Tíminn - 25.11.1973, Side 28

Tíminn - 25.11.1973, Side 28
28 TÍMINN Sunnudagur 25. nóvember 1973 Hér sést Karl Gústaf I fanginu á afa sinum. KARL GÚSTAF XVI, HINN NÝI KON- UNGUR SVÍÞJÓÐAR FYRIR VETURINN FRÁ GRÁFELDI HE Loófóóraður skinnfatnaóur Ath.góóir greiósluskilmálar Laugavegi 3 4.hæö sími 26540 #% GRAFELDUR HF. Gústaf Adolf VI, hinn nýlátni konungur Sviþjóðar. Elisabet Englandsdrottning er 46 ára,Jú!iana Hollandsdrottning 64 ára og Ólafur Noregskonungur 70 ára. Ólafur Noregskonungur er þvi elztur aö árum, en Júliana Hollandsdrottning hefur stjórnað lengst. Þaö má segja aö Karl Gústaf 'hafi komizt vel frá þvi timabili sem hann var krónprins. Þaö er ekki auövelt aö vera stööugt undir smásjá hjá sjónvarpi, blöðum, og útvarpi. Einn geispi á fundi, eða viö opinber hátiöleg tækifæri getur komiö af staö orörómi um þreytu vegna óreglulegs Hfernis, — eöa þá aö honum hundleiðist. Hugsið ykkur hvernig það er, aö geta fariö á dansleik meö góðri vinkonu án þess aö vera hund- eltur af ljósmyndurum. En viö skulum ekki finna of mikiö til meö Karli Gústaf. Vinir hans hafa hjálpað honum mikið og byggt umhverfis hann þagnar- múr. Erlendis hefur hann sjálf- sagt sleppt fram af sér beizlinu við og við — sem reyndar hefur komið á daginn. Fjölskyldan hefur Hklegast ekki alltaf verið ánægð meö myndir og skrif, sem um hann'hafa birzt, þegar hann hefur dvalizt á erlendri grund. En fáist tækifæri til aö ræöa við hann einslega, þá gefur hann sér alltaf góöan tima — og maöur fær hreinskilnisleg svör, ef hann getur treyst blaðamanninum, og fær auk þess aö lesa handritið yfir áöur en það fer i prentun, er hann heillandi, hnyttinn og opinskár. En bak viö vingjarnlegt yfir- boröiö skynjar maöur, undir hvers konar fargi hann lifir og hve alvarlega hann tekur hlut- verk sitt. Hann tók allt ööru visi á móti fréttamönnum þegar hann var tveggja ára gamall. Þá sat hann og lék sér aö kubbum, þegar blaöamaður og ljósmyndari komu i heimsókn. Margrét Bir- gitta og Désirée prjónuöu og Kristin teiknaöi. Allt i einu hentist Karl Gústaf aö blaðamanninum, greip tennis- spaöa, sem hann haföi undir hendinni og lamdi Kristinu i and- litið með honum. Hún brá fyrir hann fæti og hann reiddist vegna árásar uppáhalds systur sinnar og réöist þá „Litli prinsinn” á hinar systurnar. Tennisspaöan- um sveiflaði hann fram og aftur um loftið, það var tilgangslaust fyrir Sybil móður hans aö ætla að reyna að stöðva hann, — þá uppgötvaði hann allt i einu dálitiö, sem var nýtt og alveg hræöilegt — ljósblossa ljósmynd- arans! þá — og þá fyrst — lagði hann frá sér spaðann. En hann varð heldur aldrei góður tennis- spilari. — Maður á að gera skyldu sína og vera starfi sinu trúr, án þess að taka sjálfan sig of hátiðlegan. Kímnigáfan er það dýr- mætasta, sem við eigum. Sjái maður spaugilegu hliðamar við lifið, verður allt miklu auðveldara — Þetta sagði afi minn viðmig, og ég hef haft mikla gleði af þessum lærdómi. Allir Stokkhólmsbúar vissu hvaöa þýöingu fallbyssuskotin höföu þann 30. april áriö 1946. Sybilla prinsessa haföi eignazt barn. Fólk stoppaöi á götunum og byrjaöi aö telja skotin, og þegar 42 skotum haföi veriö hleypt af, þá var mikiö um dýröir I Stokk- hólmi — og allri Sviþjóö. Prins haföi fæözt. Yngsti konungurinn Tveir siöustu Bernadotte-kon- ungarnir hafa I mörgu tilliti verið elztir. Gustav V var elztur af sænsk- um stjórnendum. Hann var 93 ára, 4 mánaöa og 13 daga gamall. Hann varö einnig sá konungur sem stjórnaöi lengst i Sviþjóð. Hann lézt á 43. stjórnarári sinu. Gustaf V var auðvitað elztur meðal samtiðar-konunga I Evrópu. Aöur en Gústaf Adolf VI lézt, var hann einnig eins og Gústaf V, elzti stjórnandi i Evrópu. Hann yfirgaf þennan heim 91 árs aö aldri. Þegar Gústaf Adolf VI settist i veldisstólinn, var hann eldri en nokkur annar konungur, sem tekið haföi viö þessu tignar- heiti. Hann vantaöi aöeins nokkra daga upp á 69 ára aldurinn. Ef hann hefði verið venjulegur sænskur borgari heföi hann verið á ellilaunum. Sem sænskur þjóöhöföingi varö hann næstelztur á eftir fööur sin- um. Hann var konungur i tæp 23 ár, og var reyndar elztur af evrópskum stjórnendum. Júliönu Hollandsdrottningu vantar þó nokkur ár, til aö ná honum. Aftur á móti hafa þrir konungar af Bernadotteættinni setiö lengur að völdum en hann: Gústaf V (43 ár) Oskar II (35 ár) og Karl XIV (26 ár) Karl Gustaf XVI er óyggjandi yngsti konungurinn. Hann tók við krúnunni 27 ára gamall. Karl XV var 33 ára, Óskar I 35 ára, Óskar I 46 ára Gústaf V 49 ára og Karl XIV 55 ára. Konungur Sviþjóöar er þvl sá yngsti, sem hefur tekið viö konungstign af Bernadottun- um. En fyrir hans tiö — löngu fyrir hans tima — voru til sænskir konungar, sem voru börn að aldri. Viö konungsvigsluna varö Karl Gústav yngstur evrópskra kon- unga. Margrét drottning Danmerkur er næst i röðinni 33 ára að aldri og þar á eftir kemur Baudouin frá Belglu 43 ára.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.