Fréttablaðið - 17.12.2004, Page 80

Fréttablaðið - 17.12.2004, Page 80
FÖSTUDAGUR 17. desember 2004 FRÁ KEFLAVÍK TIL FRANKFURT Á 21.000 PUNKTUM FARÐU ÚT Á VILDARPUNKTUM Viltu komast í hóp þeirra 21.205 VISA korthafa sem nú þegar eiga næga vildarpunkta til að fljúga frítt út með Icelandair? Þú safnar punktum m.a. þegar þú notar Vildarkort VISA hér heima. Ert þú ekki örugglega að safna? Kannaðu málið á www.visa.is/vildarkort til að vera viss. FÓR Í SKÍÐASKÓLA Í AUSTURRÍKI Síðast þegar við fjölskyldan fórum í skíðaferð þá gátum við notað Vildarpunktana fyrir stelpuna okkar. Við flugum til Frankfurt með Icelandair og keyrðum svo til Lech í Austurríki. Myndin er tekin þegar við erum að sækja hana í skíðaskólann þar sem hún eignaðist fullt af vinum, m.a. frá Ástralíu, Portúgal og Ungverjalandi. GRÉTAR ÓLASON Í KEFLAVÍK: Á 20 feta gám af jólaskrauti Grétar Ólason, eða Jólason, eins og gárungarnir í Keflavík kalla hann, býr í Las Vegas-hluta bæjarins. Þegar Keflavíkurbær hóf að verð- launa bæjarbúa fyrir jólaskreyt- ingar fékk Grétar viðurkenningu fyrir frumkvöðlastarf og árið eftir vann hann fyrstu verðlaun. „Mamma skreytti alltaf rosalega mikið og ég hef þetta frá henni. Ég fer sérstaklega utan á hverju ári til að skoða jólaskraut og kaupi þegar mig langar í eitthvað nýtt. Reyndar á ég tuttugu feta gám stútfullan af jólaskrauti, fyrir utan það sem nú er á húsinu og í garðinum,“ segir hann hláturmildur og alveg sama þótt einhverjir geri grín að þessu. „Ég skipti þessu voða mikið út og er aldrei með það sama uppi tvisvar. Ég versla alltaf óhemju mikið á hverju ári, þótt ekki fari allt upp. Ég lána líka og skreyti hjá tengdaforeldrum mínum og mág- konum þegar ég er í góðu skapi og þær ekki heima. Ég skreyti líka húsið á móti með mínu skrauti og reyni með því að smita liðið.“ Grétar kveikir á allri dýrðinni fyrsta sunnudag í aðventu en þá hefur hann eytt viku í uppsetn- ingu ljósaskrautsins. „Andvirði jólaskrautsins er gífurlegt en ég pæli ekkert í því hvað hlutirnir kosta ef mér finnst þeir fallegir. Sumir fárast líka yfir því hvað ég eyði miklu í rafmagn en mér er alveg sama þótt reikningurinn sé eitthvað hærri í desember. Þetta eru nú einu sinni 22 þúsund perur!“ ■ 78-79 (46-47) Jól 16.12.2004 19:21 Page 3

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.