Tíminn - 25.11.1973, Side 14
14
TÍMINN
Sunnudagur 25. nóvember 197:!.
Zeppelin
Mynd þessi fjallar um Zeppelin
loftskip lijóöverja I fyrri hcim-
styrjöldinni. Ungur liöþjiilfi
(Michael York, er lék I myndinni
Cabaret) er fenginn til aö gerast
„sjálfboöaliöi” og flýja til t>ýska-
lands til aö reyna aö komast aö
hvaö l>jóöverjar ætlist fyrir...
Myndin er byggö á sögu Owen
Crump, leikstjóri er Ktiennc
Perier, tónlist er eftir Koy Budd,
framleiösluár 1971. Samsetning á
mynd oft léleg og leikur sæmi-
legur.
GAMLA BIO í_.
'11-V.T.l
The boy friend mtwm
Ung stúlka (Twiggy) er aðstoðarsviðs-
stjóri i leikhúsi, sem er ekki af betra
taginu. Aðalleikkonan slasast rétt fyr-
ir sýningu, og Twiggy er látin i hlut-
verk hennar. Frægur Hollywood-leik-
stjóri kemur i leikhúsið, og þar með ná
leikhússgestir liklega tölunni 30. Leik
endur leika nú eingöngu fyrir leik-
stjórann fræga, þvi allir eiga þann
draum að komast til Hollywood, og
gengur nú á ýmsu... Ken Kussell leik-
stýrir þessum söngleik eftir Sandy
Wilson. bótt Twiggy umturnaði tizku-
heiminum á sinum tima, þá umturnar
hún ekki Hollywood.
hufnarbíó
Figuresin
o o
a landscape
Itobert Show og Malcolm McDoweli
leika i mynd þessari tvær ólikar per-
sónur, og er leikur þeirra mjög góður.
Þeireru á sffelldum flótta undan þyril-
vængju og hermönnum. Langdregin
mynd með táknrænni spennu flótta-
mannsins. Leikstjóri er Joseph Losey.
Bófaílokkurinn __________
Æðisgengasta slagsmálamynd, sem
hér hefur sézt, og kemur blóðinu á
hreyfingu i skammdegiskuldanum,
segir i auglýsingum i dagblöðunum.
Mynd þessi er með þeim lélegri, sem
maður hefur séð. Enska talið, sem sett
er inn á myndina, er einstaka sinnum
óskiljanlegt. Frámunalélegur leikur,
filman rispuð, hetjudáðir og lifsseigla i
yfirnáttúrlegu hámarki.
Joe Kidd ..
Clint Eastwood, „spaghettisérfræð-
ingurinn” mikli, kemst ágætlega frá
þessari mynd. Alltaf lofar hann fyrir-
fram nokkuð ákveðinni spennu og
skemmtun. Meðleikendur eru m.a.
Robert Duvall, Don Straud og John
Saxon. Leikstjórinn, John Sturges,
skilar lélegu handriti ágætlega, þó er
mynd þessi ekki góð i samanburði við
fyrri myndir hans, t.d. FLÓTTINN
MIKLI, SJÖ HETJUR og DJÖFLA-
VEIRAN. Tónlist Lao Schifrini.
1
v . >
vr
The Hellstrom
chronicíe
o o o
á þessum málum. Ekki er okkur oft
boðið upp á heimildakvikmyndir hér i
kvikmyndahúsum, hvaö þá jafnstór-
kostlega mynd sem þessa. „Fallvalt-
leiki mannkynsins stendur illa að vígi
gagnvart skordýrum,” segir Hell-
ström, visindamaðurinn er ritaði
skýrslu þessa. Siðan fær maður
áhrifamiklar staðreyndir, hverja á
fætur annarri, í tæpa tvo tima. Sem
dæmi: ævi einnar tegundar flugu er
fjórtán timar, og fjórtánda hvern dag
fjölgarkyni þeirra. Ýmis skordýr geta
stokkið fimmtiu falda lengd sina (það
væri svipað og að langstökkvarar
stykkju um 90 metra i langstökki), étið
100 falda þyngd sina á dag (svipað og
að maðurinn þyrfti að innbyrða um 250
nautgripi á dag), dregið 100 falda
þyngd sina. Ei«u atriði»er tekfð af vis-
indamanninum, þar sem hann stendur
á svölum og horfir á mannfjöldann á
götunni. Siðan segir Hellström: „1
hvernig þjóðfélagi lifum við, þar sem
fólkið skiptir sér i hópa, þar sem hver
höndin er uppi á móti annarri?” Siðan
eru sýndir lifnaðarhættir býflugna.
Hellström hefur fengið þaö framan i
sig, að hann sé vitfirringur, sturlaður,
og hann hefur misst af kennarastöðu
og vfsindastyrkjum. Myndatakan tók
um tvö ár, og oft var hún miklum
erfiðleikum bundin. Eftir að hafa séð
þessa mynd, myndi maður jafnvel
taka hliðarspor til að stiga ofan á .
Þetta er ein af þeim myndum, sem
fólk ætti ekki að missa af.
TÓNABfÓ
The secret of Santa
Vittoria
Anthony Quinn er alltaf svipaður f sin-
um hlutverkum, og skilar þeim yfir-
leitt mjög vel. 1 þessari er hann stór-
kostlegur og leikur drykkjumann mik-
inn, sem fyrir tilviljun er valinn borg-
arstjóri i Santa Vittoria. Eiginkona
hans (Anna Magnini) hefur fengið sig
fullsadda á framkomu hans og hegðun
o o o
ótrúlega falleg mynd, óvenjuleg, list-
ræn og ægileg. Kvikmyndatakan er
hreint frábær, eða öllu heldur krafta
verk. Hún gjörbreytir skoðunum fólks
og finnst litið til kjörsins koma. Eitt
aðalvandamál Bombolinis borgar-
stjóra er að fela um eina milljón af
vinflöskum fyrir Þjóðverjum, sem eru
I þann veginn að hernema borgina...
Mynd þessari, sem er eftir skáldsögu
Robert Crichton, leikstýrir meistarinn
Stanley Kramer, og er valinn leikari i
hverju hlutverki. Afburðamynd.
Faye Dunaway
Alltaf mun Faye Dunaway verða
tengd við Bonnie Parker i myndinni
BONNIE AND CLYDE. Og hún heldur
enn áfram að koma á óvart með þvi að
sýna á sér nýjar hliðar á tjaldinu, eins
og hún hefur gert i mvndunum THE
THOMAS CRO-WN AFFAIR og
LITTLE BIG MAN. 1 siðustu mvnd
hennar, OKLAHOMA CRUDE, leikur
hún „framlinukonu”, sem likt og
Bonnie er oftast með byssu i hönd.
Meðleikendur hennar i mynd þessari
eru þrjár stórstjörnur, þeir George C.
Scott, Jack Palance og John Mills.
Helzta sportið
Eitt aðalsportið hjá kvikmyndaleikur-
um’ er að leikstýra myndum og leika
aðalhlutverkið einnig. Til gamans og
fróðleiks ætla ég að nefna hér nokkra
leikara og myndir þeirra:
Cliff Robertson með myndina J W
COOP. Meðleikendur eru m.a. Geral-
dine Page, John Craw'ford, og Bruce
Kirby. Mynd þessi hefur fengið mjög
góða dóma erlendis.
Charles Chaplin með myndina
LIMELIGHT, þar sem hann er leik-
stjóri, framleiðandi, leiksviðsstjóri og
leikur eitt aðalhlutverkið. Meðleikend-
ur eru m.a. Claire Bloom, Sydney
Chaplin og Buster Keaton.
Clint Eastwood með myndirnar A
PALY MISTY FOR ME og HIGH
PLAINS DRIFTER.
Paul Newman með myndirnar
RACHEL, RACHEL, SOMETIMES A
GREAT MOTION og THE EFFECT
OF GAMMON RAYS ON THE MAN
IN MOON MARIGOLDS.
Reynolds og Miles
Beðið er með eftirvæntingu eftir
myndinni THE MAN WHO LOVED
CAT DANCING, með þeim Burt
Reynoldsog Söru Miles. Fréttir herma,
að hér sé á ferðinni mjög góð „WEST-
ERN”-mynd. Umboðsmaður Söru lézt
(eins og getið hefur verið i fréttum),
meðan verið var að framleiða mynd-
ina, og þótti dauða hans hafa borið að
meö einkennilegum hætti. Þetta varð
til þess, að staðurinn, þar sem myndin
var tekin (Gila Bena, Arizona), var
um tima i heimspressunni.
| ■ ■ ■
Cliff Richard
Nýlega lét Cliff Richard þau orð falla
við fréttamenn, að hann langaði til að
leika svipuð hlutverk og stjarnan
Errol Flynn. t fyrstu mvndinni. sem
hann hefur leikið i lengi, TAKE ME
HIGH, sverfur ekki til stáls. 1 mynd-
inni leikur hann ungan fjármálamann.
Framleiðandinn er Kenneth Harper,
sem framleiddi m.a. fyrri myndir
Cliffs, THE YOUNG ONES, SOMMER
HOLIDAY og WONDERFUL LIFE. 1
myndinni TAK ME HIGH, sem David
Askey leikstýrir, leika einnig þeir
Hugh Griffith, George Cole og Richard
Wattis. Aðdáendur Cliffs bíða með
eftirvæntingu eftir myndinni.
Bond-tónlist
Það kveður við nýjan tón i tónlistinni i
nýju James Bond-myndinni LIVE
AND LET DIE. Hingað til hefur John
Barry séð um að semja tónlistina fyrir
Bond myndirnar, en i þessari nýju
mynd sér George Martin um tónlistar-
hliðina, með þessari undantekningu
þó, að bitillinn Poul McCartney hefur
samið titillagið.
EINKUNNAGJÖF
OIO
o o o
Lee Marvin vann hug og hjörtu áhorf-
enda i myndinni PAINT YOUR
WAGON, þar sem hann söng lagið „I
WAS BORN UNDER A WONDERING
STAR”. Þó má ekki gleyma myndun-
um CAT BALLOU og THE DIRTY
DOZEN. I nýrri mynd, EMPEROR OF
THE NORTH, leikur hann járnbraut-
arflæking (a railroad hobo) og lét hann
þau orð falla, er hann tók að sér hlut-
"verk þetta, að lif flækinga hefði alltaf
vakið áhuga hans. Það var þó aöallega
vegna þess að góð peningaupphæð var
i boði, að hann tók að sér þetta hlut-
verk, þarsem hann leikur flæking sem
ferðast um á kreppuárunum. Meðleik-
ari hans er enginn annar en Ernest
Borgnine, sem leikur harðsviraðan
brautarstjóra, og er hægt að imynda
sér andrúmsloftið, þegar þessir
góðkunnu kappar berjast upp á lif og
dauða á þaki þjótandi járnbrautarlest-
ar.
Framleiðandi myndarinnar er
Ernest Borgnine í myndinni
„Emporer of the north”
Kenneth Hyman, og var myndin fram-
leidd fyrir 20th CENTURY FOX.
Sýningartimi myndarinnar er tveir
timar. Leikstjóri er Robert Aldrich, og
hefur hann áður leikstýrt þeim köpp-
um. Það var i myndinni THE
DIRTY DOZEN(Tólf ruddar, sem
sýnd var i Gamla biói).
t næstu mynd Lee Marvins leikur
hann bankaræningjann HARRY
SPIKES, og er myndin tekin á Spáni,
um 18 milur frá Madrid, á stað sem
heitir Alcala de Henares. Marvin lýsir
Harry Spikes sem tvifara djöfulsins. t
stuttu máli er efni myndarinnar það,
að Spikes kennir þrem ungum mönn-
um, er hafa bjargað lifi hans, hvernig
standa eigi að bankaránum, og verða
þeir siðan undirtyllur hans. Ungu
mennirnir eru leiknir af þeim Gary
Grimes (lék i myndinni Sumarið ”42),
Ron Howard og Charlie Martin Smith.
Leikstjóri er hinn góðkunni Richard
Fleischer. sem hefur leikstýrt mörg-
um góðum myndum.
Lee Marvin var spurður að þvi r.ý-
lega, hvort hann hefði hug á að leik-
stýra mynd, og hann svaraði þvi til, að
hann hefði engan áhuga á sliku i fram-
tiðinni. Hann vildi heldur starfa með
góðum leikstjóra. Hann sagði einnig:
„Að vera leikari er að vera bundinn i
báða skó. Auðvitað finnst mé-mikið til
peninga koma, en ég kýs fremur
frjálsræðið”.