Fréttablaðið - 17.12.2004, Side 81
Danny Ocean og félagar hans
voru í góðum málum í lok mynd-
arinnar Ocean’s Eleven árið 2001.
Þessum ellefu atvinnuglæpa-
mönnum hafði tekist að ræna
vænum slatta af milljónum úr
spilavítum hins illvíga Terry
Benedict sem Andy Garcia lék
með miklum stæl.
Bófagengið leystist upp og
hver hélt sína leið með fúlgur fjár
á milli handanna. Benedict er hins
vegar ekki maður sem lætur ræna
sig án þess að slíkt hafi afleiðing-
ar og í framhaldsmyndinni
Ocean’s Twelve hefur hann hend-
ur í hári allra úr Ocean-genginu
og heimtar endurgreiðslu á þýf-
inu með vöxtum. Vinirnir fá tvær
vikur til að ganga frá skuldinni og
gangi það ekki eftir verður þeim
komið fyrir kattarnef.
Ocean og félagar hans sjá sér
ekki annað fært en að taka upp
fyrri iðju og afla sér fjár á þann
hátt sem þeir gera best. Þeir eru
hins vegar svo þekktir í Banda-
ríkjunum að þeir geta ekki hreyft
sig þar og ákveða því að láta
greipar sópa í Evrópu og byrja í
Amsterdam.
Þeir verða fyrir ýmsum
skakkaföllum á Evrópuflakki sínu
og komast að því að þeir eiga í
höggi við fleiri en Benedict þar
sem einn allra besti innbrotsþjóf-
ur í heimi telur sig eiga óuppgerð-
ar sakir við gengið og bregður
fyrir það fæti við öll tækifæri. Til
að bæta gráu ofan á svart er svo
Catherine Zeta-Jones mætt til
leiks í hlutverki Isabel Lahiri. Sú
er fremsti sérfræðingur Europol í
glæpamönnum af þessu sauðahúsi
og er alltaf á hælunum á Ocean-
genginu enda vill svo óheppilega
til að einn meðlimurinn, Rusty
Ryan (Brad Pitt), er fyrrverandi
kærasti hennar.
Ocean’s Eleven er endurgerð
samnefndrar myndar frá árinu
1960 en þar lék Frank Sinatra
Ocean og hafði ekki minni menn
en Dean Martin og Sammy Davis
Jr. sér við hlið. Leikstjórinn
Steven Soderbergh smalaði sam-
an engu minni töffurum fyrir
endurgerðina en Clooney fór fyrir
genginu dyggilega studdur af
Brad Pitt, Matt Damon, Don
Cheadle og fleirum. Allt þetta
gengi er saman komið í Ocean’s
Twelve. Julia Roberts leikur sem
fyrr Tess, eiginkonu Dannys, en
Zeta-Jones er ferskasta viðbótin
en hún kom hvergi nærri fyrstu
myndinni.
Þessir leikarar tengjast inn-
byrðis eftir ýmsum leiðum en
margir þeirra hafa unnið með
Soderbergh áður. Julia Roberts
hefur komið við sögu í allmörgum
myndum kappans, þar á meðal
Erin Brockovich og Full Frontal.
Zeta-Jones og Don Cheadle léku
bæði undir stjórn Soderberghs í
Traffic þannig að það er ljóst að
leikstjórinn tengist samstarfs-
fólki sínu traustum böndum. ■
48 17. desember 2004 FÖSTUDAGUR
Nýtt á DVD
Spennumyndin I, Robot er komin út á tvöföldum DVD-diski þannig að það er
enginn skortur á aukaefni fyrir þá sem vilja kynnast gerð myndarinnar nánar.
Farið er ofan í saumana á tæknibrellum og rætt við hina og þessa sem komu
að gerð myndarinnar. Myndin sjálf stendur svo fyllilega fyrir sínu en í henni
leikur Will Smith lögreglumann sem hefur vélmenni grunað um morð.
„Ten oughta do it, don't you think? You think
we need one more? You think we need one
more. Alright, we'll get one more.“
- George Clooney kemst að þeirri niðurstöðu í Ocean’s Eleven
að hann þurfi ellefu menn til að ræna rammgert spilavíti.
Góðra vina endurfundur
DANNY OCEAN OG FÉLAGAR Catherine Zeta-Jones gerir genginu lífið leitt í Ocean’s
Twelve en hún er hressilegasta viðbótin við glæsilegan leikhópinn sem endurtekur leikinn
frá því í Ocean’s Eleven.
[ aðsóknarmestu ]
BÍÓMYNDIR SÍÐUSTU HELGAR
BLADE: TRINITY
Tólf manna gengið
hans Oceans rauk á
toppinn í Bandaríkjun-
um en Blade fylgir á
eftir í öðru sætinu og
er til alls líklegur.
AÐSÓKNARMESTU MYNDIRNAR Í BANDA-
RÍKJUNUM HELGINA 10.-12. DESEMBER:
Ocean's Twelve
Blade: Trinity
National Treasure
The Polar Express
Christmas with the Kranks
The Incredibles
The SpongeBob SquarePants Movie
Closer
Finding Neverland
Alexander
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
JULIA ROBERTS Var áberandi í Ocean’s
Eleven en það fer öllu minna fyrir henni í
framhaldsmyndinni þó hún taki vissulega
góða spretti.
80-81 (48-49) Bíósíða 16.12.2004 19:16 Page 2