Fréttablaðið - 19.02.2005, Blaðsíða 52
Tökum á bresku sjónvarpsmynd-
inni A Girl in the Café lauk á
Keflavíkurvegi í gær með heljar-
innar þyrlutökum þar sem mikill
bílafloti var myndaður aka eftir
veginum. Sjö BMW-bílar voru þar
á meðal.
Leikarinn Bill Nighy, sem er
þekktur fyrir hlutverk sitt í Love
Actually, fer með aðalhlutverkið.
Fór hann af landi brott í fyrradag
ásamt öðrum leikurum myndar-
innar, þar á meðal Kelly McDon-
ald úr Trainspotting. Eftir var
leikstjórinn David Yates til að
klára síðustu tökurnar en hann
var nýverið ráðinn til að gera
þarnæstu Harry Potter-mynd sem
verður frumsýnd eftir tvö ár. Þess
má geta að handritshöfundur er
Richard Curtis sem er þekktur
fyrir handritin að Bridget Jones-
myndunum, Love Actually, Four
Weddings and a Funeral og sjón-
varpsþáttunum um Mr. Bean og
Blackadder.
Að sögn Einars Sveins
Thordarsonar hjá Pegasus, sem
tók þátt í framleiðslu myndarinn-
ar, gengu tökurnar vel þótt veðrið
hafi verið þeim óþægur ljár í
þúfu. „Við tókum upp hér og þar í
Reykjavík og þurftum að loka göt-
um og slökkva á götuljósum,“ seg-
ir Einar Sveinn. „Það voru allir
gapandi yfir því hvað við gátum
með litlum fyrirvara lokað stöð-
um og opnað. Þeir voru hrifnir af
því hvað allir Íslendingar voru lið-
legir að greiða götuna fyrir verk-
efninu. Í heildina var þetta bara
mjög ánægjulegt,“ segir hann.
Guðjón Sigmundsson, betur
þekktur sem Gaui litli, kynntist
aðalleikaranum Bill Nighy nokk-
uð við tökur á myndinni því hann
var einkabílstjóri hans. „Bill er
hæglætisnáungi og mikill hugljúfi
en líka fyndinn og skemmtilegur,“
segir Gaui litli um Nighy sem
jafnframt er einn af hans uppá-
haldsleikurum. „Við fórum fyrsta
kvöldið út að borða á Þremur
frökkum og það var ekkert sukk
og svínarí á mínum manni. Ann-
ars var ég ekkert að hnýsast í
hans mál. Það kom samt á óvart
hvað hann var yndislegur og
greinilega vel tengdur. Hann
þekkir mikið af frægu fólki og það
var mikið af skemmtilegum sím-
tölum sem fóru fram og til baka,“
segir hann. „Honum fannst Ís-
lendingar upp til hópa kurteist og
elskulegt fólk. Þeir létu hann í
friði og honum fannst það æðis-
legt.“
Gaui litli hefur áður keyrt
Hollywood-stjörnur um landið því
hann var einkabílstjóri Jason
Biggs úr American Pie-myndun-
um þegar hann var við störf á
Snæfellsnesi í apríl á síðasta ári.
„Þá vorum við saman í 4-5 vik-
ur. Við skrifumst á og hann
hringir annað slagið í mig
og á ég mörg heimboð inni
hjá honum. Hann vill
endilega koma hingað
aftur og það eru ýmis
plön í gangi. Það var
eins með Bill. Hann
vildi koma aftur til Ís-
lands því hann sá ekki
Esjuna því það var svo
leiðinlegt veður. Jason sá meira af
íslenskri náttúru og allt það sem
henni fylgir. Ég man eftir einu
fyndnu sem gerðist þegar við fór-
um að æfa á líkamsræktarstöð á
Ólafsvík í fyrsta sinn. Þá gekk sú
saga að það væri kominn rosalega
frægur maður í bæinn. Sagan var
á þann veg að Gaui litli væri
mættur og það væri einhver lítill
strákur að æfa með honum,“ segir
hann og hlær dátt.
freyr@frettabladid.is
42 19. febrúar 2005 LAUGARDAGUR
Lárétt: 1 gamlar, 6 forföður, 7 átt, 8 ón-
efndur, 9 hag, 10 gerast, 12 traust, 14 sló,
15 ending, 16 tveir eins, 17 kvæðis, 18
lítil sneið.
Lóðrétt: 1 faðmur, 2 ónn, 3 sólguð, 4
legufærið, 5 kveikur, 9 virðing, 11 flík, 13
þyngdareining, 14 samkoma, 17 ármynni.
Lausn:
1
6 7
98
10
12 13
1514
16
18
17
11
2 3 4 5
á
899
kr
m
vsk
M
ANNLÍF
Febrúar 2005 2. tbl. 22.
árg. 899 kr. m.vsk.
EINN MEÐ
MÓÐURLAUSA
ÞRÍBURA
SVILA SLAG UR Í SAM FY
LK INGU SKOÐANAKÖNN
UN OG ÚTTEKT
FBI GEGN
LAXNESS
Mannlíf birt ir skjöl se
m ekki hafa birst áðu
r. Þau sýna að mál
Nóbelsskáldsins var á
borði J. Ed gars Hoov
er, for stjóra FBI.
BANKASTJÓRINN M
EÐ
BARNSANDLITIÐ
NÆRMYND AF BJARN
A ÁR MANNSSYNI
LEYNI
SKJÖL
SIGURÐUR H. GARÐ AR
SSON
SKIPSTJÓRI MISSTI EI
G INKONU
SÍNA FRÁ FIMM ÁRA B
ÖRN UM
VERTU UPPLÝSTUR
SJÓNVARPSMYNDIN A GIRL IN THE CAFÉ: HELJARINNAR ÞYRLUTÖKUM LAUK Í GÆR
Gaui litli gerist einkabílstjóri
Kvenlegar og smart kápur eru skemmtileg eign í kuld-anum sem aldrei virðist ætla að láta okkur í friði hér á
landi. Þó svo að stelpur séu dömulega klæddar þýðir það
ekki að þeim þurfi að vera kalt. Sætur trefill í fallegum lit
getur svo toppað þetta kvenlega og fallega útlit og einnig
smart húfa og vettlingar.
Reimuð stígvél eru að koma sterk inn núna. Það er ein-hver gamaldags og elegant stíll yfir þessu lúkki og reim-
uðu stígvélin eru geysilega flott við pils en passa einnig fínt
yfir þröngar buxur.
Bloc Party. Þeir eru kallaðirhinir nýju Franz Ferdinand
og eru ein heitasta hljómsveitin í dag. Þeir
spila skemmtilegt gítarrokk og platan þeirra Si-
lent Alarm sem kom út á mánudaginn hefur
fengið frábæra dóma. Þeir eru heitasta hljóm-
sveit Breta og þeir eru algjörir töffarar.
Támjóir skór. Það er langt síðan skór með rúnaðri tá komu heitirinn og þó svo að þessir geti svosum ennþá gengið þá eru þeir
ekkert flottir lengur og alls ekki heitir. Þetta eru sjálfsagt bara
ágætis fréttir fyrir margar tær sem hafa þurft að þola að
kremjast í támjóum skóm í allt of langan tíma. Rúnaða
táin er málið!
Litlar stelpur í ögrandi fötum. Hin slæmu áhrif semklæðaburður söngkvenna eins og Britney Spears og
Christina Aguilera hafa haft á ungar stelpur eru aldeilis
að koma í ljós núna. Verslanir selja lítil, þröng og
ögrandi föt á allt of ungar stelpur og þetta er þróun sem
er bókstaflega hræðileg. Foreldrar, ekki láta bjóða ykkur
þetta!
Þreytuvæl. Það er fátt leiðinlegra en að hlusta áfólk væla yfir því hvað það er þreytt og hvað lífið
er erfitt. Það að velta sér stanslaust upp úr þreyt-
unni er eitt og sér ekkert nema orkusuga. Hins veg-
ar er algört orkuskot að horfa björtum augum á líf-
ið og brosa til fólks!
INNI ÚTI
...fær Fatman Scoop fyrir að vera
loksins á leiðinni á Klakann.
HRÓSIÐ
Í tilefni af Vetrarhátíðinni er búið
að breyta Iðnó í Vetrarhöll. Á
laugardagskvöldið verður haldið
grímuball í Vetrarhöllinni Iðnó en
það er gamall draumur Margrétar
Rósu Einarsdóttur, staðarhaldara
í Iðnó.
„Okkur fannst tilvalið að slá til
út af Vetrarhátíðinni. Það er líka
ekki á hverjum degi sem boðið er
upp á grímuball fyrir fullorðna,“
segir Margrét Rósa og brosir út í
annað. Sjálf hefur hún ekki farið á
grímuball fyrir fullorðna síðan
hún var búsett í Noregi fyrir all-
mörgum árum. „Í Noregi fór ég
með samstarfsfólki mínu á grímu-
ball. Það var ógurlega gaman en
það kvöld var ég í búningi kattar-
konu.“ Margrét Rósa er ekki al-
veg búin að ákveða hvað hún ætl-
ar að vera á laugardaginn en það
er ýmislegt sem kemur til greina.
Hún segir að búningurinn verði
allavega litríkur. Á grímuballinu
verða að sjálfsögðu veitt verðlaun
fyrir besta búninginn og eru þau
ekki af verri endanum.
„Sá sem vinnur fær gjafabréf
fyrir fjóra á leiksýninguna Tenór-
inn og út að borða fyrir hópinn á
veitingastaðinn Tjarnarbakkann.
Það er því til mikils að vinna,“
segir hún og bætir við að bætt
verði við aukaverðlaunum ef
margir verða í glæsilegum og
framúrskarandi búningum.
Hljómsveitin Bardukha leikur
fyrir dansi frá klukkan tíu. Sveit-
in spilar exótíska tónlist með
tangóívafi svo dansfimir lands-
menn ættu að geta fundið sig á
dansgólfinu. Þegar líða tekur á
kvöldið tekur Andrea Jónsdóttir
við og mun hún leika stuðtónlist
fram eftir nóttu. Miðaverð er
1.500 krónur og er litríkur kokteill
innifalinn í því. - mmj
MARGRÉT RÓSA EINARSDÓTTIR STAÐARHALDARI Í IÐNÓ Er að gera sig klára fyrir
grímuballið.
Exótískt grímuball í Iðnó
Á KEFLAVÍKURVEGI Tökum á sjónvarpsmyndinni A Girl in the Café lauk á Keflavíkurvegi í gær.
GAUI LITLI Guðjón
Sigmundsson hefur
keyrt stjörnurnar Bill
Neigh og Jason Biggs.
Lárétt: 1fornar, 6afa, 7na, 8nn, 9akk,
10ske, 12trú, 14hjó, 15in, 16óó, 17
óðs, 18flís.
Lóðrétt: 1fang, 2ofn, 3ra, 4ankerið, 5
rak, 9akt, 11kjól, 13únsa, 14hóf, 17ós.
54-55 (42-43) Fólk 18.2.2005 21:11 Page 2