Fréttablaðið - 17.12.2004, Qupperneq 24
Útrás Íslandsbanka í Nor-egi hefur verið í brenni-depli í haust. Íslandsbanki
keypti Kredittbanken í ágúst en
margir skildu ekki þau kaup.
Kredittbankinn er lítill og hefur
átt í fjárhagserfiðleikum. Hann
hefur höfuðstöðvar í Álasundi,
hjarta sjávarútvegs og skipa-
smíða í Noregi. Íslandsbanki
fjárfesti skömmu síðar í BN
banken sem er fjórði stærsti
bankinn í Noregi. Þá töldu menn
sig skilja viðskiptin aðeins betur.
Saman voru þetta fjárfestingar
upp á milljarða og fyrir þessa
peninga var Íslandsbanki kominn
með sterka stöðu í norskum
bankaheimi. Elfar Rúnarsson og
Kjartan Ólafsson hafa tekið virk-
an þátt í innrásinni í Noregi. Þeir
segja að Íslendingum hafi verið
einstaklega vel tekið.
Brennt sig á fiskeldi
„Norðmenn eru vanir skipafjár-
mögnun og því að fjármagna
sjávarútveg en undanfarið hafa
norsku bankarnir brennt sig illa á
fiskeldi. Það hefur orðið til þess
að allt sem tengist sjávarútvegi á
erfitt framdráttar og það hefur
gengið jafnt yfir alla. Undanfarin
20 ár höfum við stundað viðskipti
við Noreg og þróað viðskipti frá
Íslandi. Við höfum góða við-
skiptavini þar,“ segir Kjartan
Ólafsson sem eftir áramótin flyst
búferlum til Noregs með fjöl-
skyldu sína. Hann mun leiða sjáv-
arútvegsteymi Íslandsbanka í
Noregi.
„Kredittbanken er einn af
þeim bönkum sem lentu í vand-
ræðum með fjármögnun í fisk-
eldi. Þetta er lítill svæðisbanki
með heilmikla reynslu og þekk-
ingu á fjármögnun innan sjávar-
útvegs. Þarna erum við með góð-
an mann við stjórnvölinn sem
hefur nýverið tekið við. Frank
Reite heitir hann og hefur unnið
með sjávarútvegsfyrirtækjum
um allan heim. Hann hefur unnið
mikið með fjármögnun og fjár-
festingar í sjávarútvegi,“ segir
Kjartan.
Íslandsbanki hefur verið í
útrás á vestur- og austurströnd
Norður-Ameríku, Bretlandi,
Nýja-Sjálandi, Chile og jafnvel
Suður-Afríku og Asíu auk hinna
Norðurlandanna í mörg ár en
lítið borið á því þar sem mest-
megnis hefur verið um fjármögn-
un að ræða. „Umhverfið er miklu
samkeppnishæfara í Noregi en á
mörgum öðrum stöðum. Það er
okkur mikilvægt að hafa fótfestu
í Noregi til þess að geta unnið
jafnt að stórum sem smáum
verkefnum og það er engin
spurning að þar hefur okkur
vantað svæðisbundna þekkingu.
Með kaupunum á Kredittbankan-
um tryggjum við þá þekkingu og
meiri nálægð við viðskiptavini,“
segir Kjartan.
Kredittbankinn sem stökkpallur
Elfar bendir á að auðveldara sé
að bjóða viðskiptavinum upp á
heildarþjónustu með því að vera
með banka á staðnum. „Þegar við
vinnum frá Íslandi takmarkar
það vöru- og þjónustuframboðið
til okkar viðskiptavina. Þegar við
erum komin með Kredittbankann
sem stökkpall þá getum við veitt
betri þjónustu sem er til
hagsbóta fyrir marga af okkar
viðskiptavinum,“ segir hann og
bætir við að þetta hafi verið
tækifæri sem hafi verið gripið.
„Módelið eins og við höfum
verið að vinna það hefur virkað
mjög vel en þarna erum við að
stíga eitt skref fram á við, bæta
þjónustuna og auka úrvalið. Í
leiðinni erum við að færast nær
viðskiptavinum. Þegar Kjartan
flyst til Noregs þá mun það gjör-
breyta allri tengslauppbyggingu
og þjónustu við þessa aðila frá
því sem verið hefur. Með því að
vera miðsvæðis í Noregi er hann
bara nokkrar mínútur að skjótast
á milli staða til að hitta menn og
það er auðvelt fyrir þá að koma
til hans,“ segir Elfar.
Sjávarútvegur er kjölfestan
Innan Íslandsbanka er litið á
sjávarútveginn sem kjölfestu. Á
Íslandi eru takmarkaðir vaxtar-
möguleikar en mikil þekking á
sjávarútvegi og því hefur útrás
bankans verið grundvölluð á hon-
um. „Með þessum móti höfum við
getað vaxið innan greinar sem
við teljum okkur þekkja en þó
leitað á ný mið. Við tökum þessi
skref í Noregi eftir tveggja til
þriggja ára viðskiptasögu. Kjarn-
inn í Kredittbankanum er þrenns
konar: sjávarútvegur, þjónusta
við olíuiðnaðinn og skipasmíða-
iðnaður. Í Álasundi er mikill sér-
hæfður iðnaður annar en skipa-
smíðaiðnaðurinn, t.d. húsgagna-
iðnaður. Norðmenn eiga skipa-
smíðastöðvar í Póllandi, Rúmen-
íu og Brasilíu þaðan sem skrokk-
urinn kemur og svo fer hátækni-
vinnan að miklu leyti fram í
Álasundi. Þarna eru sérhæfðar
skipasmíðastöðvar sem eru að
gera mjög skemmtilega hluti,“
segja þeir.
„Noregur er skilgreindur sem
heimamarkaður okkar ásamt Ís-
landi. Það er okkur mikilvægt að
vera með fætur í sem flestum
greinum. Norska hagkerfið er
gríðarlega stöðugt og nýtur góðs
af sterkum olíuiðnaði. BN bank-
inn er sérhæfður í fasteignavið-
skiptum og sterkur á því sviði. Ís-
landsbanki lítur þess vegna svo á
að áhættan dreifist betur með BN
bankanum. Þó að fiskur sé mikil-
vægur fyrir okkur og þekking og
skilningur á sjávarútvegi séu
nauðsynleg til að geta vaxið þá
horfum við til þess að geta þróað
þau viðskiptasambönd yfir í
aðrar greinar,“ segja þeir.
Breytingar framundan í Noregi
Ákveðnar breytingar verða í
sjávarútvegi í Noregi á næstu
árum, til dæmis með sameining-
um og aukinni hagræðingu. „Við
ætlum að taka þátt í þeim virðis-
auka sem við sjáum fyrir okkur.
Hér eru ákveðnar hugmyndir í
gangi um það hvernig menn vilja
vinna málin áfram ef allt fer
fram sem horfir og útlitið helst
jákvætt og stigin verða skref til
þróunar á næstu misserum. Fyrst
um sinn sjá menn fyrir sér að
rækta áfram kjarnastarfsemina
á báðum stöðum með óbreyttum
stjórnendum á hvorum stað. Við
komum inn, kynnumst þessu bet-
ur og lærum á það og lesum síðan
betur í tækifærin og möguleik-
ana. Við þekkjum styrkleika
beggja banka og við þekkjum
styrkleikana hjá okkur. Eining-
arnar styðja vel hver við aðra og
viðskiptamannatengslin eru mis-
munandi á hverjum stað. Í út-
rásinni höfum við verið með
ákveðin verkefni og fasteigna-
fjármögnun sem er áhugavert að
tengja enn frekar og sömuleiðis
að tengja þá þekkingu sem við
höfum frá Noregi við útrásina
okkar hér heima. En á þessu stigi
vilja menn ekki né treysta sér til
að tjá sig um það hvað þeir ætla
að gera. Við sjáum ótal tækifæri.
Framhaldið verður síðan unnið í
samvinnu við stjórnendur á
hverjum stað,“ segja þeir.
Margur ímyndar sér sjálfsagt
að Íslandsbanki hyggist sameina
bankana í Noregi og sjá ef til
vill fyrir sér að nöfnunum verði
slegið saman í BN-Kredittbanken
eins og hefur verið áberandi hér
við sameiningu fyrirtækja. Elfar
segir að ýmsum möguleikum hafi
verið kastað upp en á þessum
tímapunkti sé ekkert svar. Þetta
eigi eftir að skoða betur. Eining-
arnar séu vel starfhæfar eins og
þær séu, viðskipti þeirra og
starfssvið skarist ekki og þær
geti hæglega unnið saman. Hvað
varðar bollaleggingar um skrán-
ingu Íslandsbanka í Noregi þá
staðfesta þeir að sú hugmynd
hafi komið upp. Bankinn fór
í skuldabréfaútgáfu nýlega í
Noregi en „mér vitanlega hefur
ekki verið tekin afstaða til þess
hvort menn stefna að skráningu,“
segir Elfar.
„Þetta er mjög áhugavert, eitt-
hvað sem verður klárlega skoðað
gaumgæfilega þegar fram líða
stundir,“ segir hann.
ghs@frettabladid.i
24 17. desember 2004 FÖSTUDAGUR
Noregur er skilgreindur sem heimamarkaður Íslandsbanka ásamt Íslandi. Skráning í norsku kauphöllina þykir
áhugaverð og verður skoðuð gaumgæfilega þegar fram líða stundir.
ELFAR OG KJARTAN Elfar Rúnarsson og Kjartan Ólafsson hafa tekið virkan þátt í innrás
Íslandsbanka í Noreg. „Það er okkur mikilvægt að vera með fætur í sem flestum greinum.
Norska hagkerfið er gríðarlega stöðugt og nýtur góðs af sterkum olíuiðnaði,“ segja þeir.
KJARTAN „Umhverfið er miklu samkeppnishæfara í Noregi en á mörgum öðrum stöðum.
Það er okkur mikilvægt að hafa fótfestu í Noregi til þess að geta unnið jafnt að stórum
sem smáum verkefnum,“ segir Kjartan Ólafsson.
ELFAR „Þegar við erum komin með Kredittbankann sem stökkpall þá getum við veitt betri
þjónustu sem er til hagsbóta fyrir marga af okkar viðskiptavinum,“ segir Elfar Rúnarsson.
Noregur er heimamarkaður
Álasund
er hjartað
Kjartan Ólafsson, starfsmaður í
sjávarútvegsteymi Íslandsbanka,
flytur til Noregs eftir áramót og bú-
setur sig í Álasundi. Hann mun
leiða sjávarútvegsteymi Íslands-
banka sem hefur það hlutverk að
byggja upp viðskipti í sjávarútvegi
og þjónusta norskan sjávarútveg.
Álasund er hjarta norsks sjávarút-
vegs. Þar eru flestir togararnir
skráðir, þar er stærsta löndunar-
höfnin og þar eru margir sterkustu
aðilar innan sjávarútvegsins stað-
settir. Samgöngur til og frá
Álasundi eru tíðar og auðveldar.
Ólíkir bankar
Kredittbanken er lítill banki með
höfuðstöðvar í Álasundi. Hann
starfar fyrst og fremst í sjávarútvegi
og er einn þeirra norsku banka
sem hafa farið illa á lánum til fisk-
eldis síðustu árin. BN bankinn hef-
ur höfuðstöðvar í Þrándheimi og
svo er hann í Ósló með útibú. BN
banken er einn af fjórum stærstu
bönkum í Noregi. Hann sérhæfir
sig í fjármögnun íbúðarhúsnæðis
og atvinnuhúsnæðis með veð í við-
komandi fasteign. Þetta eru ólíkir
bankar og því gætu þarna verið
góð samlegðaráhrif.
24-25 (360°) 16.12.2004 19:31 Page 2