fram á við-
snúning í upplýsingatækni-
geiranum.
Nýherji skilaði 27 milljón
króna hagnaði á þriðja ársfjórð-
ungi í ár. Þetta er nokkur viðsnún-
ingur frá fyrri hluta ársins þegar
tap var á rekstrinum.
Þórður Sverrisson, forstjóri
Nýherja, segir að félagið hafi
orðið vart við upptakt í upp-
lýsingatæknigeiranum á síðustu
misserum og að fyrirtæki hugi nú
að uppfærslu upplýsingakerfa á
ný. Mikil ládeyða var í slíkum við-
skiptum undanfarin þrjú ár eða
svo.
„Við teljum að það sé að verða
viðsnúningur á upplýsingatækni-
markaði. Það er í samræmi við
það sem er að gerast erlendis og
einnig í samræmi við kannanir
rannsóknarfyrirtæja um hvað sé
að gerast á þessum markaði. Við
teljum að það sé svipuð þróun í
gangi hér á landi,“ segir hann.
Hann segir að Nýherji hafi
vaxið um þrjátíu prósent frá sama
tíma í fyrra og þar af sé stærstur
hluti vaxtarins kominn til vegna
aukningar í kjarnastarfsemi
fyrirtækisins en ekki með upp-
kaupum á öðrum fyrirtækjum.
Meðal verkefni sem Nýherji
fæst nú við er uppsetning á
hátæknisamfélagi fyrir 101
Skuggahverfi. Því til viðbótar
má nefna að Nýherji hefur samið
við mörg stór fyrirtæki um upp-
setningu hugbúnaðar. Má þar
nefna KB banka og Eimskipafé-
lagið.
- þk
Styrkir stoðir Iceland Express
Jóhannes Kristinsson hefur
gert samkomulag um að
eignast meirihluta í Iceland
Express.
Jóhannes Kristinsson mun
eignast meirihluta í Iceland Ex-
press. Samkomulag hefur náðst
við núverandi eigendur um að-
komu hans að félaginu. Nýtt
hlutafé verður gefið út og ný
stjórn skipuð þegar áreiðanleika-
könnun lýkur. Búist er við að það
verði í næstu viku.
Að sögn Ólafs Haukssonar, tals-
manns Iceland Express, mun þetta
styrkja fjárhagsgrundvöll félags-
ins auk þess sem Jóhannes mun
færa félaginu þekkingu og reynslu
af áratuga starfi sínu í flugrekstri
bæði hér á landi og erlendis. „Þetta
er maður sem þekkir flugrekstur
ákaflega vel. Það er mikill styrkur
af honum ekki bara fjárhagslega
heldur einnig reynsla hans og
þekking,“ segir Ólafur.
Jóhannes segir að fyrsta mark-
mið hans sé að styrkja stoðir nú-
verandi rekstrar Iceland Express
frekar en að fjölga áfangastöðum
eða auka tíðni. „Það er númer eitt
að festa stoðir undir það sem er
fyrir hendi og tryggja örugga
ferðatíðni og fjárhagsstöðuna
undir fyrirtækinu,“ segir hann.
Þá segist hann gera þá kröfu að
bætt verði úr þeim vandmálum
sem komið hafa upp varðandi taf-
ir. „Ég er búinn að vera lengi í
þessu og það er krafa frá mér að
það lagist,“ segir hann.
Jóhannes er stjórnarformaður
Fengs sem átti stóran hlut í Flug-
leiðum. Hann segist lengi hafa
haft áhuga á Iceland Express en
ekki verið í aðstöðu til að koma að
rekstirnum fyrr en nú. „Ég hef trú
á þessu og tel að félagið hafi
mikla möguleika,“ segir Jóhannes
Kristinsson.
- þk
ÓLAFUR HAUKSSON Talsmaður Iceland
Express.
24-25 viðskipti 22.10.2004 22:09 Page 2