Fréttablaðið - 17.12.2004, Blaðsíða 69
36 17. desember 2004 FÖSTUDAGUR
sport@frettabladid.is
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
14 15 16 17 18 19 20
Föstudagur
DESEMBER
KÖRFUBOLTI Stjórn Körfuknattleiks-
deildar Grindavíkur ákvað í
fyrrakvöld að segja Kristni Frið-
rikssyni upp störfum sem þjálf-
ara liðsins í Intersportdeildinni.
Kristinn tók við liðinu af Friðriki
Inga Rúnarssyni í sumar en ár-
angurinn hjá liðinu hefur verið
undir væntingum. Liðið var í átt-
unda sæti fyrir leiki kvöldsins og
sennilega var það stórtap gegn ÍR
á heimavelli síðastliðinn föstudag
sem gerði útslagið en liðið tapaði
með 37 stiga mun.
Almar Þór Sveinsson, formað-
ur körfuknattleiksdeildar Grinda-
víkur, sagði í samtali við Frétta-
blaðið í gær að aðalástæða upp-
sagnar Kristins væri sú að hann
og liðið hefðu einfaldlega ekki náð
saman. „Árangurinn í vetur hefur
verið gríðarleg vonbrigði og grip-
um við til þessa ráðs. Það er aldrei
gaman að standa í þessu en við
töldum þetta nauðsynlegt,“ sagði
Almar Þór. Hann staðfesti að
Einar Einarsson myndi stýra lið-
inu út tímabilið en Einar þekkir
vel til í herbúðum Grindvíkinga
eftir að hafa stýrt liðinu í þrjú ár
á árunum 1999-2001. Hann stjórn-
aði liðinu í fyrsta sinn í gærkvöld
þegar Grindavík sótti KR heim.
Kristinn Friðriksson var með
böggum hildar þegar Fréttablaðið
ræddi við hann í gær. Hann sagði
ákvörðun stjórnarinnar mikil von-
brigði þótt hann væri sammála
því að árangurinn það sem af er
vetri væri ekki viðunandi. „Ég er
hundsvekktur og verð að viður-
kenna að ég sá þetta ekki fyrir. Ég
bjóst ekki við því að vera látinn
fara á þessum tímapunkti. Mér
fannst vera ákveðinn stígandi í
liðinu í síðustu leikjum en ég get
fyrstur manna viðurkennt að ár-
angurinn er ekki nógu góður,“
sagði Kristinn. Hann sagðist ekki
vera búinn að ákveða hvert næsta
skref hans yrði. „Ég veit ekki
hvað ég kem til með að gera. Það
er inni í myndinni að spila en hvað
gerist verður að koma í ljós. Mað-
ur er rétt að ná áttum eftir þessar
fréttir,“ sagði Kristinn.
oskar@frettabladid.is
KRISTINN FRIÐRIKSSON Var sagt upp störfum sem þjálfari Grindavíkur á miðvikudags-
kvöldið eftir lélegt gengi liðsins það sem af er vetri.
Kristinn látinn fara
frá Grindavík
Almar Þór Sveinsson, formaður körfuknattleiksdeildar Grindavíkur, segir
ástæðuna vera þá að hann náði ekki til leikmannanna.
■ ■ LEIKIR
19.15 Grótta/KR og Selfoss
mætast á Seltjarnarnesi í
suðurriðli DHL-deildar karla í
handbolta.
19.15 Valur og ÍR mætast í
Valsheimilinu í suðurriðli DHL-
deildar karla í handbolta.
19.15 Víkingur og Stjarnan
mætast í Víkinni í suðurriðli DHL-
deildar karla í handbolta.
■ ■ SJÓNVARP
17.45 Olíssport á Sýn. Endursýndur
þáttur frá því í gærkvöld þar sem
farið er yfir það helsta úr
íþróttaheiminum.
18.00 Upphitun á Skjá einum.
Hitað upp fyrir leiki helgarinnar í
ensku úrvalsdeildinni í fótbolta.
19.00 Motorworld á Sýn. Allt það
besta úr akstursíþróttaheiminum
er borið á borð fyrir áhorfendur.
19.30 Meistaradeildin í fótbolta á
Sýn. Fréttaþáttur um meistara-
deildina í fótbolta.
20.00 World Supercross á Sýn.
21.00 World Series of Poker á
Sýn. Bestu pókerspilarar heims
leika listir sínar við spilaborðið.
23.15 Hnefaleikar á Sýn. Sýnt frá
bardaga Jermains Taylor og
Williams Joppy.
Grindavík bar sigurorð af ÍS, 67-55,í leik liðanna í 1. deild kvenna á
miðvikudagskvöldið í Grindavík.
Heimastúlkur höfðu yfir-
höndina allan leikinn og
leiddu með þremur stig-
um í hálfleik, 37-34.
Myriah Spence var
stigahæst hjá Grinda-
vík með 19 stig og tók
12 fráköst, Erla Þor-
steinsdóttir skoraði 18
stig og Erla Reynis-
dóttir skoraði 15 stig.
Signý Hermannsdóttir
skoraði 23 stig og tók
15 fráköst fyrir ÍS og
Alda Leif Jónsdóttir
skoraði 18 stig, tók 8
fráköst og gaf 8
stoðsendingar.
Njarðvík vann nauman sigur áHaukum, 69-67, í Njarðvík í 1.
deild kvenna í körfubolta á miðviku-
dagskvöldið. Leikurinn
var hörkuspennandi en
N j a r ð v í k u r s t ú l k u r
tryggðu sér sigur með
stórkostlegum enda-
spretti þar sem liðið
skoraði fjórtán síðustu
stig leiksins. Útlending-
arnir tveir, Vera Janjic
og Jaime Woudstra,
drógu vagninn fyrir
Njarðvíkurliðið í leikn-
um. Vanjic skoraði 26
stig og stal 8 boltum og
Woudstra skoraði 21
stig og tók 16 fráköst.
Helena Sverrisdóttir
skoraði 22 stig og tók 8 fráköst fyrir
Hauka, Ebony Shaw skoraði 13 stig
og Pálína Gunnlaugsdóttir skoraði
10 stig og tók 8 fráköst.
ÚR ÍÞRÓTTAHEIMINUM
ÍSHOKKÍ Jónas Breki Magnússon og
Anna Sonja Ágústdóttir voru í
gær útnefnd íshokkífólk ársins
hjá Íshokkísambandinu fyrir
framúrskarandi árangur í íþrótt-
inni en bæði hafa þrátt fyrir ung-
an aldur þegar látið verulega að
sér kveða og eiga langa og góða
framtíð fyrir sér næstu árin.
Jónas Breki Magnússon er 24
ára gamall og einn af fáum ís-
lenskum leikmönnum sem spila
erlendis en hann leikur með
danska liðinu Gladsaxe og hefur
gert um hríð. Áður var hann lengi
með liði Bjarnarins úr Grafarvogi
en Jónas Breki var meðal annars
valinn besti leikmaðurinn á
heimsmeistaramóti karla í þriðju
deild sem fram fór hérlendis fyrr
á þessu ári. Tímabil hans hjá
Gladsaxe hefur gengið vel og
hann er meðal markahæstu
manna í dönsku íshokkídeildinni.
Anna Sonja Ágústsdóttir leikur
með Skautafélagi Akureyrar og
hefur gert um árabil þrátt fyrir að
vera aðeins sextán ára gömul. Hóf
hún fyrst að æfa íshokkí sex ára
og hefur meira eða minna spilað
og æft síðan þá. Hún er einn
burðarásanna í kvennaliði SA og á
framtíðina aldeilis fyrir sér.
- aöe
FRÁ FUNDI ÍSHOKKÍSAMBANDS ÍSLANDS Sambandið hefur útnefnt Jónas Breka
Magnússon og Önnu Sonju Ágústsdóttur íshokkífólk ársins.
Íshokkísamband Íslands heiðrar sitt fólk:
Jónas Breki og Anna
Sonja best á svellinu
Þetta eru metnaðarfullir menn
Það er ljóst að stjórn körfuknattleiksdeildar Grindavíkur sættir sig ekki við neina meðalmennsku þegar kemur að
meistaraflokkum félagsins. Eftir að stjórnin rak Kristinn Friðriksson sem þjálfara karlaliðsins á miðvikudagskvöldið hafa
bæði þjálfarar kvenna- og karlaliðsins verið látnir fara. Örvar Kristjánsson var rekinn sem þjálfari kvernnaliðsins eftir þrjá
leiki og ljóst að eftirmennirnir, Henning Henningsson hjá konunum og Einar Einarsson hjá körlunum, þurfa að standa sig
í stykkinu ef þeir ætla að klára tímabilið.
nr. 50 2004
Í JÓ
LA
SK
A
P
I
Dorrit Mouss
» HÉR Á ÉG HE
JÓLADAGSKRÁIN ER Í BIRTU
» Fylgir Fréttablaðinu í dag «
68-69 (36-37) Sport 16.12.2004 14.11 Page 2