Fréttablaðið - 12.02.2005, Síða 10
12. febrúar 2005 LAUGARDAGUR
Kosningar til stúdentaráðs:
Háskólalistinn í oddastöðu
HÁSKÓLI Háskólalistinn komst í
oddastöðu í stúdentaráði Háskóla
Íslands í kosningum á fimmtudag.
Vaka, sem fyrir kosningarnar var
með meirihluta í stúdentaráði,
tapaði einum manni og fékk fjóra
kjörna. Röskva bætti hins vegar
við sig manni og fékk því einnig
fjóra menn kjörna og Háskólalist-
inn hélt sínum manni og komst því
í oddastöðu. Alþýðulistinn fékk
engan mann kjörinn en hafði
hugsanlega úrslitaáhrif í kosning-
unum. Framboðið fékk hundrað
atkvæði og tók ef til vill fylgi frá
Vöku sem vantaði um 25 atkvæði
til að koma fimmta manninum
inn.
Háskólalistinn hefur boðað að
hann hyggst ekki mynda meiri-
hlutastjórn með Vöku eða Röskvu.
„Við höfum alltaf lagt áherslu á að
okkur finnst fáránlegt að hags-
munasamtök eins og stúdentaráði
sé skipt í meirihluta og minni-
hluta,“ segir Elías Jón Guðjónsson
talsmaður listans. Elías segir að
nú hafi myndast færi til að draga
úr flokkadráttum á milli fylkinga
og mynda almennilega samstöðu
innan stúdendaráðs.
- bs
Fulltrúar 22 þjóða taka þátt í Þjóðahátíð:
Hátíð sem brýtur ísinn
ÞJÓÐAHÁTÍÐ Fulltrúar 22 þjóða taka
þátt í þjóðahátíð sem verður í
Perlunni á laugardaginn eftir
viku.
Einar Skúlason, framkvæmda-
stjóri Alþjóðahúss, segir forskrift
hátíðarinnar vera frá Vestfjörð-
um. Hennar helsta hlutverk sé að
brjóta ísinn milli fólks af ólíkum
uppruna.
„Svona hátíð er táknræn fyrir
fólk sem er að byrja að fræðast
um fjölmenningarlegt samfélag.
Oft er auðvelt að byrja á hinu aug-
ljósa, það er þeim þáttum sem
fólk skynjar, eins og að bragða á
matnum, sjá myndir, heyra tónlist
og hitta fólkið,“ segir Einar. Hátt í
tíu þúsund gestir voru á hátíðinni
í fyrra en Einar segir að hún verði
enn veglegri nú með hjálp Ís-
landsbanka.
Einar segir neikvæða umræðu
um innflytjendur í erlendum
fréttum hugsanlega hafa komið í
veg fyrir að forsvarsmenn fyrir-
tækja hafi þorað að leggja nafn
fyrirtækjanna við málaflokkinn:
„Þess vegna erum við mjög
ánægðir þegar fyrirtæki tekur á
sig rögg og segir að fjölmenning
sé hluti af samfélagi þess og það
beri ákveðna ábyrgð.“ - gag
Fangelsismálapakki
fyrir 1,5-2 milljarða
Vonir standa til að hægt verði að byggja eitt fangelsi og endurbæta stórlega þrjú til við-
bótar fyrir 1,5-2 milljarða, að sögn forstjóra Fangelsismálastofnunar. Það er sama fjár-
hæð og upprunalega var gert ráð fyrir að bygging Hólmsheiðarfangelsis myndi kosta.
FANGELSISMÁL Stefnt er að því að
kostnaður við byggingu nýs fang-
elsis á Hólmsheiði og verulegar
endurbætur þriggja annarra fang-
elsa fari ekki fram úr 1,5-2 milljörð-
um króna, að sögn Valtýs Sigurðs-
sonar forstjóra Fangelsismálastofn-
unar.
Unnið er nú af
krafti við að út-
færa grunnhug-
myndir Fangelsis-
málastofnunar um
framtíðarskipan
fangelsa hér á
landi, að sögn hans.
Lokið hefur verið
við að gera drög að
stækkun fangelsis-
ins á Akureyri og nemur kostnaðar-
áætlun 150 milljónum króna en þar
af er breyting á húsnæði lögreglu
upp á um 50 milljónir. Fangelsið
verður stækkað um tvo klefa
þannig að þar verði tíu klefar en
megináhersla lögð á að gera það
rekstrarhæft sem fangelsi, að sögn
Valtýs, þar sem föngum verði sköp-
uð aðstaða til vinnu og útbúin að-
staða til heimsókna, sem engin er í
dag.
„Fangelsið er hvorki fugl né fisk-
ur,“ sagði Valtýr. „Að mínu mati á að
loka því ef það verður ekki gert
mannsæmandi.“
Þá er verið að gera frumdrög að
stækkun á Kvíabryggju um 5-6
pláss, þannig að þar yrði unnt að
vista allt að 20 fanga að sögn Valtýs
sem sagði fjölgun á opnum fang-
elsisplássum forgangsatriði. Kostn-
aðaráætlun lægi ekki fyrir um það
verk, eða við Litla-Hraun og nýja
fangelsisbyggingu á Hólmsheiði, en
stefnt væri að því að frumteikning-
ar og kostnaðaráætlun á „öllum
pakkanum“ lægi fyrir mánaðamót.
Björn Bjarnason dómsmálaráð-
herra hefði gefið grænt ljós á að
hefja vinnu við þessa grunnþætti og
væri henni nú hraðað eftir megni.
„Samkvæmt fyrri drögum að
Hólmsheiðarfangelsinu var reiknað
með að það yrði venjulegt öryggis-
og vinnufangelsi, sem kostaði einn
og hálfan milljarð. Ekki var gert ráð
fyrir breytingum í fangelsunum á
Akureyri, Kvíabryggju eða Litla-
Hraun í því dæmi. Þá var gert ráð
fyrir að fangelsið í Kópavogi yrði
starfrækt áfram en því viljum við
loka. Ég er að vona að allur pakkinn
kosti ekki meira en einn og hálfan
til tvo milljarða, en þá er reiknað
með verulegri uppbyggingu á Litla-
Hrauni.“
Valtýr sagði að núverandi hug-
myndir um nýja fangelsið miðuðu
að því að þar yrðu afreitrunar- og
meðferðardeild, sjúkradeild og
gæsluvarðhaldsdeild. Með því ætti
að gera menn hæfa til að fara í með-
ferð í upphafi afplánunarferilsins
og vistast síðan áfram vímuefna-
lausir. Eins og staðan er í dag eiga
fangar kost á að ljúka síðustu sex
vikum afplánunar í vímuefna-
meðferð.
Varðandi afplánun kvenna sagði
Valtýr að ráð væri fyrir því gert að
hægt væri að vista konur í öllum
fjórum fangelsunum, á Litla-
Hrauni, Kvíabryggju, Hólmsheiði
og Akureyri, og þá á sérstökum
deildum. jss@frettabladid.is
HÁSKÓLI ÍSLANDS
Hugsanlegt er að „grínframboð“ Alþýðulist-
ans hafi haft úrslitaáhrif.
Atkvæði Hlutfall
Vaka: 1542 46,6%
Röskva: 1253 37,9%
Háskólalistinn: 414 12,5%
Alþýðulistinn: 100 3,0%
Kjörsókn var 37,6 prósent. Auðir og ógild-
ir seðlar voru ekki gefnir upp.
UNDIRBÚNINGUR ÞJÓÐAHÁTÍÐARINNAR
Einar Sveinsson, stjórnarformaður Íslandsbanka, og Einar Skúlason, framkvæmdastjóri Al-
þjóðahúss, undirrita samning um fjárstuðning svo hægt sé að matreiða kræsingar á
Þjóðahátíðinni sem verður eftir viku.
FANGELSIÐ Á AKUREYRI
Þannig getur fangelsið á Akureyri litið út eftir miklar endurbætur samkvæmt hugmynd
Páls Tómassonar arkitekts hjá Arkitektur.is
VALTÝR SIG-
URÐSSON
10-11 11.2.2005 18.39 Page 2