Fréttablaðið - 17.12.2004, Blaðsíða 4
4 17. desember 2004 FÖSTUDAGUR
Uppsagnir:
Bolvíkingar eru
sárir og reiðir
RATSJÁRSTOFNUN Bolvíkingar eru
sárir og reiðir yfir fyrirætlunum
um að segja upp starfsmönnum
Ratsjárstofnunar á Bolafjalli. Ein-
ar Pétursson, bæjarstjóri í Bol-
ungarvík, segir að varla sé um
annað talað fyrir vestan. Þegar sé
byrjað að ræða við þingmenn til
að velta upp hugmyndum um hvað
geti komið í staðinn, t.d. hvort
miðstýring stofnunarinnar geti
flust vestur, en fjölbreytni í at-
vinnulífi er lítil á staðnum.
Starfsmenn Ratsjárstofnunar í
Bolungarvík eru 11 og margir
þeirra íhuga brottflutning, t.d. til
útlanda, en lítil eftirspurn er hér-
lendis eftir svo sérhæfðu starfs-
fólki. Ef öllum starfsmönnum
Ratsjárstofnunar í Bolungarvík
verður sagt upp kemur það við 44
íbúa að fjölskyldum meðtöldum.
Ef allt þetta fólk flyst brott er það
4-5 prósent af íbúafjöldanum á
staðnum og um 5 prósent af út-
svarinu.
Á næstu mánuðum verða rat-
sjárstöðvar úti á landi tengdar við
stöðina á Miðnesheiði. Gert er ráð
fyrir að sjálfvirknin aukist í
áföngum og verði komin til fram-
kvæmda haustið 2007.
- ghs
FASTEIGNASALA Velta vegna fast-
eignaviðskipta á höfuðborgar-
svæðinu í fyrstu viku desember
hefur aldrei verið meiri en í ár. Þá
nam veltan 5.826 milljónum
króna. Af þeim 285 samningum
sem gerðir voru var meðalverð
hverrar fasteignar 20,4 milljónir.
Það er hærra meðalverð en verið
hefur síðan í byrjun október.
Björn Þorri Viktorsson, formaður
Félags fasteignasala, segir að
mikið at hafi verið í fasteignasölu
að undanförnu og verð hækkað
mikið. Ekki síst seljist stærri
eignir og sérbýli vel.
Vísitala fasteignaverðs hefur
farið síhækkandi á árinu og má
reikna með að hún hækki enn
þegar tölur nóvembermánaðar
hafa verið gefnar út. Einungis í
ágúst lækkaði vísitalan lítillega
og segir Björn Þorri að það sé
ekki vegna þess að verð á fast-
eignum hafi minnkað á þessum
tíma, heldur sé lækkunin bein
afleiðing þess að tekin voru upp
peningalán hjá íbúðalánasjóði, en
þá hættu kaupendur að yfirtaka
áhvílandi lán. Við það hafi verð
reiknast niður. „Skýringarnar eru
kerfisbreytingar með lækkun
vaxta og útgáfa peningalána.
Verðin voru að hækka allan tím-
ann engu að síður. Verð húsnæðis-
ins reiknaðist bara lægra þrátt
fyrir hækkun vegna þess að
samningarnir voru núvirtir.“
Björn segir að þrátt fyrir að
fasteignaverð á höfuðborgarsvæð-
inu hafi hækkað um 12-30 prósent
á þessu ári sé ekkert í spilunum
um að toppnum sé náð. „Við erum
að hoppa inn í nútímann. Það eru
nýir möguleikar í fasteignakaup-
um, sem hefur verið um margra
ára skeið í þeim löndum sem við
berum okkur saman við.“ Hann
segir þó einnig að líklega muni Ís-
lendingar ekki sjá slíka hækkun
um ókomna framtíð. Hækkunin er
þó ekki bara vegna nýrra kosta í
fasteignalánum. Björn Þorri segir
að á tímabilinu 1990 til 1998 hafi
verið raunlækkun á húsnæðis-
verði. Því hafi markaðurinn átt
gríðarlega mikið inni þegar hann
tók við sér. Auk þess bætist við að
nú geti miklu fleiri keypt eignir en
áður. svanborg@frettabladid.is
Síbrotamaður:
Dæmdur í
fangelsi
DÓMSMÁL Maður um fertugt var
dæmdur í Hérðasdómi Reykjavík-
ur í sjö mánaða fangelsi og til
greiðslu sakarkostnaðar.
Maðurinn var í tvígang tekinn
undir stýri án ökuréttinda og einu
sinni fyrir of hraðan akstur. Hann
hafði einnig verið tekinn fyrir að
hafa skipt um skráningarnúmer á
bíl sínum, ekki sinnt stöðvunar-
merki lögreglunnar og endað öku-
ferð á vinnuskúr.
Maðurinn hefur hlotið tuttugu
refsidóma frá árinu 1980 og tvo á
þessu ári. Umferðarlagabrot eru
flest þeirra en einnig auðgunar-
brot og skjalafals. - gag
■ EVRÓPA
Finnur þú fyrir jólakvíða?
Spurning dagsins í dag:
Var rétt að veita Bobby Fischer dvalar-
leyfi á Íslandi?
Niðurstöður gærdagsins
á visir.is
74%
26%
Nei
Já
KJÖRKASSINN
Farðu inn á fréttahluta visir.is
og segðu þína skoðun
Skilorðsbundinn dómur:
Sveik út
650 þúsund
DÓMSMÁL Kona um þrítugt fær
þriggja mánaða fangelsisdóm
brjóti hún lög næstu tvö árin.
Konan sveik
út vörur og
tölvubúnað á
kostnað raun-
vísindadeildar
Háskóla Ís-
lands fyrir
tæpar 650 þús-
und krónur
þegar hún vann
þar sem deild-
arstjóri. Hún
tók 25 sinnum
út vörur til eig-
in nota á reikn-
ing líf-
fræðiskorar á
árinu 2002.
Sumarið 2003
sveik hún út tölvubúnað og þjón-
ustu hjá Aco Tæknivali fyrir tæp-
ar 350 þúsund krónur.
Konan greiðir 45 þúsund krón-
ur í málsvarnarlaun. - gag
VODKALEIÐSLA FINNST Tollverðir
í Eistlandi hafa fundið kílómetra
langa vodkaleiðslu, sem smyglar-
ar hafa notað til að dæla ódýrum
vodka frá Rússlandi til Eistlands.
Um þremur tonnum var dælt
daglega frá Ivangorod í Rúslandi
til Narva í Eistlandi um leiðsluna,
sem lá á botni Narvavatns.
HÆRRI INNKAUPAKERRUR Fréttir
um að Bretar séu ekki bara að
verða feitari, heldur einnig
hærri, varð hvatning til bresku
verslunarkeðjunnar Sainsbury
um að endurnýja innkaupakerrur
sínar. Nýjar kerrur verða hærri,
til að hæfa betur hávaxnari við-
skiptavinum. Í stað þess að hand-
fangið sé í 102 sentimetra hæð
verður það í 114 sentimetra hæð
á nýju kerrunum.
EINAR PÉTURSSON
Bæjarstjórinn í Bolungarvík segir að Bolvík-
ingar séu sárir og reiðir yfir fyrirætlunum
um að loka ratsjárstöðinni á Bolafjalli.
M
YN
D
/H
AL
LD
Ó
R
SV
EI
N
B
JÖ
R
N
SS
O
N
BJÖRN ÞORRI VIKTORSSON
Þrátt fyrir mikla hækkun á fasteignaverði á höfuðborgarsvæðinu segir formaður Félags
fasteignasala að ekkert sé í spilunum um að toppnum sé náð.
VELTA Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU
Vika Velta Meðalupphæð Fjöldi
(millj.kr) á samning (millj.kr.) samninga
3. des. - 9. des. 5.826 20,4 285
26. nóv -3. des 4.769 19,5 245
19. nóv -25. nóv 4.622 18,5 250
12. nóv -18. nóv 4.691 17,4 270
5. nóv -11. nóv 4.493 16,8 268
29. okt. - 4. nóv 4.333 17,9 242
Heimild: Fasteignamat ríkisins
Vísitala fasteignaverðs íbúðarhúsnæðis
á höfuðborgarsvæðinu 2004
Heimild: Fasteignamat ríkisins
Sex milljarða viðskipti á viku
Velta vegna fasteignaviðskipta á höfuðborgarsvæðinu hefur aldrei verið meiri en í fyrstu viku desember.
Formaður Félags fasteignasala segir stærri eignir og sérbýli seljast vel. Með nýjum lánamöguleikum
séum við að hoppa inn í nútímann.
HÉRAÐSDÓMUR
04-05 16.12.2004 21:14 Page 2