Fréttablaðið - 19.02.2005, Síða 22
Ryð
Djúpa rispa í lakkinu á bílnum getur valdið ryðskemmdum. Loka þarf fyrir rispur sem fyrst og er
jafnvel hægt að nota glært naglalakk til þess, þó best sé að fara með bílinn til fagmanns.[ ]
REYNSLUAKSTUR
Öryggis-
hurðir
B Í L S K Ú R S
OG IÐNAÐAR H U RÐ I R
Smíðað
eftir máli
Hurðir til
á lager
Eldvarnar-
hurðir
ÁRMÚLA 42 - SÍMI 553 4236
ALLT Á EINUM STAÐ
• HEILSÁRSDEKK
• OLÍS SMURSTÖÐ
• BÓN OG ÞVOTTUR
• HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA
• NAGLADEKK
• RAFGEYMAÞJÓNUSTA
• BREMSUKLOSSAR
• PÚSTÞJÓNUSTA
SBD, SÆTÚNI 4, SÍMI 562 6066
G. Tómasson ehf • Smiðjuvegi 8, Kópavogi
• sími: 577 6400 • www.hvellur.com
• hvellur@hvellur.com
NÝJASTA ÆÐIÐ!
Bifreiðastillingin ehf. • Smiðjuvegi 40d • Sími 557 6400
Vissir þú að 90% af sjálfskiptingum
bila vegna hitavandamála?
Láttu skipta um olíu og síu á sjálfskiptingunni.
Sjálfskiptingar, stillingar og alhliða viðgerðir.
Nýjungar í Ford Focus
Ford Focus hefur alltaf verið auðþekkjanlegur á götu.
Andlitslyftingin fylgir straumnum og gerir bílinn rennilegri en hann var áður.
Nýlega kynnti Brimborg nýjan Ford Focus. Í
hann hefur verið bætt ýmsum búnaði sem ekki
var í fyrirrennaranum, auk þess sem bíllinn
hefur fengið andlitslyftingu, ekki síst að innan.
Ford Focus hefur notið mikilla vinsælda frá því hann
kom fyrst á markað fyrir um sex árum. Það er ekki að
ástæðulausu því hér er á ferðinni einstaklega aðgengi-
legur og nýtilegur bíll, ekki síst fyrir fjölskyldufólk.
Það fyrsta sem vekur athygli þegar sest er inn í
nýja Focusinn er þægileg og að hluta rafstýrð sæta-
stilling. Sömuleiðis má stilla stýrið á handhægan hátt
þannig að á augabragði getur nýr ökumaður komið sér
fyrir eins og best er á kosið.
Mælaborðið allt, útvarp og miðstöð/loftkæling eru
aðgengileg og með látlausu útliti. Innréttingarnar í
bílnum eru raunar allar í látlausari kantinum en þó
massífari og með vandaðra yfirbragði en í fyrirrenn-
aranum.
Meðal þess sem vekur athygli í nýja Focusnum er
ESP-stöðugleikastýrikerfið og spólvörnin, sem er við-
bót miðað við eldri bílinn. Þetta eru eiginleikar sem
auka mjög á öryggi og gera Focusinn að áhugaverðum
kosti í sínum verð- og stærðarflokki. Upphituð sæti
eru staðalbúnaður í Focusnum nema í Ambiente bíln-
um og er hægt að stilla hitastigið eftir smekk hvers og
eins.
Reyndur var Trend-bíll, Wagon með 1,6 bensínvél.
Bíllin var skemmtilegur og ágætlega krafmikill og
sprækur. Rýmið í bílnum er gott, nóg pláss fyrir alla,
bæði fram í og aftur í, og farangursrýmið bæði stórt
og aðgengilegt.
Fjöldamargar útfærslur eru fáanlegar á Ford
Focus, sjálfskiptar og beinskiptar, bensín og dísil.
Verðið er frá 1.720.000 fyrir beinskiptan þriggja dyra
Ambiente með 1,4 vél upp í 2.710.000 fyrir Titanium
2,0 TDCi fimm dyra dísilbíl sem er beinskiptur sex
gíra.
steinunn@frettabladid.is
Báðir bílarnir hlutu hæstu
einkunn sem gefin hefur verið í
þessum flokki í árekstrarprófi
EuroNCAP eða 35 stig. Þeir jöfn-
uðu þar með Ford Focus en skutu
bílum eins og VW Golf (33 stig)
og Toyota Corolla (28 stig) aftur
fyrir sig.
Citroën C4 er í boði á frábæru
verði eða frá kr. 1.890.000 og er
einstaklega vel búinn og má þar
nefna ABS, 6 öryggispúða,
geislaspilara, upphituð sæti og
margt fleira. C4 Coupé er fáan-
legur í VTS sportútgáfu með 180
hestafla vél og C4 Saloon er fáan-
legur sjálfskiptur og með dísil-
vél.
Frá því Brimborg endurkynnti
Citroën-merkið hér á landi í lok
árs 2000 hefur stöðug aukning
verið á sölu og er Citroën nú ann-
að stærsta franska merkið hér á
landi. Nálægt 1.000 Citroën-bílar
hafa selst hér á landi og jókst
salan í fyrra um 45%.
Opið verður alla helgina frá kl.
11-17 og er frumsýnt á þremur
stöðum á landinu; í Reykjavík, á
Akureyri og í Reykjanesbæ.
Kaffi og kleinur fyrir alla. ■
Tvöföld frumsýning
Brimborg kynnir um helgina tvo nýja Citroën, sportútgáfuna
Citroën C4 Coupé og fjölskyldubílinn Citroën C4 Saloon.
Citroën er annar mest seldi franski bíllinn
hérlendis og jókst salan um 45% í fyrra.
Nýr Golf GTI
frumsýndur
HEKLA FRUMSÝNIR NÝJAN 200
HESTAFLA GOLF GTI.
Nýr Golf GTI verður til sýnis í húsa-
kynnum bílaumboðsins Heklu í dag.
Bíllinn er 200 hestafla og hefur hlotið
mikið lof víða og verið verðlaunaður.
Golfinn hefur verið í þróun í þrjátíu ár
og bíllinn sem sýndur verður er
nýjasta afurð fyrirtækisins.
Volkswagen hitti á réttan streng þeg-
ar VW Golf var fyrst kynntur til sög-
unnar árið 1974. Bíllinn sló strax í
gegn og hefur æ síðan verið mest
seldi þýski bíllinn.
Ambiente
Trend
Sport
Ghia
Titanium
FORD FOCUS
fæst í fimm útfærslum
24-25 (02-03) Allt bílar 18.2.2005 15.54 Page 2