Fréttablaðið - 23.10.2004, Side 28
Vefsíðan bilatorg.is var opnuð nýlega. Þar er
að finna ýmsar fréttir fyrir áhugamenn um alls
konar farartæki. Einnig er að finna upplýsingar
um tryggingar og fjármögnun og geta gestir
tekið þátt í spjalli á sérstöku spjallborði.
Bíldshöfða 18 • 110 Rvk
Sími 567 6020 • Fax 567 6012
opið mán. - fös. kl. 8.00 - 18.00
www.abvarahlutir.is • ab@abvarahlutir.is
Full búð af aukahlutum á bílinn þinn
Ný verslun Kletthálsi 9
Nú opið á Laugardögum frá 12 - 16
www.ag-car.is/motorsport s: 587 5547
ALLT Á EINUM STAÐ
• HEILSÁRSDEKK
• OLÍS SMURSTÖÐ
• BÓN OG ÞVOTTUR
• HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA
• NAGLADEKK
• RAFGEYMAÞJÓNUSTA
• BREMSUKLOSSAR
• PÚSTÞJÓNUSTA
SBD, SÆTÚNI 4, SÍMI 562 6066
Stálstýrið 2004:
Skemmtilegur
og ljúfur í akstri
Volvo S40 hlaut Stálstýrið 2004
sem nýstofnað Bandalag ís-
lenskra bílablaðamanna veitti í
síðustu viku. Tilnefndir voru
bílar í fjórum flokkum og stóð
valið um bíl ársins milli þeirra
bíla sem valdir voru í hverjum
þessara fjögurra flokka.
Til úrslita í flokki smábíla og
minni millistærðarbíla voru
Citroën C2, Fiat Panda og Kia
Picanto og varð sá síðastnefndi
fyrir valinu. Ástæðan var fyrst
og fremst mjög hagkvæmt verð.
„Fyrir þetta lága verð fær kaup-
andinn bíl með nýtískulegri
hönnun, viðunandi kraft og betri
akstureiginleika og búnað en bú-
ast má við í svo litlum og ódýr-
um bíl,“ segir í áliti dómnefnd-
arinnar.
Í millistærð, stærri fjöl-
skyldubílum og lúxusbílum voru
í úrslitum Toyota Prius,
Volkswagen Golf og Volvo S40
sem varð fyrir valinu.
„Volvo S40 verður fyrir val-
inu vegna vandaðrar og vel
heppnaðar hönnunar og frá-
gangs, jafnt að utan sem innan,“
segir í rökstuðningi dómnefnd-
ar. Bíllinn er sagður skemmti-
legur og ljúfur í akstri og í
fremstu röð hvað snertir öryggi.
Hann er rýmri en fyrirrennari
hans og farangursrými ágætt.
Verðið er einnig hagstætt. Gam-
an er að geta þess að helstu
hönnuðir S40 voru konur.
Í flokki jeppa og jepplinga
komu til álita í úrslitum BMW
X3, Hyundai Tucson og Subaru
Legacy Outback. Fyrir valinu
varð Hyundai Tucson. Helstu
rök voru hagstætt verð, miðað
við búnað, getu, hönnun og frá-
gang. „Í ágætum aksturseigin-
leikum er fetaður millivegur,
sem ætti að geta hentað flest-
um,“ segir meðal annars í áliti
dómnefndarinnar. Tucson fellur
að stærð inn í miðjan jepplinga-
hópinn, með ágætt rými bæði í
framsætum og aftursætum.
Í flokki sportbíla stóð valið
milli Mazda RX8, Mitsubishi
Lancer Evo VIII og Nissan 350Z.
Mazda RX8 varð fyrir valinu en
helstu rökin fyrir því voru eins
og segir í áliti dómnefndar:
„Þessi bíll kemur eins og fersk-
ur vindsveipur inn í flokk sport-
bíla í heiminum þar sem á frum-
legan og snjallan hátt er sköpuð
alveg ný tegund sportbíls.“ Bíll-
inn er sagður luma á góðu rými
þrátt fyrir sportlegt útlit. „Þetta
er bíll þar sem fjölskyldufólk
með sportbíladellu getur rétt-
lætt kaupin á sportbíl sem tekur
tillit til þarfa fjölskyldunnar,“
segir dómnefnd. ■
Mikil bílaeign Íslendinga:
615 bílar á
hverja 1.000
íbúa
Á fundi Umhverfis- og heilbrigð-
isnefndar Reykjavíkur 14. októ-
ber síðastliðinn var á ný lögð fram
skýrsla um Umhverfisvísa
Reykjavíkur. Í nýrri úttekt um
losun gróðurhúsalofttegunda frá
vegasamgöngum í Reykjavík
kemur fram að á milli áranna 1999
og 2002 hefur orðið aukning um
10%. Fólksbílaeign hefur einnig
aukist mikið eða um 51% milli ár-
anna 1995 og 2003 og er nú svo
komið að árið 2003 voru 615 bílar
á hverja 1.000 íbúa borgarinnar. Í
skýrslunni kemur einnig fram að
Reykvíkingar hafa undanfarin ár
verið að kaupa kraftmeiri bíla og
að meðaleyðsla aukist. ■
Volvo S40 var valinn bíll ársins af íslenskum bílablaðamönnum.
[ TRYLLITÆKI VIKUNNAR ]
Honda CRF 450
Tryllitæki vikunnar er Honda CRF 450
mótorkrosshjól, árgerð 2004. Hjólið
er upphaflega 101,5 kíló og 56 hest-
öfl. Í það var sett nýtt FMF títaníum
pústkerfi sem minnkar þyngdina um
1 kíló og gefur meiri kraft. Einnig var
skipt um tölvuheilann sem stjórnar
mótornum. Þessar breytingar bæta 4
hestöflum við þannig að hjólið er nú
60 hestöfl. Fjöðruninni var breytt og
RaceTech ventlar settir bæði að fram-
an og aftan. Bremsudiskurinn að
framan er stærri en sá upphaflegi svo
nú hefur hjólið meiri bremsukraft.
Settur var hnappur á stýrið sem gerir
það að verkum að hægt er að velja
tvær mismunandi kveikjukúrvur eftir
því hvort óskað er eftir fullum krafti
eða minni. Í dekkjunum eru Michelin
svampslöngur en ekkert loft sem ger-
ir það að verkum að ekki getur
sprungið á hjólinu. Eigandi hjólsins er
Ragnar Ingi Stefánsson sem vann ís-
landsmótið og bikarkeppnina í Mót-
orkrossi á þessu hjóli auk þess sem
hjólið var í Honda-liðinu sem vann
liðakeppnina. Hjólið er metið á
750.000 krónur.
Umferðarþungi eykst stöðugt í Reykjavík.
28-29 Allt bílar ofl 22.10.2004 15:26 Page 2