Fréttablaðið - 17.12.2004, Page 87
5 690691 220006
RÁ‹ – ÚR LÚ‹A Í FLAGARA
2004 899 kr. m/vsk 10.tbl. 16. árg. nr. 120
16
– Stefán Máni talar
út í bOGb viðtali
FASISTI“
„ÉG HELD ÉG SÉ FYRST OG FREMST
N† TÓNLIST – BÆKUR – DVD – TÍSKA
Menn ársins
JÓLASAMSÆRIÐ
MIKLA!
– Það sem enginn þorir
að segja um jólin
blondiner.se
Erpur
og Byltingarbarinn
– SÆNSKT GÆ‹ASTÁL
SKOTIN OG SKORIN Á HÁLS
Jólasteikin
HEIDI
FLEISS
BÍLAR
Ekki
Í KÖTTINN, STRÁKAR
– SPARIFÖT Á PRÚ‹A DRENGI
JÓLASVEINARNIR
– HVERJIR ERU ÞEIR?
Í ÍSLENSKU SAMFÉLAGI
Lilja Nótt
– Hin íslenska
Marlene Dietrich
N † T T O G F E R S K T Í H V E R J U M M Á N U ‹ I
Hermann Stefánsson hefur
sent frá sér smásagnasafn
sem mynda heila skáldsögu
þar sem spurt er um sam-
band skáldskapar og veru-
leika.
Hver eru tengsl skáldskaparins
við veruleikann? Þessi sígilda
spurning er eitt af viðfangsefnum
Hermanns Stefánssonar í hinu
óvenjulega smásagnasafni Níu
Þjófalyklar. Auk stóru sígildu
spurninganna varpar Hermann
skemmtilegu ljósi á samskipti
kynjanna og tekst á við íslensk
samtímaskáld, einkum þó Ólaf
Jóhann Ólafsson.
„Þetta eru smásögur sem í
rauninni mynda eina skáldsögu,“
segir Hermann. Þemað sem smá-
sögurnar eiga sameiginlegt er að
höfundur þeirra, Guðjón Ólafsson
smásagnahöfundur, hefur ein-
hverja óútskýranlega tilhneig-
ingu til þess að skíra söguhetjurn-
ar sínar Ólaf Jóhann Ólafsson.
Hann hefur líka tilhneigingu til
þess að stela úr verkum annarra,
eins og til dæmis Davíðs Oddsson-
ar. Síðan kemur í ljós í lok sögunn-
ar hvers vegna þetta er svona.
Þetta eru sögur sem takast á
við gamaldags spurningar, eins
og: Hvert er samband skáldskap-
ar og veruleika. Hvar endar
skáldskapurinn og veruleikinn
tekur við – og öfugt. Í bókinni
sjálfri er það þannig að skáld-
skapurinn endar á síðustu síðunni
og veruleikinn tekur við á kápu-
textanum vegna þess að það er
Ólafur Jóhann sjálfur sem skrifar
á káputextann – og gerir það með
miklum glæsibrag. Hann, sem
sagt, las yfir handritið og skrifaði
káputextann.“
Hermann segir sögurnar frem-
ur gamansögur en ádeilusögur –
en þó gamansögur með pælingum.
„Sögurnar eru býsna ólíkar. Ein
þeirra fjallar, til dæmis, um mann
sem finnur týndan dal inni í miðju
landi. Sá maður heitir auðvitað
Ólafur Jóhann Ólafsson. Önnur
fjallar um líf öskukarla í Reykja-
vík, ein fjallar um mann sem er
strætisvagnastjóri og verður
fyrir því að einhver sjónvarpsstöð
beitir hann hrekkjum, kemur
fyrir falinni myndavél og sendir
sama fólkið inn til hans aftur og
aftur – þar til hann fer að efast um
geðheilsu sína.
Lokasagan fjallar um þennan
smásagnahöfund, Guðjón Ólafs-
son, sem fer á fund rithöfundar-
ins Ólafs Jóhanns til þess að skýra
sitt mál út fyrir honum og biðja
hann eiginlega leyfis til þess að
láta sögurnar heita þessu nafni. Á
þeim fundi kemur fram skýringin
á því hvers vegna smásagnahöf-
undurinn hefur haft þessa undar-
legu tilhneigingu.“
Á haustdögum vakti athygli
frétt um að Hermann hefði hlotið
bókmenntaverðlaun Guðbjarts
Jónssonar fyrir umrætt smá-
sagnasafn og þetta væri í fyrsta
sinn sem karlmanni hlotnaðist sá
heiður að vera handhafi þeirra.
Enginn kannaðist við þessi merku
bókmenntaverðlaun – enda þau
skáldskapur einn.
„Þetta eru verðlaun forlagsins
og þau eru skálduð,“ segir
Hermann, „en í rauninni er eng-
inn munur á verðlaunum og skáld-
uðum verðlaunum. Það eru öll
íslensk bókmenntaverðlaun
skálduð. Það ætti að skálda upp
fleiri verðlaun til þess að hafa
meiri fjölbreytni í þessu. Ef þú
skáldar upp verðlaun er enginn
munur á þeim og öðrum verðlaun-
um. Þau þýða bara að einhverjum
finnst bókin góð.“ ■
Gamansögur með pælingum
BÆKUR
MELKORKA ÓSKARSDÓTTIR
Heim
Höf. Valgerður Þóra Benediktsdóttir
Útg. Pjaxi
Heim er fjórða skáldsaga Valgerðar
Þóru sem komið hefur út á prenti.
Sagan gerist á óræðum tíma og
óræðum stað. Hún segir frá stúlkun-
um Vastí og Söru sem eru fluttar
nauðugar frá heimilum sínum í Norð-
urálfu til Austurálfu þar sem þær gift-
ast kónginum Marsena. Þær sakna
báðar heimalandsins og enda með
því að snúa aftur. Önnur þeirra fer að
kenna dans en hin á erfitt með að
festa rætur og reynir að öðlast
hugarró með því að semja sögur.
Frásögnin er sett fram sem margar
litlar myndir eða minni frásagnir sem
segja frá reynslu kvennanna í heima-
högum og konungsríkinu, söknuði
þeirra, ástum og endurkomu til fóst-
urjarðarinnar. Ýmislegt skortir í upp-
byggingu sögunnar og skipulagi.
Mótsagnir er víða að finna og misfell-
ur; ýmist er konungurinn góður og
vandaður maður eða grimmur og ill-
gjarn, konurnar virðast vera sjálf-
stæðar og ástsjúkar á víxl, fáar per-
sónur vita hvort þær eru að koma
eða fara og ruglar þetta lesandann
umtalsvert.
Ekki geri ég mér alveg grein hvaða
aldurshópi bókin er ætluð, hugsan-
lega er um unglingabók að ræða, en
lýsingar á ástarfundum persóna
minna óneitanlega á rauðu seríuna
svokölluðu. Að einhverju leyti byggir
bókin á sögulegum staðreyndum
– Tyrkjaráninu – en persónur og að-
stæður þeirra eru ansi nútímalegar.
Ýmsan boðskap er hægt að lesa úr
sögunni, svo sem að gott sé að trúa á
guð, ættjörðin sé hverjum manni
mikilvæg og að ekki sé hægt að vaxa
upp og dafna án þess að hafa rætur
á einhverjum stað. Einnig mætti af
bókinni skilja að konur í Austurálfu
séu hálf litlausar, menningin þar
grimm og að hlutverk kvenna al-
mennt sé að elska karlmann og
hugsa vel um hann. Þau eru mörg og
mislit púslin í sögu Valgerðar Þóru og
því miður verður heildarmyndin
fremur ósamstæð.
Við erum ekki kölluð bókaþjóð
fyrir ekki neitt, – flóðið sem ríður yfir
á hverju ári ber tjáningarþörf landans
og áhuga á bókmenntum ótvírætt
vitni. Á Íslandi eru allir skáld og flest-
ir hafa tækifæri til að koma verkum
sínum á framfæri á einn eða annan
hátt. Það er að sjálfsögðu ekkert
minna en stórkostlegt að búa við slíkt
tjáningarfrelsi. Sagan Heim ber því
frelsi og sköpunargleðinni vitni, en
undirrituð saknaði meira samhengis í
sögunni og þótti fyrir vikið erfitt að
greina raunverulegt umfjöllunarefni
bókarinnar. Melkorka Óskarsdóttir
54 17. desember 2004 FÖSTUDAGUR
Óskýrar myndir
HERMANN STEFÁNSSON Það ætti að skálda upp fleiri verðlaun til þess að hafa meiri
fjölbreytni í þessu.
Nýlega kom út vönduð bók með
vatnslitamálverkum eftir Haf-
stein Austmann. „Litbrigði vatns-
ins“ nefnist bókin, sem er gefin út
í tilefni af sjötugsafmæli Haf-
steins og yfirlitssýningar á vatns-
litamyndum hans, sem haldin var
í Listasafni ASÍ í sumar.
„Ég byrjaði í vatnslitunum
þegar ég var strákur,“ segir
Hafsteinn. „Stundum tek ég mér
tíma og einbeiti mér eingöngu
að vatnslitunum, en tímabilin
eru misjafnlega góð.“
Bókin var gefin út að frum-
kvæði Marteins Viggóssonar.
Inngang skrifar Aðalsteinn Ing-
ólfsson listfræðingur. Sjálfur er
Hafsteinn afskaplega ánægður
með útkomuna.
„Hann Marteinn gerði þessa
bók sér til skemmtunar og til að
tapa á henni. Hann á hrós skilið
fyrir það hve vandað er til
verks.“
Í bókinni eru birt um það bil
sextíu verk allt frá sjötta áratug
síðustu aldar til nýrra mynda
sem málaðar voru á þessu ári.
Þar má því fá gott yfirlit yfir
feril Hafsteins sem vatnslita-
málara.
„Ég hef aldrei tekið neinum
stökkbreytingum, þótt það megi
greina ákveðna þróun í myndun-
um,“ segir Hafsteinn, sem allan
sinn feril hefur haldið tryggð
við abstraktlistina.
„Ég var hundskammaður fyr-
ir það í gamla daga að mála ekki
landslag. Þá var rifist um þetta,
en það er annað núna. Núna eru
menn með einhverja hugmynda-
list, og það er allt í lagi mín
vegna. En ég er kominn í sömu
aðstöðu og kallarnir þegar ég
var ungur.“
Hafsteinn hefur kennt mynd-
list í 20 ár og fullyrðir að ekki sé
hægt að kenna fólki neitt nema
tækni.
„Það er ekki hægt að kenna
fólki að vera myndlistarmenn.
En núna er ekki lengur lagt neitt
upp úr tækninni, og þá eru
myndlistarskólarnir orðnar
óþarfar stofnanir. Fólk ætti
frekar að fara í heimspeki þar
sem hægt er að tala saman um
þetta.“ ■
Okkur á FRÉTTABLAÐINU og DV langar
að óska blaðberum okkar gleðilegra jóla og
farsældar á komandi ári.
Um leið viljum við óska eftir enn fleiri
duglegum blaðberum í okkar raðir.
Við erum með laus hverfi í ýmsum póstnúmerum, bæði
um helgar og virka daga. Einnig vantar okkur fólk til að
leysa af núna í jólamánuðinum. Áhugasamir hafi samband
við dreifingu Fréttar ehf. í síma 515-7590.
Litbrigði vatnsins
HAFSTEINN AUSTMANN
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/H
AR
I
86-87 (54-55) Menning 16.12.2004 19:09 Page 2