Fréttablaðið - 19.02.2005, Blaðsíða 23
SMÁBÁTAEIGENDUR ATHUGIÐ!
Stórkostlegt tækifæri til að leigja
út bátinn yfir rólegu tíðina!
Óska eftir 6 til 10 metra bátum – kvótalausa en með
haffæriskírteini til útleigu fyrir ferðamenn á sjóstöng
sem gera á út frá Hafnarfirði.
Upplýsingar gefur Jóhannes í Fjörukránni í síma 565 1213 eða 8936435
www.fjorukrain.is www.vikingvillage.is
3LAUGARDAGUR 19. febrúar 2005
Áfram veginn
Einar Elí Magnússon kemst leiðar sinnar
Brjálaðir Íslendingar
Í árlegri júlíferð okkar félaganna í Þórsmörk er til siðs að keyra upp á
Fimmvörðuháls frá Skógum. Í fyrrasumar hittist þannig á að veðrið var
sérlega vont og ekkert að sjá, nema bakpokaferðalang sem fauk fram og
til baka fyrir augum okkar. Við ákváðum að stöðva bílinn og bjóða við-
komandi far, enda ekkert vit í að leggja gangandi á hálsinn í þessu veðri.
Ferðalangurinn reyndist norsk stúlka sem þáði fegin far í Mörkina,
enda orðin þreytt. Á leiðinni niður stórgrýttan malarveginn spurði hún
hvort það væri virkilega talið eðlilegt að keyra á svona vegum. Já, við
héldum það, eða okkur fannst það að minnsta kosti sjálfum. Hún virtist
vantrúuð en lagði þó ekki í að rengja okkur.
Þegar við brunuðum yfir fyrstu lækina á leiðinni inn eftir gaf farþeg-
inn til kynna að þetta þætti honum sko ekki leiðinlegt. Svo komum við að
Jökulsánni. Lága drifið, annar gír, elta brotið í vaðinu. Ekki múkk frá far-
þeganum. Upp á bakka, úr lága drifinu, fyrsti og áfram. Eins og ekkert
hafi í skorist. Eftir smá tíma tekur sú norska loks lágróma til máls og það
vottar fyrir vantrausti. „Íslendingar eru brjálaðir“. Skömmu síðar náði þó
náttúrufegurð Þórsmerkur og Goðalands tökum á gestinum og þegar kom
að þriðja vaðinu var stúlkan farin að njóta ferðarinnar til hins ítrasta.
Það er merkileg reynsla að upplifa landið okkar í gegnum erlenda
gesti. Allt er nýtt og spennandi fyrir þeim og þegar maður sér landið
okkar með þeirra augum áttar maður sig á því að við tökum því sennilega
of oft sem gefnu.
Næst þegar veðrið er gott getur þú prófað að keyra út í sveit, leggja
bílnum og ganga spölkorn. Þar skaltu nema staðar og horfa vel og vand-
lega í kringum þig og ímynda þér að þú sért ekki á Íslandi heldur gest-
komandi í öðru landi og að þetta sé eina tækifærið þitt á lífsleiðinni til að
virða þetta útsýni fyrir þér. Þetta fallega land. Njótum þess.
Þriggja manna bíll
ÓVENJULEGUR SMÁBÍLL SEM TALINN
ER MUNU VEKJA MIKLA ATHYGLI.
Þriggja manna bíll, Z17, er nýjasti
hugmyndabíllinn frá Renault og má
gera má ráð fyrir að þessi óvenjulegi
smábíll muni vekja athygli þar sem
hann er einungis þriggja sæta. Sér-
fræðingar hjá Renault hafa reiknað út
að aðeins 1,4 einstaklingar eru í
hverjum bíl að meðaltali í Vestur-
Evrópu. Bíllinn státar af góðu farang-
ursrými.
B&L kynnir um þessar mundir X5
Shadowline, nýja útgáfu af X5 jepp-
anum frá BMW. Að sögn Karls Ósk-
arssonar, sölustjóra BMW, er útgáf-
an áhugaverð fyrir það hvað hún
byggir á stílhreinum útfærsl-
um. „Þessi lína er
svolítið minimal-
ísk í sér ef svo má
segja og býður til
að mynda eingöngu
upp á svartlitaða
X5. Verðið er jafnframt verulega
hagstætt eða 5.890 þúsund.“
Shadowline er með 3,0 lítra 231
hestafla vél og að sögn Karls með
sama búnað og hefðbundin X5 út-
gáfa. „DSC-stöðugleikastýring með
spól- og hallavörn og X-drive
aldrifskerfið ber
þar að sjálf-
sögðu hæst, en
þessi búnaður
hefur aldeilis
sannað sig í
vetrarófærðinni
að undanförnu.
Þá er Shadowline með leðurklætt
sportstýrishjól, aðgerðastýri, skrið-
stilli og svo mætti lengi telja.“ ■
Stílhrein útfærsla hjá BMW
BMW X5 Shadowline nefnist ný jeppaútgáfa.
Nýtt andlit Toyota
Toyota TF-SX þykir marka nýja stefnu í útliti Toyota-bílanna.
Með TF-SX hugmyndabílnum gæti
opnast nýr kafli í sögu Toyota. Bíll-
inn verður hugsanlega fjöldafram-
leiddur eftir 2-3 ár og mun þá
marka nýja stefnu í útliti Toyota-
bíla. Framendinn, sem hefur verið
kallaður „T-andlit“, mun gefa tón-
inn fyrir hönnun komandi ára og
þó að honum svipi eilítið til nýja
Ford Fusion er hér um gríðarlegt
stökk fyrir Toyota að ræða.
Bíllinn skartar einnig nýjung-
um á afturendanum. Þegar farang-
ursrýmið er opnað rennur hluti
glerþaksins fram og auðveldar að-
gengi. Sé neðri hluti afturlúgunnar
opnaður rennur gólf farangurs-
rýmisins aftur og auðveldar
þannig hleðslu og afhleðslu.
Af öðrum útbúnaði er helst að
nefna 21 tommu hjól, fjórhjóladrif
og kraftmikla V-6 vél. ■
24-25 (02-03) Allt bílar 18.2.2005 15.54 Page 3