Fréttablaðið - 12.02.2005, Blaðsíða 55

Fréttablaðið - 12.02.2005, Blaðsíða 55
Græni liturinn kemur eins og ferskur vindur inn í vor- og sumartískuna. Það eru merkilega margir grænir tónar í móð núna, allt frá ljósgrágrænum upp í skærgrænan. Þetta er breið litasinfónía sem lýsir upp veturinn á meðan við bíðum eftir sól í haga. Brúnn er sérlega fallegur með grænum og svo er svart og grænt alltaf svolítið rokkað saman. Þær djörfu blanda grænum við bleikan og bæta jafnvel metallitum saman við. Þó vel megi nota grænan sem grunnlit er oft fallegra að nota hann með öðrum litum. Grænt belti lífgar upp á heildarmyndina og grænar sokka- buxur setja punktinn yfir i-ið en mikið er um græna fylgi- hluti. Núna er mest „flatterandi“ að vera annaðhvort með risastórar töskur eða pínulitlar. Þessar töskur mega vel vera grænar eða með aggressívu mynstri þar sem græni liturinn kemur við sögu. Örsmáar töskur úr grænum pallíettum eða rúskinni eru æðislegar þegar skvett er úr klaufunum að næturlagi um helgar. Þá þarf bara að vera pláss fyrir hús- lykil, gloss, debetkort og síma. Græni liturinn er ekki bara flottur í fötum og fylgihlutum. Hann slær í gegn í snyrtivörum. Þunnt lag af grænum augnskugga dregur fram brúna lit- inn í augunum og gerir blá augu meira seiðandi. Til að fullkomna sköpunarverkið má bæta grænum maskara við. Það er ofurskvísulegt. Til að fylgja tískunni alla leið kemur ekk- ert annað til greina en að fara til Grænlands í sumarleyfinu og borða bara grænmeti og grænt te. Gleymdu þó orðatiltækinu að grasið sé alltaf grænna hinum megin við girðinguna. Það er löngu dottið úr tísku. 38 12. febrúar 2005 LAUGARDAGUR Það eru eflaust margir að spá hver staða kúrekastígvélanna sé? Hvort fjárfesta eigi í einum slíkum eða hvort þessi tíska sé að detta út? Sannleikurinn er sá að kúrekastígvélin eru í mikilli sókn og þessi tíska nær hámarki þegar það fer að vora. Það er til dæmis mjög smekklegt að vera í kúrekastígvélum við víð pils í þjóðernisstíl og þau klikka ekki við gallabuxur eða gallapils. Þau koma líka eins og himnasending við öll síðu og víðu pilsin sem verða svo móðins í sumar. Kúrekastígvélin eru eins misjöfn og þau eru mörg. Það nýjasta í þessari tísku eru kúrekastígvél í mótorhjólastíl. Þar eru pönkaraáhrifin ríkjandi og margir gætu haldið að svoleiðis kúrekastígvél ættu bara heima í veröld Sniglanna. Svo er ekki. Mörg kúrekastígvél státa einnig af flottum mynstrum eins og fiðrildum og öðrum ævintýralegum myndum og stungum. Þá gildir sú regla, því meira því betra. Þó kúrekastígvélin séu mikil tískuvara núna skal þó varast að taka kúrekastílinn inn eins og hann leggur sig. Kúrekastígvél með mynstri og krumpuð um ökklann, 15.500 kr. Fiðrildamynstrið er alveg að gera sig. GS skór 17.990 kr. Allar alvöru rokk- pæjur þurfa að eiga ein svona stígvél. GS skór, 21.990 kr. Lillablá kúreka- stígvél frá Bianco úr rúskinni og leðri, 15.200 kr. Hvítu saumarnir gera heilmikið fyrir þessi ein- földu kúrekastíg- vél. Steinar Waage 12.990 kr. Bleik kúrekastíg- vél með kögri frá Bertie, 15.500 kr. Kúrekastígvélin lifa LAGERÚTSALA www.tanni.is T-bolir 300 / Síðerma T-bolir 500 / Flíspeysur frá 500 Kuldagallar (Small) 1.000 / Samfestingar (Small) 1.000 Pólóbolir 700 /Skyrtur 1.000 / Jakkar frá 2.000 Svuntur fyrir mötuneyti 500 / Töskur / Húfur / Handklæði Barna pólóbolir 500 / Barna joggingbuxur Opið 9-17 virka daga og laugardaga 11-17 Dömupólóbolur krep 700 krT-bolur 300 kr Tanni er auglýsingavöru fyrirtæki Við bjóðum fyrirtækjum, stofnunum og félagasamtökum meðal annars: T-boli, pólóboli, háskólapeysur, flíspeysur, penna, reiknivélar, klukkur... allt með þínu merki. Erum í sama húsi og Tækniháskólinn, lagerhúsnæði að norðanverðu Grænir dagar Augnskuggi frá MAC, 1.590 kr. Maskari frá MAC, 1.390 kr. TOPSHOP, 1.990 kr. Vero Moda 1.990 kr. Vero Moda 2.490 kr. Companys 5.990 kr. Companys, 7.990 kr. Accessorize 3.150 kr. Accessorize 990 kr. Bertie 9.500 kr. Bertie 7.500 kr. Hönnuðurinn Monique Lhuillier er hrifin af grænum lit. Kultur, 4.990 kr. 54-55 (38-39) tíska 11.2.2005 20.13 Page 2
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.