Fréttablaðið - 19.02.2005, Blaðsíða 15
Þess vegna hrynur
Framsóknarflokkurinn
Hvers vegna hrynur fylgi Fram-
sóknarflokksins? Fréttablaðið birti
úrslit skoðanakönnunar um fylgi
flokkanna föstudaginn 4. febrúar
sl. Samkvæmt þeirri könnun fengi
Framsóknarflokkurinn 8% atkvæða
ef þingkosningar færu fram í dag
en 4% í borgarstjórnarkosningum í
Reykjavík. Þetta er algert fylgis-
hrun hjá Framsóknarflokknum.
Talsmenn Framsóknarflokksins
vilja gera lítið úr þessu og segja, að
Framsókn fái mikið meira fylgi í
kosningum en í skoðanakönnunum.
Það hafi ávallt verið svo. En ein-
hver skýring hlýtur að vera á því,
að Framsókn mælist með svona lít-
ið fylgi í skoðanakönnunum. Jú,
skýringin er sú að megn óánægja
er meðal fyrri kjósenda Framsókn-
ar með flokkinn. Kjósendum finnst
flokkurinn hafa villst af leið og ver-
ið of leiðitamur Sjálfstæðisflokkn-
um. Framsóknarflokkurinn var
stofnaður til þess að berjast fyrir
félagshyggju og samvinnustefnu
en hefur nú um langt skeið hjálpað
Sjálfstæðisflokknum við að fram-
kvæma skefjalausa auðvaldsstefnu
og peningahyggju. Misskipting í
þjóðfélaginu hefur stóraukist, hinir
ríku hafa orðið ríkari og hinir fá-
tæku hafa orðið fátækari. Kjör
aldraðra og öryrkja eru til skamm-
ar. Fátækt hefur aukist verulega í
landinu. Mikil óánægja er einnig
meðal kjósenda Framsóknar með
stefnu flokksins og ríkisstjórnar-
innar í Íraksmálinu. 84% þjóðarinn-
ar voru andvíg því að Ísland skyldi
leggja blessun sína yfir innrás
Bandaríkjanna og Bretlands í Írak.
Stór hluti Framsóknarflokksins er í
þeim hópi. Framsóknarflokkurinn
hefur alltaf áður stutt frið í heimin-
um en nú leggur formaður flokks-
ins blessun sína yfir árás á annað
ríki og vill ekki biðjast afsökunar á
þeim mistökum enda þótt í ljós hafi
komið, að innrásin í Írak var gerð á
fölskum forsendum.
Margir forustumenn Framsókn-
ar bundu vonir við það, að fylgi
flokksins mundi aukast við það, að
formaður flokksins settist í forsæt-
isráðherrastólinn. En það hefur
orðið þveröfugt. Fylgi flokksins
hefur minnkað síðan formaður
Framsóknar varð forsætisráð-
herra. Þetta er vegna þess, að
Framsókn fékk stólinn frá Davíð
Oddssyni en ekki frá forseta Ís-
lands eftir kosningar. Þetta voru
einfaldlega hrossakaup stjórnar-
flokkanna, sem gerð voru til þess
að framlengja völd ríkissstjórnar-
innar, sem tapaði fylgi í síðustu
kosningum og hefði átt að fara frá
völdum, ef eðlilegum lýðræðislög-
málum hefði verið fylgt. Kjósend-
um Framsóknar finnst stóllinn of
dýru verði keyptur. Málefnum
Framsóknarflokksins hefur verið
fórnað í hrossakaupum stjórnar-
flokkanna. Það er alger hégómi að
sækjast eftir embætti forsætisráð-
herra, þegar staða Framsóknar er
eins og hún er í dag. Flokkurinn
hefði frekar átt að leggja áherslu á
það að koma fleiri stefnumálum
Framsóknarflokksins fram. En það
gerði Framsókn ekki heldur mat
meira hégómann. Þess vegna refsa
kjósendur nú Framsóknarflokkn-
um. ■
LAUGARDAGUR 19. febrúar 2005
BJÖRGVIN GUÐMUNDSSON
VIÐSKIPTAFRÆÐINGUR
UMRÆÐAN
FRAMSÓKNAR-
FLOKKURINN
16-17 Umræðan 18.2.2005 19:12 Page 3