Fréttablaðið - 23.10.2004, Page 29
3LAUGARDAGUR 23. október 2004
Verð kr. 39,900.-
Ný námskeið vikulega, staðsetning Mjódd
Sími: 894-2737
www.ovs.is
Vinnuvélanámskeið
Um helgina verður Evrópufrum-
sýning á nýrri línu Chevrolet-bíla
hjá Bílabúð Benna. General
Motors, stærsti bílaframleiðandi í
heimi, hefur ákveðið að bjóða
þekktasta merki sitt, Chevrolet,
um allan heim. Chevrolet hefur
keypt Daewoo-verksmiðjurnar í
Kóreu og mun frá áramótum
hætta að framleiða bíla undir
merki Daewoo. Í tilefni af þessum
breytingum hefur verið hönnuð
ný lína, Chevrolet Lacetti, sem
keppa á við japanska og evrópska
bíla. Bílarnir eru ríkulega búnir
og á góðu verði. Bílabúð Benna
kemur til með að bjóða þessa nýju
línu á Ísland. Lacetti CDX station
er til dæmis gríðarlega vel búinn
og rúmgóður fjölskyldubíll á afar
hagstæðu verði, eða 1.789 þúsund
kr. með 1,8 lítra vél. Allur frá-
gangur er eins og best gerist í
mun dýrari bílum.
Nýr lúxusjeppi er væntanlegur
frá Chevrolet árið 2006, en hann
var sýndur og fékk mikla athygli
á alþjóðlegu bílasýningunni í Par-
ís í september. Þar er á ferðinni
sjö manna fullkominn jeppi sem
fæst bæði með bensínvél og
óvenjuöflugri dísilvél.
Á næsta ári verður Bílabúð
Benna 30 ára. Á þeim tímamótum
flytur fyrirtækið í nýtt, stórt og
glæsilegt húsnæði að Tangar-
höfða 8 - 12, gegnt Húsgagnahöll-
inni. Þjónusta verður öll aðgengi-
legri og þægilegri fyrir viðskipta-
vini, sýningaraðstaða batnar og
plássið eykst. Í nýja húsnæðinu
verður öll sala á nýjum bílum,
Porsche, Chevrolet og SangYong,
ásamt hluta annarar þjónustu
fyrirtækisins.
Opið verður frá kl. 12 til 16 í
dag og á morgun í framtíðarhús-
næðinu að Tangarhöfða 8. Þar
verða, auk nýju línunnar frá
Chevrolet, sýndir bæði keppnis-
bílar og fornbílar frá Chevrolet. Á
staðnum verður einnig litaleikur
fyrir börn og ýmislegt fleira til
skemmtunar. ■
Bílabúð Benna:
Chevrolet-hátíð um helgina
Jón Kr. Stefánsson sölustjóri og Benedikt Eyjólfsson framkvæmdastjóri í
Bílabúð Benna ásamt nýja Chevrolet Lacetti sem frumsýndur er um
helgina hér á landi og elsta Chevrolet á götunni, árgerð 1926.
28-29 Allt bílar ofl 22.10.2004 15:26 Page 3