Fréttablaðið - 12.02.2005, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 12.02.2005, Blaðsíða 1
● selja kleinur til að fjármagna Handboltinn í Eyjum: ▲ SÍÐA 34 Kostar tugi milljóna á ári ● gerir athugasemd við svör rithöfundarins Kári Stefánsson: ▲ SÍÐA 26 Svarar Hall- grími Helgasyni MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI LAUGARDAGUR MYND ÁRSINS 2004 Hin árlega ljósmyndasýning Blaðaljósmyndarafélags Íslands, Mynd ársins 2004, verður opnuð í tíunda sinn í Gerðarsafni í dag. Á neðri hæð safnsins verður jafnframt opnuð ljósmyndasýning Ragnars Axelssonar. DAGURINN Í DAG 12. febrúar 2005 – 41. tölublað – 5. árgangur RÁÐHERRA LÍTI SÉR NÆR Fjármála- ráðherra segir vínbirgja ekki láta lækkandi gengi skila sér í vöruverði. Heildsalar vísa gagnrýninni á bug og segja fáar vörur greiddar í dollurum. Vegna skattastefnu ráðherrans sé innkaupsverð lítill hluti af verði vínflösku. Sjá síðu 2 92 ÁKÆRÐIR FYRIR MÚTUR Rann- sókn á mútuþægni tuga starfsmanna sænsku áfengiseinkasölunnar hefur leitt til þess að 77 þeirra verða ákærðir. Starfsmenn norsku áfengiseinkasölunnar hafa einnig sætt rann- sókn en sleppa við ákæru. Sjá síðu 4 BÓTAGREIÐSLUR MARGFALDAST Bætur sem sjúklingar hafa fengið hjá Trygg- ingastofnun eftir læknismeðferð hafa hækkað úr tugum þúsunda í tugi miljóna á síðustu fjórum árum. Samtals hafa um- sóknir frá 77 einstaklingum verið sam- þykktar á þessum tíma. Sjá síðu 6 Kvikmyndir 42 Tónlist 40 Leikhús 40 Myndlist 40 Íþróttir 34 Sjónvarp 44 Veffang: visir.is – Sími: 550 5000 ÍBÚÐALÁNASJÓÐUR Tæpar tólf millj- ónir króna í skyldusparnaði liggja enn inni hjá Íbúðalánasjóði, að sögn Halls Magnússonar, sviðsstjóra hjá Íbúðalánasjóði. Um þúsund ein- staklingar eiga gamla skyldusparn- aðinn sinn eða hluta af honum í vörslu sjóðsins, sem tók við honum af Húsnæðisstofnun. Skyldusparnaðurinn var aflagð- ur árið 1993. Fyrir fjórum árum var farið í átak til þess að koma þessum fjármunum til eigenda sinna. Þá nam heildarupphæð með vöxtum tæpum 37 milljónum króna. Í dag er ósóttur skyldu- sparnaður 11,9 milljónir. Þessir fjármunir hafa verið vaxtalausir frá 1. janúar 2000 samkvæmt laga- ákvæði um skyldusparnað. „Í flestum tilfellum er um afar lágar fjárhæðir að ræða,“ segir Hallur. „Eigendurnir virðast flestir vera búsettir í útlöndum. Undan- farið ár höfum við verið með mann- eskju í því með öðru að leita uppi fólk, sem á inni skyldusparnað en hefur ekki áttað sig á því, víðs veg- ar um heiminn. Við höfum lagt mikið á okkur og meðal annars not- að Íslendingabók til þess að rekja ættir manna og koma skilaboðum til ættingja um að þeir eigi peninga hér.“ Spurður um fyrningu þessara fjármuna sagði Hallur að ef til vill fyrntust þeir í samræmi við fyrn- ingu bankainnistæðna sem ekki væru hreyfðar í 20 ár. -jss BORGARMÁL Íbúar í Reykjavík borga ríflega tvöfalt meira í fasteigna- skatt nú en þeir gerðu þegar R-list- inn tók við fyrir ellefu árum að sögn Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokks- ins. Hann segir að eftir að hafa skoðað ársreikninga borgarinnar síðastliðin tólf ár hafi þessi sláandi tala komið í ljós. Guðlaugur Þór segir að fast- eignagjöldin hafi hækkað um tæp- lega 90 prósent en þegar holræsa- gjöldunum sé bætt við sé talan 114 prósent. Eðlilegt sé að taka þessi gjöld saman því þau leggist bæði á fasteignaeigendur. Árið 1993 hafi fasteignaskatturinn verið 28 þús- und á íbúa en sé í dag 113 þúsund. Guðlaugur Þór segir þessa hækkun gríðarlega mikla og alls ekki í takt við það sem Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hafi sagt nýlega í fjölmiðlum. „Hvað fasteignagjöldin varðar sagði hún að það ætti að fara var- lega og R-listinn hefði gert það. Í mínum huga er 114 prósenta hækk- un ekki að fara varlega. Á sama tíma og ríkisstjórnin er að afnema eignaskattinn þá hækkar R-listinn fasteignaskattinn út í það óendan- lega. Þetta kemur sérstaklega illa niður á þeim sem minnst mega sín eins og eldri borgurum og þeim sem eru að kaupa sína fyrstu íbúð.“ Ingibjörg Sólrún telur ekki rétt að segja að fasteignaskattar hafi hækkað því álagningarhlutfallið hafi ekki gert það. Hins vegar hafi fasteignamat hækkað mikið undan- farin ár og því greiði fasteigna- eigendur hærri upphæð en áður. Hún segir þessa staðreynd alls ekki einskorðast við íbúa Reykja- víkur. „Guðlaugur getur reiknað þetta eins og honum sýnist, eftir stendur sú staðreynd að fasteigna- eigendur greiða lægst gjöld af eignum sínum í Reykjavík borið saman við önnur sveitarfélög á höf- uðborgarsvæðinu.“ Guðlaugur Þór segir að hækkun á fasteignamati megi að stórum hluta rekja til „lóðaskortsstefnu“ R-listans. „Þetta er einfaldlega rangt,“ segir Ingibjörg Sólrún. „Guðlaugur Þór ætti að kynna sér þær úttektir sem gerðar hafa verið á þessu, með- al annars í Seðlabankanum. Stærstu áhrifavaldarnir á hækkun fast- eignaverðs eru kaupmáttaraukning og aukið aðgengi að lánsfé.“ - th Greiða tvöfalt hærri fasteignaskatta en áður Guðlaugur Þór Þórðarson segir Reykvíkinga borga tvöfalt hærri fasteignaskatta nú en þegar R-listinn tók við völdum. Hærra fasteignamat veldur hækkunum en álagningarhlutfall hefur ekki hækkað, segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir. BEÐIÐ EFTIR FRUMSÝNINGU Tosca, sem hefur verið ein vinsælasta ópera sögunnar, var frumsýnd í Íslensku óperunni í gærkvöld við góðar undirtektir og virtust gestir hlakka mikið til að sjá þetta stærsta verk Óperunnar á þessu leikári. Arni Kópsson: ▲ Í MIÐJU BLAÐSINS Keyrir um á kappakstursbíl ● bílar Allt landið 18-49 ára Me›allestur dagblaða Samkvæmt fjölmi›lakönnun Gallups nóvember 2004 MorgunblaðiðFréttablaðið 62% 38% VEÐRIÐ Í DAG FREMUR HÆGUR VINDUR Síðan bætir í vind þegar líður á daginn. Strekkingur eða allhvasst norðaustan- lands. Áfram frost. Sjá síðu 4 Umfangsmesta náttúruverndaraðgerð Íslands Er kallaður Fargjaldur SÍÐUR 32 ▲ Vatnajökulsþjóðgarður verður til SÍÐA 30 ▲ Ingjaldur Hannibalsson ferðalangur með meiru: Leitað að eitt þúsund eigendum skyldusparnaðar: Tólf milljónir króna hafa gleymst Friðjón á Sandi: Hættur eftir 65 ára starf VEÐURATHUGANIR Friðjón Guð- mundsson, bóndi á Sandi í Aðaldal, lét nýlega af störfum sem veður- athugunarmaður. Hann hafði þá gegnt þessu starfi í 65 ár eða frá ársbyrjun 1940 en þá var hann tví- tugur. Magnús Jónsson veðurstofu- stjóri segir að enginn íslenskur veðurathugunarmaður hafi verið jafn lengi við störf og Friðjón og fáir slá honum við á heimsvísu. Sennilega á bandarískur veður- athugunarmaður þó metið en hann starfaði í 76 ár. Magnús býst við að veðurathug- unum verði hætt á Sandi en þar hefur verið rekin svokölluð veður- farsstöð síðan 1932. - shg FR ÉT TA B LA Ð IÐ /H AR I ● reyndi að losna við stafsetningarvillur Benedikt Nikulás Anes Ketilsson: ▲ SÍÐA 46 Textaði fótboltaleik Vinsæll borgarstjóri: Í framboð úr fangelsi MEXÍKÓ, AP Borgarstjórinn í Mex- íkóborg hótar að fara í forseta- framboð úr fangelsisklefa ef hann verður dreginn fyrir dómstól og dæmdur í fangelsi. Andres Manuel Lopez Obrador borgarstjóri er ákærður fyrir að hunsa dómsúrskurð vegna land- notkunar borgarinnar og íhuga þingmenn að svipta hann þing- helgi svo hægt sé að rétta yfir honum. ■ 01 Forsíða 11.2.2005 22.09 Page 1
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.