Tíminn - 25.11.1973, Blaðsíða 5

Tíminn - 25.11.1973, Blaðsíða 5
Sumiudagur 25. uóvember l!)7:i TÍMINN 5 Lyndon B. Johnson afhjúpaður Nei, það er ekki verið að fletta ofan af einhverjum misgjörðum Johnsons forseta, þó að ef til vill megi lesa það út úr fyrirsögn- inni. Hann slapp við Watergate- hneyksli í sinni forsetatið. þótt fundið væri að ýmsu hjá honum. Hér sjáum við ekkju hans Lady Bird Johnson vera að afhjúpa brjóstmynd af eiginmanni sinum sáluga. Þessi mynd stendur i geimferðastöð i Houston i Texas, sem hefur verið skfrð eftir forsetanum fyrrverandi og heitir Lyndon B. Johnsons — geimferðastöðin. <C Síðasta kvikmynd BB? Brigitte Bardot segist vera fast- ákveðin að hætta að leika i kvik- myndum nú þegar hún hefur lokið við a ð leika i myndinni „Colinot". —Þetta verður siðasta kvikmyndin min, segir hún, hvort sem henni snýst nú hugur eða ekki. Hún varð nýlega 39 ára og aldurinn setur sin mörk á hana eins og aðra. Þegar átti að senda út aug- lýsingamyndir fyrir þessa siðustu kvikmynd, þá fór Brigitte yfir þær myndir, sem átti að birta og hún lét eyði- leggja l'leiri en eina, vegna þess að þar sáust hrukkur eða eilt- hvað, sem henni likaði ekki. Kngu að siður er hún hin fegursta kona og glæsileiki hennar og yndisþokki helur sið- ur en svo horfið, þó að árin séu að verða 40. Karlmenn elta hana stöðugt á röndum, og heyr/.t hefur, að nú sé BB að hugsa til giftingar einu sinni enn. Sá hamingjusami er 24 ára náms- maður, sem hefur siðustu mán- uði verið dyggur förunautur hennar. ☆ 1 septcmber i hausl var haldin mikil uppskeruhátið i i’óllandi. Var þar mikiðum dýrðir og allir tóku þált i hátiðinni, jalnl ungir sem gamlir. Hátiðarsvæðið var skreytt með blómum og plönl- um. Þarna sjáum við aðal- skreytinguna, sem gerð er úr margs konar jarðarávöxtum og grænmeti. Vín í sundlauginni! Krá Haris er okkur hermt, að i Krakklandi hali verið geysileg vinuppskera siðastliðið sumar, og sumir vinbamdur lent i vand- r.-eðutn með geymslur undir vin- Iramleiðslu sina. I Mathas, rétt fyrir utan l’aris hel'ur bæjar- stjórnin ákveðið, að leigja út þrjár sundlaugar til vinyrkju- bænda i hcraðinu, þegar kom á daginn að uppskeran varð svo mikil, að allar geymslur voru yfirfullar og til stórvandræða horfði. Nú á að láta vatnið renna úr sundlaugunum, siðan á lik- lega að hreinsa þær eillhvað og fýlla þær svo af vini. Skyldi ekki einhvern langa til að fara i laugarnar i Mathas!? « * Beykirinn hefur nóg að gera Svo lengi sem menn rækta vinber á vinekrum og drekka vinið, sem úr þeim er gert, verður nóg að gera fyrir beykja I Þyzkalandi, að þvi er sagt er. t þúsundir ára hafa beykjar haft þar næga atvinnu við að hand- smiða vinámur úr eik, en til þess að fá fyrsta flokks vin þurfa vinámurnar lika að vera fyrsta-flokks, þvi að i þeim verður að geyma vinið, svo það verði með réttu bragði. Þvi miður verða beykjar færri með hverjum deginum sem liður. Hér er um handiðnað að ræða, sem vélavinna getur ekki tekið við, ef allt á að vera eins og til er ætlazt. Óttast menn nú i Þýzkalandi, að þar verði brátt enginn fáanlegur, sem kann að handsmiða 600 litra ámur, svipaðar þeim, sem maðurinn er að bora á gat hér á myndinni. Uppskeruhótíð ^ í Póllandi t /

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.