Fréttablaðið - 12.02.2005, Side 48

Fréttablaðið - 12.02.2005, Side 48
32 12. febrúar 2005 LAUGARDAGUR Ég er nú búinn að búa hérna í Árhúsum ansi lengi, en hef verið svo- lítið umkringdur Íslendingum, fyrst spilaði ég með Þorvarði Tjörva og nú spilar Sturla Ásgeirsson með mér, svo að ég tala íslensku á hverjum degi. Það er kannski þess vegna sem það hefur gengið svona illa að læra málið. Borgin er á Jótlandi, eiginlega alveg fyrir miðju lengst hægra megin, alveg við hafið og á þessu svæði búa um þrjú hundruð þúsund manns. Þetta er ákaflega skemmtileg borg, full af lífi, þó mér finnist alltaf vera meira að gerast í Reykjavík, kannski af því þar þekkir maður hverja ein- ustu þúfu. Ég er reyndar að flytjast á brott, til Þýskalands og er því alltaf að komast meir og meir að því hversu vel ég kann við mig hérna. Hérna er stórt listasafn og reglulega kemur hingað fjöldinn allur af tónlist- armönnum, þannig að ég get ekki kvartað undan tilbreytingarleysi. Það er allt krökkt af Íslendingum hérna, og þeir verja töluverðum tíma sam- an. Við erum til dæmis fjórir strákar sem erum með klúbb, sem heitir Brunch Boy Club, en þá velur einn aðilinn veitingastað sem við síðan förum á og borðum. Í Árhúsum er líka vel hægt að versla, og hér er stórt verslunarhverfi. Svo er hér líka allt morandi í veitingastöðum, kaffi- húsum og börum. Mitt upphálds- kaffihús heitir Sigfrid, en þar er án nokkurs vafa hægt að fá besta kaffið á þessum slóðum. Svo á ég mér tvo eftirlætis veitingastaði. Annar þeirra heitir Marco Polo, og er alveg þræl- ódýr, þar er hægt að fá vel útilátna máltíð á fimmtán hundruð krónur, og ef vín er fengið með, þá fer þetta ekki mikið yfir tvö þúsund krónur. Hinn er Kiff Kiff, sem er norður – afrískur staður, pínkulítill og þar kem- ur maður með vínið sjálfur. Ef við mætum fjórir eða fleiri, getum við pantað dæmigerðan rétt þaðan. Litla borgin með stóra hjartað Horft yfir borgina sem oft hefur verið nefnd litla borgin með stóra hjartað. FRÁ BORGINNI MINNI RÓBERT GUNNARSSON HANDBOLTAMAÐUR BÝR Í ÁRHÚSUM Vinningar eru: * WarCraft fyrir pc. * Aðrir tölvuleikir. * DVD myndir. * Margt fleira. 12. hver vinnur vinning. Sendu SMS skeytið BTL WCF á númerið 1900 og þú gætir unnið. Eintak á 199kr? 11//02//05 Aðalvinningur verður dregin úr öllum innsendum SMS skeytum.199 kr/skeytið Aðalvinningur Samsung X460 sími SMS LEIKUR Vinningar eru: * * Aðrir tölvuleikir. * DVD myndir. * Margt fleira. Sendu SMS skeytið BTL WCF á númerið 11//02//05 Aðalvinningur Samsung X460 sími Þegar komið er inn á skrifstofu Ingjalds Hannibalssonar, kennara í viðskipta- og hagfræðideild Há- skóla Íslands, blasir við stórt landa- kort með rauðum doppum í tuga- vís, og örfáum svörtum. „Þetta eru löndin sem ég hef komið til,“ segir hann og bendir á rauðu doppurnar, sem þekja nánast allt landakortið. „Svörtu punktarnir tákna löndin sem eru næst á dagskrá,“ bætir hann við og segir það vera meðal annars stanñlöndin, svo sem Afganistan, Túrkemenistan, Kas- akstan, Tadsjikistan. Hann langi líka til þess að fara til Suðurskauts- landsins og þá í gegnum Argentínu. Hann stendur upp og bendir á leið- ina þangað á kortinu. „Ég er reynd- ar ekki með neina tölu yfir það hversu mörg löndin eru sem ég hef komið til, en ættu að slaga upp í 120,“ segir hann og horfir á kortið eins og hann sé að reyna telja þau. „Þetta byrjaði allt þegar ég fermd- ist, en þá fór ég til Færeyja, Noregs, Danmerkur og Skotlands.“ Síðan þá hafa löndin orðið örlítið meira framandi, svo vægt sé til orða tekið. Mikið lagt á sig Ingjaldur, eða „Fargjaldur“ eins og margir innan háskólans kalla hann stundum, er nýkominn heim úr enn einu ferðalaginu, en það var rann- sóknarferð þar sem hann að eigin sögn blandaði saman sínum þrem- ur helstu áhugamálum, rekstri og stjórnun, mismunandi menningu og rekstri háskóla. „Ég fór fyrst til Kaliforníu og var við Stanford- háskóla, og í kjölfarið tóku við Ameríski skólinn í Kaíró, Keny- etta-háskólinn í Kenía, háskólar í Nýja Suður-Wales, Tókýó, Peking og Bangkok.“ Þessari miklu rann- sóknarferð lauk í Kaupmannahöfn, en á dagskránni er heimsókn til eins í viðbót, háskólann í Nýju-Delí. Fyrir þann sem ekki þekkir til mætti ætla að skóli eins og Stan- ford ætti fátt sameiginlegt með skólanum í Kenía. Ingjaldur segir að þó að skólarnir hafi verið jafn ólíkir og þeir voru margir hafi alls staðar sami háskóla- og fróðleiks- andinn svifið yfir vötnum. „Háskól- inn í Stanford er einn af ríkustu skólum í heimi og hefur allt; glæsi- legar byggingar, frábæra rann- sóknaraðstöðu og stórt bókasafn,“ segir Ingjaldur en bætir því við að honum hafi þótt það frábært að fá tækifæri til þess að dveljast við Kenyetta-skólann í Kenía. „Kenía er mjög fátækt land, þar sem stjórnvöld hafa verið spillt, atvinnuleysi mikið og efnahags- ástandið í sama farvegi og það var fyrir nokkrum áratugum.“ Ingjaldur segir að þrátt fyrir alla þessa erfiðleika leggi íbúarnir sig alla fram til þess að geta viðhaldið menntunarstiginu í landinu. „Bóka- safnið var reyndar ekki upp á marga fiska, og þeir voru nýbúnir að koma sér upp internettengingu,“ segir Ingjaldur en bætir því við að háskólaandinn hafi verið óskertur. Hann segist hafa skoðað fjárfram- lög ríksins og þær tölur beri því glöggt vitni hversu mikið íbúarnir leggi sig fram. „Í Kenía er lands- framleiðslan undir hundrað þús- und krónum á hvern íbúa, en ríkið borgar engu að síður hundrað þús- und krónur með hverjum nem- anda.“ Ingjaldur segir að hér á Ís- landi sé landsframleiðslan á hvern íbúa rúmar tvær milljónir og ríkið borgi að meðaltali sex hundrað þúsund með hverjum nemanda í háskólanámi. „Háskóli fyrir land eins og Kenía skiptir mjög miklu máli, sem ein meginstoð sjálfstæð- is og að landið geti þróast áfram.“ Gróði í stað mannréttinda? Ingjaldur hefur haft tök á því að kynna sér aðstæður og menningu mismunandi landa. „Þegar lagt er upp í ferðalag til framandi lands er nauðsynlegt að vita hvað megi og hvað ekki,“ segir hann og bætir við að á sínum ferðalögum reyni hann fyrst og fremst að virða menningu hvers lands. „Þá verður ferðamað- urinn líka alltaf að hafa það hugfast að það er hann sem er gesturinn,“ segir hann og þar að auki sé oft gott að hugsa um eigin heimaslóðir. „Það er margt skrýtið hér á landi, sem útlendingar rekur oft í rogastans yfir,“ segir hann og hlær. Ingjaldur hefur mjög sterkar skoðanir á hlutverki alþjóðasamfé- lagsins og segist oft ekki alveg skilja forgangsröðina hjá því. Hann vill þó ekki fullyrða að það stjórnist af gróðasjónarmiðum, í stað mannúðarsjónarmiða, eins og kannski oft mætti ætla. Það eigi þó að vera hlutverk alþjóðasamfélags- ins að vernda þá sem er verið að misþyrma. „Vestræn ríki stóðu sig afar illa þegar þjóðarmorðin í Súdan hófust. Það á að grípa inn í þegar milljónir manna eru fluttir í burtu og drepnir,“ segir hann og telur jafnframt að ekki sé hægt að þröngva vestrænu lýðræði upp á ríki sem hvorki hafi byggt upp heilbrigðis – né menntunarkerfi. Grundvöllur lýðræðis sé að þessi tvö kerfi séu byggð upp og þjóðin hafi nóg að bíta og brenna. „Lýð- ræðið skiptir litlu máli fyrir svang- an, ómenntaðan og veikan mann.“ Heimsborgari? Ingjaldur er búinn að heimsækja allar heimsálfurnar fyrir utan Suð- urskautslandið. Hann reynir að lesa sér eins mikið til og hægt er um þau lönd sem hann ætlar að fara til og gætir þess að sem fæst komi honum óvart. „Ég lenti reynd- ar í því einu sinni, þegar ég ætlaði að taka mynd á markaði á markaði í Libreville í Gabon, að fólkið kom aðvífandi til mín og tjáði mér að því væri ekki vel við myndatökur af markaðinum,“ segir Ingjaldur, sem vonast til þess að ferðalögin hafi slegið enn frekar á hans eigin fordóma, þó að auðvitað geti eng- inn verið fordómalaus. „Ég er kannski laus við sleggjudómana.“ Hann vill þó ekki gera of mikið úr þessum ferðalögum og reynir hæversklega að koma sér undan því að vera kallaður heimsborgari. „Í mínum huga er heimurinn lítill og það myndi ekki vefjast fyrir mér að vera kominn til Ástralíu eftir tvo daga, ef svo bæri undir. Þannig standa málin eiginlega, að það eru fá lönd sem ég á eftir að koma til í fyrsta skipti, svo það má kannski segja að ég sé orðinn heimsborgari,“ segir hann bros- andi. New York höfuðborg heimsins Ingjaldur segist eiga erfitt með að gera upp á milli landa, hvert land hafi sína sérstöðu. „New York er engu að síður höfuðborg heimsins og allar aðrar borgir sem ég hef komið til líta út fyrir að vera þorp við hliðina á henni.“ Hann segist líka eiga ákaflega vota minningu frá Bangladess. „Þegar ég kom inn í borgina var allt á floti og dyra- vörðurinn bar mig á bakinu inn á hótel. Þegar ég ætlaði að fara í göngutúr niður í bæinn náði vatnið upp á kálfa. Í kringum mig var fólk að selja vörur á borðum sem rétt stóðu upp úr vatninu.“ Hann segir að þetta hafi honum þótt ákaflega óþægilegt og hann hafi tekið fyrstu flugvél burtu. Þá hafi hann líka lent í því að vera fastur í fimm þúsund metra hæð í Tíbet. „Við festumst í drullu, á jeppaferðalagi frá Katmandu til Lhasa. Vorum þar í tíu tíma og þrír af samferðalöngum mínum urðu lífshættulega veikir vegna hins þunna loftslags. Þetta var alveg skelfilegt.“ Þá kom Íran honum skemmti- lega á óvart. „Það voru flestir á því að þetta væri hættulegt land og báru það fyrir sér að Írönum væri ílla við útlendinga. Ég hlustaði ekkert á þetta og fór af stað.“ Hann segist hafa lesið sér til um klæða- burð karlmanna, og komist að því í gegnum bækur að karlmenn væru í síðerma skyrtum og síðum buxum.“ Þegar ég kom þangað voru margir karlmennirnir í stutt- erma skyrtum,“ segir hann og hlær, segir enn fremur að ótti vina hans hafi algjörlega óþarfur. „Þegar ég var á gangi í mörgum af görðunum sem þarna eru buðu íbú- arnir mér te og jafnvel mat. Þeir voru mjög vingjarnlegir,“ segir Ingjaldur og bendir á í léttum dúr að þetta myndu væntanlega fáir Íslendingar eiga til að gera. Ingjaldur er hvergi nærri hætt- ur að ferðast, enn séu lönd eftir sem hann eigi eftir að heimsækja. „Þetta er eiginlega orðin ástríða, að ferðast og kynna sér menningu annarra þjóða,“ segir hann og lítur snöggt á landakortið góða, fullur tilhlökkunar að bæta við enn einum rauðum punkti á það. ■ INGJALDUR HANNIBALSSON OG LANDAKORTIÐ GÓÐA Rauðu punktarnir eru þau lönd sem ég hef komið til, svörtu þau sem eru næst á dagskrá. Á 73 lönd eftir Á jörðinni búa um 6 miljarðar manna sem skiptast í 271 þjóð innan 193 sjálfstæðra ríkja. Ingjaldur hefur komið til um 120 landa, eða sextíu pró- sent allra þeirra ríkja sem til eru. Þess má til gamans geta að samkvæmt Heimsmetabók Guinnes tók það John Bougen og James Irving 167 daga að heimsækja 191 ríki af þessum 193 ríkjum. Ferðalög eru ástríða Ingjalds Hannibalssonar háskólakennara. Freyr Gígja Gunnarsson ræddi við þennan mikla heimshornaflakkara sem hefur komið til um 120 landa. Er kallaður Fargjaldur 48-49 (32-33) Fjargjaldur 11.2.2005 19.03 Page 2

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.