Fréttablaðið - 12.02.2005, Qupperneq 2
2 12. febrúar 2005 LAUGARDAGUR
Talsmaður Falun Gong á Íslandi:
Hyggst kæra ítrekað ónæði
ÁREITI Þórdís Hauksdóttir, talsmað-
ur Falun Gong á Íslandi, hefur leit-
að til lögreglunnar og ætlar að
kæra ítrekaðar símhringingar í
símanúmer sitt þar sem er spilað-
ur af bandi áróður gegn Falun
Gong. Áróðurinn segir Þórdís vera
fluttan á ensku og á kínversku.
Þórdís segir marga félaga í
Falun Gong víðs vegar um heim-
inn hafa orðið fyrir ónæðinu þó
hún viti ekki um aðra Íslendinga.
Í Bandaríkunum segir hún hafna
lögreglurannsókn á málinu en
slóð áróðursmannanna sé vel hul-
in og því hafi ekki verið hægt enn
sem komið er að rekja slóðina.
„Þessar hringingar eru óþolandi
og spilla friðhelgi einkalífsins. Ís-
land er frjálst lýðræðisríki þar
sem frelsi ríkir innan nokkuð heil-
brigðra marka og mér finnst óþol-
andi að verða fyrir slíkum árásum
af hálfu erlends kúgunarvalds,“
segir Þórdís, sem ætlar að fara
fram á lögreglurannsókn. Hún tel-
ur kínversk stjórnvöld standa fyr-
ir áreitinu en eftir mótmæli sam-
takanna í tengslum við heimsókn
Jiang Zemin, forseta Kína, hingað
til lands ræddi hún opinberlega
um iðkun sína.
Ómar Smári Ármannsson, að-
stoðaryfirlögregluþjónn í Reykja-
vík, segir hentugast fyrir þá sem
verða fyrir ítrekuðu áreiti í formi
símhringinga að hafa samband
við sitt símafyrirtæki og láta skrá
niður þau símtöl sem berast og
kæra svo til lögreglu. - hrs
DÓMSMÁL Fyrrverandi forstöðu-
maður áfangaheimilis trúfélags
var í Héraðsdómi Reykjavíkur
dæmdur í þriggja og hálfs árs
fangelsi fyrir ítrekuð og svívirði-
leg kynferðisbrot gegn stjúpdótt-
ur sinni. Hann var hins vegar
sýknaður af kynferðisbrotum
gegn stjúpsyni sínum á árunum
1997 til 2002. Brotin gegn
stúlkunni framdi hann frá árinu
1989 til 1994.
Maðurinn hélt því fram í yfir-
heyrslum hjá lögreglu og fyrir
dómi að stjúpdóttir hans hefði sótt
kynferðislega á hann síðan hún
var átta ára gömul. Segir í dómn-
um að maðurinn hafi fullkomlega
brugðist því trausti sem hann
hafði sem stjúpfaðir. Þar sem
vitnisburður stjúpsonarins þótti
ekki nægilega styrkur miðað við
framburð annarra þótti því ósann-
að að stjúpfaðirinn hefði gerst
sekur um þau brot sem honum
voru gefin að sök í ákæru.
Upp komst um málið þegar
grunur vaknaði hjá félagsmála-
yfirvöldum um að dóttir manns-
ins, og hálfsystir stjúpbarna hans,
hefði orðið fyrir kynferðislegri
áreitni. Sálfræðingur segir börnin
hafa beðið mikið tjón af samskipt-
um sínum við fyrrverandi stjúp-
föður. Var honum gert að greiða
stjúpdóttur sinni 1,2 milljónir
króna í skaðabætur. - hrs
Ráðherra líti sér nær
Fjármálaráðherra segir vínbirgja ekki láta lækkandi gengi skila sér í vöruverði.
Heildsalar vísa gagnrýninni á bug og segja fáar vörur greiddar í dollurum.
Vegna skattastefnu ráðherrans sé innkaupsverð lítill hluti af verði vínflösku.
NEYTENDUR Áfengisheildsalar vísa
á bug ásökunum fjármálaráð-
herra um að þeir lækki ekki verð
á víni sem keypt er fyrir Banda-
ríkjadollara, í samræmi við lækk-
andi gengi dollarans.
Geir H. Haarde fjármálaráð-
herra lýsti þessum skoðunum sín-
um á Morgunvakt Rásar tvö í
gærmorgun og sagði að sig grun-
aði að heildsalar lækkuðu ekki
vörur sem væru greiddar í dollur-
um. Aðspurður hvort hann gæti
nefnt sérstaka vörutegund í þess-
um efnum nefndi Geir áfengi.
Hann þekkti vel til þar og vissi að
mikið af víni væri keypt í dollur-
um og hann væri ekki viss um að
lágt gengi hefði skilað sér í kaup-
verð. „Heildsalarnir sem þar eiga
hlut að verða að standa sig betur.“
„Ölgerðin flytur engar vörur
inn fyrir Bandaríkjamynt, þetta
er allt í evrum,“ segir Bjarni
Brandsson, deildarstjóri í áfeng-
isdeild Ölgerðarinnar. Bjarni seg-
ir að fyrir nokkrum árum, þegar
dollarinn var sem hæstur, hafi
flestir farið að greiða fyrir vörur
í evrum og segir að þær vörur
sem greiddar séu í dollurum séu
aðeins örlítill hluti af vörulager
ÁTVR.
Ásgeir Johansen, fram-
kvæmdastjóri Rolf Johansen &
Company, segir að þar séu mjög
fáar vörur greiddar í dollurum og
einnig að innkaupsverð birgja sé
sáralítill hluti af verði til ÁTVR.
„Áfengisgjaldið er svo stór hluti
að jafnvel þótt innkaupsverðið
lækki endurspeglast það að litlu
leyti í verðinu.“
Undir þetta tekur upplýsinga-
fulltrúi Karls K. Karlssonar ehf.
sem og Guðrún Björk Geirsdóttir,
deildarstjóri í víndeild Austur-
bakka. „Innkaupsverð af einni
léttvínsflösku er kannski dollari.
Við það bætist alkóhólgjald sem
er 450 krónur, í ÁTVR bætist við
13 prósenta álagning og svo
virðisaukaskattur ofan á það.
Neytandinn sér lítið af þeim verð-
breytingum sem verða hjá okkur
en við reynum að sjálfsögðu að
láta þær skila sér,“ segir Guðrún.
Guðrún bætir við að sér þyki
gagnrýnin koma úr hörðustu átt,
þar sem fjármálaráðherra hafi
hækkað skatt á sterku víni í
tvígang síðan 2002, sem birgjar
hafi borið kostnað af. „Hvernig í
ósköpunum eiga neytendur að
verða varir við einhverja lækkun?“
bergsteinn@frettabladid.is
Húsabakkaskóli:
Lokað í
haust
SKÓLAMÁL Nefnd um framtíð
Húsabakkaskóla í Dalvíkurbyggð
skilaði af sér tillögum á fimmtu-
dag, þar sem lagt er til að skólan-
um verði lokað í haust. Valdimar
Bragason, bæjarstjóri Dalvíkur-
byggðar og fulltrúi Framsóknar-
flokks í bæjarstjórn, segir að
hann sé fyrir sitt leyti sáttur við
þessa niðurstöðu nefndarinnar. Í
haust slitnaði upp úr samstarfi
Framsóknarflokks við Sjálfstæð-
isflokk vegna ósættis um framtíð
skólans.
Ingileif Ástvaldsdóttir, skóla-
stjóri Húsabakkaskóla, segir
niðurstöðuna vonbrigði. - ss
TAÍLENSKAR BLÓMADROTTNINGAR
Lux-handsápur og nælonsokkabuxur tóku
á sig fegurstu blómaform í höndum taí-
lensku kvennanna.
Akureyri:
Samhugur
í verki
LIST Taílenskar konur, búsettar
við Eyjafjörð, seldu handunna
listmuni á Glerártorgi í gær en
innkoman rann óskipt til fórnar-
lamba hamfaranna í Asíu í des-
ember. Listmunirnir voru allir
unnir af taílenskum konum bú-
settum á Íslandi og báru vott um
vandað handbragð. - kk
Hlíðarfjall:
Miklir snjó-
flutningar
SKÍÐI Skíðasvæðið í Hlíðarfjalli við
Akureyri var opnað í gær en
vegna snjóleysis hefur það verið
lokað frá 23. janúar. Guðmundur
Karl Jónsson, staðarhaldari í
Hlíðarfjalli, segir að stefnt sé á að
hafa opið frá kl. 10 til 17 um helg-
ina. „Við náðum að opna svæðið
með því að flytja til mikið magn
af snjó og vorum að því alla vik-
una. Það er mjög lítill snjór í fjall-
inu en færið er hins vegar mjög
gott,“ segir Guðmundur. - kk
SPURNING DAGSINS
Orri, eruð þið með timbur-
menn?
Já, enda höfum við glímt við sjálf-
stæðismenn í minnihlutanum í þrjú ár.
Orri Hlöðversson er bæjarstjóri í Hveragerði.
Bæjarstjórn hefur frestað ákvörðun um opnun
vínbúðar í bænum og segja sjálfstæðismenn sem
eru í minnihluta í bæjarstjórn að það sé vegna
geðvonsku meirihlutans.
Dúndurbók
„Makalaus bók, við höfum
eignast dúndurhöfund ...
Frábærlega hugsuð og
yndislega stíluð.“
Páll Baldvin Baldvinsson,
Stöð 2
„Greip mig svo fast og
snerti mig svo sterkt að
ég hreinlega táraðist á
stundum.“
Úlfhildur Dagsdóttir,
bokmenntir.is
Komin
í kilju
DÆMT FYRIR KYNFERÐISBROT
Í Héraðsdómi Reykjavíkur var maður
dæmdur fyrir ítrekuð og svívirðileg brot
gegn stjúpdóttur sinni.
Þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir kynferðisbrot:
Braut ítrekað og svívirði-
lega gegn stjúpdóttur
Pakistan:
Tugir látast
í flóði
PAKISTAN Rúmlega 50 manns létust
í suðurhluta Pakistan eftir að stór
vatnsstífla gaf sig í einhverjum
mestu snjóum sem geisað hafa í
landinu í áratug. Flæddi yfir lítinn
bæ skammt frá stíflunni með
þeim afleiðingum að fjölmargir
aðrir slösuðust og flestir misstu
heimili sitt auk þess sem fjöl-
margar nálægar brýr og vegir
löskuðust illa. ■
SKOTIÐ Á SJÓMENN Þrír albansk-
ir sjómenn sluppu ómeiddir þeg-
ar þeir lentu í skothríð frá varð-
báti grísku strandgæslunnar.
Grikkirnir sögðu bát Albananna
hafa verið á grísku hafsvæði en
Albanarnir sögðust hafa verið
600 metra innan marka albönsku
lögsögunnar.
■ EVRÓPA
■ EVRÓPA
HUNDRUÐ HANDTEKIN Gríska lög-
reglan handtók 449 einstaklinga í
sólarhringsátaki til að finna og
handtaka fólk sem gefin hafði ver-
ið út handtökuheimild fyrir. Flest-
ir voru handteknir í höfuðborginni
Aþenu, 345. Þeir handteknu voru
fíknefnasmyglarar, ólöglegir inn-
flytjendur, vopnasalar, innbrots-
þjófar og einn morðingi.
ÞÓRDÍS HAUKSDÓTTIR
Þórdís hefur iðkað Falun Gong í fjögur ár
og telur sig vera á svörtum lista kínverskra
stjórnvalda.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N
Vínbúð:
Leyfisveit-
ingu frestað
HVERAGERÐI Bæjarstjórn Hvera-
gerðis frestaði á síðasta fundi sín-
um að taka afstöðu til beiðni Áfeng-
is- og tóbaksverslunar ríkisins um
að reka vínbúð að Breiðumörk 1. Í
bókun meirihluta bæjarstjórnar
segir að afla verði frekari upplýs-
inga frá ÁTVR um rekstur vínbúð-
arinnar áður en hægt sé að veita
leyfið og var bæjarstjóra falið að
afla þeirra upplýsinga.
Minnihluti sjálfstæðismanna
gagnrýndi að ákvörðun um starfs-
leyfið yrði frestað og sagði í bókun
að þar litaðist afgreiðsla bæjar-
stjórnar af því að menn væru ósátt-
ir við að ÁTVR vildi hafa búðina í
Breiðumörk en ekki Sunnumörk. ■
GEIR H. HAARDE
Geir segist ekki viss um að vínbirgjar leyfi kaupendum að njóta lágs gengis dollarans. Birgjum kemur gagnrýnin spánskt fyrir sjónir.
Myndin er samsett.
02-03 11.2.2005 22.01 Page 2