Tíminn - 25.11.1973, Page 1

Tíminn - 25.11.1973, Page 1
fóðurvörur ÞEKKTAR UM LAND ALLT WQIEL LOFTIfli0iW SUNDLAUGIN ereift af mörgu, sem „Hótel Loftleiðir" hefur til slns ágætis og umfram önnur hótel hérlendis. En það býður llka afnot af gufubaðstofu auk snyrti-, hárgreiðslu- og rakarastofu. ViSIÐ VINUM A HOTEt LOFTLEIÐIR. ísinn A a Rauða- vatni heillar MAHGUR skautinn hefur rist svellið á Heykjavikur- tjörn síðan veruleg byggð myndaðist i kvosinni milli hennar og sjávar, og enginn fær gizkað á, hversu oft hef- ur vcrið haldizt i hendur, bæði i gamni og alvöru, á fljúgandi ferð eftir glærum isnum. En nú er Reykja- víkurborg farin að teygja anga sina langt upp i landið, og Rauðavatn,sem áður var viðs fjarri byggðu bóli,er nú miklu nær heilum borgar- hverjum enTjörnin. Það hefur lika oft verið margt um manninn á Rauðavatni undanfarna frostdaga, þegar norðan- vindurinn hefur ekki verið allt of napur og hryssings- legur. Og eins og fyrri daginn hafa ekki hvað sizt börnin flykkzt á skautum út á isinn, fegin að fá að leika þar lausum hala eftir innisetu i skólastofunum. Það sakar ekki þótt talsvert frost sé, þvi að þá er ekki annað en dúða sig vel. Timamynd: Gunnar. Nýjar tegundir sjó- og vatna dýra I N ATTÚ RUFRÆÐINGNUM, sem er nýkominn úl,segir i tveim greinum eftir Arnþór Garðarss. dýrafræðing og tvo Norðmenn, sem verið liafa við rannsóknir við Mývatn, frá nýjuin tegundum sjávar- og vatnadýra, er hér hafa fundisl hin siðari ár. Grein Arnþórs er um bursta- orma, sem eru smávaxin dýr, er litill gaumur hefur verið gefinn. Greinir hann frá sjö nýjum teg- undum burstaorma, er hann hef- ur fundið, þar af 5, er ekki hefur verið getið við tsland áður. Ein tegundin hefur áður fundizt i sjó djúpt út af Snæfellsnesi, og ein hefur verið talin islenzk án hand- bærra gagna. Tvær þessara tegunda eru al- gengar á fjörum suðvestan lands, og mikið er af einni innst i Eyjafirði. Flestar tegundanna hafa fundizt noröar en tsland er, og tvær virðast vera hér nálægt suðurmörkum sinum. Aðeins ein er suðlæg, miðað við tsland, fund- in undir steini i fjöru nálægt Hlið á Alftanesi, og er ekki að fortaka, að hún sé tillölulega nýkomin hingað. Norðmennirnir greina aftur á móti frá vatnssvampi, mosadýri og blóðsugu, er lifir á öndum og vaðfuglum, fundnum i eða við Mývatn. Sé kallmerkið TF3LH Sunnudagsblað fylgir ekki þó er yngsti radíóamatör landsins við stöð sína norður í Þingeyjarsýslu Ekki er þó öll sagan sögð. Lárus smiðaði sjálfur loftskeytastöð sina, og má af þvi ráða, að hann lætur sér ekki allt fyrir brjósti brenna i þessu efni. Tæki hans eru einföld að gerð, tveir n órar i við- tæki og aðrir tveir i sendi. En nú hefur Lárus hug á að smíða sér fullkomnara viðtæki og sendi fyr- ir 21 mhz-sviðið (15m). Á þeirri tiðni er auðvelt að ná um alla Evrópu, og jafnvel miklu lengra, þegar skilyrði eru góð, með þvi afli, sem handhafar nýliðaleyfis mega nota. Lárus lauk prófi radióamatöra siöast liðið vor, og i sumar starf- rækti hann stöð sina, TF3LH á 3,5 mhz-amatörsviöinu (80m) á Laugabóli i Reykjadal, ör- skammt frá Laugaskóia. En á Laugabóli var hann i sumar- vinnu. Hann náði að jafnaði á- gætu sambandi við aðra radió- amatöra i Reykjavik, á Akureyri og viöar, og einnig hefur honum tekizt að fá svar frá Danmörku. Þaö er póst- og simamála- stjórnin, sem veitir radióamatör- um sendileyfi að afloknum til- skildum prófum. Umsækjandi, sem öðlast vill nýliðaleyfi, verður að vera fjórtán ára eða eldri, geta sent og tekið á móti þrjátiu og fimm stöfum á minútu á morsi og kunna grundvallaratriði i raf- magns- og fjarskiptafræðum. Vilji nú einhver af ungu kyn- slóðinni, piltur eða stúlka, feta i fótspor Lárusar Harðarsonar, er eðlilegt, að nánari vitneskju sé þörf. En þá er ráöið að leita til samtaka þeirra, sem kunna galdra fjarskiptatækninnar upp á sina tiu fingur, og utanáskriftin er: tslenzkir radióamatörar, I.R.A., box 1058, Reykjavik. Lárus Haröarson við heimasmiöaöa loftskeytastöö sina, TF3LH. HANN er ungur að árum, enda mun hann vera yngsti radíóama- törinn, sem sendileyfi hefur á ts- lsandi. Hanner fimmtán ára gam- all, heitir Lárus HarOarson og býr sig nú i vetur undir aö taka lands- próf i héraðsskólanum á Laugum I Reykjadal. Viðtal við Björgvin Sigurgeir Haraldsson— opna O Byggt og búið - 6. þáttur bls. 2 O Frostmorgunn í laugunum — bls. 10

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.