Fréttablaðið - 17.12.2004, Page 10
10 17. desember 2004 FÖSTUDAGUR
JÓL Í VÍETNAM
Víetnamskur sölumaður gengur framhjá
stórum uppblásnum jólasveini í miðborg
Hanoi í Víetnam. Þó langflestir íbúar
landsins séu búddatrúar eru um sex millj-
ónir kristinnar trúar.
Endurreikningur Tryggingastofnunar:
Formlegar athuga-
semdir frá 320 manns
LÍFEYRISMÁL Um 320 lífeyrisþegar
af tæplega 42 þúsund gera form-
lega athugasemdir við endur-
reikning Tryggingastofnunar á
bótarétti ársins 2003, eða liðlega
0.8% lífeyrisþega, að sögn Karls
Steinars Guðnasonar forstjóra
TR.
„Okkur sýnist að ákaflega vel
hafi tekist til með þessa fram-
kvæmd alla, sem sést hvað best á
því hversu afar fáir gera form-
legar athugasemdir, en auðvitað
eru nokkur dæmi um einstaklinga
sem nýta andmælarétt sinn og
þau mál verða öll könnuð ítarlega
á nýju ári,“ sagði Karl Steinar.
hann sagði, að þessa dagana
væri af hálfu TR kostað kapps um
að endurgreiða inneignir en þær
yrðu greiddar 24 þúsund lífeyris-
þegum í næstu viku. Etir áramót
yrðu athugasemdir vegna upp-
gjörsins teknar fyrir.
Mikið annríki hefur verið í
Tryggingastofnun að undanförnu
vegna endurreiknings á lífeyris-
greiðslum og á þriðja þúsund
manns komið í þjónustumiðstöð
til að leita skýringa og fá úrlausn,
að sögn Karls Steinars. Það er til
marks um álagið að á fjórum dög-
um bárust 11 þúsund símtöl í
símaver þjónustumiðstöðvar.
- jss
Harðstjórn í skjóli
hryðjuverkastríðs
Stjórnin í Úsbekistan er orðin einhver helsti bandamaður Bandaríkjanna í svokölluðu stríði
gegn hryðjuverkum. Mannréttindabrot eru þar daglegt brauð og forseti landsins hefur opinskátt
dregið í efa ágæti lýðræðis og mannréttinda.
STJÓRNMÁL Gamla sovéska Gúlagið
virðist lifa góðu lífi þrátt fyrir að
fjórtán ár séu liðin nú um áramót-
in frá því Sovétríkin leystust upp.
Úsbekistan var hluti Sovétríkj-
anna og virðast sovéskir stjórnar-
hættir óvíða hafa verið varð-
veittir eins vel og þar. Úsbekistan
virtist eiga litla framtíð fyrir sér
sem ríki fyrr en hryðjuverka-
árásin var gerð á Bandaríkin 11.
september 2001. Úsebekistan
hýsir eina helstu herstöð Banda-
ríkjanna í Mið-Asíu og fékk strax
2002 200 milljónir Bandaríkjadala
í efnahagsaðstoð – jafn mikið og
landið hafði fengið samtals frá
sjálfstæði.
Hins vegar verður ekki séð að
Bandaríkin hafi séð ástæðu til að
láta lýðræðisvæðinguna og allra
síst virðingu fyrir mannréttind-
um ná til ríkisstjórnar Úsbekist-
ans.
Islam Abduganievich Karimov
hefur verið forseti Úsbekistans
síðan 1991 en framkvæmd kosn-
inga þykir mjög ábótavant.
Stjórnarskránni hefur verið
breytt í tvígang til að leyfa honum
að bjóða sig fram oftar en ætlast
var til. Bandaríska utanríkisráðu-
neytið taldi síðustu kosningar
meingallaðar enda var bent á að
helsti andstæðingur hans hefði
lýst yfir að hann ætlaði að kjósa
Karimov! Öryggis- og samvinnu-
stofnun Evrópu (ÖSE) lýsti því
svo yfir að tilgangslaust væri að
fylgjast með kosningum þar því í
raun væri ekki framboðsfrelsi.
Svar Karimovs við gagnrýni ÖSE
var eftirfarandi: „ÖSE einbeitir
sér einungis að því að koma á lýð-
ræði, mannréttindum og frelsi
fjölmiðla. Ég er farinn að draga
þessi gildi í efa.“
Fleiri yfirlýsingar Karimovs
hafa vakið athygli. Til dæmis: „Ég
skal sjálfur rífa höfuðið af 200
manns til að fórna lífi fólksins og
tryggja öryggi og frið í lýðveld-
inu. Ef barn mynda velja ranga
braut myndi ég slíta höfuðið af
því.“
Einn þekktasti pólitíski fangi
Úsbekistans til skamms tíma var
Ruslan Sharipov. Hann sat á sjötta
ár í fangelsi og hefur í grein á vef-
síðu Institute for War and peace
reporting skýrt ítarlega frá pynt-
ingaraðferðum sem beitt er í
Úsbekistan. Aðstæður og aðferðir
í fangelsum þar eru raunar ná-
kvæmlega þær sömu og í Gúlagi
Sovétríkjanna. Þar er föngum
gefið raflost, nögglum kippt af,
þeir kæfðir með plastpokum,
beinbrotnir með barsmíðum og
konum nauðgað á svo hrottalegan
hátt að ekki telst prenthæft í út-
breiddu dagblaði. Athygli vekur
að Sharipov var sjálfur pyntaður
af þeirri deild innanríkisráðu-
neytisins sem berst gegn hryðju-
verkum en dóm sinn fékk hann
fyrir samkynheigð.
a.snaevarr@frettabladid.is
Skógræktarfélag Reykjavíkur:
Jólatré
höggvin í
Heiðmörk
JÓL Skógræktarfélag Reykjavíkur
efnir til jólatrjáahátíðar í Heið-
mörk á morgun þar sem félags-
mönnum gefst færi á að velja sér
og höggva jólatré. Stendur hátíðin
frá 11 til 15. Hvert tré kostar 4.200
krónur og er innheimt með heim-
sendum gíróseðlum. Þeir sem
standa utan félagsins geta gengið í
það á morgun og fengið sitt tré.
Forsvarsmenn Skógræktarfélags-
ins leggja ríka áherslu á að
jólatrjáahögg er að öðru leyti bann-
að í Heiðmörk. Jólatrjáahátíð var
haldin í fyrra og tókst vel. - bþs
JÓLASVEINN
Þó svo að erlendur jólasveinn sé talinn bú-
settur á norðurpólnum, er Stúf þar ekki að
finna.
Jólasveinninn:
Pósturinn til
Lapplands
JÓLIN Á pósthúsi jólasveinsins í
Lapplandi eru starfsmenn sem
álfar og um hendur þeirra fara
um hálf milljón bréfa sem send
eru til jólasveinsins um þessi jól.
Pósthúsið opnaði fyrir rúmum 20
árum og segir póststjórinn Taina
Ollila að svo lengi sem á umslag-
inu standi jólasveinninn, Lapp-
land eða norðurpóllinn, muni
bréfið berast til þeirra. Rétt heim-
ilisfang mun þó vera: Jólasveinn-
inn, 96930 Artic Circle, Finnland.
En eins og íslensk börn vita, þá
eru fleiri en einn jólasveinn, og
þeir búa allir í íslenskum fjöllum.
Því þýðir lítið að reyna að senda
Stekkjastaur eða Kertasníki
kveðjur á þetta heimilisfang. ■
jólagjöf
Hugmynd að
fyrir alla
Smáralind
Sími 545 1550
Glæsibæ
Sími 545 1500
Kringlunni
Sími 575 5100
www.utilif.is
20% afsláttur
af brettapökkum
Betti, bindingar og skór.
Sessions brettafatnaður
fæst í Útilíf Kringlunni.
Vertu viss
...veldu Rossignol snjóbretti
um gæðin...
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
U
TI
2
66
32
12
/2
00
4
Tekjuskattsbreytingar:
Ekki tekið tillit til
Jöfnunarsjóðs
SVEITARSTJÓRNARMÁL Við breyting-
ar á lögum um tekjuskatt og
eignarskatt var ekki tekið tillit
til umsagnar Sambands ís-
lenskra sveitarfélaga. Þar kom
fram að sé tekið mið af þeim for-
sendum sem frumvarpið byggði
á má gera ráð fyrir að árlegar
tekjur Jöfnunarsjóðs sveitarfé-
laga skerðist varanlega um 400
milljónir króna þegar áhrif lag-
anna eru að fullu komin til fram-
kvæmda árið 2007.
Þórður Skúlason, fram-
kvæmdastjóri Sambands ís-
lenskra sveitarfélaga, segir mál-
inu ekki lokið af þeirra
hálfu.“Við höfum rætt málið við
félagsmálaráðherra og höldum
þessu til haga. Það þyrfti að
leysa þetta sem fyrst og komast
að niðurstöðu á því hvernig
sveitarfélögunum verður bættur
þessi tekjumissir.“
Gunnlaugur Júlíusson, sviðs-
stjóri hag- og upplýsingasviðs
sambandsins, hefur áður sagt að
sambandið reikni með að þetta
hafi bara verið mistök, því í gildi
sé samkomulag um fjárhag ríkis
og sveitarfélaga. Allar breyting-
ar á því samkomulagi hljóti að
vera samningsatriði en ekki
ákvarðaðar einhliða.
Talið er að tekjumissir Jöfn-
unarsjóðs muni nema um 90
milljónum á næsta ári. Framlög
úr Jöfnunarsjóði eru rúm 34 pró-
sent tekna sveitarfélaga sem
hafa færri en 300 íbúa.
- ss
ÖRTRÖÐ
Það er til marks um álagið hjá Trygginga-
stofnun þessa dagana, að á fjórum dögum
bárust 11 þúsund símtöl í símaver þjón-
ustumiðstöðvar.
GUNNLAUGUR JÚLÍUSSON
Sviðsstjóri hag- og upplýsingasviðs Sam-
bands Íslenskra sveitarfélaga sagði það
mistök að gera ekki ráð fyrir áhrifum lækk-
unar tekjuskatts á Jöfnunarsjóð. Við breyt-
ingar á lögum var ekki tekið tillit til þessa.
KARIMOV FORSETI ÚSBEKISTAN
Segist sjálfur myndu rífa höfuðið af barni
sínu ef það færi á ranga braut. Hér ásamt
Vladimir Putin, forseta Rússlands. Báðir
eru bandamenn Bandaríkjanna í stríðinu
gegn hryðjuverkum.
10-11 16.12.2004 19:38 Page 2