Tíminn - 25.11.1973, Síða 9
Sunnudagur 25. nóvember l!)7:i
TÍMINN
9
Hvers vegna
bindindismaður?
Er-a svo gott
sem gott kveða
öl alda sonum?
Fyrir fáum dögum hringdi til
min maður. Hann bað mig að
skrifa nokkrar linur i Timann á
bindindisdaginn. Ég játti þvi. —
Eftir það fór ég að hugsa um
væntanlegan greinarstúf og þá
vandaðist málið.
Eitt hið fyrsta, sem mér kom þá
i hug var þetta: Engar tvær
mánneskjur (hvað þá fleiri) eru
eins. Svo miklir einstaklingar er-
um við, að engir tveir menn
kváðu hafa eins fingraför. Fyrst
nú ytri gerðin er svo sundurleit,
hvað þá um innri manninn? Og
þar sem við erum öll si svonz,
hvert með sinu markinu brennd,
hvað hef ég þá að segja, sem þig
varðar, sem e.t.v. lest þessar
linur?
Sterkasti bindindisboðskapur,
sem mig rekur minni til að hafa
heyrt,barst mér að eyrum alveg
nýlega. Flytjendur höfðu ratað i
erfiðleika vegna áfengisneyzlu,
en siðar tekið sig á i harðri bar-
áttu til sjálfsbjargar. betta fólk
flutti ekki prédikun en sagði frá
eigin reynslu blátt áfram. i þvi
var fólginn styrkleiki boðunar-
innar. — Og þegar öllu er á botn-
inn hvolft: Hvað stoðar ráðgjöf,
prédikun, boð og bönn um svo
persónulega hluti sem neyzlu
drykkjarfanga ýmiss konar við
einstaklingsbundna og oft svolitið
hrokafulla mannskepnuna, sem
ekki er þá upp á það komin að láta
segja sér fyrir verkum á þvi
sviði?
En við getum þó alltaf leyft
okkur aö segja hvert sina sögu.
Svo langt gengur ekki sjálfsbyrg-
ingsháttur okkar manna, að við
getum ekki, ef svo ber undir, lært
nokkuð af annarra reynslu. Ég
ætla að láta það nægja núna að
segja brot af minni — og freista
að greina frá þvi, hvers vegna ég
hef verið bindindismaður, eins og
það er kallað, fram á þennan dag.
Fyrst er þá þess að geta, að ég
man ekki til að ég hafi fundið hjá
mér löngun til þátttöku i vin-
drykkju. Áfengi var ekki haft um
hönd á heimili foreldra minna og
margir af minum jafnöldrum
neyttu ekki áfengis i uppvexti. Á
dansleikjum og i öðrum gleðskap
á mannamótum hef ég jafnan
skemmt mér svo konunglega, að
ekki hefur verið á það bætandi!
Ýmsir segja það næsta erfitt að
vera þar „allsgáður”, sem vin-
drykkja fer fram. Ekkert hef ég
orðið var við þetta, og hef þó tíð-
um setið slik samkvæmi. Nema
eftir þessi tæp 60 ár, sem ég hef að
baki, get ég ekki með nokkru móti
munað eftir atvikum i þá veru að
bindindi gagnvart áfengum
drykkjum hafi valdið mér óþæg-
indum, ellegar að mér hafi þótt á-
horfsmál aö halda uppteknum
hætti.
E.t.v. mættu þessir punktar,
sem hvað mig snertir hafa orðið
afgerandi, vera nokkurt ihug-
unarefni ungu fólki, sem annað
hvort er ekki byrjað eða þá
skammt á veg koinið að móta af-
stöðu sina á þessu sviði.
Rétt er að taka fram, að
bindindissemi á bernskuheimili
minu fylgdi siðan sterkur bind-
indisáróður hjá Bjarna á Laugar-
vatni, þegar ég var þar i skóla.
Fyrir honum var ég mjög opinn
og það þvi fremur sem segja
mátti.að maður elskaði og virti
Bjarna skólastjóra og marga
samstarfsmenn hans við skólann.
A barnsaldri var ég vist alltaf
fremur kjarklítill og ekkert sér-
staklega gefinn fyrir að tefla á
tvær hættur. — Þetta hefir þótt
loða við mig lengst af. t samræmi
við það hefir mér jafnan vaxið i
augum sú áhætta, sem ætið er
samfara áfengisneyzlu, þvi eng-
inn veit með vissu fyrirfram,
hvort honum auðnast að gæta
,,hófs” i gegnum árin.
Loks er svo þess að geta, að ég
hef töluvert miklað fyrir mér þá
ábyrgð, sem þvi sé samfara að
neyta vins ,,i hófi" við ýmis tæki-
færi og gefa með þvi fordæmi og
óbeina hvatningu til hvers manns
um að vera með. Mér finnst ég
ekki mundi vilja taka þátt i slikri
sýnikennslu i vindrykkju, vitandi
það upp á mina tiu fingur, að fyrir
nokkrum hundraðshluta þeirra
nýliða, sem „setjast að sumbli"
ár hvert, á það að liggja að lenda i
erfiðleikum með áfengisneyzl-
una. En játa ber það, að með til-
liti til þess, sem áður greinir, þá
er auðvitað útlátalitið fyrir mig
að segja svo.
Nú hef ég gert tilraun til að
svara þvi með fáum orðum, hvers
vegna ég er bindindismaður. Hér
skal þvi einu við bæta, að ég dreg
mjög i efa,að ég hefði sjálfur farið
betur út úr lifinu, þó ég hefði t.d.
hesthúsað nokkra hektólit'ra
áfengis á umliðnum árum. Ámóta
Vilhjálmur IIjálinarsson.
ósennilegt þykir mér það, að ég
hefði orðið samferðafólki minu
hætishóti meir að skapi með þeim
hætti. Þess vegna vil ég að lokum
biðja góðfúsan lesara að velta
fyrir sér þeirri spaks manns
spurningu fornri, sem ég tilfærði i
byrjun: Er-a svo gott / sein gott
kveða / öl alda sonuin?
Vilhjálmur Hjálmarsson
VYMURA
veggfóður I
VYNIL í
eldhús
böð og
herbergi
VIKKM v
Veggfóður- og málningadeild
Armúla 24 — Reykjavík
Símar 8-54-66 og 8-54-71
Sm mm
I 1 m
Ef þú ert að leita þér að útvarpsmagnara og kannar markaðinn,
munnt þú komast að þeirri niðurstöðu að Model 210 er sá
útvarpsmagnari sem þú varst að leita að. Því með Model 210
hefur Sansui tekist að sameina það sem efst er í huga þeirra sem
ætla sér að kaupa útvarpsmagnara. Ekki bara í Model 21 0 eru hin
rómuðu Sansui tóngæði, heldur er Model 210 ódýrasti útvarps-
magnarinn í sínum flokki.
Tökum upp nýja sendingu af Sansui í dag.
Laugavegi 89.
Slmi: 13008