Fréttablaðið - 17.12.2004, Blaðsíða 67
Það eru vissulega tímamót hjá
Sæmundi Pálssyni þessa dagana.
Í fyrradag var frá því greint að
ríkisstjórnin hefði samþykkt að
bjóða Bobby Fischer skákmeist-
ara ótímabundið dvalarleyfi á
Íslandi. Að þessu kemur fjöldi
manna, hópur áhugamanna hef-
ur unnið ósleitilega að því að
losa hinn aldna meistara úr prís-
undinni í Japan en að öðrum
ólöstuðum er það þó áreiðanlega
Sæmundur Pálsson, Sæmi rokk,
sem á mestan þátt í þessum sigri
mannúðarinnar.
Tímamótin hringdu í Sæ-
mund og spurðu fyrst hvort
hann væri búinn að tala við
Fischer og segja honum tíðind-
in?
„Já, já, ég talaði við hann í
hálftíma í nótt. Hann var glaður
og þakklátur íslensku ríkis-
stjórninni og vinum sínum hér.
Ég talaði líka við unnustu hans,
Miyoko Watai, en hún er forseti
japanska skáksambandsins.“
En hvernig var nú forsagan
að þessu?
„Ja, það var nú kannski fyrst
að ég fékk hann til þess að skrifa
ríkisstjórninni bréf. Ég fékk það
til mín úti á Spáni og kom því til
skila. Ég talaði bæði við Halldór
Ásgrímsson og Björn Bjarnason
og þeir tóku þessu erindi vel.
Davíð Oddsson var fjarverandi
vegna veikinda þegar þetta var
en ég fékk góða kveðju frá
honum. Nú svo gekk þetta eftir.“
Á Spáni segir þú.
„Já það er nú orðið okkar ann-
að heimili hjónanna.“
Hvar er þetta?
„Það heitir La Marina, rétt
hjá Alicante. Ég hef nú verið að
betrumbæta þetta, byggði við í
fyrra og svo var komið að því í
sumar að lagfæra gamla húsið,
skipta um glugga og svoleiðis.
En það er dýrlegt að vera þarna.
En svo er líka gott að koma
heim.“
Hvað tekur nú við í máli
Bobbys?
„Það væri nú best ef einhver
gæti farið til Japans og Bobby
vildi helst að ég kæmi. En ég veit
ekki hvað verður. Þetta er langt í
burtu, þetta er svolítið erfiður tími
og svo kostar þetta náttúrlega heil-
mikla peninga. En kannski vilja
einhverjir styrkja þetta.“ ■
34 17. desember 2004 FÖSTUDAGUR
WILLIAM SAFIRE
er einn þekktasti dálkahöfundur Bandaríkjanna.
Hann er 75 ára í dag.
Fischer vill Sæma til Japan
SÆMUNDUR PÁLSSON: TALAÐI VIÐ FISCHER Í HÁLFTÍMA Í NÓTT
„Síðast en ekki síst, forðist
staglið eins og pláguna.“
- Hann berst við fleiri plágur en vont málfar.
Clinton-hjónin voru plága í hans augum.
timamot@frettabladid.is
AFMÆLI
Vífill Magnússon arkitekt er 66 ára í dag.
Einar Karl Haraldsson
er 57 ára.
Jón Eldon Logason múrarameistari er 63
ára.
Hjördís Gissurardóttir gullsmiður er
54 ára.
Jón Kalman Stefánsson rithöfundur er 51
árs í dag.
ANDLÁT
Guðmundur E. Sigvaldason jarðfræðing-
ur lést miðvikudaginn 15. desember.
María Þuríður Ólafsdóttir frá Reyðarfirði,
Hlíðarhúsum 3, Reykjavík, lést þriðjudag-
inn 14. desember.
Þórdís Vigfúsdóttir, Droplaugarstöðum,
lést miðvikudaginn 15. desember.
Hrefna Hákonardóttir frá Vík í Mýrdal,
síðast til heimilis á Sæborg, Skagaströnd,
lést þriðjudaginn 14. desember.
María Helgadóttir frá Odda, Ísafirði, lést
þriðjudaginn 14. desember.
JARÐARFARIR
13.00 Haraldur Konráðsson, Seilugranda
3, Reykjavík, verður jarðsunginn frá
Fossvogskirkju.
13.00 Þórður Guðmundsson vélfræðing-
ur, Reykjaborg, Mosfellssveit, verður
jarðsunginn frá Dómkirkjunni.
13.00 Davíð Helgason, Laufási 3, Egils-
stöðum, áður í Fellsási 5, Mosfells-
bæ, verður jarðsunginn frá Grafar-
vogskirkju.
14.00 Guðmundur L. Friðfinnsson, rithöf-
undur og bóndi, Egilsá, Skagafirði,
verður jarðsunginn frá Silfrastaða-
kirkju.
14.00 Hreiðar Þorsteinn Gunnarsson,
Sólheimum, Grímsnesi, verður jarð-
sunginn frá Skálholtskirkju.
15.00 Guðrún Laufey Jónsdóttir, Blaka,
Hagamel 15, Reykjavík, verður jarð-
sungin frá Dómkirkjunni.
15.00 Jónas Guðjónsson, fyrrv. kennari,
verður jarðsunginn frá Laugarnes-
kirkju.
BOBBY FISCHER AÐ TAFLI VIÐ SPASSKY í einvíginu fræga í Sveti Stefan í Júgóslavíu í september 1992.
Þennan dag 1903 tókust þeir á loft í fyrsta sinn,
bræðurnir Wilbur og Orville Wright í vélflugu sinni.
Vélin sem var fyrsta vélknúna loftfarið, tvíþekja með
hreyfli, hélst á lofti í tólf sekúndur og sveif um 40
metra í jómfrúrferð sinni. Þessir bræður voru fæddir
og ólust upp í Dayton í Ohio í Bandaríkjunum. Þeir
voru lítt skólagengnir en hrifust af frásögnum af
svifflugum Þjóðverjans Ottó Lilienthal. Þeir fengust við
ýmiss konar smíðar, smíðuðu prentvél og gerðu við
reiðhjól. Þeim græddist fé á þessum umsvifum og
notuðu féð til tilrauna með svifflugur. Þeir útbjuggu
meðal annars vindgöng sem þeir notuðu til þess að
betrumbæta hönnunina. Alls er talið að þeir hafi próf-
að hundruð vængja og skrokka í göngunum. Þeim
tókst að útbúa stýri á sviffluguna og þá var bara eftir
að setja á hana hreyfil. Með aðstoð vélvirkjans
Charles Taylor smíðuðu þeir bræður 12 hestafla bens-
ínhreyfil. Fyrstu tilraunina gerði Orville 14. desember
en mistókst að komast á loft. Hreyfillinn hikstaði og
vélin stakkst á nefið. Eftir þrjá daga reyndu þeir á ný
og nú tókst þetta. Þeir flugu oftar þennan dag, lengst
tæpa þrjú hundruð metra og vélin var á lofti í 59 sek-
úndur. En það var ekki um að villast. Öld flugvélanna
var runnin upp. Flugvél þeirra Wright-bræðra er til
sýnis í Flugsögusafninu í Washington.
17. DESEMBER 1903 Orville Wright í fyrsta vélflugi
sögunnar.
ÞETTA GERÐIST MERKISATBURÐIR
1843 Jólaævintýri, „A Christmas
Carol“, eftir Charles Dick-
ens kemur út.
1875 Lög um yfirsetukonur taka
gildi. Þessi stétt kvenna
hefur í seinni tíð verið köll-
uð ljósmæður.
1944 Bandaríkjamenn sleppa úr
haldi löndum sínum af
japönskum uppruna en
þeir höfðu verið í haldi í
þrjú ér, eftir árás Japana á
Perluhöfn.
1970 Hafrannsóknaskipið Bjarni
Sæmundsson kemur til
Reykjavíkur í fyrsta sinn.
1990 Aristide vinnur fyrstu frjálsu
kosningarnar á Haítí.
1991 Stuðningsmenn Jeltsíns
lýsa yfir því að Sovétríkin
verði ekki til eftir næst-
komandi áramót.
Wright-bræður takast á loft
Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát
og útför systur okkar og frænku,
Guðrúnar L. Vilmundardóttur
Dunhaga 11, Reykjavík.
Guð blessi ykkur og gefi ykkur gleðilega jólahátíð og gæfuríkt
nýtt ár.
Þórunn Vilmundardóttir, Jón Árni Vilmundarson, Valgerður Vilmund-
ardóttir og frændsystkini.
Í desember 1901 náði Ítalinn
Marconi langþráðum áfanga. Hann
náði að senda þráðlaust skeyti yfir
Atlantshafið frá Poldhu í Cornwall
til Nýfundnalands. Þetta var
stafurinn S á morsi.
Úrtölumenn höfðu haldið því
fram að þetta væri ekki hægt,
bunga jarðarinnar kæmi í veg
fyrir það. Marconi var fæddur í
Bologna á Ítalíu 1874, faðir hans
var ítalskur en móðirin írsk. Hann
lagði stund á eðlisfræði og fékk
áhuga á útvarpssendingum eftir að
hafa lesið um tilraunir þýska eðlis-
fræðingsins Heinrichs Hertz. Til-
raunir hans til þráðlausra sendinga
vöktu lítinn áhuga á Ítalíu og hann
fluttist til Englands. Þar tókst
honum 1899 að senda skeyti yfir
Ermarsund. En mesti sigurinn var
12. desember 1901 þegar hann tók
á móti loftskeyti í St. Johns á Ný-
fundnalandi sem sent hafði verið
frá stöð í Englandi. Þessi tíðindi
gerðu Marconi heimsfrægan.
Árið 1909 fékk Marconi Nóbels-
verðlaunin í eðlisfræði ásamt Þjóð-
verjanum Ferdinand Braun. Ís-
lendingar, með skáldið Einar Bene-
diktsson í fararbroddi, höfðu áhuga
á að nýta sér uppfinningu Marcon-
is til þess að koma á sambandi við
umheiminn. Málið var rætt á Al-
þingi og nefnd sett á laggirnar til
þess að kanna hvort þessi kostur
hentaði okkur. Nefndin skilaði
aldrei lokaniðurstöðu og ekki varð
af því að hér yrði sett upp
loftskeytastöð í samvinnu við
Marconi-félagið. Hannes Hafstein
samdi við Mikla norræna símafé-
lagið í mikilli andstöðu við stjórn-
arandstöðuna á Alþingi og sæsími
var lagður til Íslands.
Marconi-félagið starfrækti þó
litla loftskeytastöð við Rauðará í
Reykjavík 1905 sem starfaði fram
á haust 1906 en þá tók Landssími
Íslands til starfa sem notaði sam-
band um sæstreng. Bændaferðin
fræga til Reykjavíkur var einmitt
farin að undirlagi stjórnarandstöð-
unnar til þess að hvetja til þess að
loftskeyti yrðu notuð en ekki síma-
þráður. Það er því sögulegur útúr-
snúningur að sunnlenskir bændur
hafi með þessu verið að mótmæla
framförunum. Marconi lést 1937
og breska ríkisútvarpið minntist
hans með tveggja mínútna þögn,
sem eins mesta frumherja út-
varpssendinga. ■
Tilkynningar um
merkisatburði, stórafmæli,
andlát og jarðarfarir
í smáletursdálkinn hér
á síðunni má senda
á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á
auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma
550 5000.
Þráðlaust skeyti yfir Atlantshafið
MARCONI Sendi þráðlaust skeyti þrátt fyrir að úrtölumenn héldu því fram að það væri
ekki hægt.
66-67 (34-35) Tímamót 16.12.2004 14.12 Page 2